Morgunblaðið - 23.05.2005, Side 12
12 MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Ferðablað Morgunblaðsins,
Sumarferðir 2005, fylgir
blaðinu föstudaginn 27. maí.
Vertu með í
Sumarferðum 2005 -
blaðinu sem verður á ferðinni
í allt sumar!
Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16
mánudaginn 23. maí
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Sumarferðir 2005
Vertu með í ferðahandbók sumarsins!
Baðheimar ehf.
Fosshálsi 1 110 Reykjavík
Sími 525 0800 www.badheimar.is
Handklæðaofnarl f r
i .
l i j í
í i . i .i
VESTURLANDUmræðan
daglegt
málþing
þjóðarinnar
á morgun
SPARISJÓÐUR Mýrasýslu var val-
inn fyrirtæki ársins í Borgarbyggð og
var veitt viðurkenning á atvinnuvega-
sýningunni Gakktu í bæinn sem hald-
in var í Borgarnesi á laugardaginn.
Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri
segir mikla uppsveiflu hjá Spari-
sjóðnum sem flytur í nýtt hús um
miðjan næsta mánuð. Síðasta ár var
eitt besta ár í sögu Sparisjóðsins en
þá var hagnaðurinn meiri en nokkru
sinni áður í sögu hans
Sparisjóður Mýrasýslu hóf starf-
semi 1. október 1913 og stendur því á
gömlum grunni. Gísli segir að alla tíð
hafi verið litið svo á að Sparisjóðurinn
væri eign héraðsins. Mikið hefur ver-
ið lagt upp úr stuðningi við hvers kon-
ar málefni, hvort sem um væri að
ræða íþróttir, menningu, listir eða fé-
lagsstarf. Árlega veitir Sparisjóður
Mýrasýslu um 20 milljónir króna til
hvers konar styrkja af þessu tagi. „Í
gegnum tíðina hafa viðskiptavinir
Sparisjóðsins verið honum ákaflega
tryggir. Það er til dæmis mjög al-
gengt að fólk haldi áfram viðskiptum
eftir að það flytur úr héraðinu. Sama
má segja um starfsfólk sjóðsins. Okk-
ur hefur haldist vel á starfsfólki og
hér er mjög lítil starfsmannavelta.“
Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu
nam 192,2 milljónum króna eftir
skatta árið 2004, samanborið við
133,5 milljónir árið 2003. Hagnaður-
inn jókst því um 44,0% á milli ára.
Nýlega keypti Sparisjóður Mýra-
sýslu Sparisjóð Ólafsfjarðar en áður
hafði hann keypt Sparisjóð Siglu-
fjarðar. Þá hefur verið sett á stofn ný
starfsstöð í Síðumúla í Reykjavík sem
þjónar viðskiptavinum þessara
þriggja sparisjóða.
Í næsta mánuði flytur starfsemi
Sparisjóðs Mýrasýslu í glæsilegt nýtt
húsnæði við Brúartorg. „Þetta er
mjög fallegt hús,“ sagði Gísli. „Okkur
fannst að við þyrftum að reisa glæsi-
legt hús á þessum stað, en það blasir
við þegar ekið er yfir Borgarfjarð-
arbrúna og inn í Borgarnes. Mér sýn-
ist það hafa tekist vel.“
„Það er óhætt að segja að það sé
góður gangur hjá Sparisjóði Mýra-
sýslu. Það sama má reyndar segja um
héraðið í heild. Maður finnur fyrir
gríðarlegri uppsveiflu og ég man ekki
eftir öðru eins síðan um 1980. Mér
finnst að þessi breyting sé í sambandi
við opnun Hvalfjarðarganganna.
Áhrif þeirra virðast vera að koma í
ljós nú í auknum mæli.“
Um viðurkenninguna Fyrirtæki
ársins í Borgarbyggð segir Gísli hana
vera jákvætt uppátæki hjá bæj-
arfélaginu. „Svona viðurkenningar
hvetja menn til að gera vel.“
Auk Sparisjóðs Mýrasýslu fengu
Vegagerðin og Lambastaðabúið einn-
ig viðurkenningar.
Sparisjóður Mýrasýslu fyr-
irtæki ársins í Borgarbyggð
Eftir Ásdísi Haraldsdóttur
asdish@mbl.is
Nýbygging Sparisjóður Mýrasýslu flytur í nýtt hús í næsta mánuði.
UM 400 gestir voru á afmælishátíð Varmalandsskóla
sem fagnaði 50 ára afmæli sínu á laugardag. Grunnskól-
inn er rekinn í byggðasamlagi Borgarbyggðar og Hvít-
ársíðuhrepps. 170 nemendur stunda nám við skólann og
starfslið telur 38 manns, þar af 19 kennara.
Á afmælishátíðinni rifjuðu þrír fyrrverandi nemendur
upp skólavist sína frá liðnum tíma og 7. bekkingar fluttu
dagskrá um Guðmund Böðvarsson skáld. Þá fluttu gestir
ávörp auk þess sem boðið var upp á söngatriði að
ógleymdum kaffiveitingum og pylsum. Einnig var haldin
vorsýning á verkum nemenda og sýndar ljósmyndir úr
skólastarfi fyrri tíðar. Flemming Jessen hefur verið
skólastjóri Varmalandsskóla síðan 1991 og segir skólann
hafa breyst mikið, ekki síst með því að hann var gerður
að dagskóla í stað heimavistarskóla áður. „Nemendum
hefur líka fjölgað með tilkomu hins stóra þorps í Bifröst
og rúmur helmingur nemenda eru börn háskólanema,“
segir Flemming.
Þess má geta að vinna er nú hafin við að rita sögu
barnafræðslu Mýrasýslu fyrir síðustu 100 ár að því er
segir í grein Helgu Halldórsdóttur forseta bæjarstjórnar
og skólanefndarformanns á heimasíðu Borgarbyggðar.
Ljósmynd/Unnur Ólafsdóttir
Afmælisdagur Fjölmörg skemmtiatriði voru á afmælisdagskránni.
400
gestir í
50 ára
afmæli