Morgunblaðið - 23.05.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.05.2005, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UM þessar mundir er hálf öld liðin síðan fyrstu tölvuveðurspárnar voru gerðar. Páll Bergþórsson, fyrrver- andi veðurstofustjóri, hafði þar hönd í bagga en í tvö ár dvaldist hann í Stokkhólmi þar sem hann vann með hópi erlendra sérfræðinga. Hlutverk hans, ásamt sænskum starfsbróður, Bo R. Döös, var að semja tölvuforrit sem vann úr veðurathugunum til að gera kortið sem spáin byggðist á, í stað þess að veðurfræðingur teikn- aði það. Sjálf spáin var svo reiknuð allt upp í þrjá sólarhringa fram í tímann. Fyrsta spáin sem var þann- ig tölvureiknuð frá upphafi til enda var gerð 23. maí 1955, fyrir fimmtíu árum. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Þróunin var þó hæg í fyrstu, og viðbrögð margra veðurfræðinga einkenndust af tortryggni lengi vel, en nú má segja að mönnum hætti fremur til að nota þessar spár gagn- rýnislítið og án tillits til nýrri veð- urathugana, svo áreiðanlegar eru þær taldar. Spár frá samnorrænni miðstöð Hér eru tölvuspár í dag fengnar frá samnorrænni miðstöð sem Ís- land er aðili að og frá Evrópuveð- urstofu í Englandi. Páll er beðinn að lýsa því hvernig þátttaka hans kom til: „Mér bauðst að taka þátt í þess- ari vinnu hjá Svíum sumarið 1953 en þá hafði ég starfað á Veðurstofu Ís- lands í fjögur ár. Vorið 1954 var ljóst að við þyrftum meiri tíma og ég fékk því leyfi frá Veðurstofunni til að framlengja dvöl mína þar. Hinn þekkti sænski prófessor, Carl- Gustaf Rossby, sem starfað hafði um árabil í Bandaríkjunum en flust aft- ur til Svíþjóðar, stýrði þessu verk- efni. Fékk hann til sín nokkra nor- ræna, bandaríska og evrópska veðurfræðinga til að taka þátt í því.“ Páll segir að tölvuspáin hafi náð yfir Bandaríkin, Norður-Atlants- hafið og Evrópu. Hver spá hófst á því að mata tölvuna með upplýs- ingum um loftþrýsting og vinda í 5 kílómetra hæð á um 200 stöðvum. Þessi öflugasta tölva heims var þó ekki burðugri en svo að aðeins var hægt að setja inn athuganir frá 5 stöðvum í senn og tölvan varð síðan að melta þær örlitla stund og finna áhrif þeirra á kortið umhverfis í til þess að fá eins konar meðaltal af ókomnu veðurfari, einkanlega loft- hitanum.“ Síðan Páll kom aftur til Íslands eftir þátttöku í fyrstu tölvuspánum hefur hann einmitt lagt stund á lang- tímaspár, en út frá sérstökum for- sendum. Þar kemur hið mikla haf á jörðinni við sögu með óhemju mikl- um varmaforða sínum sem endist ár- um og jafnvel áratugum saman. Frá vissum hafsvæðum berst kuldinn eða hitinn með straumum og vind- um, einna mest úr Íshafinu norður af Íslandi. Eftir þessu hefur hann spáð um árlegan hafís hér við land síðan 1970, og á hverju ári síðan 1995 um loftslag næstu 5–7 ára um allt norðurhvelið, en um gróðurfar sumarsins hér á landi eftir því hvernig vetrarhitinn hefur farið með jörðina. verði að hafa aðeins 15 kílómetra milli punktanna í lárétta reikninet- inu og eftir því þétta punkta í því lóðrétta. Þetta gerir kleift að spá og fylgj- ast af meiri nákvæmni með um- fangslitlum en þýðingarmiklum fyr- irbærum eins og fellibyljum og skörpum vindaskilum. Spátíminn lengist „Síðan hefur spátíminn verið að lengjast og nú sendir Veðurstofa Ís- lands frá sér 6 daga spár í útvarpinu. Lengi hafa menn spáð fyrir 10 daga á Evrópuveðurstofunni og ég býst við að spátíminn lengist smám saman. Einstökum veðrum er þó ekki talið hægt að spá nema í mesta lagi nokkrar vikur fram í tímann. En með því að taka tillit til gróðurhúsa- áhrifa reikna menn spárnar í