Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Áhugi Íslendinga áhvers kyns útivisthefur aukist hröð-
um skrefum undanfarin
ár, ekki síst á gönguferð-
um um óbyggðir og á
fjallamennsku. Kannski er
ekki seinna vænna því þó
að talsvert hafi verið sneitt
af ósnortnum víðernum
hálendisins er enn leitun
að fallegra og fjölbreytt-
ara göngulandi en á Ís-
landi.
Það vakti mikla athygli
þegar um 200 manns
gengu á Hvannadalshnúk (2.119
metrar þar til í gær) á einum degi í
maí síðastliðnum og má kannski
segja að sá atburður hafi verið
táknrænn fyrir aukinn útivistar-
áhuga landsmanna. Sífellt fleiri
leggja stund á fjallgöngur og hjá
fyrirtækjum og félögum sem
skipuleggja hálendis- og óbyggða-
göngur fjölgar íslenskum við-
skiptavinum jafnt og þétt. Þau
sem urðu fyrir svörum hjá Ferða-
félagi Íslands, Útivist og Íslensk-
um fjallaleiðsögumönnum sögðu
öll sömu söguna; útivistarbakterí-
an breiðist út með miklum hraða.
Forðast hraða og stress
Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Ís-
lands, sagði að ástæðan fyrir aukn-
um áhuga væri margþætt. Fólk
verði t.d. fyrir áhrifum frá öðrum
sem hafi prófað og þannig smiti
útivistaráhuginn út frá sér. „Og
þegar menn eru byrjaðir verða
þeir háðir þessu, vilja halda áfram
og helst fara í eina eða tvær góðar
gönguferðir á ári,“ sagði hann. Til
þess að koma sér í form fyrir löngu
ferðirnar þurfi þeir síðan að fara í
styttri ferðir til að æfa sig og þann-
ig vindi útivistin upp á sig. Til
marks um aukinn áhuga Íslend-
inga á gönguferðum má nefna að
þátttaka í svokölluðum sumarleyf-
isferðum Ferðafélags Íslands, en
þá er gengið í nokkra daga í senn,
hefur vaxið ár frá ári og í sumar
hefur verið nánast fullbókað í allar
ferðir, að sögn Páls. „Hraðinn og
stressið í þéttbýlinu er orðið svo
mikið að fólk leitar út í friðinn og
frelsið á fjöllum,“ sagði Páll.
Auðveldari trússferðir
Árni Jóhannsson, formaður Úti-
vistar, sagði að þegar Útivist hefði
byrjað að bjóða upp á svokallaðar
trússferðir fyrir um áratug hefði
orðið sprenging í þátttöku Íslend-
inga í óbyggðagöngum. Í trúss-
ferðum er farangri ekið á milli
gististaða en einungis gengið með
nesti og aukafatnað. Trússferðirn-
ar hefðu gert „venjulegu“ fólki
kleift að ganga um svæði sem að
öðrum kosti hefðu reynst þeim
fullerfið. „Í svona ferðum þarf fólk
ekki að búa við harðræði og borða
varla annað en þurrmat og þurrk-
aða ávexti, heldur getur það gert
vel við sig, fengið sér grillaða kótil-
ettu og kannski malt í flösku,“
sagði hann. Flestir ættu auk þess
búnað sem dygði í slíkar ferðir,
þ.e. góða gönguskó og regngalla.
Pólitískar afleiðingar?
Ómögulegt er að leggja ná-
kvæmt mat á þann fjölda Íslend-
inga sem gengur um hálendið á
einu ári en ljóst er að þeir skipta
einhverjum þúsundum. Á nokk-
urra ára bili má því gera ráð fyrir
að tugir þúsunda Íslendinga kynn-
ist hálendinu eða óbyggðum af eig-
in raun og á eigin skinni. Þó að í
gær hafi blaðamanni ekki hafi tek-
ist að finna dæmi um rannsóknir á
tengslum útivistar og afstöðu fólks
til náttúruverndar má leiða líkur
að því að sá sem hefur kynnst
óbyggðum af eigin raun vilji síður
að þeim sé sökkt undir vatn eða að
þar séu grafnar borholur og reist
virkjanamannvirki.
Aðspurður sagðist Árni sam-
mála því að útivist gæti haft póli-
tískar afleiðingar. Hann nefndi
sem dæmi að sumir hefðu haft
augastað á að virkja jarðhita á
Torfajökulssvæðinu, sem m.a. nær
yfir Laugaveginn svokallaða.
