Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 62

Morgunblaðið - 22.05.2005, Page 62
62 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Með merkilegustu plötu-fyrirtækjum Bretlandser smáfyrirtækið stóraFat Cat, sem Íslend- ingar þekkja væntanlega mæta vel fyrir samstarf við Grindverk, Sigur Rós og múm, en Fat Cat hefur gefið út þessar sveitir allar og gefur enn út þá síðastnefndu. Fat Cat er gott dæmi um fyrirtæki sem rekið er með listina að leiðarljósi, ars gratia artis, og fyrir vikið er útgáfusaga þess ævintýraleg á köflum; á milli þess sem fyrirtækið gefur út inn- blásna snilld á við Sigur Rós (reynd- ar komin á mála hjá EMI núna), múm, Animal Collective, Max Richt- er, To Rococo Rot og Mice Parade, koma plötur með suði, braki, bjögun og brjálæði á við Janek Schaefer, The Dead C, Merzbow og Xinlis- upreme. Ekkert gefur þó betri mynd af fyrirtækinu en útgáfuröð sem kallast einfaldlega Split Series, sem snara má sem klofaröðin, en í þriðju syrpu þeirrar raðar komu til að mynda út tvær plötur um daginn með tónlist sem spannar allt frá tregaskotnu þjóðlagapoppi í geggjað Kongóstuð við viðkomu í gítarsýru og tilraunarokki. Fat Cat var plötubúð í Crawley, skammt frá Lundúnum, sem sér- hæfði sig í tilraunakenndri raf- tónlist. Plötusnúðarnir og félagarnir Dave Cawley og Alex Knight stofn- uðu búðina 1990 og ráku hana með svo góðum árangri að 1991 fluttu þeir sig í miðborg Lundúna, komu sér upp búð í Covent Garden. Úrvalið fyrsta flokks Plötuúrvalið í búðinni var æv- inlega fyrsta flokks, enda þeir báðir vel með á nótunum sem virkir plötu- snúðar, og smám saman varð versl- unin Mekka raftónlistaráhuga- og atvinnumanna. Ekki var þó bara að menn kæmu til að kaupa plötur, heldur varð æ algengara að þangað kæmu menn með forvitnilegar upp- tökur sem þeir vildu endilega koma út. 1996 stóðust þeir félagar ekki lengur mátið og hrintu úr vör plötu- fyrirtæki, samnefnt búðinni, til að gefa út álíka tónlist og þeir seldu – tilraunakennda raftónlist. Fyrstu plötunum var vel tekið en 1997 lentu þeir í erfiðleikum með að reka búð- ina, enda dýrt að reka svo sérhæfða verslun í túristahverfinu í kringum Klausturgarðinn í miðborginni þar sem leigan er himinhá. Sumarið 1997 lokuðu þeir því búðinni og ein- beittu sér að plötuútgáfu, framan af með stuðningi og velvild One Little Indian. Þriðji Fat Cat maðurinn slóst svo í hópinn fljótlega eftir að búðin lagði upp laupana, David Howell, ritstjóri tímaritsins Obsessive Eye, sem lagði aðaláherslu á tilraunarokk. Meðal þess sem hann lagði með sér var sú hugmynd að gefa út röð af 12" sem skipt yrði á milli listamanna, ráðsettra sem ókunnra, en á plöt- unum myndu þeir fá að láta gamm- inn geisa án skuldbindinga og ábyrgðar. Útgáfuröðin fékk heitið Split Sides, eins og getið er, og fyrsta platan í röðinni, Split #1, með tónlist eftir Third Eye Foundation á annarri hliðinni og V/Vm á hinni, kom út 1. mars 1998. Hvít götótt umslög Plöturnar í útgáfuröðinni eru nán- ast eins útlits, umslögin hvít með götum á sem segja til um hvar í röð- inni viðkomandi plata er. Í hverri út- gáfusyrpu eru átta plötur og framan af var útgáfan nokkuð hröð. Það setti útgáfuna þó útaf sporinu um tíma þegar í ljós kom að tónlist sem fyrirtækinu var send sem væri hún frá Pole og rataði á Split #8 (James Plotkin / Pole) var eftir allt annan og óþekktan tónlistarmann, þannig að sú plata var innkölluð og eyðilögð. #8 kom svo út ári síðar og þá sem James Plotkin / Pimmon. Smám saman sótti fyrirtækið í sig veðrið og náði til að mynda afar góðri sölu á 12" með endurgerð Funkstörung á Bjarkarlaginu All Is Full Of Love. Sú plata seldist reynd- ar svo vel fyrstu vikurnar að hún hefði komist inn á vinsældalistann breska ef umslagið hefði ekki verið ómerktur hvítur flötur og ekkert strikamerki. Sigur Rós vendipunktur Ákveðinn vendipunktur varð í rekstri fyrirtækisins þegar það gerði útgáfusamning við Sigur Rós, en þeir félagar Cawley og Knight komu hingað sem plötusnúðar á fyrstu Airwaves-hátíðina og hrifust svo af sveitinni að þeir gerðu við hana útgáfusamning. Meðal annars vegna anna við að sinna mikilli eft- irspurn eftir Sigur Rós drógu