Morgunblaðið - 19.05.2005, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HL mbl
SK.dv
Miðasala opnar kl. 15.003
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
Ridley Scott,
leikstjóri Gladiator,
færir okkur eina
mögnuðustu
mynd ársins!
Orlando Bloom, Liam
Neeson og Jeremy
Irons fara á kostum í
epískri stórmynd.
Missið ekki af þessari
Skráðu þig á bíó.is
Sýnd kl. 4, 5, 8, 10 og 11 B.i. 16 ára.
FORSALAN
Í FULLUM GANGI
EINSTÖK UPPLIFUN
ÍSLENSK TÓNLIST Í 1000 ÁR
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Frá leikstjóra
Die Another Day
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.I 12 ÁRA Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali
HL mbl l
FORSALAN
Í FULLUM GANGI
KINGDOM OF HEAVEN
ORLANDO BLOOM
Ridley Scott, leikstjóri Gladiator,
færir okkur eina mögnuðustu mynd ársins!
HL mbl l
Sýnd kl. 5.20,8 og 10.45 B.I 16 ÁRA
EINSTÖK UPPLIFUN
ÍSLENSK TÓNLIST
Í 1000 ÁR
HL mbl
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 6
Frá leikstjóra
Die Another Day
SK.dv
kl. 8
ROKKSVEITIN Pan var stofnuð fyrir rúm-
lega fjórum árum en fyrst kvað að henni á
Músíktilraunum árið 2002 þar sem hún komst í
úrslit. Spilamennska hefur verið regluleg síð-
an og hefur hún nú gefið út sína fyrstu plötu,
Virgins, og verður henni fagnað með útgáfu-
tónleikum á Gauknum í kvöld.
Blaðamaður ræddi við þá Halldór Örn
Guðnason (söngur, gítar), Gunnar Þór Pálsson
(hljómborð, raddir, gítar) og Björgvin Bene-
diktsson (gítar) vegna þessa en aðrir meðlimir
eru þeir Guðbjartur Karl Reynisson (bassi) og
Garðar Borgþórsson (trommur, raddir).
„Þetta var erfið fæðing,“ segir Halldór um
plötugerðina. „Það þurfti tangir til. En þetta
var líka mjög skemmtilegt.“
Virgins var tekin upp í hljóðveri sem með-
limir byggðu sjálfir, Stúdíó Panland. Upp-
tökur tóku um ellefu mánuði og var tímabilið
mikið lærdómsferli að sögn Gunnars.
Nafnið Pan er komið frá samnefndum grísk-
um guð sem lék sér að því að tæla hreinar
meyjar með sér út í skóg með töfrandi flautu-
leik. Þaðan er nafn plötunnar, Virgins, komið
en einnig vísar titillinn í það að hún er fyrstu
skref sveitarinnar í plötugerð.
Merkingar
„Við reynum eftir megni að læða að tvöföld-
um, ef ekki þreföldum merkingum í það sem
við gerum,“ segir Halldór og kímir.„Pan getur
þýtt hvað sem er, Pan er hellingur.“
Þó að sumir meðlimir hafi verið í ein-
hverjum hljómsveitum áður en Pan hóf störf
er Pan fyrsta „alvöru“ bandið hjá þeim öllum.
Segja þeir að tilkoma Björgvins hafi breytt
miklu en hann var síðastur inn og er enn-
fremur yngsti meðlimurinn.
„Fram að því vorum við samt mjög sáttir og
það var góður andi í hópnum,“ rifjar Gunnar
upp. „Við vorum því nett stressaðir að fá
fimmta manninn inn. En hann smellpassaði
svo í hópinn, bæði tónlistarlega og ekki síst
vináttulega, og lyfti þessu upp.“
Það er auðheyranlegt að Pan á hjarta og sál
meðlima. Halldór segir að það að vita að það er
æfing um kvöldið komi honum beinlínis í gegn-
um vinnudaginn. Björgvin segist þá einfald-
lega ekki geta ímyndað sér tilveruna án þess
að vera í rokkhljómsveit.
Það er hressandi að þremenningarnir taka
til alls kyns áhrifavalda á tónlist sína, en oftast
vilja hljómsveitir láta í það skína að þær séu
það frumlegar og stórkostlegar að tónlistin
hafi í raun orðið til í tómarúmi. En nöfnum
eins og Tool, Incubus og Nine Inch Nails er
hent á loft og minna augljósari nöfnum eins og
Björk, Jeff Buckley og Damien Rice. Einnig
lofa strákarnir Sigur Rós í hástert.
Frábrugðið
Plötuna gefa Pan-menn sjálfir út og allur
vinnsluferillinn, frá fyrstu upptöku til umslags
hefur verið alfarið í höndum meðlima. Um-
slagið er mjög snoturt, pappaumslag sem
minnir á tvöföldu vínylplöturnar. Þessa algeru
listrænu stjórn kunna Pan-menn vel að meta
og er nokkuð sem þeir eru staðráðnir í að hag-
nýta til góðra verka á næstu plötu.
Björgvin segir Virgins vera einskonar safn-
plötu yfir efni frá árinu 2001 og til þessa dags.
Hann segir það mikinn létti að vera búinn að
koma plötunni loksins frá, því að nú geti þeir
einbeitt sér að nýju efni sem þegar er farið að
hrannast upp. Það efni sé nokkuð frábrugðið
því sem heyra má á Virgins. En að hafa komið
upp eigin upptökuaðstöðu geri gæfumun því
mikill kostur sé í því falinn að geta ýtt á upp-
tökutakkann þegar hugmyndirnar fæðast.
Framundan er spilamennska til kynningar á
plötunni, auk þess sem útlönd eru farin að
kitla. Og næsta plata kemur út fyrr en síðar að
sögn meðlima sem skiljanlega eru vígreifir um
þessar mundir.
Tónlist | Rokksveitin Pan heldur útgáfutónleika á Gauknum
Pan er hellingur
Morgunblaðið/ÞÖK
Fyrsta plata Pan var tekin upp í hljóðveri meðlima, Stúdói Panland, og sáu þeir sjálfir um upp-
tökur, umslagshönnun og allt sem að plötugerðinni sneri.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Húsið opnað klukkan 21.00 en tónleikarnir
hefjast með leik The Telepathetics klukkan
21.00. Pan fer svo á svið klukkustund síðar.
Til sölu verður platan og svo bolir.
www.panband.net
STRENGJAKVARTETTINN amina ætlar að
halda tónleika á óvenjulegum stað í kvöld.
Tónleikarnir verða á Árbæjarsafni, nánar til-
tekið Lækjargötu 4, sama húsi og Krambúðin
er í. Tónleikarnir standa yfir á milli 20.30 og
21.15 og er aðgangseyrir enginn.
Glöggir taka án efa eftir því að tónleikarn-
ir eru á sama tíma og undankeppnin í Evró-
visjón. Hefur amina svar við því: „Selma
kemst örugglega áfram, þannig að þið getið
bara horft á hana á laugardaginn, eða bara
tekið hana upp.“
www.aminamusik.com
Amina verður með tónleika í Árbæjarsafni.
Tónlist | Tónleikar með
aminu í kvöld
Spila í
Árbæjar-
safni
Fréttir í
tölvupósti