Morgunblaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 23
MINNSTAÐUR
Kjalarnes | Íbúar á Kjalarnesi eru
margir ósáttir við að Íþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR)
hafi sagt upp samningum um leigu á
félagsheimilinu Fólkvangi, og telja
að með því sé verið að ganga gegn
samningi sem Reykjavíkurborg
gerði við íbúana þegar Kjalarnesið
var sameinað borginni árið 1997.
Símon Þorleifsson, formaður
Íbúasamtaka Kjalarness, segir að
samtökin hafi sent Reykjavíkurborg
skriflega fyrirspurn um hvers vegna
leigusamningnum hafi verið sagt
upp, sem samtökin telja klárlega
vera brot á sameiningarsamningn-
um. Símon segir að beðið verði eftir
svari borgarinnar áður en ákveðið er
hver næstu skref íbúa gætu orðið, en
íbúarnir telji að fleiri atriði séu farin
að stangast á við samninginn, og við
það verði ekki unað. Hann segir að
íbúarnir hafi áhuga á að Fólkvangur
verði menningarhús Kjalnesinga,
enda hafi þar ýmsir hópar og félög
haft aðsetur fyrir starfsemi sína.
Borgarstjóri hefur skipaðstarfs-
hóp sem á að fjalla um rekstur ein-
inga borgarinnar á Kjalarnesi, þar
með talið félagsheimilisins. Aðrar
einingar sem borgin rekur þar eru
t.d. grunnskóli, leikskóli, frístunda-
heimili, áhaldahús, íþróttahús og
sundlaug. Hópurinn hefur ekki enn
átt sinn fyrsta fund, en honum er
ætlað að skila áliti fyrir lok júní, seg-
ir Júlíus Sigurbjörnsson, deildar-
stjóri á fræðslumiðstöð Reykjavíkur,
og formaður starfshópsins.
Félagsheimilið Fólkvangur er að
meirihluta í eigu Reykjavíkurborg-
ar, en auk borgarinnar eiga nokkur
félagasamtök á Kjalarnesi hlut í hús-
inu, segir Hrólfur Jónsson, sviðs-
stjóri framkvæmdasviðs borgarinn-
ar. Hann segir að verið sé að skoða
hver framtíð hússins verði eftir að
ÍTR sagði upp leigusamningi. Hugs-
anlega sé hægt að selja húsið eða
finna því nýtt hlutverk, þótt það sé
alveg á hreinu að það verði ekki gert
nema í góðu samráði við aðra eig-
endur hússins.
ÍTR notaði aðeins hluta
undir sína starfsemi
ÍTR hefur hingað til leigt húsnæð-
ið allt, þótt það hafi aðeins verið not-
að að hluta undir starfsemina.
Leigusamningnum var sagt upp 22.
desember sl., með sex mánaða upp-
sagnarfresti sem lýkur fljótlega. Í
Fólkvangi hafa ýmis félagasamtök
fengið inni, svo sem kór, íbúasamtök,
skógræktarfélag og kvenfélag, auk
þess sem Fólkvangur hefur verið
miðstöð viðburða á Kjalarnesi á borð
við sumardaginn fyrsta og Kjalnes-
ingadaginn.
Spurður hvers vegna ÍTR hafi
sagt upp samningnum segir Ómar
Einarsson, framkvæmdastjóri ÍTR,
að verið sé að skoða þjónustu borg-
arinnar við Kjalnesinga í heild sinni í
vinnuhópi borgarstjóra. „Við höfum
hingað til verið að borga húsaleigu
fyrir allt þetta húsnæði og höfum
verið að velta því fyrir okkur hvort
við eigum að halda því áfram eða
reyna að komast með eitthvað af
okkar starfi inn í skólann.“
Segja borgina
brjóta samning
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Hlíðahverfi | Krakkarnir í 5.–7.
bekk Háteigsskóla nýttu leik-
listarhæfileika sína til þess að
undirstrika námsefni tengt ein-
elti, þegar þau settu upp leik-
ritið Ávaxtakörfuna á dögunum
fyrir skólafélaga sína. Leikritið
fjallar einmitt um einelti, en í
því lendir grænmeti óvart í
ávaxtakörfunni, og lendir í ein-
elti.
Háteigsskóli er svokallaður
móðurskóli í notkun á leiklist í
kennslu, og er þar unnið braut-
ryðjendastarf á því sviði. Ása
Ragnarsdóttir, leiklistarkennari
í skólanum, segir að leiklistin sé
notuð óspart við kennslu, og
nýtist nemendunum að sínu
mati vel til þess að festa náms-
efnið í minni með skemmtilegri
aðferð.
