Morgunblaðið - 23.05.2005, Page 1

Morgunblaðið - 23.05.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 137 . TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Fita er góð – í hófi Ekki forðast fitu, en borðið góða fitu segja næringarþerapistar | Heilsa Fasteignir og Íþróttir í dag Fasteignablaðið | Steiningin endurvakin  Viðhaldsfrí garð- húsgögn  Hitastýring í Óperunni Íþróttir | Tryggvi með 200. þrennuna í efstu deild  Þórður Þórðarson neyðist til að hætta ÓSKAR Ólafsson, bóndi á Steiná II í Austur- Húnavatnssýslu, segir rafmagnsreikning vegna húshitunar og reksturs kúabús hafa hækkað um 13 þúsund krónur á mánuði eftir breytingar á töxtum raforkufyrirtækjanna í kjölfar nýrra raforkulaga sem tóku gildi um áramót. Óskar fékk nýverið sendan fyrsta raf- magnsreikninginn eftir aflestur síðan breyt- ingarnar voru gerðar. Hann kveðst áður hafa greitt 30–32 þúsund krónur á mánuði í raf- magn en reikningurinn nú hljóði upp á 45 þús- und krónur. Óskar segir að ef fram haldi sem horfi stytt- ist í að ódýrara verði fyrir hann að kynda með olíu í stað rafmagns. Hækkunin nemi tvöföldu til þreföldu því verði sem kostar að kynda íbúð í þéttbýli. „Það er náttúrlega sérkennilegt á Íslandi þar sem við framleiðum með því mesta sem um getur á mann í heiminum af raforku, að það sé á mörkunum að þegnar landsins geti keypt orkuna. Þá hljótum við að vera komin á sér- kennilegar brautir,“ segir Óskar. Hann hefur reiknað út að hann þyrfti 6–7 þúsund lítra á ári ef hann kynti með dísilolíu. Lítrinn af dísilolíu kostar nú í kringum 51 krónu en það eitt gerir um 30 þúsund krónur á mánuði í olíukaup. Óskar er með meðalstórt kúabú sem fram- leiðir um 140.000 lítra af mjólk á ári. Hann seg- ir að hægt sé að skera niður raforkunotkun með því að setja upp sérstaka plötukæla og forkæla mjólk sem fer ofan í tanka. Þá sé mögulegt að bæta einangrun íbúðarhúsnæðis. Það vegi þó ekki upp á móti hækkunum á raf- orkutaxta, auk þess sem ávinningur af slíkum breytingum sé lengi að skila sér. Bændasamtökin skoða nú breytingar á raf- orkukostnaði bænda vegna nýrra raforkulaga. Ódýrara að kynda með olíu Eftir Kristján Geir Pétursson kristjan@mbl.is ÓSIGUR þýskra jafnaðarmanna í kosningum í gær í Nordrhein-Westfalen, fjölmennasta sambandslandi Þýskalands, varð til þess að Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sá sig knúinn til að lýsa því yfir að hann vildi flýta al- mennum þingkosningum í landinu. Sagði Schröder að hann hefði ekki lengur óskorað umboð til að framkvæma nauðsynlegar um- bætur á efnahagskerfi Þýskalands. Því vildi hann halda kosningar sem fyrst og að raun- hæft væri að af þeim gæti orðið í haust; þ.e. heilu ári á undan áætlun. Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD) hefur ver- ið við völd í Nordrhein-Westfalen samfleytt í 39 ár og því eru úrslit kosninga þar í gær mikið áfall fyrir flokkinn. Þykja skilaboðin sem kjós- endur í Nordrhein-Westfalen sendu Schröder kanslara býsna skýr. Mikil óánægja er með ríkisstjórn SPD og græningja og þá ekki síst slæmt atvinnuástand í landinu, sem farið hefur CDU og Frjálsir demókratar myndi saman stjórn í Nordrhein-Westfalen. Schröder varð kanslari Þýskalands eftir kosningar 1998. Flokkur hans hefur hins vegar tapað áhrifum í sambandslöndunum sextán æ síðan. SPD var við völd í ellefu sambandslönd- um 1999, ári eftir að Schröder komst til valda, en eftir úrslitin í Nordrhein-Westfalen í gær er SPD aðeins við völd á fimm stöðum. Ríkisstjórn SPD og græningja hefur und- anfarin misseri reynt að hrinda í framkvæmd umdeildum umbótum á velferðarkerfinu þýska, sem m.a. hefur þýtt lækkun atvinnu- leysisbóta. Er markmiðið að blása lífi í við- skipta- og atvinnulíf landsins og efla hagvöxt. Schröder hefur hins vegar mætt mikilli and- stöðu, líka í eigin flokki. Því var ljóst fyrirfram að úrslitin í gær gætu orðið afdrifarík. Angela Merkel, leiðtogi CDU, gaf til kynna í gær að hún væri alls ekki andsnúin því að kosningar yrðu haldnar strax í haust. Neðri deild sambandsþingsins þýska mun þó þurfa að samþykkja formlega að flýta kosningum. versnandi; en atvinnuleysi í Nordrhein- Westfalen mælist nú 12,1%, um það bil ein milljón manna er þar án