Morgunblaðið - 19.05.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 53
ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLANSýningatímar
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30
HITCHHIKER´S GUIDE... VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16
THE WEDDING DATE Sýnd kl. 4 - 6 - 8 - 10.10
THE JACKET Sýnd kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16
SAHARA Sýnd kl. 5.30- 8 - 10.30
THE ICE PRINCESS Sýnd kl. 4 - 6 - 8
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4
SVAMPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 10.30
ÁLF BAKKI
THE WEDDING DATE kl. 6 - 8.15 - 10.15
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 5.50 - 8 - 10.15
SAHARA kl. 8 - 10.30
THE ICE PRINCESS kl. 6
Wedding Date Kl. 8 og 10
Hitchhiker´s... Kl. 8
The Interpreter Kl. 10.10
THE WEDDING DATE kl. 8 - 10
HITCHHIKER´S GUIDE... kl. 8
JACKET kl. 10
DV
FURÐULEGASTA
ÆVINTÝRI
ALHEIMSINS HEFST
ÞEGAR JÖRÐIN
ENDAR
MBL
Fyrsta stórmynd sumarsins
SLÓ RÆKILEGA Í GEGN Á ÍSLANDI,
USA OG Á BRETLANDI
Geggjaðasta og frumlegasta grínmynd ársinser komin í bíó.
Byggð á einni vinsælustu bók alheimsins eftir Douglas Adams.
j t f l t í i i í í .
i i i l t l i i fti l .
Debra Messing Dermot Mulroney i t l
Frábær og léttleikandi
rómantískgamanmynd
með Debra Messing úr
„Will &Grace“
þáttunum
Sumarskól inn í FB
Netinnritun og upplýsingar á
w w w . f b . i s
Innritun í FB á mill i 17:00 og 19:00 virka daga.
Einnig laugardaginn 21. maí frá kl. 10:00 til 13:00.
MIÐASALA á tónleika Antony and
the Johnsons hefst föstudaginn 20.
maí kl. 10 í verslun 12 Tóna við
Skólavörðustíg, Plötubúð Smekk-
leysu og á midi.is. Þeir sem kaupa
sér miða á Antony geta keypt miða
í leiðinni á Sonic Youth, en formleg
miðasala á þá tónleika hefst 27.
maí.
Mánudaginn 16. maí hélt Antony
and the Johnsons tónleika í Loppen
í Kaupmannahöfn. Dómar í Politi-
ken og Jyllands Posten tala sínu
máli en þar halda gagnrýnendur
vart vatni og lýsa hrifningu sinni á
tónleikunum, að því er segir í til-
kynningu frá aðstandendum tón-
leikanna.
Tónleikarnir fara fram 11. júlí á
Nasa við Austurvöll. Þeir eru liður í
Evrópuför Antony og mun henni
ljúka hér á landi. „Frá því að tón-
listarmaðurinn Antony kom fram á
sjónarsviðið fyrir réttum 8 árum
hefur hróður hans farið ört vax-
andi. Á þessu ári hefur hann tekið
mikið stökk en í febrúar kom hljóm-
platan Ím a Bird Now, sem gagn-
rýnendur hafa keppst við að hefja
upp til skýjanna. Hann hefur fengið
frábæra dóma í öllum helstu tóm-
listarblöðum heimsins og er Ísland
ekki undanskilið,“ segir í tilkynn-
ingu frá tónleikahöldurum.
Miðasala á Antony and the
Johnsons hefst á morgun
Antony hefur hlotið afbragðsdóma
fyrir tónleika sína.
BENNI Hemm Hemm heldur tón-
leika í Gyllta salnum á Hótel Borg í
kvöld. Benni Hemm Hemm sjálfur,
Benedikt Hermann Hermannsson,
segir aðspurður að tilefnið sé að um
það bil ár sé liðið frá stofnun sveit-
arinnar. „Hún varð til fyrir fimm ára
afmælistónleika Tilraunaeldhússins.
Ég var búinn að vera á Ítalíu að semja
lög og var beðinn um að spila á þessum
tónleikum. Ég vissi ekki alveg hvernig
ég ætti að spila lögin með forrituðum
trommum og svoleiðis, þannig að ég
bjó til risahljómsveit,“ segir hann.
