Morgunblaðið - 27.06.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 2005 31
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Til mín hefur leitað traustur og fjársterkur
byggingaverktaki sem óskar eftir að kaupa
lóðir fyrir íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Eignir
sem þarfnast niðurrifs koma einnig til greina.
Staðgreiðsla í boði, Áhugasamir vinsamlega
hafið samband og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Mikil eftirspurn hefur verið eftir vinnu-afli nemenda á framhalds- og há-skólastigi hjá Stúdentamiðlun Fé-lagsstofnunar stúdenta í sumar. Rósa
Guðný Þórsdóttir, verkefnisstjóri, hvetur atvinnu-
lausa nema til að skrá sig á vef miðlunarinnar
www.studentamidlun.is. Enn sé töluvert framboð
af störfum á gagnvirkum vef miðlunarinnar.
Hvernig virkar vefurinn?
„Nemendum stendur til boða að skrá atvinnu-
umsókn ókeypis á vefnum. Fyrirtæki kaupa sér
svo aðgang að gagnagrunninum til að leita að
heppilegu starfsfólki. Fyrirtæki og stofnanir hafa
lýst yfir mikill ánægju með fyrirkomulagið og eft-
irspurnin eftir vinnuafli nemanna hefur verið mjög
mikil í sumar.“
Er meiri eftirspurn eftir einum hópi nemenda
heldur en öðrum?
„Mikið hefur verið leitað eftir nemendum til að
sinna bókhaldi. Ég held að ekki einn einasti við-
skiptafræðinemi sé enn eftir á skrá hjá miðluninni.
Hið sama er að segja um verkfræðinema. Þá er
mikil eftirspurn eftir fólki í aðhlynningu, verka-
mannastörf og ferðaþjónustu. Sumarið í sumar
hefur verið algjört metár hjá okkur miðað við und-
anfarin ár.“
Hversu margir hafa fengið vinnu?
„Ég veit að við vorum með á bilinu 300 til 400 um-
sóknir á skrá þegar mest var í maí. Þótt einhverjir
séu enn á skrá eru margir þeirra eflaust búnir að fá
vinnu. Umsóknirnar detta út af skrá sjálfkrafa 30
dögum eftir að þær eru settar inn á vefinn.“
Hvaða störf vantar helst í um þessar mundir?
„Þörfin er mest í mötuneytum og hvers konar
aðhlynningu. Svo sé ég að enn vantar fólk í skrif-
stofustörf, sölustörf og þarna er auglýst eftir
stuðningsfulltrúa,“ les Rósa Guðný af vefnum.
„Núna er verið að auglýsa eftir fólki í ein 18 störf
sem er harla gott á þessum tíma. Auk þess sem
mörg fyrirtæki auglýsa ekki heldur leita í gagna-
grunninum á vefnum.“
Eru strákar jafn móttækilegir fyrir aðhlynning-
arstörfum og stelpur?
„Nemarnir krossa við hvers konar störf þeir
geta hugsað sér að vinna. Rétt eins og stelpurnar
krossa margir strákanna við aðhlynningarstörf.“
Eru nemendur aðallega að leita eftir reynslu á
framtíðarstarfsvettvangi sínum?
„Margir hafa áhuga á því að kynnast betur
framtíðarstarfsvettvangi sínum. Aðrir vilja kynn-
ast einhverju allt öðru eða þrá jafnvel að vera úti
undir berum himni, t.d. í garðvinnu eða einhverju
slíku. Sumir vilja vinna úti á landi en þeir eru í
minnihluta. Ég veit að mörg ferðaþjónustu-
fyrirtæki úti á landi eiga í erfiðleikum með að fá
starfsfólk.“
Atvinna | Stúdentamiðlun Félagsstofnunar stúdenta
Metár í vinnumiðlun
Rósa Guðný Þórs-
dóttir er fædd í Reykja-
vík árið 1958. Hún út-
skrifaðist úr Leiklistar-
skóla Íslands árið 1985
og starfaði lengi vel við
leiklist í fullu starfi. Nú
sinnir hún leiklistinni
jöfnum höndum með
starfi sínu hjá Stúd-
entamiðluninni. Rósa
Guðný hóf störf hjá
Stúdentamiðluninni í febrúar árið 2004.