„Þetta gekk rosalega vel, það
heyrðist ekki múkk í áhorfend-
um, þau voru alveg agndofa,“
segir Ása. Hún segir leiklistina
góða aðferð fyrir krakka að
skapa, öðlast sjálfstæði og njóta
þess að vera til, og ekki sé verra
að hægt sé að tvinna þetta sam-
an við námsefnið með þessum
hætti.
„Við notum mikið leiklist inni
í námsefninu, við notum leiklist
til þess að skerpa og dýpka
námsefnið og festa það betur í
minni. Það af námsefninu sem
börnin upplifa í gegnum leik-
listina finnst mér að þau muni
betur,“ segir Ása.
Morgunblaðið/Golli
Leikarar 15 nemendur tóku þátt í uppfærslu Háteigsskóla á Ávaxta-
körfunni og voru sýningar fyrir bæði nemendur og forráðamenn.
Nota leiklistina til
að auka skilning
Hafnarfjörður | Hreinsunardagar
hefjast í Hafnarfirði í dag, fimmtu-
dag, og standa fram til 24. maí. Íbú-
ar eru hvattir til þess að hreinsa til í
görðum sínum og fyrirtæki til þess
að snyrta lóðir sínar, og munu
starfsmenn Hafnarfjarðar fara á
milli og taka lífrænan úrgang frá
íbúum. Hægt verður að fá verkfæri
lánuð hjá vinnuskóla Hafnarfjarðar
til að taka ærlega til hendinni.
Til þess að koma átakinu af stað
hjálpuðust þeir Lúðvík Geirsson
bæjarstjóri og sr. Gunnþór Inga-
son, sóknarprestur í Hafnarfjarð-
arkirkju, sig til og hreinsuðu læk-
inn fyrir framan Hafnarfjarðar-
kirkju, enda ekki vanþörf á að
snyrta nágrennið eftir veturinn.
Tekið til hendinni á
hreinsunardögum
Samstarf bókasafna | Bókasöfn-
in í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi
og Álftanesi hafa tekið upp sam-
starf, og geta nú handhafar skírtein-
is í einu safnana nýtt sér þjónustu
safna í öllum bæjarfélögunum. Árs-
gjald ákvarðast af því sveitarfélagi
sem viðkomandi á lögheimili í, en út-
lánaskilmálar miðast við það bóka-
safn sem sótt er hverju sinni. Söfnin
eru samtals fimm, eitt í hverju
bæjarfélagi, utan Kópavogs þar sem
útibú er í Lindarsafni.
REINHARD Reynisson bæjarstjóri
á Húsavík sagðist fagna þeirri af-
stöðu sem Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri á Akureyri hefur tekið
varðandi stóriðjumál á Norðurlandi.
„Ég lít á þannig á að þessi afstaða sé
til marks um vaxandi samstöðu varð-
andi framgang þessa verkefnis og
það skiptir máli,“ sagði Reinhard í
samtali við Morgunblaðið. Eins og
fram kom í blaðinu í gær hefur bæj-
arstjórinn á Akureyri varpað fram
þeirri hugmynd að Húsavík og ná-
grenni verði fyrsti kostur fyrir álver
á Norðurlandi og Dysnes í Eyjafirði
komi þar á eftir.
Gísli Gunnarsson, forseti bæjar-
stjórnar Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar, sagði Skagfirðinga ætla að
vera með í umræðunni um stóriðju,
enda væru iðnaðarlóðir á skipulagi í
Skagafirði ekki síðri kostur en í
Eyjafirði eða við Húsavík. Hann
sagði að Eyjafjörður og Húsavík
hefðu verið lengur í umræðunni og
þá sérstaklega Eyjafjörður „en ég
held að Skagafjörður sé ekki síðri
kostur og við ætlum að taka þátt í
þessum slag. En það eru þeir sem
reisa sem ákveða staðsetninguna en
ekki bæjarstjórar,“ sagði Gísli.
Kristján Þór kom jafnframt inn á
það ef einhverjir annmarkar kæmu í
ljós varðandi Húsavík, við nánari
skoðun fjárfestis á verkefninu, kæmi
Dysnes í Eyjafirði sem næsti kostur.
Reinhard sagði að þetta væri alltaf
spurning um það hvað fjárfestar
horfðu á. „Stóra málið núna er að
samfélag á svæðinu marki þá skil-
mála sem stóriðjuuppbygging á að
lúta. Það er ekki þannig að fjárfestar
ráði hvað þeir gera og hvar þeir gera
það. Verkefnin hafa orðið til í sam-
starfi aðila á viðkomandi stöðum,
stjórnvalda, orkuöflunarfyrirtækja
og svo fjárfesta. Við þurfum að skil-
greina það á þessu svæði hversu
stóra stóriðju við viljum sjá, hvað
teljum við skynsamlegt út frá orku-
öflunarþættinum, þörf á uppbygg-
ingu flutningsmannvirkja og annað
slíkt. Þetta útspil er gott innlegg í
það að menn fari að tala sameigin-
lega um þá hluti. Það eru einhverjir
skilgreindir kostir í boði en það er
svo ákvörðun fjárfestis hvort hann
vill fjárfesta í einhverjum af þeim
kostum,“ sagði Reinhard.
