Morgunblaðið - 11.07.2005, Page 8
8 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
- Vantar 3ja-4ra herb. í Garðbæ
- Vantar raðhús í Garðabæ
- Vantar stórt einbýli í Garðabæ
- Í raun vantar allar gerðir eigna í Garðabæ og á Álftanesi.
Nú eru margir kaupendur en allt of fáir seljendur þannig að nú er rétti tíminn til að selja.
Höfum fjölmarga kaupendur á skrá sem bíða eftir réttu eigninni.
SUMARIÐ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ SELJA FASTEIGNIR
STEKKJARFLÖT - GBÆ Mjög gott sam-
tals 204 fm einbýlishús á einni hæð á einum besta
stað á flötunum. Íbúðin er 156 fm og tvöfaldur
bílskur 54 fm. Sérlega vel skipulagt hús. Örstutt er í
alla þjónustu svo sem verslun, skóla og íþróttir.
LJÓSAMÝRI - GBÆ Mjög fallegt 210 fm
tvílyft einbýli á frábærum stað í Mýrunum í Garð-
abæ. 4- 5 svefnherbergi. Vel um gengið og vel við-
haldið hús. Falleg lóð, stór suður-verönd. Stutt í
skóla og alla þjónustu. Verð 43,8 millj.
VESTURTÚN-ÁLFTANESI Nýkomið í
einkasölu mjög fallegt um 150 fm parhús á frábær-
um stað á Álftanesi. Vandaðar innréttingar og gólf-
efni. Örstutt í leikskóla, grunnskóla og íþróttamið-
stöð. Verð 33,9 millj.
ASPARHOLT - ÁLFTANES Glæsilegt
180 fm raðhús með bílskúr á besta stað á Álftanes-
inu. 3 - 4 svefnherbergi. Vandaðar innréttingar og
tæki. Húsið skilast fullbúið án gólfefna í júlí 2005.
Örstutt í skóla og ýmsa aðra þjónustu. Verð 32,8
millj.
ASPARHOLT - ÁLFTANES Glæsilegt
181 fm endaraðhús með bílskúr á besta stað á
Álftanesinu. 3 - 4 svefnherbergi. Vandaðar innrétt-
ingar og tæki. Húsið skilast fullbúið án gólfefna í
ágúst 2005. Örstutt í skóla og ýmsa aðra þjónustu.
Verð 33,6 mllj.
BORGARÁS - GBÆ Mjög góð 104,5 fm efri
sérhæð í eldri hluta Ásahverfis. 4 svefnherb. Nýlega
mikið lagfærð íbúð á frábærum útsýnisstað. Húsið
einnig nokkuð lagfært.
BREKKUBYGGÐ - GARÐABÆ Mjög
falleg neðri sérhæð í klasahúsi á mjög góðum stað.
Sér garður með tveimur veröndum. Verð kr. 15
millj.
NÆFURÁS Björt og falleg 85,4 fm íbúð á 1.
hæð (ekki jarðhæð) í mjög góðu fjölbýli á frábær-
um útsýnisstað í Selásnum. Verð kr. 16,7 millj.
KÓRSALIR - KÓP Glæsileg 110,5 fm íbúð á
3. hæð í mjög góðu lyftuhúsi, auk stæðis í bíl-
geymslu. Opin og vel skipulögð íbúð. Gott útsýni.
Íbúðin er í dag 3 herb. en var teiknuð sem 4ra. Verð
25,5 millj.
Sumarbústaðir
HVAMMUR - SKORRADAL Nú fer hver
að verða síðastur - fáeinar lóðir eftir. Þeir sem vilja
það besta verða að skoða þetta. Sjá myndir á :
www.gardatorg.is Hringdu strax og við sendum þér
skipulagsgögn, við svörum alltaf símanum (545-
0800)
VIÐ SYÐRI REYKI. Til sölu gæsileg og frá-
bærlega hönnuð hús við Syðri Reyki. Húsin sem eru
á steyptum sökkli og að hluta til steypt verða af-
hend fullbúin án gólfefna. Mjög vönduð og góð
smíði. Sjá nánari upplýsingar og myndir á
www.gardatorg.is
FLESJAKÓR - KÓP. Glæsilegt 197,4 fm
(26,2 fm bílskúr) parhús á tveimur hæðum á frá-
bærum stað í nýja Kórahverfinu í Kópavogi. Húsið
er í byggingu og afhendist fullbúið að utan og rúm-
lega fokhelt í haust. Verð 30,9 millj.
