Morgunblaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 45 DAGBÓK Góð þjónusta eftir langa bið ÉG var einn af þeim sem biðu og biðu eftir „þræðingu“. Ég hef farið reglu- lega undanfarin 10 ár til hjartalæknis og ávallt fengið góða skoðun þangað til sl. haust. Ég var þó einkennalaus þegar ég fór í skoðun um miðjan október sl., en engu að síður komu fram þrengingareinkenni í kransæð og var ég þá settur á biðlistann til að hægt yrði að skoða kransæðarnar nánar. Ég fór síðan í þræðingu viku af maí sl. en hafði þó fengið tíma mán- uði fyrr sem ég gat ekki notað vegna þess að ég var lasinn. Viðmót hjúkrunarfólksins, bæði við undirbúning og sjálfa aðgerðina, var til fyrirmyndar og ekki gat ég fundið fyrir því að neinn væri að flýta sér eða afgreiða málin með yfirborðs- kenndum hætti. Öðru nær, hver og einn starfsmaður lagði sig fram um að sýna nærgætni og hlýju, enginn skar sig úr. Ég vil með þessum línum þakka fyrir góða þjónustu eftir langa bið. Einn úr biðröðinni. Hver man eftir mér? ÉG heiti Peter Brooks og var skip- verji á „Hera Borg“ fyrir u.þ.b. 10 ár- um. Ég er að leita að einhverjum sem man eftir mér. Vélstjórinn hét Rúnar Johannsson úr Reykjavík og svo var Dan Johanson eigandi. Einnig leita ég að Siggy Thoren- stein og Eddu sem voru nágrannar mínir í Pompano Beach á Flórída. Vonast ég til að heyra frá ein- hverjum. Vinsamlega skrifið á netfangið: pete010@adelphia.net „Det døenda barn“ MIG vantar íslenska þýðingu á lagi eftir H.C. Andersen „Det døende barn“. Þetta á að vera til með ís- lenskri þýðingu, líklega undir nafninu Móðurmissir eða Deyjandi barn. Þeir sem gætu liðsinnt mér eru beðnir að hafa samband við Eyrúnu í síma 587 3335 eða Bryndísi í síma 424 6548. GSM-sími týndist NÍU ára telpa tapaði GSM- myndavélarsíma, Motorola, í íþrótta- húsinu eða sundlauginni á Seltjarn- arnesi um síðustu mánaðamót (30. apríl). Finnandi vinsamlegast hringi í síma 562 2236 eða 862 2236. Fund- arlaun. Páfagaukur í óskilum GÁRI, gulgrænn, fannst við Súð- arvog í Reykjavík 6. maí sl. Upplýs- ingar í síma 698 6318. Nala er týnd NALA týndist 12. maí frá heimili sínu á mótum Garðabæjar og Hafn- arfjarðar. Hún er blanda af Chihua- hua og Pommerain og hún varð eins árs 13 maí. Hennar er sárt saknað. Þeir sem hafa orðið varir við hana eru beðnir að hafa samband í síma 554 6220 eða 899 6230 eða þá að láta lögregluna vita. Fundarlaun. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is BRÚÐKAUP | Gefin voru saman 19. mars sl. í Dómkirkjunni af sr. Vigfúsi Þór Árnasyni þau Berglind Guð- mundsdóttir hjúkrunarfræðinemi og Sigurður Þór Snorrason viðskipta- fræðingur. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Cavendish. Norður ♠KD2 ♥108732 ♦1085 ♣G2 Vestur Austur ♠Á5 ♠103 ♥Á5 ♥D964 ♦ÁDG43 ♦K762 ♣D964 ♣1053 Suður ♠G98764 ♥KG ♦9 ♣ÁK87 Spilið að ofan er frá Cavendish-tví- menningnum í Las Vegas fyrr í mán- uðinum. Spánverjinn Juan Ventin var í suðursætinu, sagnhafi í fjórum spöð- um, sem vestur doblaði eftir að hafa meldað einu sinni tígul. Útspilið var hjartaás, en síðan skipti vestur rétti- lega yfir í spaðaás og meiri spaða. Hvernig myndi lesandinn spila? Þetta stefnir í einn niður, því ekki er hægt að stinga nema eitt lauf í borði og hvergi annars staðar er slag að hafa. Fyrirfram virðist eina vonin sú að sami mótherji sé með D109 í laufi, en þá fríast áttan. Ventin taldi það langsóttan mögu- leika og ákvað að leggja snöru fyrir vestur. Hann fór heim á hjartakóng og spilaði litlu laufi undan ÁK að gos- anum í borði! Og vestur lét veiða sig og dúkkaði. Sem virðist fráleitt á opnu borði, en vestur bjóst frekar við að suður ætti Á10xx og þá kostar slag að rjúka upp með drottninguna. Og það munar um hvern „doblaðan dán- inn“. