Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 56
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
SOLLA, Á ÉG AÐ SEGJA
ÞÉR LEYNDARMÁL?
JÁ!
ÉG HELD AÐ SKÓLA-
STJÓRINN SÉ NJÓSNARI
FRÁ ANNARI PLÁNETU
HANN ÆTLAR AÐ HEILAÞVO
OKKUR SVO VIÐ SÝNUM
ENGAN MÓTÞRÓA ÞEGAR
GEYMVERURNAR GERA
ÁRÁS Á JÖRÐINA
LOFARÐU
AÐ SEGJA
ENGUM FRÁ
ÞESSU?
EKKI
HAFA
ÁHYGGJUR
SONUR SÆLL...
MAÐUR GETUR EKKI
BÚIST VIÐ ÞVÍ AÐ FÁ
ALLT, Í LÍFINU, UPP
Í HENDURNAR Á
SILFURFATI
SPARAÐU ÞIG
FREKAR ÞANGAÐ TIL
EINHVER KEMUR MEÐ
FAT ÚR GULLI!!
SVONA GERA ÞEIR
SJÓNVÖRP MEÐ
FLÖTUM SKJÁ
AÐ FLYTJA INN MEÐ
HENNI ER STÓRT SKREF
ÉG HLAKKA
TIL... EN ÉG VEIT
EKKI HVERNIG
MAMMA OG
PABBI TAKA ÞVÍ
ÞAU ERU SVO GAMALDAGS
AÐ ÞEIM FINNST ÞAÐ HRÆÐILEGT
ÞEGAR FÓLK BÝR SAMAN EN ER
EKKI BÚIÐ AÐ GIFTA SIG
OG ÞÚ VEIST
EKKI HVERNIG
ÞÚ ÆTLAR AÐ
SEGJA ÞEIM
ÞETTA
NEI... ÉG
ÆTLA AÐ SJÁ
TIL ÞESS AÐ
ÞAU VITI
ÞETTA ALDREI
ÞAÐ VAR GÓÐ HUGMYND AÐ GEFA
FRÆNKU ÞINN TÖLVU
ÞÍN
HUG-
MYND...
ÉG FÉKK
BARA AÐ
FLJÓTA
MEÐ
ÞÚ HEFUR AÐ MINNSTA KOSTI
FENGIÐ EINA GÓÐA HUGMYND
UM ÆVINA
SEM
ER?
AÐ GIFTAST
MÉR...
AUÐVITAÐ
AUÐVITAÐ!
NJÓTIÐ
STUNDAR-
INNAR Á
MEÐAN ÞIÐ
GETIÐ
HERRA OG
FRÚ
PARKER...
Dagbók
Í dag er sunnudagur 22. maí, 142. dagur ársins 2005
Nú er runninn upp sáárstími sem gefur
Víkverja mikla
ánægju, en um leið
leiðindi. Ánægjan er að
njóta útiverunnar og
hlúa að gróðri í garð-
inum. Leiðindin eru að
þurfa stöðugt að vera
að þrífa upp katta- og
hunda- skít úr beðum í
garðinum og af gras-
flötum. Á síðustu árum
hefur færst í vöxt að
fólk á höfuðborgar-
svæðinu hafi fengið sér
ketti og hunda. Víkverja finnst það í
góðu lagi að fólk sé með gæludýr á
heimili sínu, svo framarlega að þau
séu ekki öðrum til ama og leiðinda.
Það eru ekki allir sem kæra sig um
ketti og hunda og að þeir gangi um
lausir og geri þarfir sínar á lóðum
þeirra eða á almenningssvæðum, þar
sem börn eru að leik.
Víkverji hefur oft séð fólk ganga
með hunda í bandi um almennings-
svæði og láta þá gera þarfir sínar þar
afskiptalaust – og ganga síðan burtu
frá óþrifnaðinum. Sem betur fer eru
flestir hundaeigendur, sem bera virð-
ingu fyrir umhverfi sínu og annarra,
sem eru með plastpoka og þrífa upp
eftir hundana. En það eru sóðarnir
sem setja svartan blett á þá sem bera
virðingu fyrir umhverfinu og öðrum.
Þó nokkur áhugi varfyrir Söngva-
keppni Evrópu í
Kænugarði og hvernig
Selma Björnsdóttir
myndi standa sig. Það
voru mikil vonbrigði
fyrir Víkverja sem
flesta Íslendinga að
hún komst ekki í úrslit.
Selma tók áfallinu með
jafnaðargeði, en sagð-
ist vera „drulluspæld“
yfir að hafa ekki komist
í úrslit. Víkverji hefur
það á tilfinningunni að
sumir hafi verið svekktari en Selma.
Það er að segja ljósvakamennirnir
sem höfðu farið á kostum fyrir
keppnina og oftar en ekki talað um
sjálfa sig og sagt hlustendum hvað
þeir væru að gera, eða þá vitnað í
hina ljósvakamennina og hvað þeir
höfðu að segja, eða hvað þeir væru að
gera. Já, tala um sjálfan sig.
Víkverja finnst með ólíkindum
hvað stórum hópi ljósvakamanna,
sem lýsa kappleikjum eða þá að sjá
um aðrar beinar útsendingar, er tamt
að líta svo á að þeir leiki stóra hlut-
verkið, en ekki viðfangsefnið hverju
sinni. Fréttamenn eiga að leggja höf-
uðáhersluna á að segja hlustendum
og áhorfendum fréttir, án þess að
vera stöðugt að blanda sjálfum sér í
lýsingar og fréttirnar.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Lundúnir | Bandaríski leikarinn David Schwimmer sést hér á æfingu á leik-
ritinu Some Girls, eða Sumar stúlkur, eftir Neil LaBute í Geilgud-leikhúsinu
í Lundúnum. Verkið verður frumsýnt síðar í mánuðinum. Schwimmer þreyt-
ir þar frumraun sína á West End en hann er líklega þekktastur fyrir hlutverk
sitt sem Ross í sjónvarpsþáttunum vinsælu Vinum.
Reuters
Schwimmer á West End
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
„Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Gjörið iðrun og trúið fagn-
aðarerindinu.“ (Mark. 1, 15.)