Morgunblaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 47 BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÞAÐ VAR á síðari hluta 18. aldar sem einhverjum snillingum í kans- elíinu í Kaupmannahöfn tókst að reikna það út að best væri að flytja alla Íslendinga suður á Jótlands- heiðar. Það er heimskulegt að gera göng til Siglufjarðar, sérstaklega um Héðinsfjörð er fullyrt þessa dagana. Það er jafnvitlaust og malbika upp á Langjökul, var sagt á alþingi fyrir skömmu. Það vantar aðeins að komið sé til dyranna eins og menn eru klæddir og Siglfirðingum sagt að flytja í Kópavoginn, þar sé gott að búa. En er virkilega svona heimskulegt að gera göng til Siglufjarðar? Ef á að halda byggð á Siglufirði þá verður að skapa samgönguöryggi, það verður aðeins tryggt með jarðgöngum. Í kanselíinu í Kaupmannahöfn hefðu þeir sagt, flytjum þá suður, það er gott að búa í Kópavogi. Ég tel að það eigi að grafa göng til Siglufjarðar. Þá kemur næsta úr- lausnarefni, hvert á að tengja? Með því að gera göng yfir í Fljót frá Siglu- firði, komast þessi tvö byggðarlög í gott vegasamband. Mér er til efs að sú tenging breyti miklu fyrir framtíð byggðarlaganna tveggja. Til Sauð- árkróks eru 71 km frá Ketilási í Fljót- um. Það er hins vegar ekki auðvelt að sjá þann aukastyrk sem þessi tenging gæfi Siglufirði. Ef farin verður Héðinsfjarðarleið, þá eru innan við tuttugu km til Ólafs- fjarðar frá Siglufirði og svipuð vega- lengd frá Ólafsfirði til Dalvíkur. Þarna skapast verulega miklir mögu- leikar á samstæðu byggðarlagi. Í stað þess að vera með þrjú byggðarlög sem hvert um sig þarf að byggja upp sömu grunnþjónustu, verður til nýtt umhverfi með greiðum samgöngum. Síðan er Akureyri í 75 km fjarlægð frá fjærsta stað, þar sem er til staðar öll þjónusta sem nútíma samfélag krefst. Það heyrist æði oft í þessari um- ræðu að Héðinsfjarðargöng geri óhjákvæmilegt að gera Ólafsfjarð- argöngin tvíbreið. Þarna hefur verið gripið hálmstrá til að gera þessa framkvæmd tortryggilega. Vissulega þarf að gera Ólafsfjarðargöngin tví- breið, en það hefur nákvæmlega ekk- ert með Héðinsfjarðargöngin að gera. Neskaupstaður, 15–16 hundruð manna byggðarlag, hefur búið við Oddskarðsgöng í þrjá áratugi án þess að ég minnist þess að ein akrein í þeim göngum væri talin helsta hindr- un umferðar til Neskaupstaðar. Það er hins vegar umferðaröryggismál að tvær akreinar séu í jarðgöngum og íbúar á Ólafsfirði og aðrir þeir sem þessa leið aka eiga rétt á að búa við umferðaröryggi eins og annað fólk. Þess vegna verður að gera endur- bætur á Ólafsfjarðargöngum fyrr en seinna. Byggðastefna á að byggjast upp á samgöngubótum og lagaumhverfi sem gefur fólki olnbogarými til að bjarga sér sjálft. Fólk í dreifbýli á síð- an að njóta sömu réttinda í almanna- þjónustu og aðrir þegnar þessa sam- félags. Gerð Héðinsfjarðarganga er prófsteinn á hvort stjórnmálamönn- um er alvara þegar þeir segjast vilja styrkja byggð í dreifbýli. HRAFNKELL A. JÓNSSON héraðsskjalavörður, Egilsstöðum. Á að flytja Siglfirðinga suður á Kópavogsheiðar? Frá Hrafnkeli A. Jónssyni: SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Lands- björg ætlar sér að loka hringnum á næstu dögum. Óskað er eftir því að landsmenn leggi í púkkið þannig að hægt verði að kaupa þrjú Arun björg- unarskip frá Englandi. Þá verður fé- lagið komið með þéttriðið net öflugra björgunarskipa um landið allt. Þetta er traust og ég tek heilshugar undir þessa ráðagerð. Sjálfur fór ég í fyrsta útkallið mitt sem skipstjóri björgunarbáts á dög- unum. Við vorum fljótir út og búnir að bjarga tveim mönnum eftir ótrú- lega stuttan tíma. Þetta var giftu- samleg björgun og afar ánægjuleg fyrir okkur sem komum að máli. En manni verður samt hugsað til þess hvernig gengið hefði ef veður hefðu verið válynd. Það er ekki víst að eins vel hefði gengið. Á