Svæðið væri ein helsta útivistar-
paradís Íslendinga og í raun hefði
verið heppni að ekki hefði þegar
fengist leyfi til rannsóknaborana
með tilheyrandi vega- og slóða-
gerð. Kynni þeirra ótal þúsunda
sem hefðu gengið þar um yrðu
væntanlega til þess að fólk yrði
ófúsara til að leyfa þar virkjanir,
a.m.k. ekki nema að undangeng-
inni ítarlegri umræðu.
Vilja meira
Til Íslenskra fjallaleiðsögu-
manna leita einkum þeir sem vilja
fara í erfiðari gönguferðir eða klífa
óárennileg fjöll. Elín Sigurðar-
dóttir, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, sagði sífellt meiri ásókn í
þær ferðir fyrirtækisins sem teld-
ust krefjandi og jafnframt væri
stóraukinn áhugi á námskeiðum í
fjallamennsku að vetrarlagi og í
kletta- og ísklifri. Hún sagði að
margir sem byrjuðu í útivist leituð
sér að sífellt meira krefjandi verk-
efnum, fyrst fari þeir t.d. að
skokka, svo fari þeir í óbyggða-
göngur og svo endi þeir í fjalla-
mennsku. Sem dæmi um þessa
keðjuverkun nefnir hún að aldrei
hafi fleiri farið á Hvannadalshnúk
með fyrirtækinu en í sumar og þá
hafi aldrei verið meiri áhugi á að
komast í ferð á Mont Blanc, hæsta
fjall Frakklands.
Fréttaskýring | Sífellt fleiri Íslendingar
leggja stund á útivist og fjallgöngur
Leita í frelsið
til fjalla
Verður aukinn áhugi á útivist til þess að
auka stuðning við náttúruvernd?
Hvergi er meira frelsi en á fjöllum.
Bækur um útivist njóta
mikilla vinsælda
Aukinn áhugi Íslendinga á
útivist er ekki einsdæmi því víð-
ast í hinum vestræna heimi hafa
vinsældir útivistar farið vaxandi.
Samhliða hefur umfjöllum í fjöl-
miðlum aukist og undanfarið
hafa margar bækur um útivist
verið gefnar út hérlendis. Það
segir sína sögu að bókin „Íslensk
fjöll – gönguleiðir á 151 tind“
sem kom út í fyrra er nú í 5. sæti
á metsölulista Eymundssonar.
Aðrar bækur af svipuðum toga
seljast einnig vel.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Reykjavík 3. ágúst 2005
Stjórn Össurar hf.
1. Skýrsla stjórnar um fjárhag félagsins.
2. Kynning á kaupum félagins á Royce Medical Holdings Inc.
3. Tillaga um heimild til stjórnar að auka hlutafé félagsins um allt að
77.100.000 hluti; þar af allt að 73.000.000 hluti sem verði með forgangsrétti
hluthafa og allt að 4.100.000 hluti sem verði án forgangsréttar.
4. Önnur mál sem eru löglega borin fram.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins
að Grjóthálsi 5, Reykjavík, viku fyrir hluthafafund og verða auk þess aðgengilegar á
heimasíðu félagsins, sem er www.ossur.is og www.ossur.com Þar er einnig að finna
ársreikning félagsins fyrir árið 2004 og árshlutareikning fyrir árið 2005.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað.
Stjórn Össurar hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn á
Nordica Hótel, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 19. ágúst 2005 og hefst
kl. 8:30, stundvíslega.
Vi› hjálpum fólki a› njóta sín til fulls
Hluthafafundur Össurar hf.
Á dagskrá fundarins ver›a þessi mál:
HÁTT á annan tug skriða féll úr fjallinu ofan beitarhús-
anna Fjallshúsa skammt innan við bæinn Hjarðarhaga á
Jökuldal í gær í mikilli rigningadembu sem gekk yfir af-
markað svæði þar um slóðir.
Rigningin stóð í um það bil klukkustund og náði yfír
svæðið frá Fjallshúsum inn í Skjöldólfsstaði og hátt á
annan tug skriða féll á um eins og hálfs kílómetra kafla
ofan Fjallshúsa.
Segja má að möl og jarðvegur hafi ruðst fram úr öllum
lækjarfarvegum á þessum kafla, á annan tug að tölu, auk
stóru skriðunnar út og upp af fjallshúsunum eins og sést
á meðfylgjandi mynd. Skriðurnar mynda nú stóra mold-
ar- og malarfláka ofan þjóðvegarins þar sem hann liggur
um Hjarðarhaga neðan skriðusvæðisins. Regnið var
mjög staðbundið því að aðeins 3–4 km frá þeim stað sem
skriðurnar féllu var þurr vegur.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Skriðurnar féllu úr fjallinu ofan beitarhúsanna Fjallshúsa skammt innan við bæinn Hjarðarhaga á Jökuldal.
Mikil skriðuföll á Jökuldal