Morgunblaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.05.2005, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ 21. maí 1995: Í grein sinni í fréttabréfi LÍÚ segir for- maður samtakanna m.a.: „Það er lágmarkskrafa greinarinnar að fjölmiðlar og stjórnmálamenn, sem vilja að málflutningur þeirra sé tekinn alvarlega, hefji um- fjöllun sína upp á hærra plan …“ Kristján Ragn- arsson segir m.a.: „Um- ræðuna um málefni sjáv- arútvegsins verður að hefja upp úr þeim kaldastríðstón, sem Morgunblaðið, umfram aðra fjölmiðla og ýmsa stjórnmálamenn, hefur ástundað undanfarin ár … jafnvel slíkt fjölmiðlaveldi, sem Morgunblaðið er, nær ekki að kasta ryki í augu kjósenda og grafa undan því skynsamlega starfi, sem unnið hefur verið hér á landi á sviði fiskveiðistjórnunar … Aðferð gamla Þjóðviljans, sem ritstjórn Morgunblaðs- ins hefur tileinkað sér í þessu máli, það er að ala á öfund og illgirni …“ Þetta virðist vera það „plan“, sem formaður LÍÚ vill hafa um- ræður um sjávarútvegsmál á, ef marka má hans eigin skrif! . . . . . . . . . . 17. maí 1975: „Verulegur skriður er nú að komast á undirbúning að byggingu Borgarleikhúss í Reykjavík, sem hýsa mun starfsemi eins elzta og merkasta menningarfélags höfuðborg- arinnar, Leikfélags Reykja- víkur. Teikningar að nýju Borgarleikhúsi, sem rísa í nýja miðbænum, munu vera komnar nokkuð langt á veg og í fyrradag samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur stofnskrá fyrir Borgarleik- húsið í Reykjavík, en sam- kvæmt henni sameinast Reykjavíkurborg og Leik- félag Reykjavíkur um bygg- ingu Borgarleikhúss í höf- uðborginni. … Enginn vafi leikur á því, að sú ákvörðun borg- arstjórnar Reykjavíkur að standa að byggingu leikhúss yfir starfsemi Leikfélags Reykjavíkur nýtur almenns stuðnings borgarbúa. Yfir þeirri ákvörðun hvílir aðeins einn skuggi, en hann er sá, að hið nýja borgarleikhús á ekki að rísa við Tjörnina, þar sem Leikfélag Reykja- víkur hefur starfað nánast alla sína tíð og hefur með starfi sínu sett sinn óafmá- anlega svip á tjarnarsvæðið. En það er búið og gert. Reykjavíkurborg og Leik- félag Reykjavíkur hafa sam- eiginlega komizt að þeirri niðurstöðu að nýtt Borg- arleikhús skuli rísa í nýja miðbænum og vonandi verð- ur sú ákvörðun starfsemi Leikfélags Reykjavíkur til heilla í framtíðinni.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S umar opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja skipta máli. Aðr- ar ekki. Opinber heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar, for- seta Íslands, til Kína nú síðustu daga er ein þeirra heimsókna af þessu tagi, sem hafa mikla þýð- ingu fyrir langtíma hagsmuni íslenzku þjóðarinnar. Kína hefur auðvitað alltaf verið stórveldi en á okkar dögum aldrei sem nú. Í kínverskri sögu er raunar litið á síðustu 150 ár, sem tímabil niður- lægingar, sem þurfi að bæta fyrir og jafnvel refsa þeim sem hafi verið valdir að þeirri auðmýkingu. Kínverjar hafa sýnt okkur Íslendingum mikinn áhuga og raunar að sumra mati óeðlilega mikinn áhuga. Sjálfir skýra þeir mikinn fjölda heimsókna háttsettra kínverskra ráðamanna til Íslands á síð- asta áratug eða svo með því að Kínverjar hafi ein- faldlega áhuga á að bæta og auka samskipti sín við allar þjóðir, bæði smáar og stórar. Þeir segjast ekki gera neinn greinarmun á því, hvort þjóðir séu fjölmennar eða fámennar. Þeir umgangist all- ar þjóðir sem jafningja. Þetta er fallegt tal en spurning, hvort þeir meini eitthvað með því. Þegar Kínverska alþýðulýðveldið opnaði fyrst sendiráð á Íslandi eftir að íslenzk stjórnvöld höfðu viðurkennt kommúnistastjórnina í Peking, vakti það athygli stjórnmálamanna og embættismanna, að sendimenn þeirra hvöttu