Morgunblaðið - 23.05.2005, Qupperneq 19
sér í sveit
Hún segir
a sé pláss
s. „Já, að
tur meðal
num,“ seg-
fum við á
að halda.“
ólrún fast
t nk. þeg-
tir, þing-
maður Samfylkingarinnar í Reykja-
víkurkjördæmi norður, lætur af
þingmennsku. Ingibjörg hefur verið
fyrsti varamaður kjördæmisins á
kjörtímabilinu.
Mikil vinna framundan
Ingibjörg Sólrún segir að lokum
að gríðarlega mikil vinna sé fram-
undan. „Það verður verkefni forystu
flokksins og framkvæmdastjórnar
að skipuleggja þá vinnu sem fram-
undan er, þannig að við verðum
mjög vel undirbúin undir sveitar-
stjórnarkosningarnar að ári og al-
þingiskosningarnar eftir tvö ár.“
Hún segir að mikill vinnuandi hafi
einkennt landsfundinn og að fé-
lagsmönnum sé vel ljóst að það
skipti flokkinn miklu máli að fara
með skýra og markvissa stefnu inn í
næstu kosningar.
arsviðið kominn
ugur flokkur“
Morgunblaðið/Árni Torfason
ttir og Bryndís Hlöðversdóttir á landsfundi flokksins.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2005 19
ÁGÚST Ólafur Ágústsson alþing-
ismaður var kjörinn varaformaður
Samfylkingarinnar á landsfundi á
laugardag með tæplega 62%
greiddra atkvæða. Hann hlaut 519
atkvæði en 839 landsfund-
arfulltrúar tóku þátt í kosningunni.
Alls 893 voru á kjörskrá.
Lúðvík Bergvinsson alþing-
ismaður hlaut 297 atkvæði og
Heimir Már Pétursson upplýsinga-
fulltrúi hlaut tíu atkvæði. Ágúst
Ólafur, Lúðvík, og Heimir Már gáfu
formlega kost á sér í embættið.
Samkvæmt lögum flokksins eru þó
allir landsfundarfulltrúar í kjöri.
Ágúst Ólafur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann væri
afskaplega þakklátur fyrir þann
stuðning sem flokksmenn hefðu
sýnt sér í kjörinu. „Þetta er ótví-
ræður sigur,“ sagði hann. „Ég held
að flokksmenn hafi sýnt ákveðna
djörfung og þor með þessari
ákvörðun. En nú er aðalatriðið að
við snúum bökum saman og vinnum
að því að koma Samfylkingunni í
ríkisstjórn. Það er stóra mark-
miðið.“
Heilu bílfarmarnir af krökkum
Er blaðamaður spurði Lúðvík um
niðurstöðuna í varaformanns-
kjörinu sagði hann: „Þegar heilu
bílfarmarnir af krökkum tóku að
streyma í hús þá sá maður að út úr
þessu gætu komið óvæntar nið-
urstöður.“ Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um varaformannskjörið.
Ágúst Ólafur segir aðspurður að
hann hafi víða notið stuðnings í
varaformannskjörinu. „Ég fékk
stuðning víða. Það er hægt að ræða
við marga utan af landi sem voru
opinberir stuðningsmenn mínir. Ég
hefði aldrei farið í þennan slag ef ég
hefði einungis stuðning ungs fólks.“
Hann segir að ungt fólki hafi hins
vegar haft mikinn áhuga á lands-
fundinum, eins og margir aðrir.
„Þúsundir Íslendinga skráðu sig í
flokkinn vegna formannskjörsins
og við getum ekki amast við þátt-
töku ungs fólks.“
Andrés Jónsson, formaður
Ungra jafnaðarmanna, vísar því á
bug að ungum jafnaðarmönnum
hafi verið smalað í stórum stíl á
fundinn til að taka þátt í varafor-
mannskjörinu. Ungir jafnaðarmenn
hafi hins vegar verið áberandi og
kröftugir á landsfundinum. Öflugt
uppbyggingarstarf innan ungliða-
hreyfingarinnar sé greinilega að
skila sér.
