Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 58

Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 58
58 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK 6 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki streitast gegn náttúruöflunum í dag og farðu gætilega í samskiptum við aðra. Það er ekki auðvelt að afla sér liðsinnis núna, taktu það rólega. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að stilla þig um að eyða pen- ingum í eitthvert óhóf í dag. Dóm- greind þín í fjármálum er ekki upp á marga fiska. Ótrúlegt, en satt. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Yfirboðarar, t.a.m. foreldrar, kenn- arar og lögreglan, eru ekki á sama máli og tvíburinn í dag. Nú veistu það og átt að láta lítið á þér kræla á meðan. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ekki reyna að sannfæra aðra um þitt sjónarmið núna. Ekki láta einhvern annan sannfæra þig heldur. Þú upp- skerð bara mótþróa. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vinir eru ekki á sama máli og þú varðandi eitthvað sem tengist sam- eiginlegum eigum eða ráðstöfun fjár- muna. Ágreiningur um sameiginlegt eignarhald kemur upp. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Samskipti við nána vini og maka krefjast mikillar þolinmæði af þinni hálfu núna. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú talar. Ekki segja neitt sem þú átt eftir að sjá eftir á morg- un. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er ekki auðvelt að sýna sam- starfsmönnum þolinmæði í dag. Fólk virðist hreinlega bara fyrir þér. Reyndar er það þitt viðhorf sem er vandamálið, a.m.k. í sumum tilvikum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdrekinn á að láta sem minnst á sér kræla í dag. Settu undir þig höf- uðið og haltu þínu striki við vinnuna. Gættu þess að hafa allt þitt á þurru. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Ósætti heima fyrir teflir samskiptum við maka og nána vini í dálitla tví- sýnu í dag. Þegar ástandið er svona er best að segja bara sem minnst. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ekki láta það á þig fá þótt sam- starfsfólkið virðist ósamvinnuþýtt í dag. Það sér þig hugsanlega í sama ljósi. Haltu þér að verki og einbeittu þér að því sem að þér snýr. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn verður fyrir von- brigðum í ástamálum í dag. Mundu að hljóðar væntingar leiða bara til vonbrigða. Ekki samt segja það upp- hátt núna. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Jafnvel hamingjusamasta fjölskylda upplifir stundum neikvæðni og von- brigði. Það tilheyrir einfaldlega. Sýndu ástvinum biðlund í dag. Stjörnuspá Frances Drake Tvíburar Afmælisbarn dagsins: Þú ert hæfileikarík manneskja og jafn- framt mjög kraftmikil, nánast óviðráð- anlega framkvæmdasöm. Margir sem fæddir eru þennan dag laðast að skemmtanaiðnaðinum og kennslu. Þú nýtur þess að vera foreldri. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Tónlist Fella- og Hólakirkja | Þingeyingakórinn heldur vortónleika í Fella- og Hólakirkju kl. 15.30. Á efnisdagskrá verða íslensk og er- lend lög. Stjórnandi er Kári Friðriksson, undirleikari er Árni Ísleifsson. Verð að- göngumiða er kr. 1000. Kaffiveitingar verða í hléi. Laugarborg | Sigrún Hjalmtýsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdottir flytja íslensk sönglög og verk eftir Schubert og Alabieff. Kvenfélagið Iðunn býður uppá sunnudags- kaffi að tónleikum loknum. Seljakirkja | Sönghópurinn Norðurljós heldur sína fyrstu vortónleika kl. 17.00. Einsöngvari er Elmar Þór Gilbertsson og stjórnandi er Arngerður M. Árnadóttir. Efnisskráin er fjölbreytt með íslenskum og erlendum lögum. Sjá: http://www.this.is/ kor. Tónminjasetur Íslands | Tónleikar kvenna- kórsins Léttsveit Reykjavíkur verða í Tón- minjasetri Íslands á Stokkseyri kl. 15.00. Stjórnandi kórsins er Jóhanna V. Þórhalls- dóttir og undirleikari er Aðalheiður Þor- steinsdóttir. Á dagskránni eru m.a. íslensk- ar og erlendar dægurperlur og þjóðlög frá ýmsum löndum, m.a. Írlandi og Rússlandi. Myndlist Café