mjög til náinna sam- skipta við Bandaríkjamenn í varnarmálum og vöruðu Íslendinga við að láta varnarliðið hverfa á braut. Þeir voru jafnframt eindregnir stuðnings- menn aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Þetta var á tímum vinstri stjórnar Ólafs Jó- hannessonar, sem stefndi að því að segja varn- arsamningnum við Bandaríkin upp. Þessi afstaða Kínverja þá kom Íslendingum mjög á óvart, sem höfðu séð heimsmyndina meira og minna í þeirri svart-hvítu mynd, að kommúnistar í Sovétríkj- unum og Kína væru óaðskiljanlegir samherjar. Engu að síður hafa svo margir háttsettir kín- verskir ráðamenn komið til Íslands á undanförn- um árum að þeirri spurningu er ósvarað, hvort eitthvað annað vaki fyrir þeim en þeir sjálfir segja, þ.e. hvort Ísland eigi að gegna einhverju sérstöku hlutverki í framtíðarheimsmynd þeirra. Staða okkar Íslendinga á skákborði alþjóða- stjórnmála er ekki slík, að góð samskipti við kín- verska stórveldið hafi einhverja sérstaka pólitíska þýðingu fyrir okkur. Hins vegar fer ekki á milli mála, að það skiptir okkur miklu máli að þróa upp öflug viðskiptaleg tengsl við Kína. Af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi er Kína augljóslega að opnast sem mikilvægur markaður fyrir afurðir okkar. Í öðru lagi er ljóst, að Kína er að verða einhvers konar framleiðslumiðstöð heimsins alls. Þótt hönnun og sölustarfsemi fari fram annars staðar fer fram- leiðslan fram í Kína, ekki sízt vegna þess hvað vinnuaflið er ódýrt. Kína er að verða eins og risa- stór verksmiðja. Af þessum viðskiptalegu ástæðum skiptir heimsókn forseta Íslands til Kína miklu máli. Hún er líkleg til að greiða fyrir auknum viðskiptum milli landanna og auðvelda íslenzkum fyrirtækj- um að hasla sér völl þar. Stjórnmálamenn eru enn dálítið feimnir við að fara til Kína án þess að geta sagt við kjósendur sína heima fyrir, að þeir hafi barið í borðið og krafizt þess, að mannréttindi yrðu virt í Kína. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr er þetta fyrst og fremst tal og hefur verið það frá því Nix- on sendi Kissinger í sína fyrstu leynilegu ferð til Kína. Það eru aðrir hagsmunir sem ráða sam- skiptum vestrænna þjóða nú um stundir við Kína og svo hefur lengi verið. Þótt forseti Íslands hafi talað um mannréttindamál við forseta Kína skipt- ir það engu máli nema kannski að því leyti til að forseti okkar hafi betri samvizku. En það hefur enga þýðingu. Kínverjar fara sínu fram eins og þeim sýnist og enn ríkir einræði Flokksins í Kína, þótt efnahagskerfið taki meira og meira á sig mynd kapítalísks þjóðfélags, a.m.k. í sumum hlut- um Kína. Viðskiptin skipta máli og það hefur verið fróð- legt að fylgjast með því í skrifum Karls Blöndals, aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, frá Kína síð- ustu daga, hvað Íslendingar eru byrjaðir að verða umsvifamiklir í atvinnustarfsemi í Kína. Þótt þar sé um að ræða örsmá umsvif frá sjónarhóli Kín- verja eru þau að verða umtalsverð á okkar mæli- kvarða. Og athyglisvert að sjá, hvað Íslendingar eru framtakssamir samanber frumkvæði hjónanna, sem reka nú átta fataverksmiðjur í Kína. Pólitísk samskipti skipta meira máli í ríkjum sem lúta einræðisstjórn en í lýðræðisríkjum. Og þess vegna skipta pólitísk samskipti miklu máli í þeim tengslum, sem við erum að byggja upp í Kína. Sú var tíðin að ákvörðun þáverandi ríkis- stjórnar að opna sendiráð í Kína mætti litlum skilningi landsmanna en það er auðvitað löngu orðið ljóst að þar var um að ræða lykilákvörðun í samskiptum okkar við Kínverja. Spenna í Asíu Fyrir skömmu brutust út mótmæli í Kína vegna þess, að Japan- ar hafa ekki beðizt afsökunar á framferði sínu í Kína á síðustu öld. Alveg með