Morgunblaðið - 22.05.2005, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.05.2005, Qupperneq 1
Íslendingarnir í Cannes Mesta hátíð kvikmyndaiðnaðarins er orðin fjölsótt af Íslendingum | Menning Tímarit og Atvinna í dag Tímarit Morgunblaðsins | Sundknattleikurinn endurvakinn  Tíu síður um sumartískuna  Lífshlaup Rósku Atvinna | Aukin þensla á vinnumarkaði?  Náttúrulegt atvinnuleysi 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 Kabúl. AP. | Hamid Karzai, forseti Afgan- istans, krafðist þess í gær að bandarísk stjórnvöld refsuðu hverjum þeim liðs- manni Bandaríkjahers sem sekur hefði gerst um að misþyrma föngum í Afganistan en í Morgunblaðinu í gær voru tíundaðar fréttir af pyntingum banda- rískra hermanna á föngum þar í landi. Uppljóstranirnar um pyntingarnar koma á viðkvæmum tíma, Karzai hélt nefnilega í fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna í gær. Þá er líklegt að annað mál varpi einnig skugga á heimsókn hans, blóðug mótmæli gegn Bandaríkjunum í Afganistan síðustu vikur er kostuðu á annan tug manna lífið. Þau mótmæli kviknuðu af frétt í Newsweek um að bandarískir hermenn í Guant- anamo-herstöðinni á Kúbu hefðu óvirt Kóraninn. Karzai lýsti því yfir í gær að hann myndi ræða pyntingarnar við bandaríska ráðamenn í heimsókn sinni. Hann tók þó fram í samtölum við blaðamenn, áður en hann hélt áleiðis til Bandaríkjanna, að ekki ætti að dæma alla bandarísku þjóðina út frá umræddum misþyrmingum. „Íbúar Bandaríkjanna eru gott fólk,“ sagði hann. Karzai fordæmir pyntingar Hamid Karzai Seattle. AFP. | Fyrrverandi barnaskóla- kennari í Bandaríkjunum, Mary Kay Letourneau, giftist í gær fyrrverandi nemanda sínum sem hún var á sínum tíma dæmd fyrir að hafa nauðgað. Brúð- guminn, Vili Fualaau, var aðeins tólf ára þegar samband þeirra Letourneau varð kynferðislegt og mál þetta vakti því mikla athygli á sínum tíma. Letourneau er í dag 43 ára gömul, Fualaau er tuttugu og tveggja. Brúðurin var handtekin 1997 þegar þáverandi eig- inmaður hennar fann ástarbréf hennar til Fualaau. Var hún þá þunguð af völd- um drengsins. Letourneau var dæmd til sjö og hálfs árs fangelsisvistar vegna nauðgunar en sleppt eftir að hafa afplánað sex mánuði af dómnum. Þegar lögregla kom að þeim skötuhjúum í ástarleik í febrúar 1998 var hún hins vegar send aftur í fangelsið og lauk hún við að afplána dóm sinn í ágúst sl. Ávöxt ástarleiksins, þ.e. annað barn þeirra Fualaau, ól hún í fangelsinu. Fyrir átti Letourneau fjögur börn. Mikil leynd ríkti yfir hjónavígslunni í gær enda munu sjónvarpsþættirnir Ent- ertainment Tonight og The Insider hafa tryggt sér einkarétt á allri umfjöllun. Ástin varir að eilífu Mary Kay Letourneau og Vili Fualaau. Los Angeles í Chile. AP. | Yfirmaður herafla Chile segir næsta öruggt að 41 hermaður, sem saknað er eftir kafaldsbyl í Andes-fjöllum um miðja viku, sé látinn. Ricardo Lagos, for- seti Chile, segir að þegar hafi þrett- án lík fundist en hann ávarpaði þjóð sína vegna málsins á föstudags- kvöld. Alls lentu 433 hermenn í mikilli hríð í Andes-fjöllum á miðvikudag þar sem þeir voru við æfingar. Flestum tókst að koma sér í öruggt skjól og var síðan bjargað en 41 er saknað, sem fyrr segir. Emilio Cheyre, yfirmaður herafl- ans í Chile, tók á föstudag þátt í leit að