Meðlimir sveitarinnar eru félagar
Benna „og allir snillingar,“ segir hann.
Hljómsveitin mun, að sögn Benna,
spila öll lög sem hún kann. Flest eru
eftir hann, en tvö eru eftir aðra, annað
þeirra „Til eru fræ“ sem Haukur
Morthens gerði frægt.
Plata í sumar
Benni er nýlokinn við að taka upp
hljómplötu, sem væntanlega kemur
út í sumar. „Það á eftir að hljóðblanda
hana og hljómjafna. Við tókum eina
upptökulotu í Sundlauginni, tókum
sjö lög upp á 24 rása tveggja tommu
segulband. Þannig gerðum við sjálf-
um okkur svolítið erfitt fyrir, enda
ekki hlaupið að því að finna svoleiðis
vélar til að halda áfram með upptök-
urnar. Einhvern veginn reddaðist
þetta samt og svo tókum við aðra lotu
í Klink og Bank um daginn,“ segir
hann. „Hún kemur út í sumar,“ segir
Benni um plötuna, „annars fæ ég
taugaáfall.“ Ekki er komið nafn á
gripinn. „Það á eftir að verða mikill
höfuðverkur, að finna það.“
Með Benna í hljómsveitinni eru níu
hljóðfæraleikarar. Leifur Jónsson og
Finnur Ragnarsson leika á básúnur,
Ingi Garðar Erlendsson leikur á alt-
horn, Elsa Kristín Sigurðardóttir
leikur á kornett, Áki Ásgeirsson leik-
ur á trompet, Helgi Svavar Helgason
leikur á trommur, Davíð Þór Jónsson
leikur á bassagítar, Guðmundur
Steinn Gunnarsson leikur á gítar og
Ólafur Björn Ólafsson leikur á
klukkuspil. Benedikt sjálfur syngur
og leikur á gítar.
Tónleikar | Benni Hemm Hemm spilar á Hótel Borg í kvöld
Morgunblaðið/Sverrir
Benni Hemm Hemm er þekktur fyrir að halda uppi stuðinu þegar til hans er leitað.
Tökum öll lögin sem við kunnum
Benni Hemm Hemm heldur tón-
leika í Gyllta salnum á Hótel Borg
og hefjast þeir kl. 21. Stórsveit Nix
Noltes hitar upp.
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Drýsill, með Eirík
Hauksson í fararbroddi, mun hita
upp fyrir Megadeth á tónleikum
sem haldnir verða í Kaplakrika 27.
júní. Sala á tónleikana hefst sunnu-
daginn 22. maí í Íslandsbanka,
Kringlunni og Smáranum, á midi.is,
Pennanum Akranesi og Vest-
mannaeyjum, Dagsljósi á Akureyri,
Tónaspili í Neskaupstað, Hljóðhús-
inu Selfossi og Hljómavali í Kefla-
vík. Miðaverð er 4.500 krónur.
Í tilkynningu frá aðstandendum
tónleikanna segir: „Hljómsveitin
Drýsill hefur verið valin sem upp-
hitun. Þessa sveit ættu margir að
kannast við, en hana skipa Eiríkur
Hauksson sem kemur frá Noregi,
Einar Jónsson, Jón Ólafsson, Sig-
urður Reynisson og Sigurgeir Sig-
mundsson. Drýsill var stofnaður
1984 og starfaði til ársins 1986.
Hljómsveitin sendi frá sér plötuna
Welcome to the Show árið 1985.
Þessi sveit er fyrsta alvöru þunga-
rokksbandið á Íslandi og ruddi
brautina fyrir marga aðra á þessum
tíma. Drýsilsmenn eru miklir aðdá-
endur Megadeth og ættu þessar
sveitir að smellpassa saman.“
Tónleikar | Miðasala hefst á
Megadeth-hljómleikana á sunnudag
Drýsill hitar upp
Eiríkur Hauksson, Einar Jónsson, Jón Ólafsson, Sigurður Reynisson og
Sigurgeir Sigmundsson skipa Drýsil.