Morgunblaðið - 23.05.2005, Síða 13

Morgunblaðið - 23.05.2005, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 13 ERLENT Verið umhverfisvæn og finnið 3 svansmerki umhverfismerki Norð- urlanda sem leynast í Morgunblaðinu og á mbl.is dagana 23. maí-3. júní. Sendu okkur blaðsíðunúmerin úr Morgunblaðinu eða síðuheitið af mbl.is ásamt nafni og símanúmeri á netfangið broturdegi@ruv.is eða bara beint frá mbl.is. 1. __________________ 2. __________________ 3. __________________ Dregið verður úr innsendum lausnum daglega í þættinum Brot úr degi á Rás 2. Heppnir þátttakend- ur geta unnið USB minnislykil. Föstudaginn 3. júní verður dregið úr öllum innsend- um lausnum í beinni á Rás 2 um stórglæsilega og umhverfisvæna Fujitsu Siemens tölvu frá Tæknival. Umhverfisstofnun, Morgunblaðið og Rás 2 með um- hverfið á hreinu. Kabúl, New York. AFP, AP. | Æðsti embættismað- ur Sameinuðu þjóðanna í Afganistan, Jean Ar- nault, fordæmdi í gær meinta pyntingu banda- rískra hermanna í landinu á föngum sínum og fór fram á að gripið yrði til harðra aðgerða gegn hinum seku. „Misþyrmingar sem þessar eru með öllu óviðunandi og ganga þvert gegn því starfi sem alþjóðasamfélagið vill vinna í Afgan- istan,“ sagði Arnault í harðorðri yfirlýsingu. Dagblaðið The New York Times greindi frá því fyrst allra fjölmiðla á föstudag að tveir afg- anskir fangar í haldi Bandaríkjahers í Bagram- herstöðinni í Afganistan hefðu verið pyntaðir til bana árið 2002. Harðorð yfirlýsing Arnaults kemur í kjölfar svipaðra ummæla Hamids Karzai, forseta Afg- anistans, í fyrradag áður en hann hélt í opin- bera heimsókn til Bandaríkjanna. Karzai, sem hittir George W. Bush Banda- ríkjaforseta í dag, fór þá fram á að þeim er tekið hefðu þátt í pyntingunum yrði refsað, framferði þeirra væri „óafsakanlegt“. Sameinuðu þjóðirnar fara fram á fyrirheit um að svipaðir atburðir eigi sér ekki stað aftur og jafnframt óskaði Arnault eftir því að fulltrúar afgönsku mann- réttindanefndarinnar fengju aðgang að föngum í vörslu Bandaríkjahers og að híbýlum þeirra. Fréttir af pyntingum á afgönskum föngum koma í kjölfar óeirða sem urðu í Afganistan og víðar í múslímaheiminum vegna fréttar í tíma- ritinu Newsweek þess efnis að kóraninum hefði verið sýnd óvirðing í Guantanamo-herstöðinni bandarísku á Kúbu. Dóu a.m.k. fimmtán manns í óeirðum sem brutust út í Afganistan. Er því talið ljóst að þeir Karzai og Bush munu hafa um ýmislegt að tala á fundi sínum í Hvíta húsinu í dag. Karzai gagnrýndur Karzai er raunar sjálfur gagnrýndur í skeyt- um sem gengið hafa á milli bandarískra emb- ættismanna og sem The New York Times greinir frá í gær. Þar er hann sakaður um að hafa staðið í vegi fyrir því að hægt yrði að hrinda í framkvæmd áætlunum er miða að því að lama framleiðslu og útflutning á heróíni frá Afganistan. Heróínframleiðsla er gífurlega um- fangsmikil í Afganistan og héraðshöfðingjar í landinu, sem græða á sölu efnisins, því tregir til að breyta háttum sínum. Saka bandarískir embættismenn Karzai um að „hafa verið ófáan- legur til að láta til sín taka“ í þessum efnum. Hamid Karzai Erindreki SÞ fordæmir pyntingar í Afganistan GÖRAN Persson, forsætisráðherra Svíþjóð- ar, er að hugleiða lagasetningu sem tak- marka myndi rétt sænskra dagblaða til að birta myndir af létt- klæddum konum. Pers- son gagnrýndi sænska fjölmiðla í ræðu sem hann hélt á kvennafundi Jafn- aðarmannaflokksins á laugardag og sagði þá nota myndir af létt- klæddum konum til að bæta sölutölur. AFP-fréttastofan segir að í október hafi hagstofan sænska greint frá því að 18% launamunur væri enn á kon- um og körlum í Svíþjóð. Í frétt BBC segir hins vegar að Svíþjóð hafi nýverið verið út- nefnt það land þar sem mestur efnahags- legur jöfnuður væri með kynjunum tveimur. Í ræðu sinni á laugardag sagði Persson að alls ekki mætti slá slöku við í jafnréttismál- unum. „Hvert sem maður fer í Svíþjóð í dag þá sér maður myndir af ungum konum, næstum allsnöktum,“ sagði Persson. „Við þurfum að bregðast við þessum niðurlægj- andi ... næstum klámfengnu kvenímyndum sem okkur er boðið upp á í sumum fjöl- miðlum.