Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 42

Morgunblaðið - 22.05.2005, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á FORSÍÐU Morgunblaðsins var þessi merkilega fyrirsögn sem fangaði athygli mína og við lestur stuttrar fréttaklausu varð mér hugsað til þeirra sem hæst hafa um nauðsyn hins algjöra frelsis í áfengismálum, þeirra sem aðeins sjá feg- urð og lífshamingju í þeim veigum sem þeir lofsyngja. Mér varð einnig hugsað til þeirra al- þingismanna sem ólmir vilja losa um allar hömlur varð- andi áfengissölu, þar sem gæsalappafrelsið er dásamað sem allra mest. Fregnin var ann- ars um þá skelfilegu staðreynd að meira en hálf milljón manna deyr árlega í Evrópu af völdum ofnotk- unar áfengis, staðreynd sem aldrei er orði vikið að í löngum grein- argjörðum áfengiselskenda, hljóm- ar ekki rétt vel saman við óratór- íuna fagnaðarríku sem hástöfum er sungin. Og fregnin segir meira, en hún er frá ráðstefnu Evrópu- deildar WHO, Alþjóða- heilbrigðismálastofn- unarinnar, þeirrar virtu og vel metnu stofnunar. Þar er einn- ig greint frá því að tíðni slíkra dauðsfalla hafi aukist um 15% frá árinu 2000. Og enn heldur fregnin áfram: „Ef bætt er við dauðs- föllum vegna slysa eða ofbeldis þar sem áfengi er óbein orsök margfaldast þessi tala dauðsfalla,“ segir sérfræðingur um almannaheilbrigði í Svíþjóð. Og hvað er þá til ráða, hvað má til varnar verða? Evrópudeildin mælir m.a. með því að álögur á áfengi verði hækkaðar, miklar hömlur lagðar á áfengisauglýs- ingar og gripið verði til fyr- irbyggjandi aðgerða í umferð- armálum, atvinnulífi og heil-brigðisþjónustu. Áður höfum við séð frá sömu stofnun áherzlu hennar á það, að auka ekki aðgengi að áfengi vegna ótvíræðrar aukinnar neyzlu með tilheyrandi vandamálum. Og svo er rætt um í fregninni að í sunnanverðri álfunni sé mikil andstaða við hvers konar stýriað- gerðir, þar sem litið sé á áfengi sem hverja aðra neyzluvöru, enda þeim hinum sömu þá ugglaust al- veg sama um mannfallið eða svo verður maður að álykta. Og enn segir orðrétt í fregninni: Einnig vega hagsmunir vín- framleiðenda þungt í umræðunum og kemur auðvitað ekki á óvart. Víða eru hagsmunir á fleti fyrir og stundum spyr maður sig að því hvaða huldir hagsmunir búi að baki tillögum um hið fullkomna frelsi í áfengismálum, þar sem all- ar hömlur skulu aflagðar. Eitt er víst að út af flóir nú þegar, því rétt í þessum orðum skrifuðum heyri ég tölur um aukn- ingu áfengisneyzlu á síðasta ári, enn eitt árið, nú upp á meira en 6% og 4,4 % aukningu í hreinum vínanda, enda neyzla áfengis náð því „glæsta“ marki að vera meira en 6,7 lítrar af hreinu áfengi á hvert mannsbarn. Og rétt svona í lokin: Varla dettur nokkrum heilvita manni í hug að hin mannskæða of- drykkja sneiði hjá okkar garði, þótt „frelsis“unnendur láti æv- inlega sem aukin áfengisneyzla sé guðsblessunin ein. Þakkarvert er það af Morg- unblaðinu að birta framansagða fregn á forsíðu sinni. Mannskæð ofdrykkja Helgi Seljan fjallar um áfeng- ismál ’Varla dettur nokkrum heilvita manni í hug að hin mannskæða ofdrykkja sneiði hjá okkar garði … ‘ Helgi Seljan Höfundur er formaður fjölmiðla- nefndar IOGT. *Skv. lögum nr. 99/2004. Úr 1. mgr. 1. gr. Þeim einum er heimilt að hafa milligöngu um kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum fyrir aðra sem hafa til þess löggildingu dómsmálaráðherra.“ Fyrirtæki Til sölu er mjög þekkt og rótgróið veitingahús með mikla og góða viðskiptavild. Merki fyrirtækisins er mjög þekkt. Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu aðila síðustu 15 ár. Reksturinn er afar traustur og velta mikil og stöðug. Fyrirtækið er skuldlaust. Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58 Sími 588 5530 Netfang: berg@berg.is Upplýsingar einungis veittar á skrifstofu BERG fasteignasölu. Pétur Pétursson lögg. fasteignasali Fjarðargötu 17 - Hafnarfirði Sími 520 2600 - Fax 520 2601 Netfang as@as.is Heimasíða http://www.as.is Kári Halldórsson, löggiltur fasteignasali, Jónas Hólmgeirsson, Eiríkur Svanur Sigfússon, Birna Benediktsdóttir, Melkorka Guðmundsdóttir, Laufey Lind Sigurðardóttir Opið virka daga kl. 9–18 DREKAVELLIR - VÖLLUNUM, HAFNARFIRÐI OPIÐ HÚS Á MÁNUDAG FRÁ KL. 18.30-19 SÖLUMENN FRÁ ÁS FASTEIGNASÖLU VERÐA Á STAÐNUM Vorum að fá glæsilegar fullbúnar íbúðir á Völlunum í Hafnarfirði. Íbúðirnar skilast fullbúnar með öllum gólfefnum og öll- um tækjum, þ.e. ísskáp, uppþvottavél, þvottavél, þurrkara, örbylgju- ofni o.fl. Tæki í eldhúsi öll úr stáli. Vandaðar sérsmíðaðar innrétting- ar. Húsið klætt að utan og því nánast viðhaldsfrítt. Sameign öll mjög glæsileg. Íbúðirnar eru 4ra herbergja 105 fm, verð 22.950.000 og 23.950.000. Húseignir við Laufásveg - 101 Reykjavík Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is -Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Tvær frábærlega staðsettar samliggjandi húseignir í sunnanverðum Þingholtum við Laufásveg eru til sölu. Annars vegar er fjögurra hæða hús í mjög góðu ásigkomu- lagi, sem er samtals 320 fm og einnig sambyggt og nýlega endurbyggt hús með sér (samþykktri) 3ja herbergja 80,5 fm íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi. Góður afgirtur bakgarður með heitum potti og saunahúsi. Tvö sérbílastæði. Í stærri eign- inni er nú rekið huggulegt gistiheimili á heilsársgrunni með frábæru orðspori til margra ára. 8 gestaherbergi fyrir um 20 manns með 4 baðherbergjum ásamt gesta- móttöku, skrifstofu, setustofu, borðsal og eldhúsi á jarðhæð. Til greina kemur sala eignanna eingöngu eða sala eignanna ásamt rekstri. Verð tilboð. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, sími 588 4477 eða 822 8242 VANDAÐ SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali. Leiga eða kaup Mjög traust og þekkt fyrirtæki óskar eftir 1.000-1.200 fm skrifstofuhúsnæði í Reykjavík eða Kópavogi. Einungis kemur til greina vandað og gott húsnæði. Æskilegast væri að húsnæðið væri á einni hæð eða mögulega á 2 hæðum. Til greina kemur bæði fullbúið húsnæði og einnig nýtt húsnæði sem ekki er innréttað. Æskilegt er að húsnæðið geti afhendst sem fyrst og eigi síðar en vorið 2006. Upplýsingar gefur Brynjar Harðarson í síma 840 4040 eða á skrifstofu Húsakaupa. BARKARSTAÐIR - FLJÓTSHLÍÐ Til sölu jörðin Barkarstaðir í Fljótshlíð, landnúmer 163993, Rangárþingi eystra. Barkarstaðir eru innarlega í Fljótshlíð og hefur jörðin alltaf verið talin góð bújörð. Tún eru að mestu niðri á sléttlendi en voru mest uppi í hlíðinni. Í Bæjargili var rafstöð sem sett var upp 1928. Á Barkar- stöðum hefur verið búið með kýr og sauðfé. Húsakostur jarðarinnar er gamall ef frá er talið góð véla- og verkfæra- geymsla, byggð 1990. Landstærð jarðarinnar er talin vera um 1500 ha í heildina, nánar skilgreint um 500 ha heiðarland, aðal nytjalandið um 600 ha og 4-500 ha á Markarfljót- saurum. Mjög fagurt er á Barkarstöðum og búsældarlegt. Jörðin er seld án bústofns, véla og án framleiðsluréttar. Jörð sem vert er að skoða. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM, sími 550 3000. Þjónustusími eftir lokun 892 6000. Sjá einnig fmeignir.is. Tilvísunarnr. 10-1221 Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Geitland 6 Frábærlega staðsett, björt og rúmgóð 3ja herbergja 96,4 fm íbúð á 1. hæð í góðu fjöl- býlishúsi við Fossvoginn í Reykjavík. Íbúðin er mjög vel skipulögð með tveimur stór- um svefnherbergjum, stóru eldhúsi og rúmgóðri stofu með útgangi á suðursvalir. Baðherbergi er endurnýjað að hluta með flísum í hólf og gólf, baðkari og glugga. Á gólfum er parket og dúkur. Á hæðinni er sameiginegt þvottahús og sérgeymsla. Eign- inni fylgir sérgarður fyrir framan íbúðina. Mjög stutt er í frábært útivistarsvæði í Foss- vogsdal, skóla, leikskóla, verslanir o.fl. Íbúðin er laus 1. júní eða fyrr. Verð 18,9 millj. Anna Linda býður gesti velkomna í dag frá kl. 14-16. Teikningar á staðnum. Opið hús í dag frá kl. 14-16 Úrslitin úr enska boltanum beint í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.