áratugi reglulegum punktum með 300 kíló- metra millibili. Síðan voru næstu 5 stöðvar afgreiddar á sama hátt. Þeg- ar kortið var þannig fullgert hófst síðan spáin sjálf, reiknuð eftir mjög einfölduðum eðlisfræðilögmálum. „Þessi tölvureiknuðu veðurkort og spárnar sem á þeim byggðust voru fyllilega sambærileg við kortin sem veðurfræðingar unnu í höndunum eftir sams konar athugunum,“ segir Páll. En munurinn var sá að með þessum spám hófst þróun sem hefur leitt til stórkostlegra framfara. Frá þeirri þróun var meðal annars skýrt á ráðstefnu sem Páli var boðið til í háskólanum í Maryland í Banda- ríkjunum í fyrra til að minnast upp- hafs tölvuspánna. Nú er ekki aðeins tekið tillit til loftþrýstings og vinda í 5 kílómetra hæð, heldur eru líka teknir til greina aðrir þættir veðurs- ins, hiti, geislun, úrkoma, uppgufun og skýjafar, í gervöllu gufuhvolfinu um allan hnöttinn, enda hafa veð- urbreytingar í einum heimshluta áhrif í fjarlægum löndum. Hitageisl- un frá öllum hæðum gufuhvolfsins út í geiminn er nú mæld með gervi- tunglum og þannig nást samfelldar upplýsingar frá öllum hnettinum þegar í upphafi spátímabils. Til að gera þessu sem best skil bíða menn jafnvel þess að ofurtölvur nútímans verði ennþá öflugri, svo að hægt Fimmtíu ár í dag frá fyrstu tölvuveðurspánni Lengri spátími og meiri nákvæmni Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is Fyrir 50 árum, 23. maí 1955, var vindakort tölvureiknað í fyrsta sinn eftir veðurathugunum dagsins og notað sem upphaf að tölvuspá fyrir næstu daga. Aðferð Páls og Svíans Bo Döös við gerð upphafskortsins leysti af hólmi handavinnu veðurfræðinga og var síðan tekin upp í öðrum löndum. Í pallborðsumræðu á ráðstefnu í Maryland í Bandaríkjunum í fyrra rifjuðu þessir heiðursmenn í hópi veðurfræð- inga upp upphaf og undirbúning tölvuveðurspánna fyrir hálfri öld. Frá vinstri Ronald McPherson, stjórnandi um- ræðunnar, Harry E. Nicholson, Páll Bergþórsson, Norm Phillips og Fred Shuman. GÍSLI Torfason kenn- ari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja lést síðast- liðinn laugardag lið- lega fimmtugur að aldri. Gísli var fæddur 10. júlí árið 1954 og hóf störf við Fjölbrauta- skóla Suðurnesja árið 1980. Kenndi hann stærðfræði auk þess sem hann starfaði sem námsferilsstjóri í skól- anum. Á yngri árum var Gísli knattspyrnumaður í fremstu röð. Hann lék fjölmarga unglinga- landsleiki og gekk til liðs við meistaraflokk Keflavíkur árið 1971. Um miðbik áttunda áratugarins var hann ennfremur fastamaður í íslenska knattspyrnu- landsliðinu og lék á þriðja tug landsleikja fyrir Íslands hönd. Síðar sneri hann sér að briddsíþróttinni og vann til margra verð- launa á þeim vett- vangi. Eftirlifandi maki Gísla er Rósa Sigurðardóttur og eignuðust þau einn son. Andlát GÍSLI TORFASON NÁGRANNAR Laugafisks á Akra- nesi, sem Morgunblaðið ræddi við, segjast hafa misst alla þolinmæði gagnvart starfsemi fyrirtækisins og lyktinni frá því. Einn sagði þetta ekki lengur geta kallast „peninga- lykt“ heldur „hreina og klára skíta- lykt“, sem Akranes gæti ekki verið þekkt fyrir. Bæjaryfirvöld yrðu að taka tillit til þessara kvartana. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu hefur heilbrigðisnefnd Vesturlands gert Laugafiski að draga úr starfseminni um helming í sumar, vegna kvartana. Þura Björk Hreinsdóttir, íbúi við Vesturgötu, segir það varla vera hægt að hengja þvott út á snúru lengur, allir gluggar séu hafðir lok- aðir á heimilinu til að forðast lyktina. „Ég keypti mér nýjan bíl og hann var orðinn angandi eftir smá tíma. Mörgu af þessu tagi höfum við kvart- að yfir,“ segir Þura, sem ásamt fleiri nágrönnum fyrirtækisins hefur ítrekað kvartað yfir menguninni. Undirskriftum hafi verið safnað fyr- ir um tveimur árum, eftir það hafi hlutirnir lagast eitthvað en samt sem áður séu þeir ekki í lagi. Þura segir lyktina berast víða um Akranes, ekki bara í næsta nágrenni fyrirtækisins. Hún segir nágranna sinn hafa leitað til lögfræðings og fleiri muni styðja þann málarekstur, þannig að starf- semin fáist flutt burtu. Bæjarráð mun reyna að miðla málum Guðmundur Páll Jónsson, formað- ur bæjarráðs Akranessbæjar, segir að bæjarráð muni óska eftir að fulltrúar Laugafisks og heilbrigðis- nefndar leiti leiða til þess að ná nið- urstöðu um þá ákvörðun nefndarinn- ar að skylda fyrirtækið til að draga úr framleiðslu yfir sumarmánuðina vegna ólyktar og kvartana frá ná- grönnum. „Það þurfa allir að taka höndum saman og leita leiða til að þetta öfluga fyrirtæki geti verið í þessu umhverfi hérna og þá í þol- anlegri sátt við það. Það eru hags- munir allra í málinu.“ Verkalýðsfélag Akraness hefur lýst yfir áhyggjum með ákvörðun heilbrigðisnefndar að fyrirtækið dragi úr framleiðslunni um 50% yfir sumarmánuðina vegna ólyktar. Þolinmæði nágranna Laugafisks er á þrotum ÁTTA verkefni voru tilnefnd af hálfu Íslands til Nýmiðlunarverðlauna Sameinuðu þjóðanna 2005, World Summit Award (WSA), á nýmiðlun- arhátíð sem haldin var í Öskju, nátt- úrufræðahúsi Háskóla Íslands, sl. laugardag. Verkefnin verða nú send áfram í heimskeppni Nýmiðlunar- verðlauna Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Túnis í nóvember. Tilnefndu verkefnin eru: InnoEd frá Kennaraháskóla Íslands í flokkn- um Menntun eða eLearning; Þjóð verður til unnið af Gagarín/Þjóð- minjasafni Íslands í flokknum Menn- ing eða eCulture; Gagnavefsjá frá Orkustofnun og ÍSOR (Íslenskar orkurannsóknir) í flokknum Vísindi eða eScience; Minn Garðabær unnið af GoPro/Garðabæ í flokknum Opin- ber stjórnsýsla eða eGovernment; Ískrá frá Heilsugæslunni í Reykjavík í flokknum Heilsa eða eHealth; Ferðaþjónustukynning frá Markaðs- stofu Austurlands í flokknum Við- skipti eða eBusiness; dvd– kids frá 3- PLUS hf, í flokknum Afþreying eða eEntertainment og Bókaormar BarnUng frá Kennaraháskóla Ís- lands í flokknum efni sem stuðlar að því að brúa bil milli menningarheima eða eInclusion. Háskóli Íslands, menntamálaráðu- neytið og Samtök iðnaðarins stóðu að landskeppni Nýmiðlunarverðlauna Sameinuðu þjóðanna 2005. Nýmiðlunarverðlaun SÞ er sam- keppni sem haldin er samtímis um heim allan. Er tilgangurinn með verðlaununum að velja og kynna besta rafræna efnið og nýmiðlun í veröldinni um þessar mundir. Að skipulagningu samkeppninnar standa fulltrúar 168 landa í fimm heimsálfum og er meginmarkmiðið að brúa bilið milli þeirra sem skammt og langt eru komnir í upplýsinga- tækni og efla gerð net- og nýmiðl- unarefnis í heiminum. Nánari upplýs- ingar um Nýmiðlunarverðlaun Sameinuðu þjóðanna 2005 má nálgast á vefslóðinni: www.wsis-award.org. Á nýmiðlunarhátíðinni um helgina gafst gestum og gangandi tækifæri til að kynna sér bestu afurðir ís- lenskra nýmiðlunarfyrirtækja um þessar mundir. Þetta er í fyrsta sinn sem sýning af þessu tagi er haldin hér en á henni voru sýnd og kynnt þau fimmtán nýmiðlunarverkefni sem dómnefnd landskeppni Nýmiðl- unarverðlauna SÞ valdi í forval. Morgunblaðið/Árni Torfason Katla Steinsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Austurlands, tekur við verðlaunum hjá Arnóri Guðmundssyni í menntamálaráðuneytinu. Taka þátt í heimskeppni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.