Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 34
Þorsteinn H. Gunnarsson:
Nauðsynlegt er að ræða þessi
mál með heildaryfirsýn og
dýpka umræðuna og ná um
þessi málefni sátt og með hags-
muni allra að leiðarljósi, bæði
núverandi bænda og fyrrver-
andi.
Dr. Sigríður Halldórsdóttir:
Skerum upp herör gegn heim-
ilisofbeldi og kortleggjum þenn-
an falda glæp og ræðum vanda-
málið í hel.
Svava Björnsdóttir: Til þess
að minnka kynferðisofbeldi
þurfa landsmenn að fyrirbyggja
að það gerist. Forvarnir gerast
með fræðslu almennings.
Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræð-
isþróun á Íslandi hefur, þrátt
fyrir allt, verið til fyrirmyndar
og á að vera það áfram.“
Pétur Steinn Guðmundsson:
„Þær hömlur sem settar eru á
bílaleigur eru ekki í neinu sam-
ræmi við áður gefnar yfirlýs-
ingar framkvæmdavaldsins, um
að skapa betra umhverfi fyrir
bílaleigurnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöðunni
er að láta TR ganga inn í LHÍ
og þar verði höfuðstaður fram-
halds- og háskólanáms í tónlist í
landinu.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
34 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞEGAR Alþýðuflokkurinn stóð und-
ir nafni, átti þjóðin öruggan mál-
svara. Svo komu menn sem ekki
vissu mátt sam-
stöðunnar. Þeir
skildu ekki að ef
flokkurinn missti
traust, gerðu
þeir það líka.
Hagsmunapoti
þeirra svaraði
fólkið á viðeig-
andi hátt. Jón
Baldvin rak svo
endahnútinn á
ófarirnar með matarskattinum og
öðrum leiðindum. Þar með voru
jafnaðarmenn rúnir trausti og nafn-
ið Alþýðuflokkur ónýtanlegt. Nú er
snjallt fólk farið að átta sig á því, að
það má spila á þjóðarsálina og hagn-
ast vel án þess þó að gera viðunandi
gagn. Það sést víða, líka hjá þeim
sem nú ráða R-listanum. Á þeim bæ
er hugsunarleysið um hagsmuni
aldraðra og fatlaðra augljóst. Nú-
verandi borgarstjóri er jafnvel erf-
iðari þessu fólki en Sólrún var.
Hennar fyrsta verk var að hækka
gjöld með ferðaþjónustu fatlaðra um
helming og stórhækka gjöld fé-
lagsþjónustu, sem frekar átti að fella
niður. Sólrún stórlækkaði kaup
skúringakvenna, en Valdís knýr
stjórn félagsþjónustunnar til að fá
meiri vinnu út úr illa launuðu þjón-
ustufólkinu, sem bitnar svo á skjól-
stæðingum. Borgarbúar þurfa því að
athuga vel sinn gang, því R-listinn er
ekki sá manneskjulegi flokkur sem
búist var við. Sjálfstæðisflokkurinn
getur ekki verið verri. Ég mun frek-
ar kjósa hann. Aldrei aftur R-
listann. Á landsfundi Samfylking-
arinnar 20. eiga allir sem hafa skiln-
ing á slæmum kjörum þeirra stétta
sem verst eru leiknar, mikið undir
að vel takist. Ef Sólrún sigrar og fær
sér hliðhollan varaformann gef ég
ekki mikið fyrir jafnréttið í flokkn-
um. Því skora ég á Jóhönnu Sigurð-
ardóttir að gefa kost á sér sem vara-
formaður. Hún hefur mest
þjóðarfylgi, en innanbúðarklíkan er
einslit. ESB þráhyggja margs sam-
fylkingarfólks, er Akkelesarhæll.
Jóhanna metur þjóðarhagsmuni um-
fram útlenda, og hafnar ESB-aðild.
Hún vill að við getum sjálf ráðið
hvaða þjóðir við semjum við um gjör-
valla hagsmuni okkar. Hún er því
eina manneskjan sem getur verið
þjóðinni og Samfylkingunni trú sem
varaformaður. Enginn annar getur
varið jafnvægið, því bæði Sólrún og
Össur eru ESB-sinnar. Það væru
mikil afglöp að hafna Jóhönnu, ef hún
gefur kost á sér.