Rúmlega átta hundruð lands-
fundarfulltrúar tóku þátt í varafor-
mannskjörinu, en rúmlega fimm
hundruð fulltrúar tóku þátt í ritara-
kjörinu sem fór fram um einum og
hálfum tíma síðar. Andrés segir það
rétt að landsfundarfulltrúum hafi
fækkað eftir að varaformanns-
kjörinu lauk. „En það var ekki bara
ungliðum sem fækkaði – langt í
frá,“ segir hann.
Hann segir að tæplega 270 ung-
liðar hafi verið skráðir til þátttöku á
fundinum en þeir hafi ekki allir skil-
að sér. Telur hann að milli áttatíu
og hundrað ungliðar hafi komið á
fundinn, en til þess þarf að greiða
þátttökugjald. Aðspurður segir
hann að sum félög innan Ungra
jafnaðarmanna hafi greitt lands-
fundargjöldin fyrir sína félaga, en
bætir því við að það eigi við um fleiri
félög innan Samfylkingarinnar.
Gjöldin séu greidd til að hvetja fólk
til að mæta á landsfundinn.
Ágúst Ólafur Ágústsson kjörinn
varaformaður Samfylkingarinnar
„Ótvíræður sigur“
Heilu bílfarmarnir af
krökkum streymdu í hús,
segir Lúðvík Bergvinsson
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar.
GÍSLI Ó. Valdimarsson, formaður
kjörstjórnar landsfundar Samfylk-
ingarinnar, segir aðspurður að eng-
ar formlegar athugasemdir hafi
verið gerðar við framkvæmd kosn-
inganna sem fram fóru á þinginu.
Kosið var rafrænt í fjölmörg emb-
ætti flokksins. Hver landsfundar-
fulltrúi, sem hafði greitt landsfund-
argjaldið, fékk kvittun með nafni
sínu, kennitölu og fundarnúmeri.
Auk þess var á henni lykilorð til að
nota í kosningunum.
Mörður Árnason þingmaður
spurði í umræðum á landsfundinum
í gærmorgun hvort landsfundar-
fulltrúar mættu greiða atkvæði fyr-
ir aðra en sjálfa sig. Gísli svaraði því
til að skv. lögum flokksins væri eng-
um landsfundarfulltrúa heimilt að
skila nema einum kjörseðli til kjör-
stjórnar í hverri kosningu. Starfs-
fólk kjörstjórnar hefði fylgst með
því að farið var að þessum reglum.
Mörður sagði, í samtali við Morg-
unblaðið, að tilefni fyrirspurnarinn-
ar væri orðrómur um að einhverjir
fulltrúar á landsfundinum hefðu
kosið fyrir aðra en sjálfa sig. Mörð-
ur tók þó fram að enginn frambjóð-
enda á fundinum ætti að taka þess-
ar fyrirspurnir til sín, því öll úrslitin
hefðu verið ótvíræð. Hann hefði
hins vegar talið rétt að fá úr því
skorið hvort heimilt væri að kjósa
fyrir fleiri en einn á fundinum.
Engar athugasemdir um
framkvæmd kosninga
Morgunblaðið/Árni Torfason
fstöðu til herbúnaðar Bandaríkja-
landi. Sumir vilji helst slíta öllu
rfi en aðrir viðhalda því eins og kost-
r að viðurkenna
reining hiklaust“
r að viðurkenna þennan ágreining
ameinast jafnframt um stefnu sem
menn telja horfa til hins betra og
geta sætt sig við,“ segir í tillögum
psins. „Samfylkingin hafi því póli-
ri að geta orðið fyrst íslenskra
okka til að móta sér nýja örygg-
lok kalda stríðsins. Ef tækifærið á
rf að sameinast vel um þá stefnu og
boða hana af sannfæringarkrafti og fyr-
irvaralaust.“
Fram kemur að semja þurfi um stöðu Íslands
í varnar- og öryggiskerfi Atlantshafsbandalags-
ins og Evrópu án þess að stefna að uppsögn
varnarsamningsins við Bandaríkin en án þess að
hér verði endilega herbúnaður á vegum Banda-
ríkjastjórnar. Íslensk stjórnvöld taki þannig að
fullu við rekstri flugvallarins og flugbrautanna á
Miðnesheiði.
