Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 26

Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN F yrir um hálfum mán- uði kom út í Banda- ríkjunum ný skáld- saga eftir John Irving. Hún heitir Until I Find You. Líkt og fyrri bækur Irvings (sem er áreið- anlega enn frægastur fyrir The World According to Garp, sem kom út 1978) fór hún beina leið á metsölulista The New York Tim- es, og á sunnudaginn sat hún þar í fjórða sæti. Þetta ætti að gleðja Irving því að hann hefur lýst því yfir að sér sé mikið í mun að eiga sér lesendahóp, og hefur farið hörðum orðum um það hversu illa skáldsögur seljist í Banda- ríkjunum. Í viðtali við NYT 1989 sagði hann meðal annars: „Ég hef lesið það um sjálfan mig að það sé ekki hægt að taka mig alvarlega vegna þess að ég sé blygð- unarlaus skemmtikraftur, leiti vinsælda. Ég er það svo sann- arlega. Mér finnst að ég geti ekki talið [lesandanum] trú um neitt ef ég fæ hann ekki til að ljúka bókinni.“ Það er svo kannski í samræmi við þessi orð Irvings að hann hefur aldrei fengið nein bókmenntaverðlaun, en aftur á móti fékk hann Óskarsverðlaun fyrir ekki löngu fyrir handritið að myndinni The Cider House Ru- les, sem gerð var eftir sam- nefndri skáldsögu hans. Í öðru viðtali, í veftímaritinu Salon 1997, sagði Irving að sér væri slétt- sama um álit gagnrýnenda – að- alatriðið væri að eiga lesendahóp. „Sem rithöfundur reyni ég allt- af að hafa í huga skoðanir og væntingar lesandans. En flestir gagnrýnendur virðast ekki telja að lesendurnir skipti miklu máli,“ sagði Irving við Sunday Times 1998. Sölutölur segi sér að les- endur séu ánægðir með bæk- urnar. Af viðtölum við Irving má yf- irleitt ráða að tilgangur hans með því að skrifa skáldsögur sé fyrst og fremst að ná til lesenda og að hann geri hvað hann geti til að þóknast þeim og fá þá til að lesa bækurnar sínar. Og þeir sem hafa lesið þær geta borið, að hann er lunkinn við þetta. Sjálfur hef ég ekki heillast jafn mikið af nokkurri skáldsögu og Garp, og setninguna úr The Fourth Hand, sem vitnað er til hér að ofan, hef ég kunnað utan að frá því að ég las hana fyrst. Það er ekki nóg með að hún sé falleg, þeir sem hafa eignast börn vita líka hvað hún er sönn. Þótt af ýmsum orðum Irvings megi ráða að markmið hans með ritstörfunum sé að ná til lesenda er málið áreiðanlega ekki svo ein- falt, og hann hefur hvergi það ég veit beinlínis svarað þeirri spurn- ingu til hvers hann sé að skrifa. En það hefur annar metsöluhöf- undur, George Orwell, gert. Ein af skemmtilegustu greinunum eftir hann, frá 1947, ber einmitt þennan titil: Af hverju ég er að skrifa (Why I Write). Og eins og við er að búast af Orwell eru silkihanskarnir víðsfjarri. Undir lok greinarinnar segir hann: „All- ir rithöfundar eru hégómagjarn- ir, sjálfselskir og latir, og hvað fyrir þeim vakir er, þegar öllu er á botninn hvolft, ráðgáta. […] Maður myndi aldrei [skrifa bók] nema maður sé knúinn áfram af einhverjum skolla sem maður hvorki fær staðist snúning né skilið. Og það er ekki að vita nema þessi skolli sé einfaldlega sama hvötin og fær ungbörn til að góla á athygli.“ Annars segist Orwell í grein- inni telja að markmiðum rithöf- unda megi skipta í fjóra meg- inflokka. Fyrsta markmiðið sem hann nefnir er „hreinn egóismi“, þ.e., „löngun til að sýnast klár, hljóta umtal og geta sér góðan orðstír“. Það sé út í hött að neita því að þetta geti verið markmið rithöfunda, þvert á móti sé þetta ríkt markmið. „Ég myndi segja að alvarlegir rithöfundar séu yf- irleitt hégómagjarnari og sjálf- hverfari en blaðamenn, þótt þeir hafi minni áhuga á peningum.“ Annað markmið sem Orwell nefnir er fegurðarþrá. „Skynjun á því fagra í umhverfinu, eða í orðum og samröðun þeirra. Ánægjan af samhljóm, afdrátt- arleysi góðs texta eða hrynjand- innar í góðri sögu.“ Fegurð- armarkmiðið segir Orwell reyndar hafa lítil áhrif á mjög marga rithöfunda. Þriðja markmiðið á rætur að rekja til sagnfræðilegra hvata, segir Orwell. „Löngun til að sjá hlutina eins og þeir eru, komast að staðreyndum og halda þeim til haga.