ALBERTI JENSEN
Sléttuvegi 3, Reykjavík.
Jóhönnu í varaformannssætið
Frá Alberti Jensen:
Albert Jensen
ÞAÐ BER að fagna þeirri ákvörðun
Ágústs Ólafs Ágústssonar að bjóða
sig nú fram til varaformennsku í
Samfylkingunni.
Ágúst er frjáls-
lyndur jafn-
aðarmaður sem
býr yfir ríkum
skipulags- og
stjórnunarhæfi-
leikum. Hann
hefur lag á að
skapa frið í
kringum störf
sín og virðist frá-
hverfur pólitískum hráskinnaleik og
æsingum en lætur hugsjónir og
langtímahagsmuni flokksins stýra
ferðinni. Það skiptir miklu máli fyr-
ir framtíð hreyfingar jafnaðar-
manna á Íslandi að einmitt núna
veljist til varaformennsku ein-
staklingur sem býr yfir eiginleikum
og styrk Ágústs Ólafs. Það væri að
mínu mati gæfuspor fyrir flokkinn
að velja ungan og hæfileikaríkan
mann í embætti varaformanns
mann, sem getur orðið tákn um eðli-
lega endurnýjun í forystusveit
flokksins.
G. ÁGÚST PÉTURSSON,
formaður félagsins „Jafn-
aðarmenn í atvinnurekstri“.
Styðjum Ágúst Ólaf til vara-
formennsku í Samfylkingunni
Frá G. Ágústi Péturssyni:
G. Ágúst Pétursson
ÞAÐ var mikil gleði á Suð-
urnesjum þegar Norðurál, Reykja-
nesbær og Hitaveita Suðurnesja
undirrituðu vilja-
yfirlýsingu um að
skoða hagkvæmni
þess að reisa álver í
Helguvík. Við Suð-
urnesjamenn höfum
fylgst með nokkrum
iðnaðarráðherrum
vinna að því að fá ál-
ver á Keilisnes en án
árangurs þrátt fyrir
að aðstæður hafi ver-
ið taldar hagkvæmar
og aðgangur að
vinnuafli og orku
góður.
Iðnaðarráðherra
Norðurlands
Sá iðnaðarráð-
herra er nú situr,
Valgerður Sverr-
isdóttir, lýsti því yfir
að ekki væri tilefni
til að fagna yfirlýs-
ingu þess efnis að ál-
ver eigi að rísa ann-
ars staðar en á
Norðurlandi. Í sjón-
varpsviðtali á Stöð 2 sagði ráð-
herrann orðrétt: „Stjórnvöld munu
áfram vinna að því að álver rísi á
Norðurlandi“ og „Vonast til að
samkomulagið þrýsti á Norðlend-
inga til að sýna nauðsynlega sam-
stöðu.“ Þessi viðbrögð iðn-
aðarráðherra eru með ólíkindum.
Að ráðherra allrar þjóðarinnar
skuli ekki treysta sér til að vinna
að uppbyggingu iðnaðar í öðrum
kjördæmum en sínu eigin. Einnig
lætur ráðherra hafa eftir sér að
fyrir sé álver á svæðinu en það
rétta er að ekkert álver er fyrir í
Suðurkjördæmi.
Það reynir oft mikið á þá þing-
menn sem veljast til að gegna
embætti ráðherra þegar aðskilja
þarf málefni eigin kjördæmis og
heildarhag þjóðarinnar. Iðn-
aðarráðherra virðist
hafa kolfallið á þessu
prófi og gleymt sér í
kjördæmapoti fyrir
Norðurland í stað þess
að fagna allri uppbygg-
ingu iðnaðar í landinu
óháð staðsetningu. Í
lögum um ráðherra-
ábyrgð kemur fram að
ráðherra sé óheimilt að
misbeita valdi sínu og
hlýtur það að vera um-
hugsunarefni hvort þau
lög séu brotin þegar
ráðherra vinnur gegn
uppbyggingu iðnaðar
þegar hann telur það
koma niður á tækifær-
um eigin kjördæmis.
Ráðherra biðjist
afsökunar
Á meðan sveit-
arstjórnarmenn á Suð-
urnesjum vinna að at-
vinnuuppbyggingu
nýtir Valgerður krafta
iðnaðarráðuneytisins til
uppbyggingar stóriðju í sínu eigin
kjördæmi.