Margir kostir í Skagafirði
Einnig hefur verið rætt um stór-
iðju í Skagafirði en Kristján Þór
taldi þá annmarka á þeirri staðsetn-
ingu að skiptar skoðanir væru innan
sveitarstjórnar í Skagafirði um mál-
ið. Hann sagði jafnframt að ef rík-
isvaldið legði áherslu á það mætti
skoða Skagafjörð sem þriðja kost.
Gísli sagði að það væru alls staðar
á Norðurlandi skiptar skoðanir um
álver, líka í Eyjafirði. „En það er
meirihluti fyrir því að vilja slíkt í
Skagafjörð, hvort sem allir eru
ánægðir með það eða ekki en eitt-
hvað verða menn að hafa. Kosturinn
við Skagafjörðinn er að við höfum
virkjunarmöguleika sem Eyfirðing-
ar hafa ekki. Það væri miklu einfald-
ara að flytja rafmagn í Skagafjörð
frá Blöndu og Skatastaðarvirkjun.
Þannig að hér eru ýmsir kostir sem
menn fyrir austan okkur hafa ekki
skoðað vel,“ sagði Gísli.
Fagnar útspili Kristjáns Þórs
Er til marks um
vaxandi samstöðu
Skagfirðingar ætla líka að vera með
UM 140 manns mættu á stofnfund
Nýs afls á Norðurlandi, sem haldinn
var á Hótel KEA í fyrrakvöld og
skrifuðu um 100 manns sig í stofn-
skrá félagsins á fundinum. Sam-
þykktir félagsins voru samþykktar
samhljóða og 10 manna stjórn, skip-
uð 5 körlum og jafnmörgum konum,
var kjörin með lófataki. Fjölmörg
erindi voru flutt á fundinum en á
meðal framsögumanna voru Smári
Geirsson, forseti bæjarstjórnar í
Fjarðarbyggð og Einar Rafn Har-
aldsson sem var í forsvari fyrir Afl
fyrir Austurland. Þeir gerðu grein
fyrir þeirri baráttu sem háð er fyrir
austan, m.a. hversu mikilvæg sam-
staða heimamanna væri og hversu
gríðarlegar breytingar hafi orðið á
svæðinu. Smári sagði að 15. mars
2003 þegar skrifað var undir samn-
inga um byggingu álvers á Reyðar-
firði, væri dagurinn sem hefði breytt
Austurlandi. Eftir erfiða tíma hefði
hugarfar íbúa breyst, framkvæmda-
hugur verið mikill og að menn hefðu
fengið trú á framtíðina. Þessu hefðu
þó líka fylgt vaxtarverkir, vinnuafls-
skortur, ruðningsáhrif, mikið rask,
örar samfélagsbreytingar og einnig
hefði breytingin haft áhrif á jaðar-
byggðir.
Smári sagði að barátta fyrir álveri
væri langtímaverkefni. Samtaða
heimamanna væri nauðsynleg og
ekki síst meðal sveitarstjórnar-
manna en að andstæðingar stór-
iðjuframkvæmda myndu reyna að
sundra þeirri samstöðu. Einar Rafn
sagði að ekki mætti fara of geyst
fram og að sjálfur hefði hann mis-
stigið sig á þeim vettvangi fyrir
austan. Hann sagði að í baráttunni
fyrir álveri á Reyðarfirði hefðu
Austfirðingar sameinast í fyrsta
skipti í manna minnum. „Ég veit
ekki hvenær það gerist aftur. Auð-
vitað voru einhverjir á móti en þeir
voru mun færri og urðu undir.“
Tilgangur hins nýja félags er að
stuðla að uppbyggingu stóriðju á
Norðurlandi og að vatnsgufuafl á
Norðurlandi verði nýtt og beislað í
því skyni. Félagið leggur höfuð-
áherslu á að kynna kosti Eyjafjarðar
sem heppilegs staðar fyrir stóriðju.
Framhaldsstofnfundur var haldinn á
Siglufirði í gærkvöld og þriðji stofn-
fundurinn verður svo haldinn á Dal-
vík í kvöld.
Morgunblaðið/Kristján
Stofnfundur Húsfyllir var á stofnfundi Nýs afls á Norðurlandi, sem haldinn var á Hótel KEA á Akureyri.
Fjölmennur stofnfundur Nýs afls á Norðurlandi
Samstaða heimamanna mikilvæg
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is