Morgunblaðið - 05.08.2005, Side 10

Morgunblaðið - 05.08.2005, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR á morgun Kemur innblásturinn af himnum ofan?  Töfrar, tónlist og hið yfirskilvitlega HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem kærður var fyrir lík- amsárás í apríl sl. en markaði gæsluvarðhaldinu styttri tíma en héraðsdómur. Í héraði hafði mað- urinn verið úrskurðaður í gæslu- varðhald til 23. september en Hæstiréttur stytti þann tíma til 5. september. Hinn kærði réðst á mann fyrir utan heimili hins síðarnefnda þann 22. apríl sl. eftir að hafa haft í hótunum við hann í nokkurn tíma og var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli d-lið- ar 103. gr. laga um meðferð op- inberra mála. Þar er kveðið á um að úrskurða megi í gæsluvarðhald ef telja megi það nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sak- bornings eða hann sjálfan fyrir árásum eða áhrifum annarra manna. Nú var krafist framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir manninum í annað sinn. Í dómi Hæstaréttar kom fram að hinn kærði hefði nú þegar setið í gæsluvarðhaldi í rúma þrjá mánuði og að krafa sóknaraðila í málinu gerði ráð fyr- ir að gæsluvarðhaldið yrði fram- lengt upp í rúma fimm mánuði. „Ekki er unnt að fallast á að meðferð á máli varnaraðila þurfi að taka svo langan tíma. Verður gæsluvarðhaldstíma varnaraðila markaður sá tími sem í dómsorði greinir,“ segir Hæstiréttur í lok dómsins. Gunnlaugur Claessen, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson dæmdu mál- ið. Hæstiréttur styttir gæsluvarðhaldstíma SLYS eru alvarlegt heilsufarsvanda- mál hjá öldruðum, en slys á eldri borgurum verða flest á eða við heimili þeirra. Slysavarnir aldraðra þurfa því að verulegu leyti að snúa að heimili og nánasta umhverfi þeirra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu á vef Landlæknisembættis- ins, Slys á öldruðum 2003. Skýrslan er byggð á gögnum Slysaskrár Ís- lands og slysadeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss, en Hildur Sigur- björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Landlæknisembættinu, tók hana saman. Fall algengasta orsök áverka Matthías Halldórsson, aðstoðar- landlæknir, segir að markmiðið sé að leita orsaka slysa á eldri borgurum svo koma megi í veg fyrir þau. Þá hef- ur rannsóknin tengsl við heilbrigð- isáætlun til ársins 2010, þar sem stefnt er að því að fækka mjaðm- abrotum aldraðra um fjórðung og gera 75 prósent af einstaklingum 80 ára og eldri kleift að búa í heimahús- um. Rannsókn sem þessi hefur ekki verið unnin áður en Matthías telur ekki ástæðu til að ætla að mikill mun- ur sé á milli ára. Hann segir jafnframt erfitt að bera niðurstöðurnar saman við önnur lönd þar sem þær miðist við komur á slysadeild en þröskuldur á því að leita á slysadeild geti verið mis- hár eftir löndum. Árið 2003 leituðu 1.835 einstaklingar 65 ára og eldri til slysadeildar Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, eða 47 karlar og 59 konur af hverjum 1.000 einstaklingum af hvoru kyni. Slysum fjölgaði mark- tækt með hækkandi aldri, sem og endurkomum á slysadeild. Tæplega 7 prósent aldraðra leituðu tvisvar eða oftar til slysadeildar þetta ár. Með- alaldur karla í aldurshópnum 65 ára og eldri sem komu á slysadeild var 75 ár, en 77 ár hjá konunum. Slys á öldruðum eru algengari en hjá öðrum hópum fullorðinna og á þetta einkum við um algengustu teg- und slysa, heima- og frítímaslys. Inn- an veggja heimilisins urðu flest slysin árið 2003 í stofu og svefnherbergi. Fall var algengasta orsök áverka, en hvers konar árekstrar komu næstir. Bæta þarf forvarnir Tíðni slysa meðal kvenna eftir 65 ára aldur er hærri