atvinnu. Jafnaðarmenn fengu skv. útgönguspám og fyrstu tölum 37,3% í kosningunum í gær, tapa 5,5 prósentustigum. Kristilegir demókratar (CDU) fengu hins vegar 44,7% og hrósuðu sigri. Græningjar fengu 6,1%, sama fylgi og Frjálsir demókratar. Má gera ráð fyrir að Vill flýta kosningum Gerhard Schröder segir nauðsynlegt að sækjast strax eftir endurnýj- uðu umboði frá almenningi eftir slæmt tap SPD í Nordrhein-Westfalen Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Reuters Gerhard Schröder var þungur á brún í gær. Teheran. AFP. | Kjörstjórn í Íran hefur úrskurð- að að aðeins sex einstaklingar fái að vera í framboði í forsetakosningum sem eiga að fara fram í landinu 17. júní nk. Alls höfðu 1.014 lýst yfir framboði. Meðal þeirra sem hefur verið meinað um að bjóða sig fram er Most- afa Moin, fyrrverandi menningarmálaráðherra, en hann var frambjóðandi flokks umbótasinna. Þá hlaut engin þeirra 89 kvenna, sem hugðu á fram- boð, náð fyrir augum hinnar íhaldssömu kjörstjórnar. Fyrirfram var talið nokk- uð víst að kjörstjórnin myndi meina öllum konum að bjóða sig fram. Akbar Hashemi Rafsanjani, fyrrverandi for- seti, verður í framboði en Rafsanjani, sem er raunsær íhaldsmaður, þykir líklegastur sigur- vegari í forsetakosningunum. Fjórir hinna fimm, sem eiga að fá að bjóða sig fram, eru hins vegar harðlínumenn. Einn umbótasinni fær að bjóða sig fram, Mahdi Karroub, fyrrverandi þingforseti, en hann hefur verið bandamaður fráfarandi forseta, Mohammeds Khatami. Sex fá að bjóða sig fram í Íran Akbar Hashemi Rafsanjani Engin kona hlaut náð fyrir augum kjörstjórnar MIKLAR gróðurskemmdir urðu á Rjúpnahæð á Vatns- enda í einum alvarlegasta sinubruna af fjölmörgum á höfuðborgarsvæðinu á þessu vori. Slökkviliðsmenn hafa miklar áhyggjur af þurrkum næstu daga. Í gær brann um hálfur hektari á Rjúpnahæð og varð bæði mosi og lyng eld- inum að bráð. Friðrik Þor- steinsson, stöðvarstjóri hjá Slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins, segir fyr- irsjáanlegt að stórt sárið muni blasa við fólki næstu árin. Auk þeirrar augljósu hættu sem sinubrunar valda börnum ef þau lokast inni í eldunum geta þeir ógnað ná- lægri byggð að ógleymdri mengun af reyknum. Morgunblaðið/Árni Torfason Miklar skemmdir í sinubruna INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, nýkjörinn formaður Samfylking- arinnar, segir að landsfundur flokksins um helgina hafi markað mikil tímamót í sögu hans. „Það er alveg ljóst, af þessum fundi, að kominn er fram á sjónarsviðið stór og öflugur flokkur, sem hefur sýnt samkeppnishæfni sína á hinum pólitíska markaði með eft- irminnilegum hætti.“ Hún segir að flokkurinn hafi með öðrum orðum sýnt kraft sinn og styrk. „Það var góð stemmning Nýtt fólk var kjörið í öll helstu embætti flokksins á landsfund- inum um helgina. Ágúst Ólafur Ágústsson var kjörinn varafor- maður með tæplega 62% greiddra atkvæða. Gunnar Svavarsson var kjörinn formaður framkvæmda- stjórnar, Helena Karlsdóttir ritari og Ari Skúlason gjaldkeri. Ingibjörg segir aðspurð að hún óttist ekki að formannsslagurinn milli sín og Össurar Skarphéð- inssonar, fráfarandi formanns, eigi eftir að kljúfa flokkinn. „Nei, það hvarflar ekki að mér,“ segir hún. samþykktar á fundinum. Tillögum tveggja hópa, þ.e. um auðlindanýt- ingu og umhverfisvernd annars vegar og um varnar- og öryggis- mál hins vegar, var á hinn bóginn vísað til frekari vinnslu á stefnu- þingi flokksins, sem halda á næsta vetur. Ingibjörg segir að flokks- menn hafi viljað ræða þessar til- lögur frekar og neitar því að um þær hafi ríkt ágreiningur. Hún segir m.a. aðspurð að góður sam- hljómur sé innan flokksins um nið- urstöður síðarnefnda hópsins. „Þær eru grunnurinn undir stefnumótun okkar í öryggis- og varnarmálum,“ segir hún. á fundinum og mikil gleði í loftinu. Fólk skynjaði mjög sterkt hvað þarna er orðin til öflug hreyfing.“ Tillögur fjögurra starfshópa framtíðarhópsins svonefnda, sem eiga ásamt fleiri tillögum að mynda grunn að heildstæðri stefnuyfirlýsingu flokksins, voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar Fundurinn tímamót í sögu flokksins  Landsfundur | 2 | miðopna Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.