Morgunblaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Næring ekki
refsing
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
VELTA í viðskiptum í Kauphöll Ís-
lands í gær var sú þriðja mesta á
einum degi frá upphafi. Hlutabréf
fyrir tæplega 19,2 milljarða króna
voru keypt og seld.
Mest munaði um veltu með bréf
Íslandsbanka en hún var ríflega 8,4
milljarðar króna. Velta með bréf
KB banka var 3,6 milljarðar og með
bréf Landsbankans var veltan 2,3
milljarðar króna.
Ljóst var í byrjun dags að velta
yrði mikil en fyrir opnun höfðu við-
skipti Milestone með bréf Íslands-
banka verið tilkynnt. Þau viðskipti
hljóðuðu upp á tæpa 7,9 milljarða
króna.
Mest velta með hlutabréf í Kaup-
höllinni frá upphafi var 30. sept-
ember 2004 en þá var hún 33,8
milljarðar króna. Þann dag var
velta með Íslandsbanka einnig
mest, 30 milljarðar, en Straumur
keypti þá 14,4% hlut í bankanum.
Næstmest var veltan 19. september
2003, 24,8 milljarðar, en kvöldið áð-
ur höfðu miklar sviptingar orðið í
íslensku viðskiptalífi er stór fyr-
irtæki svo sem Eimskip skiptu um
eigendur.
0 '
(
*+ )
"!
Góður dagur í
Kauphöllinni
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Þriðju mestu hlutabréfaviðskiptin
á einum degi frá upphafi
„FÓLK er bara fólk. Ég dæmi þig ekki fyrir
eitthvað sem ég held að þú sért áður en við töl-
um saman, það sést ekki á útliti fólks hvað það
getur,“ segir Bjarki Birgisson sem ásamt Guð-
brandi Einarssyni lauk í gær göngu í kringum
landið undir kjörorðinu „Haltur leiðir blindan“.
Tilgangur göngunnar var margþættur en m.a.
að vekja athygli á málefnum barna með sér-
þarfir.
Þeir Bjarki „halti“ og Guðbrandur „blindi“
hafa gengið 1.300 km á 46 dögum, en með þeim í
för var Tómas Birgir Magnússon íþróttakenn-
ari. Um hundrað manns gengu með þeim síð-
asta spölinn meðfram Reykjavíkurtjörn og
fatlaðra, afhentu görpunum veglega minja-
skildi.
„Það má segja að hugmyndin hafi kviknað í
einhverjum fíflagangi hjá okkur á nudd-
bekknum. Ég nudda Bjarka, þannig þekkjumst
við,“ sagði Guðbrandur en frumkvæðið að ferð-
inni var alfarið þeirra.
„Auðvitað komu upp einhverjir örðugleikar í
samstarfinu á leiðinni, þeir löbbuðu oft dögum
saman yfir hálendi þar sem þeir hittu fáa,“
sagði Þorgerður Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sjónarhóls – ráðgjafarmið-
stöðvar fyrir foreldra langveikra og fatlaðra
barna. „Það reynir á. En þeir sigruðust á öllum
slíkum erfiðleikum og komu alltaf fram sem
einn maður í þessari göngu. Það er félagslegt
afrek, ekki síður en hið andlega og líkamlega.“
fjöldinn allur fagnaði með þeim á Ingólfstorgi,
m.a. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverf-
isráðherra og Anna Kristinsdóttir, formaður
ÍTR.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði
strákana fyrirmyndir, ekki bara fyrir fatlaða
heldur fyrir alla. Stjórnarformaður Sjónarhóls,
Andrés Ragnarsson, benti á að hindranir væru
hugarfóstur og þær væri allar hægt að yf-
irstíga.
Þá benti Alfreð Þorsteinssson á að „Haltur
leiðir blindan“ hefði nú öðlast nýja og jákvæða
merkingu. „Einfaldlega afreksmenn,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson, formaður ferða-
málaráðs.
Ellert B. Schram, formaður ÍSÍ, og Stefán
Áki Lúðvíksson, formaður íþróttasambands
Morgunblaðið/Sverrir
„Félagslegt, andlegt og líkamlegt afrek“
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
LINDA Björg Ármannsson, átta
ára stúlka sem býr í Ástralíu, varð á
dögunum heimsmeistari í svo-
nefndum BMX-hjólreiðaþrautum í
sínum aldursflokki í þriðja skiptið í
röð.
Frægðarsól þessa þrefalda ís-
lenska heimsmeistara hefur ekki
skinið jafnskært hér á landi og ætla
mætti en ástæða þess er eflaust sú
að hún hefur búið í Ástralíu alla
sína ævi. Hún er hins vegar af ís-
lensku bergi brotin og báðir for-
eldrar hennar eru íslenskir, þau
Gyða Gissurardóttir og Helgi Ár-
mannsson. Á heimilinu er einnig
Michael, 15 ára, og er fjölskyldan
búsett í Forrestdale skammt utan
Perth í Vestur-Ástralíu.