Sem fyrr segir var skilagrein framtíðarhóps-
ins um varnir gegn aðsteðjandi vá vísað til með-
ferðar í störfum flokksins og verður síðan lögð
fram á stefnuþingi næsta vetur. Litlar umræður
voru um stefnu flokksins í varnarmálum við af-
greiðslu mála á landsfundi í gær.
m varnarmál
TVEIMUR tillögum framtíðarhóps
Samfylkingarinnar var vísað inn í
stefnuþing flokksins sem fram fer
næsta vetur. Aðrar tillögur hóps-
ins voru stamþykktar á lands-
fundi.
Samkvæmt tillögu formanns
hópsins, Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, verða þó allar tillögur
hópsins áfram til umfjöllunar á
stefnuþinginu næsta vetur.
Tillögur sem ekki voru sam-
þykktar eru tillögur um varn-
armál (varnir gegn aðsteðjandi vá)
og auðlindanýting andspænis um-
hverfisvernd, sem vísað var til
stefnuþingsins, sem fyrr segir.
Engar meiriháttar efnisbreyt-
ingar voru gerðar á tillögum
framtíðarhópsins við afgreiðslu
landsfundar.
Svanfríður Jónasdóttir sem sæti
á í framtíðarhópi Samfylking-
arinnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ótrúleg eindrægni
hefði ríkt í starfshópum á lands-
fundinum og í sal og lítill ágrein-
ingur virtist vera um þær tillögur
sem lágu fyrir fundinn um liðna
helgi.
Tveimur tillög-
um framtíðar-
hóps vísað til
stefnuþings
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
sagði við slit landsfundar í gær að
flokkurinn myndi mæta betur und-
irbúinn til næstu alþingiskosninga
en nokkru sinni. Hann myndi
leggja í dóm kjósenda meitlaða og
skýra stefnu í öllum málaflokkum
ásamt meginatriðum í verk-
efnaáætlun fyrir nýja ríkisstjórn.
„Þegar þar að kemur munum
við hvergi hvika frá grundvall-
arhugmyndum jafnaðarstefn-
unnar sem við eigum okkur öll
draum um að geti breyst út hug-
sjónum í veruleika. Íslenskt sam-
félag þolir ekki lengur bið eftir
breytingum, við verðum að sparsla
strax [...] í stærstu sprungurnar
sem myndast hafa eftir allt of
langa valdastjórn þessarar rík-
isstjórnar.“ Ingibjörg sagði að
flokkurinn hefði tekið afstöðu
gegn „klíkum og kenjum“ vald-
hafa og með lýðræði. Flokkurinn
hefði m.a. gert það þegar hann lét
„skilaboð um hvað væri valds-
mönnunum í öðrum flokkum þókn-
anlegt sem vind um eyru þjóta.“
Flokkurinn hafi farið í gegnum
lýðræðislegasta ferli í leiðtoga-
kjöri sem nokkur íslenskur stjórn-
málaflokkur hafi farið.
Hvergi
hvikað
Evrópusambandið. „Niðurstöðurnar
undir þjóðaratkvæði.“
m um jafnrétti kynjanna segir m.a.
rfi fyrir fyrirtækjum og félögum að
m í ábyrgðarstöðum. Skili það ekki
ngri beri að íhuga lagasetningu um
í stjórnum. „Kynbundnum launa-
að útrýma með samstilltu átaki
og aðila vinnumarkaðarins,“ segir
m um mannréttindi segir m.a. að
t í land í réttindamálum samkyn-
Réttur gagnkynhneigðra og sam-
kynhneigðra para á að vera hinn sami á allan
hátt m.a. hvað varðar ættleiðingar, gervifrjóvg-
anir og lög um hjúskap.“
Í kaflanum um lýðræði segir m.a. að ráð-
herra eigi ekki að gegna þingmennsku. Enn-
fremur vill fundurinn að sett verði lög um fjár-
reiður stjórnmálaflokka.
Í kaflanum um menntamál segir að stefna
skuli að gjaldfrjálsum leikskóla og í kaflanum
um menningarmál segir að byggja eigi upp
„hvetjandi skattaumhverfi sem örvar innlend
og erlend fyrirtæki til að fjárfesta í íslenskri
menningu og listum.“
starfsemi alþjóðastofnana