Morgunblaðið - 23.05.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 23.05.2005, Qupperneq 15
Náttbuxur fyrir næturvætu NÚ eru fáan- legar sérhann- aðar náttbuxur með næturvætuvörn fyrir börn. Buxurnar eru rakadræg- ar og eiga að veita eldri börnum vörn sem lítið ber á. Buxurnar eru til fyrir börn á aldrinum 4- 15 ára. Það er heildverslun John Lindsay ehf. sem er með innflutning á náttbuxunum 12 tegundir B-vítamína Júlía ehf. hefur hafið innflutning á B-vítamínum frá Ledins heilsuvör- um sem bera heit- ið Mega-B og er um að ræða lífræna framleiðslu með tólf mismunandi vítamíngerð- um, B1, B2, B3, B5, B12, B15, fólínsýru, bíoin, Paba, Kolin og Inositol. Vítamínin fást í öllum Lyfja- og heilsu apótekum. Fyrir blóðbúskapinn Hemoplett er heitið á nýrri járnblöndu sem Júlía ehf. hefur hafið innflutning á og er frá Ledins heilsuvörum. Hemop- lett inniheldur B-12, fólínsýru, járn, sink, C-vítamín, B6, B1, B2, kalk og kraft úr netlum og alfaafla. Hemoplett fæst í öllum Lyfja- og heilsu apótekum.  NÝTT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 15 DAGLEGT LÍF | HEILSA                                        ! "    #  $   %  &    "  ' ( )   )   *   +    ,-. /010    222     3    0/400  045, 400  6400 6400  645, 645,  545,    ' ( )   7 89 $    3        : 6      ; ,400  <45, .400  -410 $           Námskeið í indverskri grænmetismatargerð Fæða fyrir sál og líkama Afsláttur fyrir 8-10 manna hópa Skemmtilegt eitt kvöld - grunnnámskeið 10. júní frá kl. 18.00-22.30 með Shabön, símar 581 1465 og 659 3045. Indversk matargerð í eldhúsinu þínu. Ef þú vilt halda veislu, þá kem ég á staðinn og sé um matinn. Skemmtileg gjafabréf fyrir þá sem ætla að gefa skemmtilega gjöf. NÝLEG rannsókn Karls Krist- inssonar læknis og vísindamanns um hvernig hægt er að nota ilmkjarna- olíur til lækninga við eyrnabólgu hef- ur vakið mikla athygli. Eflaust hafa margir foreldrar velt fyrir sér hvort hægt er að nota þessa aðferð heima við á börnin sín en Karl segir það hættulegt. „Við erum bara búin með fyrsta skrefið af mörgum og það var mjög mikilvægt skref að sýna fram á að ilmkjarnaolíur geti læknað eyrna- bólgu.“ Karl bendir á að ennþá eigi eftir að þróa aðferð til að nota olíurnar til lækninga og eftir eigi að athuga hættuna af þessari meðferð eins og hvaða aukaverkanir geti komið fram. „Þó að það sé búið að sýna fram á virknina þá vitum við ekki hvort þessi efni sem við höfum verið að nota séu hættulaus, sumar olíur geta nefnilega verið stór varasamar. Ef að vissar tegundir af olíu komast í eyrnagang- inn geta þær ert hann verulega. For- eldrar ættu alls ekki að prófa þetta því það getur valdið skaða. Við ætlum að þróa þessa aðferð áfram þannig að olíurnar snerti ekki eyrnaganginn. En áður en rannsóknin heldur áfram þarf að vita að olíurnar valdi engum skaða.“ Að sögn Karls eru til margar teg- undir af ilmkjarnaolíum og sumar þeirra geta verið hálf eitraðar og aðr- ar geta valdið ofnæmi. „Svona olíur hafa aldrei verið not- aðar við eyrað áður og því þarf að rannsaka allt vel áður en notkun hefst.