en hjá körlum og segir Matthías það vafalaust aðallega stafa af því að þær hafi meiri bein- þynningu en karlar og brotni því frek- ar en þeir. Karlar lenda hins vegar frekar í vinnuslysum en konur. Beinbrot hjá öldruðum geta verið afar sársaukafull og haft neikvæð áhrif á lífsgæði, en þau voru fyrsta greining í þriðjungi tilfella þar sem greining var skráð þetta ár. Brot á framhandlegg og lærlegg voru al- gengust. Matthías segir að hingað til hafi ekki farið fram skipulagðar slysa- varnir fyrir aldraða hér á landi, en margt sé hægt að gera til að koma í veg fyrir slys án þess að það sé flókið eða kostnaðarsamt. „Annars vegar eru það þættir sem snúa að umhverfinu. Það er til dæmis mikilvægt að ekki séu miklar hindr- anir í vegi aldraðra. Einföld atriði eins og að gleraugu og lýsing séu í lagi geta líka gert mikið,“ segir Matthías. „Hins vegar eru það atriði sem snúa að einstaklingunum sjálfum. Margir aldraðir eru til dæmis á svefnlyfjum eða róandi lyfjum og það er ástæða til að kanna hvort þörf sé á þeim í öllum tilvikum. Svo eru margir á mörgum lyfjum og oft mætti endurskoða lyfja- samsetningu svo lyfin valdi ekki svima og falli í framhaldi af því. Síðan er mikilvægt að halda líkamanum í þjálfun með léttri áreynslu eins og göngu.“ Matthías segir aldraða almennt duglega að nota hjálpartæki eins og stafi, mannbrodda, göngugrindur og hækjur. Þetta megi þó bæta, eins og svo margt annað. Breytingar á aldurssamsetningu íslensku þjóðarinnar eru fyrirsjáan- legar. Meðalaldur mun hækka, öldr- uðum fjölga og hlutfall aldraðra af íbúafjölda hækka. Í skýrslunni segir að því bendi allt til þess að slysum í elstu aldurshópum muni fjölga á næstu áratugum nema gripið verði til markvissra aðgerða í forvörnum gegn slysum aldraðra. Landlæknir birtir skýrslu um slys á öldruðum Morgunblaðið/Ásdís Mikilvægt er að stuðla að líkamshreysti alla ævi. Slys eru alvarlegt heilsufarsvandamál hjá öldruðum, Flest slysin verða inn- an veggja heimilanna Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is VEGAGERÐIN hefur auglýst út- boð á rekstri Vestmannaeyjaferj- unnar Herjólfs á árunum 2006 til 2010. Óska tilboða í 13 ferðir í viku Óskað er eftir tilboðum í 13 ferðir á viku allt árið eins og nú- gildandi sumaráætlun gerir ráð fyrir sem er tvær ferðir á dag alla daga vikunnar nema á laugardög- um en þá er farin ein ferð. Einnig er óskað eftir tilboðum í 14 ferðir á viku, þ.e. tvær ferðir á dag. Vegagerðin samdi við Samskip hf. um rekstur Herjólfs árið 2000 til þriggja ára með heimild til framlengingar í tvö ár til viðbótar, sem var nýtt og rennur samning- urinn því út um næstu áramót, skv. upplýsingum Gunnars Gunn- arssonar aðstoðarvegamálastjóra. Heimild til framlengingar um tvö ár til viðbótar Samkvæmt frétt í framkvæmda- fréttum Vegagerðarinnar hafa heildarflutningar með ferju til og frá Vestmannaeyjum og Þorláks- höfn verið á bilinu 80 til 120 þús- und farþegar á ári, 20 til 32 þús- und fólksbifreiðar og 2.700 til 3.000 flutningabílar. Gert er ráð fyrir að samnings- tíminn verði fimm ár með heimild til framlengingar í tvö ár til við- bótar ef aðilar ná um það sam- komulagi. Tekið er fram að ef ákveðið verður fyrir mitt ár 2006, að smíða eða kaupa nýtt skip í stað m/s Herjólfs eða leysa samgöngur til Vestmannaeyja með öðrum hætti verði heimilt að segja samningnum upp með tveggja ára fyrirvara, þó með gildistíma í fyrsta lagi frá 1. janúar 2009. Fyrsta ferð samkvæmt samningi um rekstur Herjólfs næstu fimm árin er áætluð 2. janúar á næsta ári. Rekstur Herjólfs boðinn út til næstu fimm ára Fyrirvari vegna hugsanlegra kaupa eða smíði nýs skips

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.