Morgunblaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.05.2005, Blaðsíða 26
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG SKAL FARA MEÐ ÞIG TIL ÞESS AÐ SJÁ JÓLASVEININN EF ÞÚ LOFAR AÐ VERA ÞÆGUR VIÐ FÖRUM EKKI FET HVAÐ MEINARÐU?! ERTU AÐ SEGJA AÐ ÉG SÉ LÉLEGUR LYGARI?! KÆRA, LITLA, RAUÐHÆRÐA STELPA. ÞAÐ ER AÐ KOMA KVÖLD... OG ÉG VILDI AÐ ÞAÐ VÆRI SNJÓKOMA MEÐ STÓRUM FALLEGUM SNJÓKORNUM OG VIÐ HÉLDUMST Í HENDUR Í KULDANUM... MÖRG GÓÐ BRÉF KOMAST ALDREI Í PÓST HOBBES, HVAÐ RÁÐLEGGUR ÞÚ MÉR AÐ GERA NÆST ÞEGAR MUMMI ÆTLAR AÐ LEMJA MIG Í LEIKFIMI? VEISTU HVAÐ VIÐ TÍGRISDÝRIN GERUM ÞEGAR NASHYRNINGUR RÆÐST Á OKKUR? HVAÐ GERIÐI? VIÐ HLAUPUM EINS OG VITLEYSINGAR UPP Í NÆSTA TRÉ ERU ÞETTA ÞÍN RÁÐ?!? AÐ SITJA UPPI Í TRÉ Í HEILAN DAG!! ÞAÐ HEILLAR EKKI STELP- URNAR. EN ÞAÐ GAGNAST MANNI LÍTIÐ AÐ HEILLA STELPURNAR OG DEYJA SÍÐAN MAMMA, VIÐ SENDUM SNATA Í HLÝÐNISSKÓLA OG HVERNIG GEKK ÞAÐ? ÞAÐ GEKK BARA MJÖG VEL. HANN HLÝÐIR ÖLLU SEM ÉG SEGI HONUM HVENÆR ÆTLARÐU AÐ SENDA ÞENNAN Í HLÝÐNISSKÓLA? ÆTLAR ÞÚ EKKI AÐ HRINGJA Í DÝRAVERNARRÁÐ OG KÆRA ÞETTA?! ÆTLAR ÞÚ EKKI AÐ SEGJA FORELDRUM ÞÍNUM FRÁ ÞVÍ AÐ ÞÚ OG KÆRASTAN ÆTLIÐ AÐ FLYTJA INN SAMAN? ÞAU ERU SVO GAMALDAGS AÐ ÞEIM FYNDIST ÉG HAFA SVIKIÐ ÞAU ÞANNIG AÐ ÉG ÆTLA EKKI AÐ SELJA ÍBÚÐINA MÍNA OG VERA ALLTAF MEÐ AFSAKANIR FYRIR ÞVÍ AÐ VERA ALDREI HEIMA ÞÚ VEIST AÐ ÞÚ GETUR EKKI HALDIÐ ÞESSU LEYNDU AÐ EILÍFU FINNST ÞÉR EKKI OF SNEMMT AÐ SEGJA TIL UM ÞAÐ NÚNA? ÞAÐ ER HÆGT AÐ FINNA SVO MARGT Á NETINU ÞAÐ ER HÆGT AÐ PANTA HLUTI ÁN ÞESS AÐ STÍGA ÚT ÚR HÚSI ÞESSI SÍÐA GETUR ÞREFALDAÐ SPARIFÉÐ MITT... EF ÉG SLÆ BARA INN NÚMERIÐ Á REIKNINGNUM MÍNUM ÞAÐ ER GOTT AÐ VITA AÐ MAY FRÆNKA ER AÐ SKEMMTA SÉR VIÐ NÝJU TÖLVUNA SÍNA Á MEÐAN... Dagbók Í dag er mánudagur 23. maí, 143. dagur ársins 2005 Víkverji er að veltaþví fyrir sér hvort Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafi nokkuð verið að fylgj- ast með Evrópu- söngvakeppninni sem fram fór á fimmtudag og nú á laugardag. Ef svo er þá hlýtur hann að hafa brosað í kamp- inn, niðurstaða keppn- innar virðist nefnilega staðfesta það mat hans að „gamla“ Evr- ópa sé hætt að skipta máli – en Rumsfeld notaði þetta orðalag í aðdraganda Íraksstríðsins um hinar gömlu áhrifaþjóðir í Evrópu, s.s. Frakk- land og Þýskaland – „nýja“ Evrópa, löndin er áður tilheyrðu Aust- urblokkinni, seilist nú (sem betur fer) til áhrifa og valda. Víkverji er hér að vísa til þess að í neðstu fjórum sætunum í Evrópu- söngvakeppninni á laugardag urðu Spánverjar, Bretar, Frakkar og Þjóðverjar (hér eru Spánn og Bret- land skilgreind sem „gamla“ Evrópa þó að þau hafi raunar fylkt liði með Bandaríkjunum í Írak). Víkverji sér ástæðu til að fagna breytingunum sem eru að verða á Evróvisjón; það er gott mál að nýjar þjóðir láti nú að sér kveða og að önnur tón- listarmenning ráði nú ríkjum í keppninni. Víkverji getur raun- ar ekki orða bundist um þann hroka sem honum fannst ein- kenna ummæli að- standenda íslensku keppendanna eftir undankeppnina á fimmtudag sem og margra annarra sem um úrslitin hafa fjallað. Ísland komst ekki áfram í að- alkeppnina og af viðbrögðum manna má helst álíta að þeir telji eitthvert hróplegt óréttlæti hafa átt sér stað, að Ísland hafi átt guðlegan rétt á því að komast áfram. Það er síðan merkilegt hversu Ís- lendingum finnst óeðlilegt að ná- grannaþjóðir, s.s. Balkanskagaþjóð- irnar, kjósi hver aðra. Slík gagnrýni hittir þá nefnilega illa heima fyrir, en sem kunnugt er gáfu Íslendingar Noregi tólf stig á laugardag og Dan- mörk tíu. Þegar grannt er skoðað kemur einnig í ljós að Ísland fékk 25 af 53 stigum sínum í undankeppn- inni frá Danmörku, Noregi og Sví- þjóð. Þannig er nú það. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is            Lundúnum | Þetta málverk Lucians Freud af dóttur sinni, Bellu, verður boð- ið upp hjá Christie’s í Lundúnum eftir réttan mánuð ásamt fjölda annarra samtímaverka. Gert er ráð fyrir að tvær milljónir sterlingspunda fáist fyrir verkið, þ.e. 236 milljónir íslenskra króna. Reuters Verðmætur Freud MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (Sálm. 23, 4.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.