sama hætti og sú af- staða fyrrum leppríkja Sovétríkjanna að krefjast afsökunarbeiðni frá Rússum vegna misgerða sov- ézkra kommúnista við þau er bæði skiljanleg og réttmæt má hið sama segja um þessa kröfu Kín- verja. Japanar eiga sér fortíð í samskiptum við Kínverja og raunar fleiri þjóðir, sem ekki hefur verið gerð upp en þarf að gera upp. Japanar sjá kannski fyrst og fremst Hiroshima og Nagasaki. Það er mál út af fyrir sig og skiljanlegt að þeir haldi kjarnorkuárásunum á þessar tvær borgir á lofti, með þeim hryllilegum afleiðingum sem þær höfðu en nágrannaþjóðir þeirra eru ekki búnar að gleyma því sem þær upplifðu af þeirra völdum. Nú er rík ástæða til að velta því fyrir sér, hvort hugsanlega sé nýtt spennuástand að skapast á þeim svæðum í heiminum. Zbigniew Brzezinski, fyrrum öryggismálaráð- gjafi Carters Bandaríkjaforseta, hefur á síðustu árum skrifað tvær bækur, sem fjalla um heims- myndina alla frá pólitísku sjónarhorni. Hin fyrri var „The Grand Chessboard“, sem út kom á árinu 1997. Hin seinni „The Choice“, sem út kom á síð- asta ári. Í síðari bókinni segir Brzezinski, að Kín- verjar og Japanar keppi um yfirráð í þeirra heimshluta, skipting Kóreu sé í alla staði óeðlileg og þess vegna sé Kórea púðurtunna, Taívan geti hvenær sem er orðið tilefni átaka, stöðugleika skorti í innanlandsmálum Indónesíu. Indverjar telji að Kínverjar ógni sér um leið og þeir líti svo á, að þeir séu fremri Kínverjum. Kína, Indland og Pakistan séu í raun kjarnorkuveldi, Norður- Kórea reyni að verða það og Japan geti orðið kjarnorkuveldi á skömmum tíma. Bókarhöfundur segir, að það þurfi tiltölulega lítið sprengiefni til að lama efnahagskerfi Japans, Kína eða Indlands. Þessar þjóðir séu svo háðar skipaflutningum að sprengingar í höfnum Shanghai, Yokohama eða Bombay mundu hafa gífurleg áhrif í þá átt. Af þessum ástæðum sé hafið kapphlaup milli Asíuþjóðanna í hernaðaruppbyggingu, sem að mörgu leyti megi líkja við sambærilegt kapphlaup í Evrópu á síðustu öld. Allar þessar þjóðir hafi í kyrrþey komið sér upp öflugum kafbátaflota, þær hafi komið sér upp herskipum, sem geti flutt árás- arþyrlur. Bæði Kínverjar og Indverjar hafi lagt mikla áherzlu á að kaupa af Rússum flugmóð- urskip, sem Sovétríkin gáfust upp við að ljúka byggingu á. Allar þjóðirnar reyni að efla hern- aðarstyrk sinn í lofti og auka flugþol herflugvéla sinna. Japanar hafi frá árinu 2001 aukið hernaðar- umsvif sín á höfunum á þessu svæði, undir því yf- irskini að þeir þurfi að vernda olíuflutningaskip sín fyrir sjóræningjum. Japan er nú fyrir utan Bandaríkin mesta herveldi á sjó í Asíu. Það er auðvitað augljóst, þegar sagan er höfð í huga, að Asía öll getur breytzt í allsherjar púður- tunnu. Þegar annars vegar er um að ræða óupp- gerð söguleg samskipti, sem hafa skapað andúð og jafnvel hatur hjá einstökum þjóðum í garð ann- arra og hins vegar mikil og vaxandi hernaðar- uppbygging, sem ekkert lát er á, þvert á móti, þarf ekki mikið út af að bera til þess að allt fari í bál og brand. Bandaríkin eru enn það ríki, sem skapar jafn- vægi á þessum slóðum. En það er álitamál, hversu lengi Bandaríkjamenn hafa bolmagn til að gegna því hlutverki. Nú er það ekki lengur Kyrrahafs- floti Bandaríkjamanna einna, sem ræður ferðinni á Kyrrahafi. Það á í vaxandi mæli við um bæði Japan og Kína að þessar tvær þjóðir kalla eftir hlutdeild í þeim áhrifum Bandaríkjamanna. Þótt hægt sé með fullum rökum að halda því fram að Bandaríkjamenn séu nánast einráðir í heiminum um þessar mundir eru líkurnar á því að bæði Japanar og Kínverjar verði ekki bara efna- hagsleg stórveldi heldur líka hernaðarleg og póli- tísk, þegar kemur fram á þessa öld, yfirgnæfandi. Og það