Morgunblaðið - 19.05.2005, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
hafi ætlað að aðstoða þau við að komast ólöglega
til Bandaríkjanna. Hann var með vegabréf frá
Singapúr, sem virtist ófalsað við fyrstu rannsókn.
Fólkið er nú í haldi lögreglunnar á Keflavíkur-
flugvelli og hefur verið yfirheyrt með aðstoð
túlka. Verður yfirheyrslum haldið áfram í dag.
Gott orðspor Íslands misnotað
Mál þessa fólks er frábrugðið málum annarra,
sem hingað til hafa verið stöðvaðir hér með vafa-
söm ferðaskilríki. Aðrir hafa verið gómaðir við
vegabréfaskoðun á leið út af Schengen-svæðinu á
Keflavíkurflugvelli.
„Við höfðum grun um að menn væru að not-
færa sér það góða orðspor sem fer af eftirliti
hér,“ sagði Jóhann. „Þeir kæmu hingað frá Lund-
únum, sem eru utan Schengen-svæðisins, og
færu beint í flug til Bandaríkjanna án þess að
fara í gegnum landamæraeftirlit Schengen-
svæðisins hér á landi. Við vorum því með sérstakt
FJÖGUR ungmenni, þrjár konur og einn karl,
auk meints fylgdarmanns þeirra, voru stöðvuð
af lögreglu á Keflavíkurflugvelli síðdegis í fyrra-
dag. Talið er að ungmennin hafi ætlað að komast
ólöglega til Bandaríkjanna. Jóhann R. Bene-
diktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, seg-
ir vísbendingar vera sterkar um að hér sé um
skipulagða glæpastarfsemi að ræða.
Fólkið kom hingað til lands frá London og var
á leið til Orlando. Ungmennin voru með vega-
bréf frá Singapúr sem ekki eru talin þeirra eig-
in. Enn hefur ekki fengist staðfest af hvaða þjóð-
erni ungmennin eru. Talið er að þau séu í
kringum tvítugt en erfitt er þó að segja til um
aldur þeirra, að sögn Jóhanns. Meintur fylgd-
armaður unga fólksins, karlmaður fæddur 1961,
var einnig stöðvaður en grunur leikur á að hann
eftirlit með Lundúnaleggnum og það bar þennan
árangur. Þetta sýnir að eftirlitið hér er í lagi og
hvað landamæraverðir okkar eru árvakrir. Þetta
sýnir einnig hvað afbrot á þessu sviði eru út-
hugsuð. Þegar þessi mál komu upp síðast tókum
við mjög hart á þeim. Þær rannsóknir hafa vakið
athygli út fyrir landsteinana og við verið beðin
um að kynna þær erlendis. Við viljum viðhalda
því orðspori að hér sé eftirlit öflugt og að menn
noti ekki Ísland sem áningarstað við þessa skipu-
lögðu glæpastarfsemi. Þau skilaboð viljum við
senda eins skýr og við getum.“
Jóhann sagði sterkar vísbendingar um að hér
væri um skipulagða brotastarfsemi að ræða. Of
snemmt væri að fullyrða um hvers konar afbrot
væri að ræða, en rannsóknin beinist m.a. að þeim
þætti. Reynt verður að staðfesta ríkisfang fólks-
ins og hefur verið haft samband við lögreglu-
yfirvöld í öðrum löndum og leitað upplýsinga um
fólkið í því skyni.
Fjögur ungmenni stöðvuð á Keflavíkurflugvelli með ólögleg ferðaskilríki
Sterkar vísbendingar um
skipulagða glæpastarfsemi
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SELMA Björnsdóttir fulltrúi Íslands stígur
ásamt dönsurum sínum á sviðið í Kænugarði í
kvöld þar sem undankeppni Söngvakeppni
evrópsku sjónvarpsstöðvanna, Eurovision,
fer fram að þessu sinni.
Selma og dansararnir æfðu stíft í gær og
klæddust þá þeim búningum sem þær verða í
í kvöld. Selmu er spáð góðu gengi og hún
stefnir að því að komast í aðalkeppnina, sem
fer fram á laugardagskvöld.
Morgunblaðinu í dag fylgir sérstakur
blaðauki um Eurovision þar sem fyrri árang-
ur Íslendinga í keppninni er meðal annars
rifjaður upp, en Ísland tekur nú þátt í henni í
18. sinn. Besti árangurinn er 2. sætið.
Morgunblaðið/Sverrir
Selmu spáð góðu gengi í Kænugarði í kvöld
LEIKHÓPNUM Vest-
urporti hefur verið boð-
ið að taka þátt í Golden-
mask-leiklistarhátíðinni
sem Listaleikhúsið í
Moskvu stendur fyrir í
fjórða sinn í september
næstkomandi, og sýna
verk Jóns Atla Jón-
assonar, Brim. Á hátíð-
inni er slegið saman úrvali af evrópskum
uppsetningum sem vakið hafa athygli og
frambærilegustu sýningum á hverjum
tíma í Rússlandi. Hátíðin vekur jafnan
mikla athygli fjölmiðla og hefur fest sig í
sessi sem einn helsti leikhúsviðburður
Rússlands.