Hún er í sambúð, á eina uppkomna dóttur og
eitt barnabarn.
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. f4 Bg7 5.
Rf3 O-O 6. Be3 a6 7. e5 Rg4 8. De2
Rxe3 9. Dxe3 d5 10. h4 Bg4 11. Rh2
Be6 12. O-O-O Dc8 13. h5 Hd8 14. Rf3
b6 15. hxg6 hxg6 16. Bd3 c5 17. Hh4
Rc6 18. Hdh1 Bg4 19. f5 Bxf3
Staðan kom upp á opnu móti sem
lauk fyrir skömmu í Minneapolis í
Bandaríkjunum. David Howell (2416)
hafði hvítt gegn Dimitry Kishinevsky.
20. Hh7! Bh5 20... cxd4 hefði verið
svarað með 21. Hxg7+ og hvítur mát-
ar. 21. H1xh5! gxh5 22. Dg5 Kf8
22...Kxh7 hefði verið svarað með 23.
f6+ og hvítur mátar. 23. f6 Bxf6 24.
Dxh5 Bg5+ 25. Dxg5 Ke8 26. Bf5 og
svartur gafst upp þar sem eftir 26...e6
27. Dg8+ Kd7 28. Dxf7 hefur hvítur
gjörunnið tafl.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Hafnargarðar
NÚ ERU hafnargarðarnir hættir
að hrynja, þökk sé nýrri gerð garðs
sem kallaður er „bermugarður“, á
erlendu máli „berm breakwater“.
Orðið „berm“ er hið sama og ís-
lenska orðið barmur eða bakki og
þá t.d. hallandi bakki á skipaskurði.
Væri þá ágætt að kalla þessa
gerð af garði bara bakkagarð, en
það var einmitt á Bakkafirði sem
fyrsti bakkagarðurinn var gerður,
hér á landi, á árunum 1981–83.
Þekkingin barst hingað frá Kanada
vegna fyrirhugaðrar hafnargerðar í
Helguvík. Forsagan er að á Kodiak
ey við Alaska þurfti að framlengja
flugbraut út í sjó. Ekki var þarna á
eynni til nógu stór krani til þess að
hífa stóra steina út í hefðbundna
brimvörn. Einhverjum datt þá í hug
að búa til þykka fyllingu, úr ekki
mjög stóru grjóti, sem jarðýta gæti
rutt út. Fram að þessu var hafn-
argarðagerð þannig að fyrst var
gerður garður úr smæsta efninu úr
grjótnáminu, þar utan á var sett
s.k. milligrjót þar sem þyngd stein-
anna var u.þ.b. tíundi hluti af stein-
unum í brimvörninni sem sett var
yst. Galli þessara garða var hversu
lítið vatn rúmaðist í holrúminu milli
steinanna. Öldurnar óðu upp
garðana, sumar ultu yfir og rufu þá
að innan, aðrar komust ekki yfir og
aðdráttarafl jarðarinnar dró þær
niður framhliðina, sama aðdrátt-
arafl togaði svo í steinana sem gátu
losnað ef öldurnar voru nógu stór-
ar.
Bakkagarðurinn er þannig að
fyrst er gerður garður úr smæsta
efninu úr grjótnáminu, framan við
hann er gerður bakki úr stærsta
efninu, breidd bakkans er höfð það
mikil að vatnsmagn u.þ.b. einnar
öldu rúmist í holrúminu milli stein-
anna, eða u.þ.b. tvöfalt dýpið ef
grunnbrot er. Í stað þess að æða
upp framhliðina eins og gerðist áð-
ur gengur aldan nú inn í grjótfyll-
inguna þar sem hreyfiorka bundin í
vatninu jafnast út vegna núnings
við grjótið. Nýlega var haldin hér á
landi ráðstefna strandverkfræðinga,
í fréttum af ráðstefnunni sagt frá
Íslensku útgáfunni af bakkagarð-
inum sem þykir fremri öðrum.
Þessi íslenska útgáfa hefir valdið
þeim er þetta ritar nokkrum heila-
brotum, helst hefir hann komist að
því að farið sé að setja grjótið í lög
svona eins og í tertu, með þessu er
eiginlega komin skýring á hruni
gömlu garðanna, það er voða erfitt
að setja randalínu upp á rönd.