liggur ekki í augum uppi að Bandaríkja- menn hafi bolmagn til að ganga á milli, þegar þar að kemur. Vel má vera að í svona vangaveltum gæti of mikillar svartsýni. Allar hafa þessar þjóðir mikla hagsmuni af því að friður haldist í þeirra heims- hluta. Kína brunar nú fram sem efnahagslegt stórveldi. Styrjaldarátök í Asíu mundu stöðva þá þróun af að mati Brzezinskis. Hann telur að ráð- andi öfl í Kína geri sér líka grein fyrir því, að spenna innan Kína muni aukast á næstu árum og ekki sízt af tveimur ástæðum. Annars vegar AFGERANDI ÚRSLIT Úrslitin í formannskjöriSamfylkingarinnar voruafgerandi. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir gengur frá lands- fundi Samfylkingarinnar sem óumdeildur leiðtogi næststærsta stjórnmálaflokks landsins. Össur Skarphéðinsson stendur eftir sem stjórnmálamaður, sem tók ósigri sínum af karlmennsku og dreng- skap. Það á eftir að koma í ljós hvort heitstrengingar þeirra beggja um samstöðu og samstarf standast. Það gerist sjaldan í stjórnmálum, að slíkt takist í kjölfar mikilla átaka. Barátta þeirra tveggja um formennsku í Samfylkingunni er hins vegar sérstök í ljósi náinna fjölskyldutengsla, sem þau bæði gerðu að umtalsefni hvort með sínum hætti í ræðum sínum, þeg- ar úrslitin lágu fyrir. Stjórnmál eru ekki svo merkilegt fyrirbæri að þau eigi að láta þau komast upp með að rjúfa fjölskyldubönd- in. Það á líka eftir að koma í ljós, hvernig fylgismenn þeirra taka úrslitunum. Þrátt fyrir yfirlýsing- ar Ingibjargar Sólrúnar og Öss- urar er ekki hægt að ganga að neinu sem vísu um samstöðu í Samfylkingunni að þessum átök- um loknum. Það kemur ekki í ljós fyrr en að nokkrum mánuðum liðnum hvort Samfylkingin geng- ur sameinuð til kosninga eða hvort klofningur kemur upp í kjölfar átakanna um formennsk- una. Óneitanlega vakti það athygli að fyrir landsfundinn sagði Ingibjörg Sólrún, að kosningarnar snerust um mat flokksmanna á því, hvort þeirra Össurar væri líklegra til að leiða Samfylkinguna til sigurs í næstu þingkosningum en í ræðu sinni í gær sagði hún að það skipti engu máli heldur allt annað. Það er mikilvægt fyrir stjórnmálafor- ingja að vera samkvæmir sjálfum sér. Ljóst er af yfirlýsingum nýkjör- ins formanns Samfylkingarinnar að nú verður stefnan tekin á að koma fram valdaskiptum í landinu í næstu þingkosningum, sem fram fara að tveimur árum liðnum. Orðrétt sagði Ingibjörg Sólrún, að verkefnið væri að koma frá „ríkis- stjórn misskiptingar og vald- stjórnar“. Þessi orð benda til þess, að mis- skipting auðs verði lykilatriði í kosningabaráttu Samfylkingar- innar. Kannski boðar Ingibjörg Sólrún betri tíð því að hingað til hefur Samfylkingin ekki verið til viðtals um neinar þær aðgerðir, sem máli skipta í íslenzku sam- félagi, sem gætu komið í veg fyrir þann veruleika sem við blasir í þeim efnum. Nýkjörinn formaður Samfylk- ingarinnar sagði líka, að mark- miðið væri að koma fram hug- sjónum jafnaðarstefnunnar. Hvar hefur mátt sjá slíka baráttu í stjórnmálastarfi samfylkingar- manna á undanförnum misserum og árum? Hafa þeir skorið upp herör gegn stóru viðskiptasam- steypunum, sem hafa verið og eru að leggja Ísland undir sig? Því fer víðs fjarri. Samfylkingin og forystusveit hennar verða að standa við stóru orðin. Nýkjörinn formaður á eftir að sýna að hún hafi eitthvað efn- islegt fram að færa til íslenzkrar stjórnmálabaráttu. Það kom ekki í ljós í kosningabaráttu hennar. En hvað sem því líður fer ekki á milli mála, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er sterkasti forystu- maður í stjórnmálum, sem leiðtog- ar núverandi ríkisstjórnarflokka hafa þurft að fást við í stjórnar- andstöðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.