“ Persson kvaðst enn vona að sænskir fjöl- miðlar gætu upp á sitt eindæmi ratað aftur á hinn gullna meðalveg. Hann gaf hins vegar í skyn að nauðsynlegt kynni að reynast að setja löggjöf til að „hreinsa“ burt ófagn- aðinn. Sagði hann það alls ekki jákvæða þró- un ef sænsk dagblöð yrðu eins og götublöðin í Bretlandi, sem leggja mikið upp úr birt- ingu mynda af fáklæddu konum. Sænska dagblaðið Aftonbladet hefur þeg- ar fordæmt hugmyndir um reglur er tak- mörkuðu birtingarréttinn á myndum af fá- klæddum konum. Kallaði blaðið slíkar hugmyndir ritskoðun, sagði þær ekki í anda þeirra lýðræðisgilda sem Svíar héldu í heiðri. Persson gagnrýnir sænska fjölmiðla Segir of mikið lagt upp úr myndbirtingum af fáklæddum konum Göran Persson ÓKVÆÐISORÐ voru hrópuð að Lauru Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, þegar hún heimsótti tvo helga staði í Jerúsalem í gær en hún er á ferðalagi um Mið- Austurlönd. Þegar forsetafrúin heimsótti grátmúrinn í borginni stóð hópur gyðinga þar fyrir mótmælum, hrópaði „frelsið Poll- ard strax“ en fólkið berst fyrir því að Jon- athan Pollard, bandarískur gyðingur sem afplánar nú lífstíðarfangelsisdóm fyrir njósnir fyrir hönd Ísraelsríkis, verði látinn laus. Þurftu öryggisverðir forsetafrúar- innar að taka á honum stóra sínum til að verja Bush fyrir ágangi mótmælendanna. Þegar Laura Bush síðan heimsótti Al- Aqsa-moskuna, sem er helgur staður í augum múslíma, hrópaði hópur reiðra Pal- estínumanna „hvernig vogarðu þér að koma hingað?“ og „hvers vegna áreitið þið múslíma?“ Sumir hrópuðu einnig „niður með Bandaríkin“. Sést á myndinni hvar Bush hraðar sér í bíl sinn undan ágengum mótmælendum. Sögðu fulltrúar Hamas, herskárra samtaka Palestínumanna, að heimsókn Bush í moskuna, sem er í aust- urhluta Jerúsalem sem hernuminn er af Ísraelum, staðfesti að Bandaríkjastjórn viðurkenndi Jerúsalem sem höfuðborg Ísr- aelsríkis. Ókvæðisorð hrópuð að Lauru Bush AP Búkarest. AFP, AP. | Mannræningjar í Írak slepptu í gær þremur rúm- enskum blaðamönnum og íröskum leiðsögumanni þeirra sem þeir höfðu haldið í gíslingu í næstum tvo mánuði. Rúmensk stjórnvöld greindu frá þessu í gær en forseti landsins, Traian Basescu, sór og sárt við lagði að ekkert lausn- argjald hefði verið greitt til að tryggja frelsi fólksins. Fólkinu var rænt 28. mars sl. í úthverfi Bagdad-borgar. Mannræn- ingjarnir tilheyrðu samtökum er kölluðu sig Muadh Ibn Jabal- hersveitirnar og höfðu þeir hótað að drepa fólkið ef Rúmenar kölluðu ekki 860 manna herlið sitt frá Írak fyrir 27. apríl. Rúmensk stjórnvöld urðu hins vegar ekki við þeirri kröfu. „Ég fullvissa ykkur um að Rúmenía samþykkti ekki að breyta utanríkisstefnu sinni, né greiddum við lausnarfé [til að tryggja lausn fanganna],“ sagði Basescu forseti á fréttamannafundi í Búkarest í gær. Um er að ræða tvo starfsmenn Prima-sjónvarpsstöðvarinnar rúm- ensku, Marie Jeanne Ion og Sorin Miscoci, Eduard Ohanesian, blaða- mann Libera, og Mohamed Munaf, Íraka sem einnig hefur bandarískt ríkisfang. Fólkið er væntanlegt til Rúmeníu í dag. Laus úr langri prísund í Írak AP Arabar búsettir í Rúmeníu halda á lofti spjaldi með myndum af rúmenska fjölmiðlafólkinu sem nú er laust úr haldi mannræningja í Írak. Brasilíu. AP. | Eyðing regn- skógarins á Amazon-svæðinu í Brazilíu var í fyrra sú næst- mesta í sögunni að því er fram kemur í nýjum gögnum frá stjórnvöldum í landinu. Gervihnattamyndir og önn- ur gögn sýna, að stórjarðeig- endur, sojabaunabændur og skógarhöggsfyrirtæki eyddu öllum skógi á 26.130 km² frá ágústlokum 2003 og til jafn- lengdar á síðasta ári. Var það 6% meira en á árinu áður þeg- ar 24.600 km² skóglendis voru eyðilagðir. Metið var sett 1995 þegar 29.000 km² svæði var rutt en það samsvarar allri Belgíu. Amazon-skógurinn þekur um 4,1 milljón km², meira en hálfa Brazilíu, og er eitt mik- ilvægasta svæðið fyrir lífið á jörðinni. Er hann oft kallaður „lunga“ hennar vegna þess, að skógurinn er mikil uppspretta súrefnis í andrúmsloftinu og bindur um leið gífurlega mikið af koltvísýringi. Kalla sumir skógareyðinguna harmleik sem verði að stöðva. Að öðrum kosti muni afleiðingarnar bitna á öllum heimi. Níðhöggur nagar „lungað“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.