Morgunblaðið - 05.08.2005, Side 2

Morgunblaðið - 05.08.2005, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FÖGNUÐUR Á GAZA Palestínumenn fögnuðu því á Gaza í gær, að brottflutningur Ísraela frá svæðinu á að hefjast síðar í mán- uðinum. Lögðu þeir áherslu á, að að- eins væri um að ræða fyrsta skrefið að því að Ísraelar yrðu að hverfa af öllu palestínsku landi, einnig frá Vesturbakkanum og Austur- Jerúsalem. Ísraelar eru hins vegar að treysta tök sín á Vesturbakk- anum þvert ofan í Vegvísinn svokall- aða og leyfðu í gær byggingu 72 íbúða í einni gyðingabyggðinni þar. Mikið mannfall Á síðustu 10 dögum hafa 38 Bandaríkjamenn fallið í Írak og er það farið að valda miklum áhyggjum í Bandaríkjunum, ekki síst meðal þingmanna repúblikana en kosið verður um mörg þingsæti á næsta ári. Ný skoðanakönnun sýnir, að stuðningur við stefnu stjórnarinnar í Írak er nú aðeins 38%. Klifruðu upp í krana 13 mótmælendur fóru í gær inn á byggingarsvæði Alcoa í Reyðarfirði og þrír þeirra klifruðu upp í bygg- ingarkrana. Markmiðið var að stöðva vinnu á svæðinu, en á annað hundrað manns lögðu niður vinnu í fjórar stundir. Meiri byggðakvóti Á næsta fiskveiðiári verður byggðakvóti aukinn um 800 lestir í 4.010 en kvótanum er úthlutað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vandræðum vegna samdráttar í veiðum og til sveitarfélaga sem hafa orðið fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum. Þriðju mestu viðskiptin Mikil velta var á viðskiptum í Kauphöllinni í gær, þriðja mesta á einum degi frá upphafi. Mest munaði um viðskipti með bréf í Íslands- banka. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 26 Fréttaskýring 8 Minningar 27/33 Viðskipti 14 Skák 37 Erlent 16/17 Brids 36 Minn staður 18 Myndasögur 36 Höfuðborgin 19 Dagbók 36/38 Akureyri 19 Staður og stund 37 Suðurnes 20 Af listum 39 Landið 20 Leikhús 40 Menning 21, 39/40 Bíó 42/45 Umræðan 26 Ljósvakamiðlar 46 Bréf 26 Veður 47 Forystugrein 24 Staksteinar 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                   ! " # $ %        &         '() * +,,,                          STEINGRÍMUR J. Sigfússon, alþing- ismaður og formaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, efndi til mik- illar veislu í tilefni af fimmtugsafmæli sínu og þrettán ára afmæli sonar síns, Bjarts Steingrímssonar, í gær. Hátt í þrjú hundruð manns sóttu veisluna sem fór fram á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, á æskuslóðum Steingríms. Þrátt fyrir vonskuveður skemmtu gestir sér með besta móti enda var búið að koma fyrir þremur tjöldum á svæð- inu og þrír björgunarsveitarmenn voru til taks ef einhver þyrfti á aðstoð að halda. Steingrímur fékk margt góðra gjafa og fjöldi gesta heiðraði hann með ræð- um. Þannig fékk hann hestinn Viljar að gjöf frá góðvinum sínum í Vinstrihreyf- ingunni – grænu framboði og folald frá félögum sínum. Í veislunni var mikið sungið og tóku meðal annars hinir kunnu Álftagerð- isbræður lagið. Þá var slegið upp dans- leik í hlöðunni og að lokum tendraður varðeldur. Fjölmenni í fimmtugsafmæli Steingríms J. Sigfússonar Fékk hest og folald að gjöf Ljósmynd/Gréta Bergrún Jóhannesdóttir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, spjalla saman í afmælisfögnuðinum fyrir utan vélahúsið á Gunnarsstöðum. Þórarinn Ragnarsson, bróðursonur Steingríms, kom ríðandi á Viljari og afhenti hann afmælisbarninu. Hesturinn var gjöf frá félögum í VG. SAMANLAGÐAR eignir einstak- linga hérlendis nema nú 1.926 milljörðum króna og af þeim eru fasteignir 1.364 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tölum sem Ríkisskattstjóraembættið hefur unnið úr skattframtölum einstak- linga fyrir síðasta ár. Langstærstur hluti eigna ein- staklinga, eða rúm 70%, er því bundinn í húsnæði. Fasteignamat hækkaði um 16,4% frá árinu 2004 til ársins 2005, eða um rúma 192 milljarða króna, og hefur hækkað um tæp 32% frá árinu 2003. Skv. upplýsingum frá embætti Ríkisskattstjóra ber að hafa í huga að þegar fasteignamat hækkar mjög mikið, eins og raunin hefur verið á undanförnum árum, aukast eignir einnig mikið. Eignarskatt- stofninn hækkar því þrátt fyrir að lítill hluti fasteignaeigenda kaupi og selji eignir sínar. Eignarskatt- stofn jókst um 17% á milli ára og er nú nær 1.100 milljarðar. Inni- stæður einstaklinga í erlendum bönkum hafa lækkað um 13,6% milli ára og hlutabréf í erlendum félögum standa í stað. Hlutabréfaeign að nafnvirði