Þá hefur nýjasta verk Jóns Atla,
Rambó 7 sem frumsýnt verður á Smíða-
verkstæði Þjóðleikhússins í kvöld, verið
selt þýsku umboðsfyrirtæki sem hyggur á
sýningar á því í Þýskalandi./48
Leikrit Jóns
Atla til
Rússlands og
Þýskalands
Jón Atli Jónasson
FULLTRÚAR fyrirtækjanna Enex, Orku-
veitu Reykjavíkur og Íslandsbanka skrifuðu í
gær undir samkomulag við Shanxi CGCO
orkufyrirtækið og fjárfestingarfélag Xian-
yang-borgar í Kína um samstarf um að leggja
hitaveitu í nýtt hverfi í borginni.
Í dag er stærsta jarðvarmaveita heims í
Reykjavík. Gert er ráð fyrir því að hitaveitan
í Xianyang nái í fyrstu til 100-150 þúsund
íbúa, sem er sá fjöldi sem samkomulagið nær
til, en búist við að neytendurnir verði 400
þúsund, en þá yrði veitan sú stærsta í heimi.
Zhang Liyong, borgarstjóri Xianyang,
sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að borg
sín væri auðug af jarðvarma. „Við erum áfjáð
í að hefja vinnslu jarðvarma og við vitum að
Ísland hefur forskot í þekkingu á að þróa og
nýta jarðhita,“ sagði hann og vonaðist til að
geta haldið áfram að nota jarðhita víðar í
borginni, helst fyrir hana alla, en íbúarnir
eru um 4,8 milljónir.
Nýtt fyrirtæki, Enex Kína, sem er í eigu
Enex, Orkuveitunnar og Íslandsbanka, verð-
ur meirihlutaeigandi að hitaveitunni, sem
mun nýta jarðvarma. Ásgeir Margeirsson,
formaður Enex Kína, sagði í samtali við
Morgunblaðið að sú vinna, sem væri fram-
undan, byði upp á ýmsa möguleika, til dæmis
að halda áfram að stækka í Xianyang. Samn-
ingurinn er metinn á um 20 milljónir dollara,
eða um 1,3 milljarða króna.
Viðskiptin komust á í
ferð iðnaðarráðherra í fyrra
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra
segir það mikið fagnaðarefni að samningar
hafi tekist um hitaveituna í Xianyang-borg í
Kína. Þessi viðskipti hafi komist á í heimsókn
sinni og viðskiptasendinefndar til Kína fyrir
rúmu ári, þar sem m.a. fulltrúar Enex og
Orkuveitu Reykjavíkur voru með í för. Val-
gerður segist þá hafa átt góðan og árangurs-
ríkan fund með borgarstjóra Xianyang-
borgar. Eftir þann fund hafi Enex haldið
áfram undirbúningi þess samnings sem und-
irritaður var í gær. Valgerður segir að ferðin
til Kína í fyrra hafi skilað miklum árangri,
m.a. lækkun tolla á grálúðu um síðustu ára-
mót, auk þess sem hún hafi þá nefnt mögu-
leika á fríverslunarsamningi við Kínverja.
Í Viðskiptablaðinu, sem fylgir Morg-
unblaðinu í dag, er ítarleg umfjöllun um Kína
og viðskipti Íslendinga á þessum fjarlægu
slóðum.
Íslendingar leggja jarðvarmaveitu í Kína
Samið/B1
KVIKMYNDIN World
of Solitude eða Öræfa-
kyrrð hlaut fyrstu verð-
laun, „Grand Prix“, á al-
þjóðlegri kvikmynda-
hátíð sem haldin var í
Dolna Banya í Búlgaríu
7. til 9. maí s.l. Öræfa-
kyrrð (The World of Sol-
itude) er eftir Pál Stein-
grímsson og framleidd af
Kvik kvikmyndagerð.
Höfundur handrits og
þulur er hinn þekkti
sjónvarpsmaður Magnús Magnússon.
Alþjóðleg dómnefnd hátíðarinnar ákvað að
veita Öræfakyrrð (The World of Solitude)
fyrstu verðlaun, Storkahreiðursverðlaunin, í
heimildamyndaflokki fyrir „heillandi samþætt-
ingu fallegrar kvikmyndatöku og sterkrar
borgaralegrar afstöðu“. Anguel Marin, vara-
forseti búlgarska lýðveldisins, afhenti verð-
launin.
Á hátíðinni Grænu bylgjunni, umhverf-
ishátíð 21. aldar Evrópu (Green Wave 21st
Century European Environment Festival)
kepptu kvikmyndir og sjónvarpsþættir sem
fjölluðu um umhverfismál og vernd umhverf-
isins. Hátíðin var styrkt af Evrópusambandinu.
Öræfakyrrð var einnig valin til verðlauna á
kvikmyndahátíð í St. Pétursborg í Rússlandi á
liðnu hausti. „Green Vision“ (Græn sýn) hátíðin
er helguð kvikmyndum um umhverfismál og
var hún haldin í 9. sinn frá 21. september til 24.
september síðastliðins.
Öræfakyrrð
fékk fyrstu
verðlaun
Páll Steingrímsson