Siglufirði erum við með 36 ára gamlan björgunarbát, sem hefur reynst prýðilega. Það er þó alveg ljóst í mínum huga að nýrra og stærra björgunarskip mundi gagnast betur við slæmar aðstæður. Þau björgunarskip sem best hafa reynst varðandi getu og reksturs- kostnað eru bresku plastskipin, Arun Class, nánast ósökkvanleg og rétta sig af ef þeim hvolfir. Auðvitað erum við fastheldnir á gamla hluti og mundum sakna gamla bátsins okkar. En staðreynd er að stærra og hrað- skreiðara skip mundi gagnast okkur vel. Mér líst vel á áætlun Slysavarna- félagsins Landsbjarnar um að end- urnýja og fjölga björgunarskipum hringinn í kringum landið. Þetta boð- ar stóraukið öryggi fyrir sæfarendur og fyrir þá sem bíða á fastalandinu er það góð tilfinning að vita að bestu ör- yggistæki hvers tíma eru í notkun. Ég skora á landsmenn að taka vel á með Slysavarnafélaginu Landsbjörg og leggja sitt lóð á vogarskálarnar. Við skulum loka hringnum. ÓMAR GEIRSSON, umsjónarmaður björgunarskipsins SIGURVINS á Siglufirði. Giftusam- leg björg- un en …? Frá Ómari Geirssyni: FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali, Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur. BAKARÍ TIL SÖLU Til sölu er bakaríið Kökuval á Hellu, fasteign, tæki og rekst- ur. Húsið er á tveimur hæðum. Á efri hæð er 226 fm íbúð, á neðri hæð er 28 fm bílskúr og 283 fm iðnaðarhúsnæði. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Fannbergs fasteignasölu ehf. í síma 487 5028 KIRKJULUNDUR - 2JA HERB. Höfum tekið í einkasölu mjög fallega 70,4 fm íbúð á þriðju hæð í góðu húsi fyrir eldri borgara, ásamt stæði í bílageymslu, vel staðsett í Kirkjulundi númer 8 í Garðabæ. Eignin er með sérinngang. Suðursvalir. Frábært útsýni. Góð sameign. Stutt í alla þjónustu, verslun, heilsugæslu og fleira. Verð 19,8 millj. 110278 HRÍSMÓAR - 3JA HERB. Nýkomin í einkasölu mjög góð 3ja herbergja 85,8 fm íbúð með sérinngangi á annarri hæð í góðu fjölbýli, vel staðsettu í hjarta Garðabæjar. Eignin skiptist í forstofu, gang, baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, eldhús, tvö herbergi og geymslu. Fallegar innréttingar og gólfefni eru parket og flísar. Stórar suðursvalir. Stutt í alla þjónustu. Verð 17,5 millj. 109520 FÍFUMÝRI - EINBÝLI Höfum fengið í einkasölu mjög gott einbýli á tveimur hæðum ásamt bílskúr, samtals um 223,9 fm, vel staðsett í Mýrahverfi í Garðabæ. Fallegur gróinn garður með pöllum og tilheyrandi. Falleg eign sem vert er að skoða. 86351 STEINÁS - EINBÝLI Nýkomið í einkasölu glæsilegt nýtt einbýli með innbyggðum tvöföldum bílskúr, samtals 230 fm. Húsið skiptist m.a. í rúmgóðar stofur, stórt svefnherb. m/fataherbergi og baðherbergi innaf, glæsilegt eldhús o.fl. Frábær staðsetning innst í botnlanga á þessum vinsæla stað. Vönduð eign í sérflokki. Verð 55,0 millj. 52230 GARÐABÆR ASPARHVARF - SÉRHÆÐ - VATNSENDA Nýkomin glæsileg 134 fm neðri hæð í glæsilegu tvíbýli í byggingu. Íbúðin verður til- búin til afhendingar án gólfefna í september 2005. Sérstæði í góðum bílakjallara. Vandaðar innréttingar og tæki. Verð 31,0 millj. 109004 PERLUKÓR - KÓPAVOGI - EINBÝLI Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra útsýnisstað glæsilegt einlyft einbýli með inn- byggðum bílskúr samtals 189 fm. Eignin er til afhendingar nú þegar á fokheldisstigi fullbúin að utan. Glæsileg hönnun og gott skipulag. Útsýni. Verð 32,8 millj. 110339 KÓPAVOGUR Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9-17:30. Sími 588 4477 Í einkasölu glæsilegt, mjög vel staðsett endaraðhús ,ásamt bílskúr, alls um 175 fm. Húsið er hæð og ris, og mjög vel skipulagt. Góður frágangur, parket, vandað eldhús, 3-4 svefn- herbergi, upphitaður sól- skáli o.fl. Húsið er staðsett í lokuðum botnlanga. Verð 33,5 millj. Hlaðhamrar - glæsilegt hús á frábærum stað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.