28 stúlkur frá ellefu löndum
öttu kappi í París
Í heimsmeistarakeppninni í ár,
sem fram fór í París, kepptu 28
stúlkur frá ellefu löndum í sama
flokki og Linda og bar hún eins og
áður segir sigur úr býtum. Árin á
undan fór keppnin fram í Hollandi
og í Ástralíu.
Linda hefur æft sig á BMX-hjólið
frá því að hún var þriggja og hálfs
af stelpum sem geri það líka.
„Ég hef komið einu sinni til Ís-
lands og fannst það gaman,“ segir
Linda og bætir við að eftirminnileg-
ast hafi verið að sjá allan snjóinn
hér á landi.
Fékk áhugann frá eldri bróður
Eldri bróðir Lindu, Michael Ár-
mannsson, hefur einnig keppt í
BMX-mótum og komst í átta manna
úrslit á heimsmeistaramótinu í Par-
ís.
Það var einmitt hjá honum sem
áhugi Lindu á BMX-hjólreiðum
vaknaði.
„Linda byrjaði af því að bróðir
hennar var að hjóla. Hún vildi endi-
lega gera þetta líka,“ segir Gyða og
rifjar upp að Linda hafi ekki fyrr
verið hætt að nota hjálpardekk en
hún fór á BMX-hjól.
„Ég var dálítið hrædd en pabbi
hennar hjálpaði henni yfir stóru
hoppin,“ segir Gyða aðspurð hvort
henni hafi ekki orðið um þegar
dóttirin hóf að æfa þessa íþrótt.
Hún segir að þrautirnar í keppn-
unum geti hins vegar verið hættu-
legar og meiðsli séu algeng í þess-
um keppnum.
Foreldrar Lindu styðja hins veg-
ar vel við bakið á henni og mæta
með henni á æfingar í hverri viku.
árs og tók þátt í sinni fyrstu heims-
meistarakeppni þegar hún var sjö
ára.
Í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist heimsmeistarinn ungi æfa sig að
jafnaði þrisvar í viku, þar af einu
sinni með þjálfara.
„Þetta krefst mikillar æfingar,“
segir hún þegar blaðamaður spyr
hvernig hún hafi orðið svona góð á
BMX-hjólinu.
Linda segir að þótt aðallega
strákar æfi þessa íþrótt sé talsvert
Átta ára íslensk stúlka er þrefaldur BMX-heimsmeistari
„Krefst mikillar æfingar“
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Linda Björg Ármannsson með verð-
launagripinn sem fylgir titlinum.
EINAR K. Guðfinnsson, þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins, ritar grein í Morgunblað-
ið í dag þar sem hann heldur því fram að af-
nema eigi vaxtabótakerfið í þágu atvinnuör-
yggis. Í grein Einars segir að vaxtabótakerfið
sé ríflega fimm milljarða niðurgreiðslu- og
millifærslukerfi, að hluta frá landsbyggð á höf-
uðborgarsvæðið.
„Við eigum að taka þá á orðinu sem krefjast
aukins aðhalds í ríkisfjármálum, afnema þá
tímaskekkju sem fimm milljarða niðurgreiðsla
á lánsfé er og stuðla þannig að betra rekstr-
arumhverfi fyrir útflutningsgreinarnar okkar
og atvinnulífið allt til lengri tíma,“ segir Einar
m.a. í grein sinni. | 25
Vill afnema
vaxtabótakerfið
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ gaf í gær út
reglugerð um úthlutun byggðakvóta fyrir kom-
andi fiskveiðiár. Úthlutað verður 4.010 lestum
sem er 800 lesta aukning frá síðasta fiskveiðiári.
Tæplega helmingi kvótans verður úthlutað til
minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna
samdráttar í veiðum og vinnslu á botnfiski. 2.010
þorskígildislestum verður svo ráðstafað til sveit-
arfélaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu
á heildaraflaheimildum. Alls fá 32 sveitarfélög
byggðakvóta vegna 41 byggðarlags, en 37 sveit-
arstjórnir sóttu um. Úthlutun vegna hruns á
skel- og innfjarðarrækjuveiðum minnkar og fá
rækju- og skelbátar 3.096 þorskígildislestir. | 11
Úthluta auknum
byggðakvóta
♦♦♦
FISKISÚPUKVÖLDIÐ mikla verður haldið
hátíðlegt á Dalvík í kvöld en það er undanfari
Fiskidagsins mikla sem fram fer á morgun í
fimmta sinn. Fiskisúpukvöldið er nýbreytni en
þá gefst gestum og gangandi tækifæri til að
banka upp á hjá heimilisfólki á Dalvík og fá að
smakka fiskisúpu ókeypis en um þrjátíu heimili
hafa skráð sig til leiks og verða þau lýst upp
með ljósaseríum og kyndlum.
Í ár er búist við að rúmlega 30.000 manns
sæki bæjarbúa heim. | 11
Búast við þrjátíu
þúsund gestum
♦♦♦