mönnunum en þá hafði veðrið gengið nokkuð niður. Hann sagði í kjölfarið að ólíklegt væri að nokkur fyndist á lífi. Áfram yrði þó leitað. Cheyre sagði að aldrei hefði átt að halda umræddar heræfingar í ljósi veðursins. Hann hefur vikið þremur yfirmönnum hersveitarinnar, sem um er að ræða, úr starfi og fyrirskip- að ítarlega rannsókn á tildrögum þessa harmleiks. Málið hefur vakið sterk viðbrögð í Chile og ættingjar hermanna sem nú eru taldir af hafa lýst mikilli reiði sinni í garð yfirmanna hersins. 41 hermaður talinn af í Chile Reuters Liðsmaður Chile-hers syrgir félaga sína í Los Angeles-borg, suður af Santiago. 41 félagi hans er talinn af eftir kafaldsbyl í Andesfjöllum. INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir var kjörin formaður Samfylkingar- innar í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna með 66,6% gildra atkvæða. Hún hlaut 7.997 at- kvæði. Össur Skarphéðinsson hlaut 3.970 eða 33% gildra atkvæða. Alls greiddu 12.015 atkvæði eða 60% þeirra sem voru á kjörskrá. Átta atkvæðaseðlar voru ógildir og auð- ir seðlar voru fjörutíu. Ingibjörg og Össur lögðu bæði áherslu á það í ræðum sínum á landsfundi Samfylkingarinnar eftir að úrslitin voru kunngjörð í hádeg- inu í gær, að flokksmenn gengju sameinaðir frá fundinum. Ingibjörg Sólrún sagði að úrslitin í formannskjörinu væru ekki aðal- atriðið. „Okkar hugur stefnir annað og lengra. Við eigum okkur sameig- inlegan draum, samfélagið á sér sameiginlega þörf, við höfum verk að vinna. Það er verkefni okkar í næstu þingkosningum sem skiptir máli. Persónulegir sigrar marka engin sérstök tímamót í Íslandssög- unni … Það eru aðeins sigrar hug- sjóna og hreyfinga sem skipta máli. Og þá og því aðeins skiptir nið- urstaðan í þessu formannskjöri máli, að hún leiði okkur til sigurs í þeim kosningum sem framundan eru. Þar liggur okkar sögulega tækifæri,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Hún sagði einnig: „Tækifæri Sam- fylkingarinnar felast ekki í því hvort okkar Össurar leiðir flokkinn í næstu kosningum. Forysta er hópstarf en ekki einstaklingsfram- tak.“ Ingibjörg sagði að hvað sem flokknum viðkæmi hefði þráðurinn á milli sín og Össurar ekki slitnað. Þakkaði hún honum drengilega bar- áttu og kvaðst hlakka til að vinna með honum að málefnum Samfylk- ingarinnar um ókomin ár. Össur lengi í stjórnmálum Össur Skarphéðinsson sagði að úrslitin væru afgerandi; þau væru sterk fyrir flokkinn og sérstaklega sterk fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. Nú biði hennar það verkefni að feta hina réttu leið „og koma okkur alla leið“. Hann þakkaði Ingibjörgu Sólrúnu hlý orð í sinn garð og sagði eins og hún að þráðurinn milli þeirra hefði aldrei slitnað. „Ég ætla að vera lengi í stjórnmálum,“ sagði Össur. Morgunblaðið/Árni Torfason Ingibjörg Sólrún Gísladóttir klökknaði er kjöri hennar var lýst. Hér rís hún úr sæti sínu og stuðningsmenn hennar klappa; frá vinstri Kristín A. Árnadóttir, Margrét S. Björnsdóttir, Árni Gunnarsson og Hjörleifur Sveinbjörnsson eiginmaður Ingibjargar. Sigurinn í næstu kosn- ingum mikilvægastur Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Ingibjörg Sólrún formaður Sam- fylkingarinnar með 66,6% atkvæða STOFNAÐ 1913 136. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.