Valgerður fer með iðnaðarmál í
ríkisstjórn Íslands. Hún hlýtur að
fagna samkomulagi einkaaðila um
hagkvæmnisathugun iðnaðar-
uppbyggingar alls staðar á land-
inu. Hún hlýtur að skulda Suð-
urnesjamönnum afsökunarbeiðni
vegna ummæla sinna.
Valgerður sýnir
Suðurnesjamönn-
um óvirðingu
Viktor B. Kjartansson
gagnrýnir iðnaðar- og
viðskiptaráðherra
Viktor B. Kjartansson
’Iðnaðarráð-herra virðist
hafa kolfallið á
þessu prófi og
gleymt sér í
kjördæmapoti
...‘
Höfundur er formaður fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ
viktorbk@hotmail.com
SAMFYLKINGIN
hefur alla burði til að
verða fjöldahreyfing,
en kannanir segja
okkur að rúm 30%
þjóðarinnar styðji
flokkinn um þessar
mundir. Nú þurfum
við að bretta upp erm-
ar og gera flokkinn að
stærsta flokki lands-
ins, en það tel ég vera
forsendu þess að
flokkurinn hafi for-
ystu í að mynda næstu
ríkisstjórn eftir kom-
andi kosningar.
Flokkurinn hefur ekki
ennþá komið að lands-
stjórninni, en ég tel
alveg öruggt að á því
verður breyting eftir
næstu kosningar ef
okkur auðnast að velja
Ingibjörgu Sólrúnu
sem næsta formann
flokksins. Fyrir mér
er málið ofur einfalt.
Við munum einfald-
lega verða dæmd til að vera í
stjórnarandstöðu um næstu framtíð
með óbreytta forystu í flokknum.
Sameining jafnaðarmanna og ann-
ars félagshyggjufólks hefur átt sér
nokkuð langa meðgöngu og við
megum ekki klúðra henni með því
að misstíga okkur í valinu á nýjum
formanni.
Ingibjörg Sólrún hefur alla burði
til að verða góður leiðtogi okkar
næstu árin. Hún kemur afar vel fyr-
ir í fjölmiðlum er vel skipulögð og
talar þá tungu sem fólk
skilur. Það er hæfileiki
sem er mjög mikil-
vægur fyrir formann í
stjórnmálaflokki. Þenn-
an hæfileika sá Össur
fyrir síðustu kosningar
og þess vegna lagði
hann til að hún yrði
forsætisráðherraefni
flokksins ef flokkurinn
fengi nægt fylgi til að
mynda ríkisstjórn. Því
miður gekk það ekki
eftir.
Hefur eitthvað
breyst?
En Össur, hvað hef-
ur breyst frá því þú
settir þessa hugmynd
fram? Þú sagðir að
Ingibjörg Sólrún væri
framtíðarforingi Sam-
fylkingarinnar og hún
hefði alla burði til að
stjórna landinu. Ég er
sammála þessari skoð-
un og því hvet ég sam-
fylkingarfólk til að kjósa Ingibjörgu
Sólrúnu sem næsta formann flokks-
ins. Í dag fimmtudag fram til kl.
18.00 eru síðustu forvöð fyrir sam-
fylkingarfólk að skila sínu atkvæði á
skrifstofu flokksins.
Samfylkingin er
orðin fjöldahreyfing
Guðmundur Oddsson fjallar um
formannskjör Samfylking-
arinnar
Guðmundur Oddsson
’Ég hvet sam-fylkingarfólk til
að kjósa Ingi-
björgu og skila
atkvæði á skrif-
stofu flokksins
fyrir kl. 18.00 í
dag.‘
Höfundur er fv. bæjarfulltrúi
í Kópavogi.
Í KLÚBBNUM Geysi eru ein-
staklingar sem hafa átt í geðrænum
veikindum og eru að byggja sig upp
til þátttöku í samfélaginu á ný.
Klúbburinn hefur starfað frá haust-
inu 1999 og hélt því
upp á fimm ára afmæli
sitt á síðasta ári.
Klúbburinn Geysir er
starfræktur eftir hug-
myndafræði Fountain
house, sem rekur upp-
haf sitt til ársins 1946,
þegar útskrifaðir sjúk-
lingar af geðsjúkra-
húsum leituðu að vett-
vangi þar sem þeir
gætu fótað sig og end-
urheimt sjálfsvirðingu
sína eftir erfið veik-
indi.
