Morgunblaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 F 23
mbl.is/fasteignir/fastis
EINBÝLI - PAR-/RAÐHÚS
GRJÓTAÞORP - EINBÝLI
Vorum að fá í sölu fallegt nýlega uppgert
einbýlishús á tveimur hæðum ásamt kjall-
ara, samtals um 196 fermetrar. Á neðri
hæðinni er nýl. eldhús, stofa og borðstofa
og herbergi. Á efri hæðinni eru 3 herbergi
ásamt baðherbergi. Í kjallaranum hefur
verið innréttuð 3ja herb. íbúð auk geymslu
og þvottahúss. Þrátt fyrir mikla endurnýjun
hefur „gamli sjarminn“ verið látinn halda
sér. Góð suðurlóð. Sérbílastæði. SVONA
EIGN KEMUR SJALDAN Í SÖLU !
ATVINNUHÚSNÆÐI
ÓSEYRARBRAUT - HAFNARF.
Vorum að fá í einkasölu rúmlega 2.000 fm
atvinnuhúsnæði. Húsnæðið er nýtt í dag
undir fiskvinnslu. Nánari upplýsingar gefur
Haukur Geir á skrifstofu FÍ.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSK-
AST VIÐ HÖFUM FJÁRSTERKAN AÐLA
SEM LEITAR AÐ 800-1.000 fm TIL KAUPS
EÐA LEIGU Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU.
NÁNARI UPPL. Á SKRIFSTOFU.
FJÁRFESTAR ERUM MEÐ
NOKKRA GÓÐA FJÁRFESTINGAR-
MÖGULEIKA Í ATVINNUHÚSNÆÐI.
NÁNARI UPPL. VEITIR HAUKUR GEIR
GARÐARSSON, VIÐSKIPTAFR. OG
LÖGG. FASTEIGNASALI.
SELJENDUR
GERIÐ KRÖFUR!
LÁTIÐ LÖGGILTAN FASTEIGNA-
SALA SKOÐA OG VERÐMETA
EIGNINA YKKAR
4-6 HERBERGJA
KÓPAVOGUR - VESTURBÆR-
BÍLSKÚR
Vorum að fá í sölu góða 3ja-4ra herb. íbúð
á 1. hæð í fjórbýli ásamt bílskúr. Fallegt út-
sýni. Aukaherbergi með sam. snyrtingu í út-
leigu. Miklir möguleikar. Verð 19,9 millj.
FYRIR SMIÐI EÐA LAGHENTA
!!! Vorum að fá í einkasölu húsnæði sem er
verið að breyta í tvær íbúðir, 2ja og 3ja
herb. Önnur íbúðin er langt komin en hin er
nánast tilbúin til innréttinga. Glæsilegt út-
sýni og miklir möguleikar. Hagstætt áhvíl-
andi lán getur fylgt eigninni. Laus strax.
VERÐTILBOÐ. Teikningar og nánari
upplýsingar á skrifstofu FÍ.
LAUGAVEGUR LAUS - 2 ÍBÚÐIR
Vorum að fá í sölu nýlega endurnýjaðar
íbúðir með sérinngangi í góðu fjölbýli efst á
Laugaveginum. Eldhús með nýlegri ljósri
viðarinnréttingu. Sérbílastæði Skúlagötu-
megin. Þetta er eign sem bíður upp á
marga mögul.; leigja aðra eða báðar út, eða
nota hluta sem vinnuaðstöðu. ÁKV. SALA.
Opið
mán.- fös. kl. 9-17.
2ja HERBERGJA
LAUGAVEGUR Vorum að fá í sölu fal-
lega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja
íbúð í góðu steinhúsi ofarlega á Laugaveg-
inum. Íbúðin snýr að mestu frá Laugavegi.
Parket á gólfum. Bílastæði.
KRUMMAHÓLAR - LAUS Í einka-
sölu góð 2ja-3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjöl-
býli ásamt stæði í bílskýli. Eldhús með við-
arinnréttingu. Stofa. Vinnu-/tómstunda-
herb. Svefnherbergi með skápum. Bað-
herbergi með baðkari og tengi f. þvottavél.
VERÐ AÐEINS 11,4 MILLJ. LAUS.
3ja HERBERGJA
GRAFARHOLT - BÍLSKÝLI
Vorum að fá í einkasölu fallega 3ja her-
bergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og
sér suðurverönd í nýlegu vönduðu fjölbýli.
Falleg eldhúsinnrétting úr birki, helluborð.
Hjónaherbergi og barnaherbergi með góð-
um skápum úr birki. Parket og flísar á gólf-
um. Sérþvottahús í íbúð. Gott stæði í bíl-
skýli. Stutt í skóla og þjónustu. Ákveðin
sala.