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dag- bok@mbl.is ÍTALSKI listfræðingurinn og sýn- ingarstjórinn Achille Bonito Oliva verður hér á landi næstu daga á veg- um ítalska sendiráðsins. Achille Bonito Oliva er á seinni ár- um þekktastur fyrir að hafa verið sýningarstjóri tvíæringsins í Fen- eyjum 1993 en hann hefur starfað sem sýningarstjóri, safnstjóri og fleira og hefur skrifað fjölda bóka og ritgerða um listfræðileg málefni. Í heimsókn sinni til Íslands mun hann m.a. eiga fund með fulltrúum menntamálaráðuneytisins um tvíær- inginn í Feneyjum og haldinn verður opinn fundur í SÍM-húsinu, Hafn- arstræti 16, á morgun kl. 16.00. Þar mun Oliva ræða um myndlistarheim- inn nú á tímum og svara fyr- irspurnum. Fundurinn er sem fyrr segir opinn öllu áhugafólki um myndlistarmál. Opinn fundur í SÍM-húsinu Álaugardaginn verður mikið um að vera áFákssvæðinu í Víðidal en þá fer framUngmennatöltmót KB banka og Fáks. Mótið er fyrir 17 ára og yngri og er opið öllum félögum á landinu. Keppt verður í sex aldurs- og styrkleikaflokkum 17 ára og yngri. Þátttökugjald er kr. 1.500 og verður sama upp- hæð lögð inn á reikning hvers þátttakanda í útibúi KB banka í Árbæ en auk þess fá þátttakendur sem koma í Árbæjarútibú flísvettlinga frá KB banka um leið og inneign er staðfest. Hulda Gústafsdóttir hestakona hefur yfirum- sjón með mótinu og hún segir að mótið sé einnig hugsað sem fjölskylduhátíð. „Á laugardaginn verður mikið fjör fyrir alla fjölskylduna. Það verða til dæmis grillaðar pylsur. Yngri börnin fá að prófa líka og verða teymd á hestum um svæð- ið.“ segir Hulda um dagskrána á laugardaginn. En hvað er svona skemmtilegt við hesta- mennskuna? „Hestaíþróttin er fjölskylduíþrótt þar sem saman koma kynslóðir með sama áhuga- mál. Það hefur oft gerst að börnin byrja og for- eldrarnir fá áhugann svo í kjölfarið.“ segir Hulda um íþróttina og áhugamálið. Hulda hefur mikla reynslu af hestamennsku en hún er atvinnuhesta- kona, hestaútflytjandi, reiðkennari og mikil keppnismanneskja. Hún er einmitt nýkrýndur Reykjavíkurmeistari frá því um síðustu helgi. Það er mikið um að vera hjá hestafólki þessa dagana. Keppnistímabilið er að fara í gang og um þarnæstu helgi, dagana 26.–29. maí, verður opið gæðingamót í Fáki. Auk mótanna er alltaf eitt- hvað að gerast hjá félaginu, til dæmis óvissuferð- ir, kvennareið, sérstakar ferðir fyrir unglingana, sumarferðir, æskulýðsdagar og fleira. Fyrir börn og unglinga sem stunda hestamennsku er fleira í boði. Á veturnar eru námskeið fyrir börn og ung- linga sem eiga hesta. Í sumar geta börn, sem eiga ekki hesta sjálf, farið á reiðnámskeið eins og und- anfarin ár. Hulda bendir að lokum á nýjung sem verður á mótinu um helgina en þar verða keppendur tryggðir af VÍS en að sögn Huldu hefur þetta ekki verið gert á þennan hátt áður. Ungmennatöltmót KB banka og Fáks verður laugardaginn 21. maí og hefst kl. 13.30 á Fáks- svæðinu í Víðidal. Skráning fer fram í Árbæj- arútibúi KB banka frá kl. 9.15–16 virka daga fram að móti og í Fáksheimilinu frá kl. 12–13 mótsdag- inn sjálfan. Íþróttir | Ungmennatöltmót KB banka og Fáks Skemmtun fyrir alla fjölskylduna  Hulda Gústafsdóttir varð stúdent frá MR 1986 og var nemandi í viðskiptafræðideild HÍ 1986–91. Auk þess að vera reiðkennari og hestaíþróttadómari hefur hún verið at- vinnuhestamaður frá 1991. Hulda er tvöfald- ur Norðurlandameist- ari, varð í 2. sæti á HM 1995, margfaldur Íslandsmeistari, hestaíþróttakona ársins 1998 og Reykjavíkurmeistari í ár. Hulda er gift Hinriki Bragasyni og þau eiga tvö börn, Eddu Hrund f. 1992 og Gústaf Ásgeir f. 1996. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Sumartilboð 15% afsláttur af öllum kjólum stuttum og síðum               
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.