Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 34

Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar IKEA býður upp á fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi. Starfsfólki gefst tækifæri til að vaxa í starfi, axla ábyrgð og vera mikilvægur hlekkur í kraftmiklu og ört vaxandi fyrirtæki. Viltu sveigjanlegan vinnutíma? Við leitum að starfsfólki í hlutastörf í verslun okkar í vetur, virka daga sem og um helgar. Einnig leitum við að starfsfólki í fullt starf. Viðkomandi þarf að vera samviskusamur, stundvís og þjónustulipur. Við bjóðum mjög sveigjanlegan vinnutíma og fjölbreytt vinnuumhverfi. Umsóknareyðublöð er að finna á www.IKEA.is og þjónustuborði IKEA, tilgreina þarf starfið sem sótt er um. Starfsfólk óskast í sláturhús og kjötvinnslu í starfsstöð okkar á Reykjavegi 36, Mosfellsbæ. Umsóknir sendist á steini@isfugl.is eða í síma 566 6103 (Þorsteinn) frá kl. 13 til 16. Kennari Kennara vantar að Finnbogastaðaskóla næsta vetur. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 451 4026 og 861 7145. Framtíðarstarf AÐFÖNG óska eftir starfsmönnum í lagerstörf. Við bjóðum upp á góða tekjumöguleika, góða vinnuaðstöðu og mötuneyti á staðnum. Leitað er að kraftmiklum og áreiðanlegum einstak- lingum sem eru eldri en 18 ára og vilja framtíð- arstarf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki. Um- sóknareyðublöð má fá í móttöku Aðfanga í Skútuvogi 7, 104 Reykjavík. Einnig er hægt að sækja um á www.adfong.is. Upplýsingar gefur Trausti í síma 693 5602.  Nánari upplýsingar hjá Írisi í símum 483 3214 og 848 6214. Blaðbera vantar á Hverfisgötu, í Skeifuna/Mörkina, Lundirnar í Garðabæ, Álftanes og í afleysingar í Hraunbæ. Atvinna óskast Vantar þig bílstjóra? 22 ára kvk. með leigubíla-, rútu- og vörubíl- stjóraréttindi óskar eftir vinnu á stór-Reykjavík- ursvæðinu. Upplýsingar í síma 849 6346. Raðauglýsingar 569 1100 Styrkir SAMIK Samstarf Íslands og Grænlands um ferðamál SAMIK auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til verkefna sem aukið geta samstarf Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu. Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heild- arkostnaði viðkomandi verkefnis. Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu, merktar SAMIK, fyrir 1. september nk. á eyðu- blöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á heimasíðu ráðuneytisins. Allar upplýs- ingar þurfa að vera á dönsku eða ensku. Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætl- un þess verkefnis sem sótt er um styrk til auk nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verk- efnið og tilgang þess. Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun styrkjanna liggi fyrir í lok september. Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir og seinni helmingur þegar viðkomandi verk- efni er lokið. Eldri umsóknir er nauðsynlegt að endurnýja. Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson, stjórnarmaður SAMIK, í síma 553 9799. SAMIK Samgönguráðuneytinu Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu 150 Reykjavík www.samgonguraduneyti.is Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Lyngás 1b, Rangárþing ytra, fnr. 165114, þingl. eig. Bára Guðnadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf., þriðju- daginn 9. ágúst 2005 kl. 13:30. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 4. ágúst 2005. Uppboð FRÉTTIR HEIMSFERÐIR bjóða í mars og apríl á næsta ári beint leiguflug til Kúbu. Bjarni Hrafn Ingólfsson markaðsstjóri segir að með þessu fyrirkomulagi verði unnt að bjóða betra verð og meiri sveigjanleika í lengd ferða. Fyrsta ferðin verður 7. mars. Aðalferðamannatíminn á Kúbu er að sögn Bjarna mánuðina janúar til apríl og segir hann veðrið þá einna best, hitinn sé þá 27 til 30 gráður. Sem dæmi um verð nefnir Bjarni að flugsæti með sköttum kosti 59.490 krónur en sé gisting tekin með, t.d. í viku, sé verðið alls 69.990 kr. og er þar miðað við gott hótel við strönd- ina. Flogið er með þotu af gerðinni Boeing 737-800, sömu gerð og Heimsferðir hafa notað í flugi sínu til sólarlanda og víðar. Bjarni segir viðtökur við þessum nýja áfangastað Heimsferða ánægjulegar og undirtektir mun betri en ætlað hafi verið. Segir hann að síminn hafi nánast ekki stoppað og fjöldi fólks komið á skrifstofuna. Greinlegt sé að farþegar kunni að meta möguleika á sveigjanleika í ferðatilhögun, að geta dvalið á Kúbu í eina viku, tvær eða þrjár og hann segir einnig mikinn áhuga á fjölbreyttu úrvali skoðunarferða sem í boði eru. Þá skipuleggja Heimsferðir til dæmis tveggja vikna ferð frá 7. til 21. mars þar sem gist verður í Hav- ana í nokkrar nætur og síðan farið í fimm daga ferð um eyna og endað á fjögurra daga dvöl á ströndinni á Varadero. Kostar slík ferð 139.900 kr. Heimsferðir bjóða Kúbuferðir í leiguflugi NÚ um helgina 6.–7. ágúst halda hestamannafélögin Þjálfi og Grani stórmót sitt á Einarsstaðavelli í Reykjadal. Keppt verður í B-flokki, barna-, unglinga- og ungmenna- flokki, A-flokki, tölti og skeiði. Sér- stakur gestur mótsins er Hans Kjerulf. Það er meðal einkenna þessa móts að nokkrir hestar eru í keppni inni á vellinum í einu. Dagskrá hefst kl. 9.30 á laug- ardag og kl. 19 verður grillveisla. Þá verður brekkusöngur og kl. 23 verður opið hús í Breiðumýri þar sem trúbadorinn Sigurður Illuga- son skemmtir. Á sunnudag hefst dagskrá kl. 10.30. Stórmót Þjálfa og Grana á Einarsstöðum Í frétt í Morgunblaðinu í gær af komu gamanleikarans Rob Schneider hingað til lands var rangt með farið hvenær hann væri væntanlegur hing- að. Schneider kemur hingað til lands þriðjudaginn 23. ágúst næstkomandi en ekki þriðjudaginn í næstu viku. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Röng dagsetning LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.