GYÐUFELL
Vorum að fá í sölu góða 3ja herb. íbúð á 3.
hæð í fjölbýli. Hol með skápum. Stofa með
yfirbyggðum svölum í suður. Baðherbergi
með baðkari og t.f. þvottavél. Eldhús með
borðkrók. og fallegu útsýni. Tvö svefn-
herb., annað með skápum. Hús nýl. klætt
að utan. Stutt í alla þjónustu. Verð 14,7 m.
HÓLARNIR Í einkasölu falleg 3ja herb.
íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýli. Tvö herb. með
skápum. Eldhús með borðkrók. Stofa með
svalir í suður sem eru yfirbyggðar og með
glæsilegu útsýni. Baðherbergi með bað-
kari, nýl. flísum á veggjum og gólfi, glugga.
Góð staðsetning í barnvænu hverfi.
VIÐ BORGARTÚN - LEIGA
Til leigu um 125 fm skrifstofuhúsnæði á
3. hæð með sérinngangi rétt við Borgar-
tún. Mjög hagstæð leiga eða aðeins kr.
750.- á fermeter. Laust strax. FYRSTIR
KOMA - FYRSTIR FÁ.
EIRHÖFÐI Til sölu 1.150 fm atvinnu-
húsnæði á þremur hæðum, mjög vel stað-
sett á góðri lóð. Húsið býður upp á marga
möguleika; sali með innkeyrsludyrum,
skrifstofur og óinnréttað rými. Glæsilegt
útsýni. Mjög góð aðkoma og fjöldi bíla-
stæða. Teikningar á skrifstofu. Óskað er
eftir tilboðum í eignina. Nánari upplýsingar
veitir Haukur Geir.
MIÐSVÆÐIS Til leigu um 200 fm skrif-
stofuhæð í góðu steinhúsi miðsvæðis í
Reykjavík. Laust strax. Nánari upplýsingar
á skrifstofu.
SUMARBÚSTAÐIR
GRÍMSNES - NÝTT
Vorum að fá í sölu nýjan og glæsilegan
sumarbústað á stóru og fallegu kjarri
vöxnu eignarlandi rétt við Kerið í Gríms-
nesi. Sumarbústaðurinn er um 60 fm
ásamt risi sem er um 40 fm að gólffleti.
Góð verönd. Er fullbúinn án eldhúsinnrétt-
ingar. Vatn og rafmagn komið í bústaðinn.
Myndir og teikningar á skrifstofu. SANN-
GJARNT VERÐ, AÐEINS 12,5 MILLJ.
GRÍMSNES - NÝTT Vorum að fá í
sölu nýjan um 70 fm sumarbústað ásamt
12 fm gestahúsi. Stór stofa, þrjú svefn-
herbergi, eldhús og bað. Stór og góð ver-
önd. Möguleiki er að kaupa bústaðinn
rúmlega tilbúinn undir tréverk eða fullbúin
með afhendingu eftir um 2 vikur. Myndir
og nánari upplýsingar á skrifstofu FÍ.
SUMARBÚSTAÐUR - BORG-
ARFIRÐI Vorum að fá í sölu um 40 fm
sumarbústað, vel staðsettan í kjarri vöxnu
landi rétt fyrir ofan Borgarnes. Góð stofa
og þrjú svefnherbergi. Sólpallur á móti
suðri. Verð aðeins 4,5 millj.
SUMARHÚS TIL FLUTNINGS
Vorum að fá í sölu nýtt um 50 fm sumar-
hús ásamt ca 20 fm svefnlofti. Timburstigi
er upp á svefnloft sem er með svölum.
Sumarbústaðurinn er tilbúin til flutnings.
Verð 7,0 millj.
Sími 588 5060
Haukur Geir Garðarsson
Viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
Albert Bjarni Úlfarsson
Sölufulltrúi
Ólafur Hreinsson
Lögfræðingur
A
ðild Íslands að Evrópsku
stöðlunarsamtökunum
(CEN) hefur það í för
með sér að staðfesta
verður alla samevr-
ópska staðla (EN) sem íslenska
staðla (ÍST). Í sumum tilvikum hefur
orðið um verulegar breytingar að
ræða á þeim reiknireglum sem vinna
þarf eftir með tilkomu nýrra staðla.
Danir hafa farið þá leið í nokkrum til-
vikum að setja danska staðla sem
eiga að auðvelda þessar breytingar
með því að framsetning er lík því sem
verið hefur en vísað til viðeigandi
evrópskra staðla. Danski staðallinn
myndar því nokkurs konar umgjörð
um evrópska umhverfið.
Dæmi um einn af þessum dönsku
stöðlum er stað-
allinn DS
418:2002 Beregn-
ing af bygningers
varmetab. Nú er
til umsagnar
frumvarp að ís-
lenskum staðli
frÍST 66 Varma-
tap húsa – Út-
reikningar sem
vísar til danska
staðalsins og inniheldur íslensk sér-
ákvæði við hann. Frumvarpið var
unnið á vegum Byggingarstaðlaráðs
(BSTR). Þegar frumvarpið verður
staðfest sem íslenskur staðall verður
danski staðallinn hluti af íslenska
staðlinum.