Karólína | Hugleikur Dagsson – „I see a dark sail“. Dagsbrún, undir Eyjafjöllum | Ragnar Kjartansson. Eden, Hveragerði | Karl Theódór Sæ- mundsson. Elliheimilið Grund | Jeremy Deller. Gallerí I8 | Ólafur Elíasson. Lawrence Weiner. Gallerí Kambur | Sýning á myndum Þor- steins Eggertssonar. Gerðuberg | Sýningin Stefnumót við safn- ara II er opin virka daga frá kl. 11–17 og um helgar frá kl. 13–17. Sjá www.gerduberg.is. Grafíksafn Íslands | Forum For Kunst. Gestir: Roswitha J. Pape, Werner Schaub, Lynn Schoene, Manfred Kästner, Luitgard Borlinghaus, Elke Wassmann, Klaus Staeck, Dik Jungling, Werner Richter. Götur Reykjavíkur | Margrét H. Blöndal. Hafnarborg | Wilhelm Sasnal, Bojan Sarcevic, Elke Krystufek, On Kawara. Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi | Auð- ur Vésteinsdóttir opnar einkasýningu í dag kl. 14. Sýningin ber heitið Straumur og eru myndverkin öll ný. Kling og Bang gallerí | John Bock. Listasafn ASÍ | Ólafur Árni Ólafsson, Libia Pérez de Siles de Castro. Listasafn Árnesinga | Jonathan Meese. Listasafnið á Akureyri | Matthew Barney, Gabríela Friðriksdóttir. Listasafn Íslands | Dieter Roth. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Gabríel Kuri, Jennifer Allora og Guilliermo Calza- dilla, Brian Jungen, Hekla Dögg Jónsdóttir, John Latham, Kristján Guðmundsson. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Diet- er Roth, Peter Fischli, David Weiss, Har- aldur Jónsson, Urs Fischer. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Útskriftarsýning nemenda við Listahá- skóla Íslands. Mokka-Kaffi | Multimania – Helgi Sig. Sjá: www.hugverka.is. Norræna húsið | Norski málarinn Örnulf Opdahl. Nýlistasafnið | Thomas Hirschhorn. Skaftfell | Anna Líndal. Skriðuklaustur | Sýning 8 listamanna af Snæfelli, þ.á m. eru verk eftir Kjarval, Finn Jónsson og Guðmund frá Miðdal. Einnig er sýning á svarthvítum ljósmyndum af fólki eftir Sigurð Blöndal í gallerí Klaustri. Sýn- ingarnar eru opnar kl. 12–17 alla daga. Slunkaríki | Hreinn Friðfinnsson, Elín Hansdóttir. Suðsuðvestur | Anna Hallin sýnir málverk, teikningar, videó-verk, skúlptúr og videó- auga í Suðsuðvestri. Vatnstankarnir við Háteigsveg | Finnbogi Pétursson. Vestmannaeyjar | Micol Assael. Við Fjöruborðið | Inga Hlöðvers. Ný og eldri verk. Listasýning Handverk og hönnun | Finnskur starfs- hópur kynnir ljósmyndir og nytjalist. Sýn- ingin opnuð í dag kl. 17. Iða | Útskriftarnemar í ljósmyndun við Iðn- skóla Reykjavíkur sýna lokaverkefni sín í Iðu, Lækjargötu. Söfn Smámunasafnið í Sólgarði | Eyjafjarð- arsveit. Opið alla daga í sumar fram til 15. september frá kl. 13–18. Þjóðmenningarhúsið | Fyrirheitna landið er heiti sýningar sem segir frá ferðum fyrstu Vestur-Íslendinganna; mormónanna sem settust að í Utah. Skemmtanir Traffik | Á móti sól spilar sunnudagskvöld. Fréttir Orgelsjóður Kristskirkju | Orgelsjóður Kristskirkju Landakoti heldur bílskúrssölu að Hávallagötu 16 helgina 21.–22. maí. All- ur ágóði rennur í viðhaldssjóð. Fundir Kvenfélagið Heimaey | Aðalfundurinn verður mánudaginn 23. maí í Ársal Hótel Sögu kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf, stjórnarkjör og nefndir endurskoðaðar. Páll Steingrímsson verður gestur fund- arins. SFR | Aðalfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 31. maí klukkan 20 hjá SFR á Grettisgötu 89, 4. hæð. Venjuleg aðal- fundarstörf. Indlandsvinafélagið | Aðalfundurinn verð- ur haldinn í Bólstaðarhlíð 44, 1. hæð mánudaginn 23. maí kl.20. Venjuleg aðal- fundarstörf. Amin sýnir myndir frá nýlegri Indlandsferð. Námskeið Frímerkjasafnarar | Fræðsla um meðferð og söfnun frímerkja verður í Síðumúla 17, laugardaginn 22. maí. Kennd verður lausn frímerkja af pappír, meðferð og varðveisla merkja, sýnd hjálpartæki, rit um frímerki og uppsetning safna. Kennd verður greing afbrigða og útgáfa. Aðgangur ókeypis fyrir alla. Uppl. hjá Halldóri s. 693 2163. Útivist Ferðaklúbbur eldri borgara | Farið verður í 6 daga ferð um Vestfirði dagana 26. júní til 1. júlí. 4 sæti laus vegna forfalla. Allir eldri borgarar velkomnir. Upplýsingar í síma 892 3011. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 ræfilslegt, 8 end- ar, 9 spjald, 10 þegar, 11 virki, 13 skynfærin, 15 hafa í hávegum, 18 mjög gott, 21 gagn, 22 rengla, 23 landspildu, 24 mikill þjófur. Lóðrétt | 2 rækta, 3 málms, 4 ganga hægt, 5 tigin, 6 ókjör, 7 þráður, 12 tangi, 14 ótta, 15 veiti húsaskjól, 16 fisks, 17 lyktum, 18 spilið, 19 eðl- inu, 20 fréttastofa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 stolt, 4 þylur, 7 offur, 8 rjúpu, 9 táp, 11 tonn, 13 ótta, 14 óláns, 15 falt, 17 auka, 20 ata, 22 ræpan, 23 gabba, 24 reisa, 25 arðan. Lóðrétt | 1 skolt, 2 orfin, 3 tært, 4 þorp, 5 ljúft, 6 rausa, 10 áfátt, 12 nót, 13 ósa, 15 firar, 16 Lappi, 18 umboð, 19 asann, 20 anga, 21 agga. Ferðafélagið Útivist stendur að tveggjadaga námskeiði 25. og 28. maí næstkomandi, um jarðfræði Íslands,myndun lands og mótun. „Ég mun fjalla um jarðfræði Reykjavíkur og nágrennis,“ segir Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur og far- arstjóri en hún mun kenna á námskeiðinu. „Reykjanesskaginn býður upp á óendalega möguleika. Þar koma heimsálfumörkin á land, þar sem skiljast hvor frá annarri Ameríka og Evrópa. Þar höfum við allan þennan jarðhita, ísöldina ljóslifandi í móbergsmyndum, mó- bergshryggjum og móbergskeilum eins og Keili. Þar eru líka eldborgir eins og Eldborg undir Geitahlíð, þannig að þarna er að finna mismunandi tegundir af gígum. Það sem ég ætla að gera er að fjalla um hvernig ytri að- stæður hafa áhrif á útlit eldstöðva. Fyrir mér er jörðin lifandi. Hún hefur sín æviskeið og markmiðið er að leitast við að skýra hvernig jörðin fer stöðugt í gegnum nýmyndunar- og hrörnunarferli. Það er alltaf eitthvað nýtt að koma upp og annað að eyðast. Jörðin er sér- fræðingur í endurvinnslu. Væntanlega hefur flest allt efni sem er á yfirborði jarðar verið þar einhvertíma áður. Reykjanes er alger perla hvað þetta varðar með ólík hraun, gos undir jökli, gos í sjó, gos í vatni og gos á þurru landi. Spurningin er, hvernig var kvikan sem kom upp? Var hún hrein eða þunnfljótandi? Með miklu eða litlu gasi? Þetta er eins og að baka, hvernig vill maður hafa kökuna, mikið eða lítið lyftiduft. Síðan er það hinn flöturinn það er veðrun og rof. Við tölum um innri og ytri öfl. Innri öfl byggja upp með jarðskjálftum og eld- gosum knúnum orku úr iðrum jarðar.“ Ásta segir að ætlunin sé að fara í aðra ferð um Borgarfjörð í haust og skoða „gamla“ Ís- land, en þar er hægt að skoða hátt í 13 milljón ára gamalt berg. „Það er land sem varð til fyr- ir ísöld og þar er hægt að skoða áhrif ytri afla á landið eins og sólarinnar, frostsins, rigning- arinnar, þ.e. hvaða áhrif veðrun hefur á ásýnd landsins,“ segir hún. „Ekki má gleyma öllum hverunum. Á Reykjanesi eru hverir sem tengj- ast eldvirkni og svo eru það leirhverir með sinn brennisteinsfnyk og sölt sem gefa maga- pínu ef maður sleikir. Í Borgarfirði eru hverir með jarðhita frá berginu sjálfu án þess að kvika komi nálægt. Það eru allt öðru vísi hver- ir. Markmiðið með námskeiðinu er að gefa fólki örlitla innsýn í þann stórkostlega heim sem Ís- land er. Að geta ferðast um landið, skynja og njóta og skilja það sem fyrir augu ber gefur mikla dýpt. Það er eins og að ferðast um sögu- slóðir og þekkja söguna.“ Námskeiðið er fyrir alla áhugasama en far- arstjórar hjá Útivist hafa forgang. Jarðfræði Íslands | Myndun lands og mótun Að skilja og njóta landsins   Ásta Þorleifs- dóttir, er fædd í Þýska- landi og ólst upp að mestu í Reykjavík. Hún er stúdent frá Mennta- skólanum við Sund og jarðfræðingur frá Há- skóla Íslands. Hún er með meistaragráðu í jarðverkfræði frá Há- skólanum í Birmingham og er að ljúka námi í op- inberri stjórnsýslu. Hún hefur starfað mikið að náttúruverndar- og umhverfismálum en á síðari árum hefur hún sinnt rafrænni stjórn- sýslu. Maður hennar er Halldór Björnsson lög- fræðingur. Hún á tvö börn, Lilju Steinunni og Tómas Orra. 95 ÁRA afmæli. Sigurður M.Helgason, fv. borgarfógeti, Dalbraut 18, Reykjavík, er 95 ára í dag, 22. maí 2005. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.