ÞINGVAÐ - NORÐLINGAHOLT Glæsi-
legt einbýli á einni hæð á besta stað í holtinu, neð-
an við götuna og opið svæði sunnan við og áin
Bugða. Afhendist fullbúið að utan /steinað en fok-
helt að innan í febrúar 2006.
DREKAKÓR - KÓPAVOGI Glæsileg 220
fm parhús með tvöfoldum bílskúr á frábærum stað í
nýjasta hverfi Kópavogs. 4- 5 svefnherbergi. Skilast
fullbúin að utan og fokheld að innan í desember.
Verð 33 millj.
IÐNBÚÐ - GBÆ Til sölu mjög gott 118 fm
húsnæði á jarðhæð á góðum stað. Einnig rekstur
sólbaðsstofu sem rekin er í húsnæðinu. Verð kr.
13,9 millj
LAUGAVEGUR VIÐ HLEMM Mjög gott
377 fermetra atvinnuhúsnæði 1. hæð. Góð inn-
keyrsluhurð. Góð fjárfesting og miklir möguleikar
hér. Verð kr. 39 millj.
GARÐATORG - GBÆ Vorum að fá í einka-
sölu 3 skrifsofubil í miðbæ Garðabæjar. Um er að
ræða tvö um 65 fm bil í turninum, 2. hæð og 6.
hæð. Einnig 128 fm á 2. hæð fyrir ofan Ísands-
banka. Mjög góð framtíðarhúsnæði í vaxandi mið-
bæjarkjarna.
Undanfarið hafa Húseig-endafélaginu borist fjöl-margar fyrirspurnirvegna vanskila leigjenda
á húsaleigu og til hvaða aðgerða
leigusalar geti gripið við slíkar að-
stæður. Í ljósi þess er greinarkorn
þetta skrifað og í
því leitast við að
gefa fólki nokkra
innsýn inn í þær
formkröfur sem
gerðar eru í húsa-
leigulögunum nr.
36/1994.
Vart þarf að
taka fram að mjög
mikilvægt er að
huga vel að öllum
atriðum sem máli
geta skipt í réttarsambandi því sem
verið er að stofna til á milli leigutaka
og leigusala og ættu báðir aðilar
leigusamnings að kynna sér vel
ákvæði húsaleigulaga nr. 36/1994, en
þau er m.a. að finna á heimasíðu Hús-
eigendafélagsins www.huseigenda-
felagid.is. Með góðum undirbúningi
og þekkingu er þannig hægt að
minnka líkur á að til árekstra komi á
leigutímabilinu.
Greiðsla húsaleigu
Húsaleigu skal greiða fyrsta dag
hvers mánaðar fyrirfram fyrir einn
mánuð í senn nema um annað sé sam-
ið. Beri gjalddaga leigu upp á al-
mennum frídegi skal greiðsludagur
vera næsti virki dagur á eftir. Húsa-
leigu og annað endurgjald skal greiða
á umsömdum stað en annars á heimili
leigusala, vinnustað hans eða öðrum
þeim stað sem hann tiltekur innan
lands.
Leigjanda er þó ávallt heimilt að
inna greiðslur af hendi í banka eða
senda í pósti með sannanlegum hætti.
Greiðsla með þeim hætti telst greidd
á réttum greiðslustað og þann dag
sem hún er innt af hendi í bankanum
eða pósthúsinu. Langöruggast er að
láta banka sjá um innheimtu á leigu-
greiðslum og taka það fyrirkomulag
fram í leigusamningi.
Ef leigjandi greiðir ekki umsamda
húsaleigu á gjalddaga er leigusala
heimilt að krefja hæstu lögleyfðu
dráttarvexti af henni til greiðsludags.
Rétt er að benda á að öruggast er
að semja sannanlega um fjárhæð
húsaleigu en hafi það ekki verið gert
ber leigusali sönnunarbyrðina fyrir
fjárhæðinni. Þegar svo háttar til get-
ur leigusali sýnt fram á áðurgreidda
húsaleigu af sama leigjanda og þann-
ig sýnt fram á umsamda leigu. Van-
skil leigu getur verið á leigugjaldinu
sjálfu eða greiðslu í sameiginlegan
hússjóð húsfélags eða aðrar umsamd-
ar greiðslur. Vanskil eru orðin til ef
greiðslur hafa ekki borist á gjald-
daga. Mjög algengt er að leigusalar
leyfi vanskil leigjenda í einhvern tíma
án þess að bregðast við og telja sér
trú um að leigjandi komist fljótlega á
„rétta braut“. Þannig getur t.d.
myndast myndarlegur slóði af
ógreiddri leigu eða öðrum gjöldum
sem erfitt getur reynst að innheimta.