dróst saman um tæp 8% Verðbréf og útistandandi skuldir hafa aukist um rúm 30% á milli ára og er talið hugsanlegt að það skýrist af sölu húsnæðis, háu fast- eignaverði og háu verði hlutabréfa. Eignir einstaklinga í hlutabréf- um hafa hins vegar lækkað um tæp 8% frá því í fyrra, en það skýrist mögulega af samþjöppun í eignarhaldi. Hugsanleg skýring er talin sú að fyrirtæki séu að kaupa hlutabréf af einstaklingum, þrátt fyrir aukningu einkahlutafélaga, og hlutafé hafi þannig verið fært inn á framtöl lögaðila. Það að hlutabréf hafi lækkað á milli ára segir þó ekki alla söguna þar sem þau eru talin fram á nafnvirði sem kann að vera talsvert annað en markaðsvirði bréfanna. Eignir Íslendinga tæpir tvö þúsund milljarðar króna Innistæður einstaklinga í erlendum bönkum hafa minnkað um 13,6%       !   "!        #$ #       $ $    $ $        # $ #  !"#  $  %&' ( ) *+   )*,- $ $  $ $ Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is BANKAR á Indlandi gætu lært sitthvað af íslensku bönkunum, að mati breska tímaritsins The Bank- er. Sex indverskir bankar voru á nýlegum lista tímaritsins yfir eitt þúsund stærstu banka heims en á sama lista voru þrír íslenskir bankar, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu. Í ágústhefti The Banker er bent á að Indverjar séu þrjú þúsund sinnum fleiri en Íslendingar og að starfsmenn stærsta banka Ind- lands séu fleiri en öll íslenska þjóðin. Þess vegna veki það furðu að indversku bankarnir séu ein- ungis sex á listanum á meðan ís- lensku bankarnir séu þrír. Ör vöxtur annars stærsta banka Indlands er sagður sönnun þess að indverskar fjármálastofnanir geti gert betur þrátt fyrir hindranir vegna skrifræðis og ríkisrekstrar. Kaupþingi banka, sem gæti verið þriðji stærsti banki Indlands, hafi tekist að forðast slíkar hindranir og ná fram óviðjafnanlegum vexti á öllum sviðum. En ólíkt því sem gerist á Indlandi þá sé heima- markaður Kaupþings banka á Ís- landi svo lítill að 80% tekna hans muni koma erlendis frá á þessu ári. Dugandi og einbeitt stjórnun ásamt litlu skrifræði og einka- framtaki er að mati tímaritsins meðal þess sem skilur að ind- versku og íslensku bankana og er það sem gerir íslensku bönkunum kleift að vaxa svo hratt sem raun ber vitni. „Ísland hefur sýnt að land þarf ekki að vera stórt til að geta af sér stóra og farsæla banka. Nú er bara að sjá hvort hinir „þrír stóru“ geti haldið áfram giftusam- legum vexti sínum í útlöndum eða hvort þeir verði gleyptir,“ segir í greininni. Indverskir bankar læri af þeim íslensku ÞESSIR myndarlegu hákarlar rötuðu nýverið í trollið hjá Kaldbak EA-1 frá Akureyri, 100 sjómílur suðvestur af Reykjanesi á 450 metra dýpi. Kaldbakur var þar á djúp- karfaveiðum fyrir Þýskalandsmarkað og segir Víðir Benediktsson skipstjóri að ekki sé óalgengt að hákarl fáist á þessum slóðum, en þessir hafi þó verið í stærri kantinum. Verkaðir til manneldis Gert var að hákarlinum um borð og hann svo seldur til Hildibrands í Bjarn- arhöfn á Snæfellsnesi sem verkar þá til manneldis. Andvirðið rennur í starfsmannasjóð áhafnarinnar og mun eflaust koma að góðum notum á næstu árshátíð. Hákörlum landað úr Kaldbak Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hákörlunum var landað upp úr Kaldbak í Reykjavíkurhöfn. MUNAÐARNES, nyrsti sveitabær á Ströndum, fer í eyði í haust þegar Guðmundur Jónsson, bóndi og hrepp- stjóri í Munaðarnesi, og Sólveig Jóns- dóttir, kona hans, flytja af jörð sinni. Þau hafa búið í Munaðarnesi síðan um 1960. Guðmundur er fæddur og uppalinn á Munaðarnesi, en fólki hefur fækkað þar mikið á seinni árum. „Þegar ég var að alast upp var búið á sex bæjum í Munaðarnesi og á þeim bjuggu 30 manns. Nú erum við bara tvö eftir.“ Munaðarnes er á snjóþungu svæði og mikil snjóflóðahætta er á veginum að bænum. „Maður er oft lokaður inni í fleiri mánuði ef því er að skipta. Maður gat tekist á við þetta á yngri árum en ég treysti mér ekki til þess lengur.“ Guðmundur segist kveðja Munað- arnes með söknuði. „Það er ekkert grín að taka sig upp. Það er ekkert skemmtiverk, en maður verður að vera raunsær.“ | 25 Nyrsti bær á Ströndum í eyði BÍLL valt á Vatnsfjarðarnesi, á milli Vatnsfjarðar og Mjóafjarðar, um klukkan hálfþrjú í gærdag. Tveir er- lendir ferðamenn voru í bílnum og slösuðust þeir lítið. Þeir voru fluttir á sjúkrahúsið á Ísafirði, en hafa verið útskrifaðir. Bílvelta á Vatns- fjarðarnesi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.