Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 22
Keflavík | Hvalir hafa verið inni
í Keflavíkurhöfn og út af mið-
bænum undanfarna daga og
leikið listir sínar fyrir Keflvík-
inga og gesti þeirra. Þarna eru á
ferðinni hrefnur og hnúfubakur.
Fólk hefur safnast saman við
höfnina eins og þessir drengir
og víðar um bæinn til að fylgjast
með hvölunum og hvalaskoð-
unarskipið Moby Dick, sem gert
er út frá Keflavík, hefur ekki
þurft að fara langt.
Ljósmynd/Jón Oddur
Leika listir fyrir Keflvíkinga
Ljósmynd/Þorgils Jónsson
Hvalir
önnur byggðarlög og
heilsað upp á félaga með
sömu áhugamál.
Í góða veðrinu síðast-
liðið þriðjudagskvöld var
hópur Postula á ferð á
Flúðum og komu þeir
meðal annars við hjá
Félagar úr vél-hjólaklúbbnumPostulunum á
Suðurlandi koma ávallt
saman á þriðjudags-
kvöldum og spretta úr
spori á mótorfákum sín-
um. Stundum er farið í
Flúðasveppum þar sem
þeir fengu glóðvolga ást-
arpunga hjá Guðbjörgu
Runólfsdóttur.
Félagsmenn eru um
150 og er Andrés Júl-
íusson formaður félags-
ins.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Postularnir á ferð
ókeypis
smáauglýsingar mbl.is
Deiliskipulag | Bæjarráð hefur staðfest
tillögu umhverfisráðs að nýju deiliskipulagi
svæðisins frá Torfunefsbryggju að minn-
ismerki við Strandgötu, unnir af Arkitekta-
stofunni Arkþing. Á deiliskipulagssvæðinu
er gert ráð fyrir hafnarstarfsemi, menning-
arhúsi með tónlistarskóla og stækkun á nú-
verandi byggingu líkamsræktarstöðv-
arinnar Átaks.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Áætlun að Dettifossi | Í sumar er Guð-
mundur Þórarinsson í Vogum með áætl-
unarferðir frá Ásbyrgi að Dettifossi með
viðkomu í Vesturdal. Eru þessar ferðir
settar upp til þæginda fyrir göngufólk, sem
þarf þá ekki lengur að láta keyra sig t.d. í
Vesturdal, Hólmatungur eða Dettifoss, og
getur því skilið bílana sína eftir í Ásbyrgi.
Kemur þetta fram á vef Kelduneshrepps,
www.kelduhverfi.is.
Um þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum ligg-
ur skemmtileg og fjölbreytt 30 kílómetra
gönguleið frá Dettifossi að Ásbyrgi. Hún er
oftast gengin á tveimur dögum og á henni
má sjá allar helstu perlur þjóðgarðsins.
Hægt er að ganga leiðina að hluta eða alla.
Ferðirnar eru fjórum sinnum í viku, á
föstudögum, laugardögum, þriðjudögum og
miðvikudögum, frá 1. júlí til 10. ágúst.
Bakkinn rifinn | Bakkinn, húsið á Garð-
arsbraut 20 á Húsavík, var rifinn í gær.
Bakkinn skemmdist talsvert í bruna og var
ekki talið álitlegt að gera húsið upp, að því
er fram kemur á heimasíðu Húsavík-
urbæjar. Bærinn keypti það til niðurrifs, til
að skapa rými á svæðinu.
Sigrún Haraldsdóttirveitti því athygli aðAlfreð og Orku-
veitan væru að bora göt
vítt og breitt um Hellis-
heiði og segir stíga úr
holunum illa þefjandi
bólstra. Hún yrkir:
Leggur fúlan drulludaun
og dimma gufubakka,
yfir grátt og hrukkótt hraun,
hrauka, tó og slakka.
Sigrúnu varð á algeng
misritun á il á fótum, sem
hún ritaði með y. Hún
yrkir:
Allar mínar vísur vef
villum ansi ljótum.