Það er því mjög brýnt að leigusalar
grípi til nauðsynlegra aðgerða gagn-
vart vanskilum hið fyrsta til að af-
stýra tjóni eins og hægt er.
Skrifleg greiðsluáskorun
Samkvæmt húsaleigulögum ber
leigusala að senda skriflega greiðslu-
áskorun komist leigutaki í vanskil og
því er mjög mikilvægt að leigusalar
taki sér ekki of langan tíma í að skora
á leigutaka að greiða munnlega. Mjög
algengt er að leigusalar falli í þessa
gildru og haldi þegar upp er staðið að
áskoranir þeirra hafi nægjanlegt gildi
til að vera grundvöllur riftunar.
Senda ber leigugreiðsluáskorun
með sannanlegum hætti og getur það
hvort sem er verið í ábyrgðarbréfi
eða með símskeyti. Skilyrði er því að
slík greiðsluáskorun sé skrifleg og að
skýrt komi fram hvers sé verið að
krefjast af hálfu leigusala. Slíka
greiðsluáskorun má senda þegar
komið er fram yfir gjalddaga
greiðslu.
Efni slíkrar greiðsluáskorunar er
að hluta til lögbundið og verður að
koma fram í henni að riftunarheimild
verði beitt ef leigutaki sinni ekki
áskoruninni innan sjö sólarhringa.
Bjóðist leigjandi til að greiða leigu
eftir ofangreindan frest er það í hönd-
um leigusala að ákveða hvort hann
vilji halda riftunarheimild sinni til
streitu. Það skal tekið fram að fyr-
irvaralaus móttaka á leigugreiðslu
eftir að fresturinn er liðinn getur leitt
til þess að riftunarheimild leigusala
falli niður.
Riftunaryfirlýsing
Í framhaldi af greiðsluáskorun og
viðvörun um riftun, sem ekki hefur
verið sinnt, er nauðsynlegt að senda
skriflega yfirlýsingu um riftun með
sannanlegum hætti, þ.e. í ábyrgð-
arbréfi eða símskeyti. Í henni er
skorað á leigutaka að rýma húsnæðið
á tilteknum tíma þar sem greiðslu-
áskorun hafi ekki verið sinnt.
Mjög algengt er að leigusalar falli í
þá gryfju að greina ekki á milli
greiðsluáskorunar og riftunar. Þá er
einnig mjög algengt að leigusalar telji
uppsögn leigusamnings eiga við þeg-
ar um vanskil er að ræða.
Það er mjög brýnt að farið sé í öllu
eftir ákvæðum húsaleigulaga um
greiðsluáskorun og riftun þegar van-
skil eru annars vegar. Sé það ekki
gert getur það valdið því að tilkynn-
ingar leigusala til leigutaka hafi ekki
þau réttaráhrif sem þeim ber að gera
og að leigusali nái ekki fram rétti sín-
um, eingöngu vegna eigin mistaka
eða vanþekkingar á formkröfum
húsaleigulaga.
Útburður
Eftir að riftunaryfirlýsing hefur
verið send og aðdragandi riftunar-
innar er samkvæmt lögum er leigu-
samningurinn fallinn niður. Leigj-
anda ber þá skylda til að rýma hið
leigða á þeim degi sem leigusali hefur
tilgreint í riftunaryfirlýsingu.
Sinni leigjandi ekki þeirri kröfu er
leigusala nauðugur einn sá kostur að
krefjast útburðar fyrir dómstólum.
Dómstólar gera skýra kröfu um að
efnislegar forsendur hefi legið til
grundvallar riftuninni og að löglega
hafi verið staðið að henni á allan hátt.
Ef minnsti vafi er á að ekki hafi verið
rétt staðið að málum er útburð-
arbeiðni hafnað og þá þarf að hefja
ferlið allt frá grunni á ábyrgð og
kostnað leigusala.
Leiguvanskil
Morgunblaðið/ÞÖK
Hrund
Kristinsdóttir
Hús og lög
eftir Hrund Kristinsdóttur,
lögfræðing hjá Húseigenda-
félaginu/huso2@islandia.is