Morgunblaðið - 19.05.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 19
ERLENT
London. AFP. | Breski þingmaðurinn
George Galloway sneri vörn í sókn er
hann kom fyrir bandaríska þing-
nefnd til að svara ásökunum um, að
hann hefði tekið við mútum frá Sadd-
am Hussein, fyrr-
verandi Íraksfor-
seta. Eru flest
dagblöð sammála
um það.
Galloway lét
ekkert upp á sig
standa er hann
kom fyrir nefnd-
ina, sem rannsak-
að hefur ýmislegt
misferli varðandi
þá áætlun Sameinuðu þjóðanna að
leyfa stjórn Saddams að selja olíu
fyrir lyfjum og mat.
„Þannig átti þetta ekki að vera,“
sagði í breska blaðinu Daily Mirror.
„Þegar Daníel lenti í ljónagryfjunni,
lét hann það vera að auðmýkja og
hrella ljónið. Það var þó einmitt það,
sem Galloway gerði í Washington.
Hann varði sig ekki aðeins, heldur
vísaði hann ásökununum heim til
föðurhúsanna.“
Mirror sagði, að bandarísku
nefndinni hefði sviðið mest undan
þeim orðum Galloways, að hann
hefði aðeins tvisvar farið til Íraks,
jafnoft og Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, sem
hefði hitt Saddam tvisvar á níunda
áratugnum í því skyni að selja hon-
um vopn.
„Breskur þingmaður hæðist að
öldungadeildarmönnum“ var fyrir-
sögnin í stórblaðinu The New York
Times.
Galloway
sneri vörn
í sókn
George Galloway
Antonio Villaraigosa var í gær kjörinnborgarstjóri Los Angeles. Þetta er ífyrsta skiptið í meira en 130 ár semmaður af rómönskum uppruna er kjör-
inn æðsti embættismaður þessarar næstfjölmenn-
ustu borgar Bandaríkjanna.
Villaraigosa, sem er 52 ára, lýsti yfir sigri þegar
um 82% atkvæða höfðu verið talin. Þá hafði hann
fengið 59% atkvæðanna en keppinautur hans,
James Hahn, sem sóttist eftir endurkjöri, 41%.
Úrslitin höfðu ekki verið formlega staðfest en
öruggt þótti að Villaraigosa hefði sigrað. Hahn
hringdi í hann um klukkan sjö að íslenskum tíma í
gærmorgun og óskaði honum til hamingju með
sigurinn. Kjörsóknin var lítil, um 30%.
„Ég mun aldrei gleyma uppruna mínum. Ég
ætla mér að vera borgarstjóri sem leggur sig allan
fram á degi hverjum ykkar vegna,“ sagði
Villaraigosa er hann fagnaði sigri.
Ólíkur uppruni
Hann er sonur innflytjenda frá Mexíkó og hætti
námi í framhaldsskóla sem hann sótti í fátækra-
hverfi í austurhluta borgarinnar. Aðstæður á
heimilinu voru erfiðar m.a. vegna drykkjusýki
föðurins. Síðar vann Villaraigosa fyrir sér með
námi og lauk lögfræðiprófi. Hann hefur m.a. verið
forseti þings Kaliforníu en sinnt borgarmálum að
undanförnu.
Keppinautur hans, James Hahn, var á hinn
bóginn fulltrúi hinnar auðugu og valdamiklu, póli-
tísku yfirstéttar Los Angeles. Faðir hans var ára-
tugum saman háttsettur innan borgarkerfisins.
Í Los Angeles búa um 3,7 milljónir manna. Nú
er svo komið að 46,5% íbúanna rekja uppruna sinn
til Rómönsku-Ameríku. Hins vegar hefur maður
af því bergi brotinn ekki verið borgarstjóri í meira
en 130 ár eða frá því að Cristobal Aguilar lét af
embætti árið 1872. Þá bjuggu tæplega 6.000
manns í Los Angeles. Sitjandi borgarstjóri hefur
jafnan náð endurkjöri frá árinu 1933. „Ég hefði
betur gortað mig meira af afrekum mínum,“ sagði
Hahn þegar ósigurinn blasti við.
Baráttan um borgarstjóraembættið var afar
hörð að þessu sinni. Hins vegar tókust þessir
sömu menn á um embættið í síðustu kosningum
árið 2001 en þá fór Hahn með sigur af hólmi eftir
að hafa tryggt sér mikinn stuðning í röðum
blökkumanna (sem eru um 11% íbúanna). Í þetta
skiptið var Hahn í vörn bróðurpart kosningabar-
áttunnar og þurfti m.a. að bregðast við ásökunum
um óeðlilegar fjármögnunaraðferðir sem virðast
hafa skaðað hann. Raunar vændi hann Villarai-
gosa um hið sama enda slíkar ásakanir viðteknar í
bandarískum stjórnmálum.
Lögðu áherslu á aukna löggæslu
Frambjóðendurnir tilheyra báðir Demókrata-
flokknum og báðir lögðu áherslu á að brugðist
yrði við þeim margháttaða félagslega vanda sem
þjakar íbúa Los Angeles. Þeir lögðu ríka áherslu á
mikilvægi þess að auka löggæslu og hindra glæpa-
starfsemi auk þess sem viðbrögð við meintri spill-
ingu af ýmsum toga voru þeim ofarlega í huga.
Villaraigosa sótti hart að Hahn sökum þess síðast-
nefnda en á vettvangi alríkisstjórnarinnar stend-
ur nú yfir rannsókn á ýmsum verkefnum sem
borgin hefur samið við um verktaka og þykja
byggjast á vafasömum samningum. Hins vegar
hefur Hahn ekki verið bendlaður persónulega við
þetta fyrirkomulag.
Þá kvarta íbúar Los Angeles undan aukinni
spennu í samskiptum kynþátta, kæfandi mengun,
glæpatíðni, húsnæðisskorti og viðvarandi umferð-
artöfum á hraðbrautum borgarinnar sem nær yfir
gífurlega stórt landsvæði. Skólakerfið þykir held-
ur óskilvirkt og erfitt í rekstri enda tala börnin
sem þangað sækja menntun sína 92 ólík tungumál
á heimilum sínum. Viðlíka fjölbreytileiki hvað
þetta varðar þekkist tæpast í heimi hér.
Fjármál borgarinnar þykja hins vegar í góðu
horfi.
Sigur Villaraigosa er hafður til marks um þá
breytingu sem orðið hefur í Los Angeles nú þegar
rétt tæpur helmingur íbúanna rekur rætur sínar
til landa Rómönsku Ameríku. Hann þykir því um
leið til vitnis um síaukinn skriðþunga þessa þjóð-
félagshóps í bandarískum stjórnmálum.
„Ég hef sagt að ég kunni að verða sá fyrsti en
ég verð ábyggilega ekki sá síðasti,“ sagði
Villaraigosa m.a. er hann ræddi framboð sitt.
„Ábyggilega ekki sá síðasti“
Sonur fátækra innflytjenda frá Mexíkó kjörinn borgarstjóri Los Angeles
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Reuters
Antonio Villaraigosa þykir eiga svo auðvelt með
að ná til kjósenda að hæfileikar hans á því sviði
eru taldir jaðra við að teljast „clintonískir“.