þeir félagar úr útgáfuhraða á klofaröð- inni, kláruðu útgáfusyrpu eitt, Split #1 til #8, sumarið 1999 og en það tók þá fjögur ár að ljúka við syrpu tvö, Split #9 til #16 – til að mynda kom aðeins ein 12" út 2001, tvær 2002 og svo loks síðasta platan í syrpunni 2003. Á síðasta ári kom svo engin 12" og það er ekki fyrr en nú sem þeir félagar hrökkva í gang aft- ur – í mars komu út tvær plötur í þriðju syrpunni, Split #17 og #18. Þess má svo geta að á vefsetri Fat Cat, fat-cat.co.uk, er að finna fyr- irtaks prufuupptökusafn, þ.e. ýmis lög sem aðstandendur fyrirtækisins hafa fengið send ýmist til að setja inn á vefinn eða í von um að þeir vilji gefa þau út. Þar er einnig að finna leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast gera plötu, hvort sem þeir eru að spá í að taka upp og gera frum- eintak eða fara alla leið og gefa út sjálfir. Rafmagnað þumalpíanó Allur þessi langi inngangur er eiginlega að hálfri 12", tólftommunni sem hefur að geyma upptökur með kongósku hljómsveitinni Konono N°1, því þar er komin ein skemmti- legasta útgáfa Fat Cat í langan tíma. Hljómsveitin sú var stofnuð fyrir aldarfjórðungi og hefur æv- inlega verið undir styrkri stjórn Mawangu Mingiedi, sem leikur á likembe sem lýsa má sem þum- alpíanói – boxi sem búið er að spenna á stálfjaðrir, oft úr gömlum dekkjum, sem síðan er spilað á með þumlunum. Likembe, sem ein- hverjir þekkja kannski undir nafn- inu mbira eins og það kallast í Zim- babwe, setur mjög sterkan svip á tónlist Konono N°1, enda eru þrjú slík notuð og rafmögnuð í botn. Ann- að sem gefur tónlistinni sérstakan blæ er að hingað til hefur hljóm- sveitin notast við heimagerða hljóð- nema sem smíðaðir eru úr seglum sem hirtir hafa verið úr bílhræjum og síðan settir í tálguð tréhús. (Set- ur hljóðnemasnobb sumra söngvara óneitanlega í hlægilegt samhengi.) Skæld og knúsuð Tónlist Konono N°1 dregur dám af leiðslutónlist frá Vestur-Kongó, en einnig hefur sveitin þurft að laga hljóminn og lagasmíðar að takmörk- unum hljóðkerfisins, ekki bara hljóðnemanna, heldur hafa að- alhátalarar hennar verið gjall- arhorn. Getur nærri að tónlistin sem sveitin leikur sé skæld og knúsuð. Konono N°1 á tvö lög á Split #18 og tekur gersamlega í nefið þá lista- menn sem eiga lög á hinni hliðinni, The Dead C, fyrir frumleika, spila- gleði og baneitraða keyrslu. Crammed útgáfan belgíska gaf fyrir stuttu út breiðskífu með Ko- nono N°1 í útgáfuröð sem fyrirtækið kallar Congotronics, en önnur plata í þeirri röð er væntanleg síðsumars og hefur að geyma upptökur með fleiri kongóskum sveitum sem standa víst Konono N°1 lítt eða ekk- ert að baki. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Fat Cat og Konono N°1 Breska útgáfan Fat Cat er Íslendingum að góðu kunn fyrir samstarf við íslenska listamenn en hún er líka með merkilegustu útgáfum Bretlands nú um stundir. Kongóska hljómsveitin Konono No1. Sýnd kl. 12, 2 og 4 m. ísl talikl. 12 og 3.40 m. ísl tali HL mbl EINSTÖK UPPLIFUN ÍSLENSK TÓNLIST Í 1000 ÁR Sýnd kl. 6 og 8 KINGDOM OF HEAVEN ORLANDO BLOOM  HL mbl l  HL mbl l kl. 11, 2, 5, 8 og 11 B.I 16 ÁRA   SK.dv  HL mbl SK.dv Miðasala opnar kl. 10.30 kl. 10 og 00.15 e.miðnætti B.I 12 ÁRA kl. 12, 3, 6, 9 og 00 á miðnætti Skráðu þig á bíó.is Sýnd kl. 1.50 og 8 Sýnd kl. 5.20 og 10 B.I 16 ÁRA EINSTÖK UPPLIFUN ÍSLENSK TÓNLIST Í 1000 ÁR KINGDOM OF HEAVEN ORLANDO BLOOM „Allt sem maður getur mögulega viljað í Star Wars-mynd og rétt rúmlega það“ Tómas Valgeirsson, kvikmyndir.is 1/2 „Lucas tekst það sem Stjörnustríðsaðdáendur vonuðu: Að loka hringnum með glæsibrag“ Sæbjörn Valdimarsson, MBL „ “ , . „ : “ , STJÖRNUSTRÍÐ ER HAFIÐ! Sýnd í smárabíó kl. 11, 1, 2, 4, 5, 7, 8, 10 og 11 „Revenge of the Sith er áhrifamesta Star Wars myndin síðan The Empire Strikes Back gerði allt vitlaust árið 1980. Dramatíkin og slagkrafturinn í þessum magnaða lokakafla er með ólíkindum. Máttur Lucasar er mikill og hér eyðir hann engum tíma í óþarfa kjaftæði. Þetta er einfaldlega 100% Star Wars.“ Þórarinn ÞóraRinsson, Fréttablaðið  „ . . . .“ , Sýnd í Borgarbíói kl. 12, 2.40, 5.20, 8 og 10.45 Kraftsýning b.i. 10 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.