“ Sumar olíur varasamar  HEILSA | Ilmkjarnaolíur við eyrnabólgu FJÖLMARGIR Íslendingar taka E-vítamíntöflur daglega og fylgja þar fordæmi margra annarra þjóða. Tilgangurinn er að draga úr tíðni ýmissa al- varlegra sjúkdóma, þ.á m. krabbameina, krans- æðasjúkdóma og heilablóðfalla. E-vítamín er fitu- leysanlegt vítamín og er í hópi svonefndra sindurvara eða andoxunarefna. Talið hefur verið að með því að hindra oxun kólesteróls megi draga úr tíðni segamyndunar í kransæðum. Eykur kyngetuna? E-vítamín hefur einnig verið talið draga úr myndun krabbameins með því að auka myndun svonefndra stakeinda en í miklu magni geta þær átt hluta að illkynja frumubreytingum í lík- amanum. Auk þess hafa verið uppi ábendingar um að notkun E-vítamíns geti einnig aukið frjósemi og kyngetu og jafnvel hamlað ótímabærri öldrun. Svipaðir eiginleikar hafa einnig verið taldir fylgja C-vítamíni og betakarótíni. Ekki er að furða að margir hafi þyrpst í verslanir til að kaupa sér E- vítamín. En hvað er þá hæft í þessu? Eru góðar upplýs- ingar um gagnsemi E-vítamíns í þessu skyni? Ný- legar rannsóknir benda til að svo sé ekki. Í rann- sókn sem birtist fyrir fimm árum og gerð var á tæplega tíu þúsund manns yfir 55 ára aldri með æðakölkun eða sykursýki kom í ljós að E- vítamíntaka hafði engin áhrif á tíðni krans- æðasjúkdóma hjá hópnum. Var fólkinu fylgt eftir að þessu leyti í tæp fimm ár. Frekari rannsóknir á hluta af sama hópi í sjö ár leiddu einnig í ljós að vítamín E hafði heldur ekki áhrif á tíðni krabba- meins, dánartölu af völdum krabbameins eða á kransæðastíflu og heilablóðfall. Hins vegar reynd- ust þeir sem tóku E-vítamín fá oftar hjartabilun en þeir sem ekki tóku vítamínið. E-vítamín og ellihrörnun í augnbotni Rannsókn sem birtist fyrir nokkrum vikum leiddi síðan í ljós að fólk sem tók E-vítamín og hafði fengið krabbamein áður var líklegra til að fá annað krabbamein en þeir sem ekki tóku E- vítamín og virtist því notkun á andoxunarvítamíni auka líkur á að fá krabbamein í annað sinn. Loks birtist snemma á þessu ári samantekt úr 19 klín- ískum rannsóknum sem tóku til rúmlega 135 þús- und manns. Allar lutu að notkun E-vítamíns og í ljós kom að dánartala þeirra sem tóku háan skammt E-vítamíns (>400 alþjóðl. ein. á dag) var hærri en búast mátti við og var þar horft til allra dánarorsaka. Hins vegar eru vísbendingar um, m.a. í rannsókn frá 2001, að hár skammtur E- vítamíns sem tekinn er með sinktöflum geti dreg- ið úr tíðni ellihrörnunar í augnbotni. Ljóslega verður að vega þær niðurstöður í ljósi þess sem síðar hefur komið í ljós. E-vítamín í fæðu er nægilegt Þess vegna bendir ýmislegt til að vonir um að E-vítamín og önnur andoxunarefni á borð við C- vítamín og betakarótín geti verið heilsubót hafa því dvínað mikið og í stuttu máli eru ekki haldbær rök úr stórum klínískum rannsóknum fyrir að mæla með að almenningur án klínískra merkja um E-vítamínskort taki E-vítamín umfram það sem fæst úr venjulegri fæðu. Hvaða fæða inniheldur E-vítamín?  