Íslensku sérákvæðin
Hér á eftir verður fjallað í stuttu
máli um íslensku sérákvæðin við
danska staðalinn um útreikning á
varmatapi húsa sem er að finna í
frumvarpinu.
Greinin um hugtök er þýdd á ís-
lensku. Þetta auðveldar samskipti á
milli manna þar sem flestum er tam-
ara að tjá sig á íslensku en dönsku.
Lagt er til að almennt skuli nota
–15°C sem hönnunarskilyrði fyrir
útihitastig, 5°C sem hönnunarskil-
yrði fyrir hitastig jarðar, –10°C sem
hönnunarskilyrði fyrir vel loftræst
rými og –15°C sem hönnunarskilyrði
fyrir opin rými. Þessi gildi voru valin
með hliðsjón af þeim hefðum sem gilt
hafa við varmatapsútreikninga hér-
lendis.
Varðandi náttúrlega loftun þá er
mælt með því að loftskipti (n loft-
skipti/klukkustund) í venjulegum
íbúðarhúsum verði minnst 0,8 eins og
kveðið er á um í byggingarreglugerð.
Í sérákvæðunum er umfjöllun um
undirstöður undir veggi og það línu-
tap sem um þær verður.
Í sérákvæðunum er fjallað um
uppgefin gildi og hönnunargildi til
þess að vekja sérstaka athygli not-
enda á þessum hugtökum. Þar má
m.a. nefna ákvæði um að margfalda
skuli ?-gildi með 1,2 þegar einangr-
unin (s.s. einangrunarplast eða stein-
ull) snýr að jarðvegi eins og t.d. á
sökkli eða undir gólfplötu ef ekki eru
gerðar sérstakar ráðstafanir til að
minnka rakainnihald einangrunar-
innar á þessum stöðum. Viðurkennd
ráðstöfun er t.d. að koma fyrir
minnst 75 mm þykku grófmalarlagi
eða malarlagi með minnstu korna-
stærð 4 mm undir einangruninni.
Í sérákvæðunum eru sýnidæmi
fyrir algeng þversnið í dæmigerðum
íslenskum húsum, þ.e.: Gólf á fyll-
ingu með og án gólfhita og jafnframt
með og án grófmalarlags undir ein-
angrun. Steyptur útveggur annars
vegar einangraður að innan og hins
vegar einangraður að utan. Léttur
útveggur einangraður í grind. Upp-
stólað þak á steypta plötu. Létt timb-
urþak. Viðsnúið þak. Kalt þak.
Athygli vekur að samkvæmt
reiknireglum staðalsins þá þarf
þykkt einangrunar undir gólfplötum
að vera 100 mm ef ekki er komið fyrir
grófmalarlagi undir einangruninni til
þess að uppfylla ákvæði bygging-
arreglugerðarinnar. Jafnframt er
það almenn viðmiðun að auka skuli
þykkt einangrunar um 25 mm undir
plötu ef gert er ráð fyrir gólfhitalögn
í húsinu.
Frumvarpið verður auglýst til um-
sagnar á vegum Staðlaráðs Íslands
nú í sumar.
Sú regla gildir varðandi meðferð
frumvarpa hjá Staðlaráði að gefinn
er tveggja mánaða frestur til að
senda inn umsögn frá birtingu aug-
lýsingar. Hagsmunaaðilar eru hvatt-
ir til þess að fylgjast vel með vinnu
við staðla og útgáfu staðla á sínu
sviði. Allar upplýsingar um vinnu
sem snýr að stöðlun á sviði bygginga
og mannvirkjagerðar eru veittar af
greinarhöfundi.
Útreikningur á varmatapi húsa
Hagsmunaaðilar eru hvattir til þess að fylgjast vel
með vinnu við staðla og útgáfu staðla á sínu sviði.
Dr. Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri BSTR,
fjallar hér um íslensku sérákvæðin við danska stað-
alinn um útreikning á varmatapi húsa.
Dr. Hafsteinn
Pálsson
ÞAR sem baunatré þola ekki
frost er handhægt að hafa þau í
potti sem svo er kippt inn í gróð-
urhús eða álíka geymslu þar sem
þau liggja í dvala yfir vetrarmán-
uðina.
Blómapottar lífga upp á umhverfið.
Baunatré
SPEGLAR eru úti um allt; á veit-
ingahúsum, í lyftum, í verslunum
svo fátt eitt sé nefnt. Speglar eru
ekki einungis notaðir til skrauts
og til þess að spegla sig í heldur
geta þeir gert heilmikið til að
láta herbergi virðast stærri og
bjartari eða einfaldlega skapa
stemningu. Þá þarf ekki endilega
að hengja upp, þeir mega líka
standa á gólfi og hallast upp að
vegg eða standa á hillum eða
borðum.
Spegill á borði.
Spegill, spegill