Morgunblaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ALMENNIR iðjuþjálfar starf-
andi hjá Akureyrarbæ hafa fram
að þessu fengið 22 fasta yfirvinnu-
tíma á mánuði en
stjórnendur 30 tíma.
Við gerð síðustu
kjarasamninga var
reiknað með að þess-
ir yfirvinnutímar
yrðu greiddir út
samningstímann og
var það gert til mars
2004. Iðjuþjálfar
hafa ávallt litið á
þessa tíma sem hluta
af grunnlaunum sín-
um því með þeim þá
nær almennur iðju-
þjálfi rétt um 200.000
kr. á mánuði, annars
ekki nema u.þ.b. 160-
170.000 kr. eftir því
hver aldur hans er.
Rétt er að taka fram
að iðjuþjálfi á að baki
fjögurra ára há-
skólanám.
Árið 2004 réðu
undirritaðir iðjuþjálf-
ar sig til starfa hjá
Akureyrarbæ. Samið
var um kaup og kjör,
í samræmi við aðra
iðjuþjálfa hjá bænum
og allir undu glaðir
við sitt. Gleðin stóð stutt því um
mánuði seinna var tilkynnt að um-
samin yfirvinna yrði ekki greidd,
sem þýðir 20% launaskerðingu.
Þessi ákvörðun bæjaryfirvalda
var tekin í kjölfar þess að segja
ætti upp fastri yfirvinnu hjá öllum
starfsmönnum Akureyrarbæjar.
Þessu vildum við ekki kyngja og
vildum fá að sitja við sama borð og
aðrir iðjuþjálfar. Bréfaskriftir hóf-
ust, heimsóknir í ráðhúsið og
hringingar í bæjarfulltrúa og aðra
aðila innan bæjarkerfisins. Flestir
voru slegnir yfir þessu ósamræmi
og undrandi yfir því að svona gæti
átt sér stað. Sannfærðar um að
leiðrétting yrði gerð innan skamms
tíma héldum við til
starfa. En augljóst var
að við höfum aldrei
komið nálægt neinu
sem kallast gæti pólitík
því merkilegt nokk,
ekkert gerðist. Menn
vísuðu hver á annan og
enginn virtist bera
ábyrgð á launaskerð-
ingunni. Mánuðirnir
liðu og áfram héldum
við að leita svara hjá
embættis- og bæj-
arráðsmönnum ráð-
hússins á Akureyri,
alltaf var tekið vel á
móti okkur en ... ekkert
gerðist. Þegar þetta er
skrifað hefur enn ekk-
ert gerst fyrir utan að
tilkynnt hefur verið að
ákvörðun tekinni í
mars 2004 verði ekki
hnikað. Okkur þykir
merkilegt að nú hefur
verið ákveðið, vegna
mikillar óánægju, að
fresta uppsögn á fastri
yfirvinnu hjá starfs-
mönnum Akureyr-
arbæjar þar til nýir
samningar verði gerðir hjá hverj-
um og einum. Sú ákvörðun var aft-
urkræf en ekki sú sem varðar kjör
undirritaðra en uppsagnir allra
starfsmanna bæjarins á títtnefndri
yfirvinnu voru einmitt meginrök
bæjaryfirvalda fyrir kjaraskerð-
ingu okkar.
Það er dapurleg staðreynd að
metnaður Akureyrarbæjar varð-
andi starfsmannamál sé ekki meiri
en raun ber vitni og að tekið sé á
móti nýju, vel menntuðu og metn-
aðarfullu starfsfólki á þennan hátt.
Það er algjörlega á skjön við
starfsmannastefnu Akureyrar-
bæjar en þar segir m.a. að „ jafn-
réttis sé gætt við ráðningar í störf,
tilfærslu milli starfa og kjaraákv-
arðanir“. Ennfremur segir að
„launakjör laði að hæft starfsfólk
og haldi því í starfi. Laun hjá Ak-
ureyrarbæ skulu taka mið af laun-
um á vinnumarkaði þannig að
starfsmenn njóti hliðstæðra kjara
og bjóðast í sambærilegum störf-
um annars staðar“.
Með þessari ákvörðun hefur Ak-
ureyrarbær sem vinnuveitandi náð
botninum þar sem nýráðnir iðju-
þjálfar eru hvergi eins lágt laun-
aðir. Liggur það í hlutarins eðli að
með því mun bærinn missa hæft
starfsfólk úr sínum röðum. Bæj-
aryfirvöld hafa stillt okkur upp við
vegg og óvíst er hvaða ákvarðanir
við tökum í framhaldinu en undir
þessu getum við ekki setið hljóðar.