Mest er af E-vítamíni í sólblómaolíu, maísolíu og rapsolíu.  Einnig er mikið í möndlum, heslihnetum, jarð- hnetum, sólblómafræjum og hveitikími.  Smjörlíki og lýsi er oft E-vítamínbætt.  Avókadó, rauð paprika, apríkósur, eggjarauður og rækjur innihalda töluvert af E-vítamíni en í kjöti eða mjólkurmat er lítið E-vítamín.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknir Er E-vítamín í stórum skömmtum gagnslaust? E-vítamín er samheiti fyrir tvo flokka efna, tókóferól og tókótrienól. E-vítamín er fituleysið andoxunarefni sem kemur í veg fyrir skaða vegna peroxunar fjölómettaðra fitusýra í frumuhimnum. Magn E-vítamíns er gefið upp í alfa-tókóferóljafngildum (?-TJ) eða alþjóðaeiningum (ae). Eitt milligramm af alfa-tókóferóli telst vera 1 ?-TJ eða 1,49 ae. Þörfin fyrir E-vítamín eykst því meira sem er af fjölómettuðum fitusýrum og járni í fæði en járn hvatar peroxun fitusýra. Greinilegur skortur á E-vítamíni er þó afar fátíður. Íslenskar ráðleggingar fyrir E-vítamín miðast við ríflega neyslu af fjölómettuðum fitusýrum og eru 8 mg ?-TJ fyrir konur og 10 mg fyrir karla. Sigurður Guðmundsson landlæknir ÞÓREY Sigþórsdóttir vinnur mjög óreglulega eins og margar leikkonur og hefur því í gegnum tíðina stundað æfingar heima hjá sér, gjarnan eftir spólum. „Fyrir jól fór ég á átta vikna nám- skeið í Laugum í rope-yoga og ákvað strax eftir jól að kaupa mér rope-yoga bekkinn og böndin,“ segir Þórey, sem hefur útbúið lítinn leikfimisal heima, m.a með gömlu þrekhjóli úr Góða hirð- inum. Hún gerir einnig Qi-Gong eftir spólunni hans Gunnars Eyjólfssonar leikara, auk þess að reyna að fara allra sinna ferða á hjóli. „Ég geri ekki rope-yoga daglega, en þessa dagana skiptist ég mest á því og Qi-Gong og tek svona tarnir,“ segir Þórey sem er mjög ánægð með rope-yoga æfingakerfið. „Mér finnst þetta frábært. Þegar ég fór fyrst á námskeiðið var ég með vöðvabólgu í bakinu, og fannst svo mikil hvíld í því að liggja á bakinu á meðan ég var að æfa. Og mér finnst það ennþá,“ segir hún. „Mér finnst mjög sniðugt að ganga út frá kviðnum, og þess vegna keypti ég bekkinn. Ég fann fljótlega hvernig það svæði opnast vel, ég er með opnari mjaðmir, opna miðju, betri göngustaða og ég tengi öndunina niður. Maður finnur hvernig æfingarnar hreinlega nudda inn- yflin og vessaflæðið fer allt í gang. En þar sem maður er allan tímann með fæturna upp í loft, styrkir það sogæðakerfið,“ útskýrir Þórey sem er ekki síst ánægð með að æfingakerfið allt og kenningarnar séu vel fram settar í mjög að- gengilegt form.  HREYFING |Rope-yoga Með leikfimi- aðstöðu heima Morgunblaðið/Eyþór Þórey stundar rope-yoga heima. Rope-yoga er æf- ingakerfi þróað af Guðna Gunnarssyni þar sem notuð eru sérstök bönd. Það er líkams- og heilsurækt með heimspeki í sjö skrefum. Gengið er út frá kviðnum sem kjarna líkamans til að koma á jafnvægi í vöðvakerfinu og virkja úrvinnslu lík- amans á eiturefn- unum og óuppgerðum tilfinningum. Rope-yoga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.