Morgunblaðið - 11.07.2005, Page 34
34 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
HÁRSNYRTISTOFAN Hársaga
ehf. hefur fært út kvíarnar og opnað
útibú í Austurstræti 8–10. Auk þess
að vera hárgreiðslustofa er þetta
gallerí og sýningarsalur fyrir vörur
fyrirtækisins Excel, en að sögn eig-
anda Hársögu, Sigrúnar Ægisdótt-
ur, og umboðsmanns Excel hér á
landi er hönnun þessi verk Ítala
nokkurs að nafni Nicola Andrea.
Excel sérhæfir sig í framleiðslu á
innréttingum og húsgögnum fyrir
hársnyrtistofur, snyrtistofur og
fleiri. Sigrún bendir þó á að ein-
staklingar geti líka verslað við fyr-
irtækið og vörur þess passi víða. All-
ir hlutir eru handgerðir hvort sem
um er að ræða skálar, kertastjaka,
veggljós, stóla, spegla eða borð og
notar Nicola ál, ryðgað járn, leður
og við í framleiðslu sína.
Þeir sem hafa áhuga geta litið inn
og kynnt sér framleiðsluna. Fyr-
irtækið aðstoðar kaupendur við
hönnun og útlit og skilar frá sér full-
mótuðum hugmyndum í samráði við
viðskiptavini. Boðið er upp á föst
verðtilboð og uppsetningu ef óskað
er. Allir smáhlutir eru til sölu en
þurfi að panta smávöru tekur það
ekki meira en 15–20 daga. Opið er
daglega frá 9 til 18 og til kl. 20 á mið-
vikudögum. Á laugardögum er opið
til kl. 14 en til kl. 16 á veturna.
Hársaga færir
út kvíarnar
Hársnyrti-
stofa og
gallerí
Óvenjulegt ljós hannað af Ítalanum Ni-
cola Andrea.
Kollur frá Excel. Stóll frá ítalska fyrirtækinu Excel. Ljós frá Excel. Ryðgað járn í aðalhlutverki.
Myndarammi, smávara frá Excel
Hársaga Austurstræti. Hvítur sófi klæddur hrosshári.
Hársaga er sannkallað augnayndi.
TENGLAR
...........................................
www.harsaga.is
www.excelscd.com