Eins og bjálfi einatt hef
ypsilon í fótum.
Björn Ingólfsson veltir
fyrir sér yl og il ...
Á því leikur enginn vafi
og er að dómi mínum
æskilegt að allir hafi
yl í fótum sínum.
Ylríkur
kveðskapur
pebl@mbl.is
Árnes | Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps hefur samþykkt að nýju að
sameina skólahald sveitarfélagsins á
einn stað, í húsnæði Gnúpverjaskóla í
Árnesi. Nú var hins vegar ákveðið að
breytingin tæki ekki gildi fyrr en haust-
ið 2006.
Meirihluti hreppsnefndar samþykkti
síðastliðinn vetur að sameina skólahald í
sveitarfélaginu í Þjórsárskóla og að hinn
sameinaði skóli yrði í Árnesi en ekki
Brautarholti á Skeiðum eins og hluti
íbúa vildi. Málið var tekið fyrir að nýju
eftir að afgreiðslan var kærð til félags-
málaráðuneytisins sem úrskurðaði að til-
teknir hreppsnefndarmenn hefðu átt að
víkja sæti við afgreiðslu málsins vegna
vanhæfis.
Skólanefnd lagði til við hreppsnefnd
að skólahaldið yrði sameinað og sam-
þykkti hreppsnefndin það samhljóða, þó
þannig að breytingin kæmi ekki til fram-
kvæmda fyrr en með skólaárinu 2006 til
2007. Tíminn þangað til verði notaður til
að móta skýra stefnu í fræðslu- og upp-
eldismálum og finna verkefni fyrir það
húsnæði sem ekki nýtist við skólahaldið
eftir sameiningu.
Sameiningu
skóla frestað
um ár
Reykjanes | Stjórn Landverndar telur að
háspennulína sem Hitaveita Suðurnesja
hefur hug á að leggja vestan Sýrfells stingi
í augu nær hvaðan sem horft er af svæðinu
sem hefur hvað mest gildi vegna náttúru-
fars og sé því umtalsvert meiri sjónræn
röskun en háspennulína austan Sýrfells.
Kemur þetta fram í athugasemdum Land-
verndar til Skipulagsstofnunar vegnar
mats á umhverfisáhrifum línunnar.
Hitaveita Suðurnesja áformaði að leggja
háspennulínuna frá Reykjanesvirkjun í
jarðstreng á kafla austan Sýrfells. Vegna
breyttrar staðsetningar virkjunarhússins
og fleiri atriða hefur leið jarðstrengsins
lengst verulega og orðið dýrari. Hefur
Hitaveitan því sótt um að leggja háspennu-
línuna í lofti vestan Sýrfells og er það mál
nú í ferli mats á umhverfisáhrifum.
Í athugasemdum Landverndar kemur
fram að stjórnin telur að á grundvelli nátt-
úruverndarhagsmuna sé æskilegast að
halda sig við upphafleg áform um jarð-
streng og háspennulínu. Háspennulínan
verði óbreytt og tengivirki strengs og línu
á sama stað og áður var ákveðið.
Stingur í
augu hvaðan
sem horft er
♦♦♦
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Lifandi tískusýning | Anna Gunn-
arsdóttir textílhönnuður og listakona verð-
ur með lifandi tískusýningu á Bryggju-
hátíðinni á Drangsnesi
16. júlí nk.
Anna Gunnarsdóttir
vinnur aðallega með silki
og ull en notar einnig
ýmis önnur náttúruefni
eins og skinn og roð.
Anna hefur tekið þátt í
fjölmörgum listasýn-
ingum bæði hér heima
og erlendis og hlotið við-
urkenningar fyrir sín verk.
Haft er eftir Önnu í fréttatilkynningu að
hún vill að tískusýningin á Bryggjuhátíð-
inni verði lifandi og öðruvísi. Fötin segir
hún hönnuð fyrir allar konur og ekki bara
tággrannar tískusýningarstúlkur.