Gestur Gunnarsson,
tæknifræðingur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞAÐ ER trúlega heldur fátítt að vara þurfi maraþon-
hlaupara við mögulegum heimsóknum ísbjarna. Sú var
þó raunin þegar nyrsta maraþon veraldar var hlaupið á
dögunum. Maraþonið, sem tekur heilan sólarhring, fór
fram í Spitsbergen sem er á Svalbarða þar sem sólin
sest ekki allan sólarhringinn á þessum tíma árs.
Varúð, ísbirnir!
Reuters
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist alla
mánudaga kl. 14. Boccia kl. 10.
Vinnustofan opin alla daga. Ath.
bókabíllinn kl. 13.30–14.00.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 13–
16 brids, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Hafnarfirði |
Moggi, rabb og kaffi kl 9. Ganga kl.
9.30 Félagsvist kl 13.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í kvöld í Gull-
smára kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar. Frá hádegi
er spilasalur opinn. Allar upplýs-
ingar á staðnum og í síma
575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulíns-
málun og opin vinnustofa, kl. 10
fótaaðgerð, bænastund, kl. 12 há-
degismatur, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga kl. 9–10.
Böðun virka daga fyrir hádegi. Há-
degisverður. Frjáls spilamennska kl.
13–16. Fótaaðgerðir 588 2320.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið öllum aldurshópum. Betri stofa
og Listasmiðja 9–16: Frjáls
handavinna. Félagsvist kl. 13.30.
Landsbankinn 6. og 20. júní kl.
10–10.30. Dagblöðin liggja frammi.
Hádegismatur og síðdegiskaffi.
Hárgreiðslustofa 568 3139. Dag-
blöðin liggja frami. Nánari upp-
lýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 opin fótaað-
gerðastofa, kl 9 smíði, kl. 13–16.30
opin vinnustofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–
12 leikfimi (júní–júlí). Kl. 11.45–12.45
hádegisverður. Kl. 14.30–15.45
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handmennt kl. 9.30 til 16.00,
hárgreiðsla, fótaaðgerðir og böðun,
frjáls spilamennska kl. 13.00.
Kirkjustarf
Krossinn | Leiklistaræfing kl 18.30.
Markviss leiklistar- og tjáning-
arþjálfun í umsjón Tinnu Ágústs-
dóttur.
HOLLENSK prinsessa kom í heim-
inn í gær. Willem-Alexander krón-
prins Hollands eignaðist þá dóttur
með eiginkonu sinni Maximu prins-
essu, sem fæddi barnið á Bronovo-
spítalanum í Haag.
Stúlkan nýfædda er nú þriðja í
röðinni, á eftir föður sínum og syst-
ur sinni Catharinu-Amaliu, til að
erfa hollensku krúnuna. Hjónin
hafa enn ekki gefið henni nafn.
Hollensk prinsessa
í heiminn
mbl.is
smáauglýsingar
MÁLVERK eftir írska listmál-
arann Francis Bacon seldist á
fimmtudaginn fyrir hærri upphæð
en nokkru sinni áður hefur verið
greidd fyrir verk eftir Bacon.
Verkið, sem Bacon málaði af
einum af elskhugum sínum George
Dyer og nefnist „George Dyer
horfir í spegil“, var boðið upp hjá
Christie’s í Lundúnum. Það var
slegið á 4.9 milljónir punda, eða
tæpar 585 milljónir króna, sem er
mun hærri upphæð en búist hafði
verið við að yrði greidd fyrir það.
Kaupandi verksins er einkasafnari
frá Evrópu, að því vefútgáfa BBC-
fréttastofunnar greinir frá.
Bacon afhjúpaði verkið árið
1967 en hann og smáglæpamað-
urinn Dyer hófu ástarsamband
1964 sem stóð til 1971 þegar Dyer
framdi sjálfsmorð sama kvöld og
stór yfirlitssýning með verkum
Bacons var opnuð í Grand Palais í
París.
„George Dyer horfir í spegil.“
Verk eftir Bacon
selt fyrir metfé