Sérstaða klúbbsins sem úrræði
fyrir fólk með geðsjúkdóma felst í
vinnumiðuðum degi og frjálsri mæt-
ingu þess í klúbbinn. Að geta tekið
þátt í samfélagi á eigin forsendum
er eitt fyrsta jákvæða skrefið í átt
að bata í stað valds að ofan sem
skikkar viðkomandi til þátttöku.
Einstaklingur sem uppgötvar að
hann hefur eitthvað um sín mál að
segja, þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm;
að hann hafi rödd sem tekið er
mark á er sigur.
Í klúbbnum eru þrjár deildir;
skrifstofu-, eldhús- og viðhalds-
deild, þar sem félagar velja sér
verkefni eftir getu og styrk. Í
klúbbnum tekur félagi að sér fjöl-
breytt verk ásamt starfsmanni og
eða öðrum félaga sem hann velur
að vinna með. Þjálfunin í klúbbnum
miðar að því að efla sjálfstraust fé-
laga og styrkja þá til þátttöku í
samfélaginu. Rétturinn og löngunin
til vinnu og að sjá
sjálfum sér farborða
er sá hluti sjálfsvirð-
ingarinnar sem hvað
sterkastur er hjá ein-
staklingum. Þennan
vilja er áhrifaríkt að
sjá blómstra og ófá
kraftaverkin sem átt
hafa sér stað í klúbbn-
um.
Í klúbbnum er rekin
starfsleit sem heyrir
undir skrifstofudeild-
ina, þar sem félagar og
starfsfólk vinna að því
að ná tengslum og samstarfsamn-
ingum við vinnuveitendur. Sérstaða
klúbbsins í atvinnumálum er ráðn-
ing til reynslu (e. transitional em-
ployment) sem er einstakt í starfs-
uppbyggingu og þjálfun
einstaklinga, og að virkja þá aftur
til þátttöku á vinnumarkaði. Leitað
er eftir samstafi við viðurkennd og
ábyrgðarfull fyrirtæki, þar sem
starfsumhverfið býður upp á mynd-
un félagslegra tengsla við annað
starfsfólk og viðskiptavini, og að
finna til ábyrgðar við að takast á
við verðug verkefni. Um leið og
slíkt tekst er hulunni svipt af for-
dómum í garð geðsjúkra og ekki
síður fordómum geðsjúkra gagn-
vart sjálfum sér um getu og mögu-
leika sína. Fordómajurtirnar dafna
víða en einungis í vondum jarðvegi
og illa hirtum görðum.
En af hverju vinnumiðaður dag-
ur? Vegna þess að gefandi og skap-
andi vinna með öðrum byggir upp
traust, eykur félagslega færni og
styrkir tengsl. Einstaklingarnir eru
hornsteinar samfélagsins sem við
búum í og mikilvægt fyrir hvern og
einn að fá að taka þátt í því á eigin
forsendum og öðlast um leið við-
urkenningu og virðingu samferða-
manna. Að vera viðurkenndur hluti
af heild og fá að leggja sitt af mörk-
um til að sjá fjölskyldu sinni far-
borða er þess vegna mannréttindi.
Markmið Geysis er að vera sýni-
legur í samfélaginu og í góðum
tengslum við stofnanir og félög sem
sinna geðsjúkum. Eitt af því sem
gert hefur verið til að sinna þessu
markmiði er að halda aðstandenda-
og kynningardag einu sinni á ári. Í
dag er öðru sinni efnt til aðstand-
enda- og kynningardags í Geysi.
Margt verður gert til skemmtunar,
auk þess sem selt verður kaffi og
meðlæti til styrktar klúbbnum. Allir
velkomnir sem láta sig málefni geð-
sjúkra varða.
Þátttaka í samfélagi
er mannréttindi
Benedikt Gestsson fjallar um
aðstandenda- og kynning-
arstarf í Klúbbnum Geysi
’Að geta tekið þátt ísamfélagi á eigin for-
sendum er eitt fyrsta
jákvæða skrefið í átt að
bata ...‘
Benedikt Gestsson
Höfundur er verkefnisstjóri
í Klúbbnum Geysi.