Það verða öllum á mistök og telj-
um við að bæjarráð hafi gert mis-
tök með bókun sinni í mars 2004
áður en málið var skoðað ofan í
kjölinn. Hvað réttlætir það að við
séum ekki á sambærilegum kjörum
og okkar samstarfsmenn með sömu
menntun og reynslu? Í upphafi var
ætlunin að það ástand myndi að-
eins vara í nokkra mánuði en mun
nú vara þar til nýr kjarasamningur
tekur gildi, þ.e. í tvö til þrjú ár. Við
getum því ekki annað séð en að for-
sendur hafi breyst. Við skorum á
ráðamenn bæjarins að beita sér
fyrir því að leysa þetta mál þannig
að það geti endað farsællega og við
getum haldið áfram sáttar að búa
og starfa á Akureyri.
Enn af launamisrétti
Akureyrarbæjar
Birna Guðrún Baldursdóttir og
Sara Stefánsdóttir fjalla um
kjarasamninga Akureyr-
arbæjar
’Með þessari ákvörðunhefur Akureyrarbær
sem vinnuveitandi náð
botninum...‘
Birna Guðrún
Baldursdóttir
Höfundar eru iðjuþjálfar.
Sara
Stefánsdóttir
Atvinnuhúsnæði í Þórshöfn í Færeyjum til sölu. Stærð 1160
m², lóðarstærð 4200 m², byggingarár 1989. Hægt er að
byggja 800-1000 m² byggingu í viðbót á lóðinni. Hægt er
að sjá myndir á heimasíðu okkar www.bilfridkan.fo
Nánari upplýsingar í síma 00 298 217300
eða sendið tölvupóst til ludvik@bilfridkan.fo
Atvinnuhúsnæði í Færeyjum til sölu!
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Í dag býðst þér að koma og skoða
þessa fallegu og björtu 70,7 fm íbúð
á þessum vinsæla stað í vesturbæn-
um. Parket og flísar á gólfum. Góðar
suðursvalir. Verð 15,9 millj. (4485).
Komdu og skoðaðu,
Kristján og Pálína taka vel
á móti þér milli kl. 14 og 16 í dag.
skráð eign er seld eign
Kristín Pétursdóttir löggiltur fasteignasali
Álagrandi 8
Opið hús í dag milli kl. 14 og 16
BRÖNDUKVÍSL 8
Opið hús í dag, sunnudag frá kl. 4-5
Glæsilegt 239 fm einbýlishús á einni hæð, þar af 54,6 fm bílskúr sem er innréttaður í
dag sem vinnustofa. Fallegur garður í mikilli rækt, hiti í stéttum bæði fyrir framan
húsið sjálft og bílskúrinn. Mjög falleg hönnun. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa
með fallegu útsýni í átt að Esjunni, Snæfellsjökli og víðar. Gólfefni: Á forstofugangi og
gestasnyrtingu eru steinflísar, eikarparket á eldhúsi, stofu, borðstofu, japanska her-
berginu/garðstofunni, svefnherbergisgangi og öllum herbergjum. Flísar á baðher-
bergi. Stutt í skóla og alla þjónustu. Þetta er mjög fallegt og vel skipulagt hús á eftir-
sóttum stað. Verð 49,5 millj. kr.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30.
Sími 588 4477
Til afhendingar strax ca 150
fm hús á einni hæð með inn-
byggðum bílskúr. Húsið er til-
búið til afhendingar strax rúm-
lega tilb. til innréttinga að inn-
an, sandspartlað. Frágengin
loft í þvottahúsi og bílskúr.
Bílskúrsgólf frágengið með
Epoxý 4000. Frábær staðsetning. Góð suðurlóð. Gott skipulag.
Fallegt útsýni. Lóðin er grófjöfnuð. Húsið frág. utan. Verð 32,9 m.
Upplýsingar veitir Bárður í 896 5221
eða sölumenn í 588 4477.
Við Elliðavatn
Glæsilegt endaraðhús
Bræðraborgarstígur
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
-Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Í einkasölu 1.052 fm glæsilegt hús
á frábærum stað í gamla vestur-
bænum. Húsið er allt nýstandsett
að utan. Nýtt glæsilegt þak, gluggar
og gler að mestu leiti endurnýjað.
Frábært útsýni af efstu hæðinni.
Húsnæðið býður upp á ýmsa
möguleika.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson,
sími 588 4477 eða 822 8242
Úrslitin úr
enska boltanum
beint í
símann þinn
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Þar sem
konurnar
versla
Fréttasíminn
904 1100