“ (Um þetta markmið hefur Orwell ekki fleiri orð.) Fjórða markmiðið er svo póli- tískur tilgangur. „Löngunin til að breyta heiminum og hafa áhrif á hugmyndir fólks um það í hvern- ig samfélagi það vilji lifa.“ Þrátt fyrir að líklega hafi aldr- ei verið uppi jafn pólitískur rit- höfundur og Orwell segir hann sjálfur að að upplagi hafi hann verið þannig gerður að þrjú fyrstu markmiðin hafi verið ríkjandi hjá sér. Aftur á móti hafi hann lifað á þannig tímum að pólitíkin hafi orðið ríkjandi. Raunar telur hann að þótt upplag ráði miklu um hvaða markmið séu ríkjandi hjá rithöfundum séu það þó á endanum tímarnir sem þeir lifi á sem ráði úrslitum. En hvað sem öðru líði hafi þó alltaf vakað fyrst fyrir sér að ná eyrum fólks: „Þegar ég sest nið- ur til að skrifa bók segi ég ekki við sjálfan mig: „Ég ætla að skapa listaverk.“ Ég skrifa vegna þess að það þarf að afhjúpa til- tekna lygi, mig langar að vekja athygli á tiltekinni staðreynd, og til að byrja með er mér umhugað um að ná eyrum fólks.“ Engu að síður segir Orwell upprunann sterkan í sér, og óhugsandi væri að hann gæti skrifað bók eða stutta grein ef það svalaði ekki um leið fegurðarþránni í sér. Niðurstaða Orwells er þó þessi: „Og þegar ég lít til baka yfir verk mín sé ég, að það var iðulega þar sem mig skorti póli- tískt markmið að ég skrifaði líf- lausar bækur og lét freistast til flúraðra málsgreina, merking- arlausra setninga, nota lýsing- arorð til skrauts og almenns húmbúkks.“ Skálda- tímar „Það er fátt sem virðist jafn ósnortið af bláköldum veruleikanum og sofandi barn.“ VIÐHORF Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is John Irving: The Fourth Hand. DAPURLEGAR fréttir hafa bor- ist þess efnis, að sum íslensk ung- menni, sem áhuga hafi á námi í fram- haldsskólum, fái ekki að læra. Í fréttum Morgunblaðsins 30. júní sl. kom fram, að stjórn- völd leggi áherslu á „að tryggja öllum nýnem- um skólavist“ og það hafi tekist að þessu sinni. En hvað um þá nemendur, sem hafa ekki staðist próf, eða vilja e.t.v. skipta um skóla, og hvað um þá, sem hafa hætt námi um skeið, en vilja nú hefja nám að nýju? Um mál- efni þeirra verður fjallað hér. Ýmsir hafa bent á brottfall nemenda í framhaldsskólum og að nauðsynlegt sé að bregðast við þeim vanda. Undir það skal tekið, en um leið bent á, að til skamms tíma hafa þeir getað hafið nám að nýju, sem hætt hafa námi um skeið, m.a. af fjárhagsástæðum, eftir því sem rann- sóknir sýna. Ég þekki mörg dæmi þess, að ungmenni, sem hafa skipt um skóla, hafa náð betri tökum á eig- in námi og lífi og lokið farsællega námi í hinum nýja skóla. – Það er erf- itt að vera ungur námsmaður. Kröf- urnar verða meiri en áður, og stund- um getur verið erfitt að fullnægja þeim. Unglingurinn er að þróast í fulltíða manneskju með öllu sem því fylgir. Hormónastarfsemin er í mikl- um blóma með tilheyrandi ólgu- skeiði, og oft eru einkamálin erfið. Og hver eru svo viðbrögðin, er ungt fólk vill skipta um skóla eða hefja nám að nýju? Það fer á biðlista og á jafnvel von á synjun um skólavist! Þetta er nú því miður kaldur raun- veruleikinn, mitt í öllu góðærinu! Yfirvöld menntamála hafa sam- kvæmt þessum fréttum „enga yf- irsýn yfir það hversu stór sá hópur umsækjenda [um skólavist] er sem ekki telst til nýnema“. Hætta er á, að hluti þessa hóps fái ekki skólavist. Bent hefur verið á, að sá nem- endafjöldi, sem gert sé ráð fyrir í fjárlögum, „sé ekki í samræmi við raunverulegan fjölda nemenda“. – Þetta eru dapurleg tíðindi, og hér skortir töluvert á æskilega „heildar- yfirsýn“ í þessum efnum. Þorsteinn Þor- steinsson, formaður Skólameistarafélags Ís- lands, segir m.a. í við- tali, er tengist fyrr- nefndri frétt, að sig gruni, að stór sé hópur umsækjenda, sem ekki séu nýnemar, og hætta sé á, að sumir þeirra fái ekki skólavist. Þetta muni ekki skýrast fyrr en í ágúst „og biðlist- arnir eru því margir og þá sérstaklega á höf- uðborgarsvæðinu“. Eðlilegt sé, að fólk á þessum aldri geti stundað nám, enda sé hér um grunnmenntun að ræða. Spurningin sé, hvað samfélagið vilji gera í þess- um efnum. Og Þorsteinn segir einn- ig: „Við eigum ekki að setja þreng- ingar á ungt fólk sem er að fara í nám. Við eigum að opna dyrnar meira. Það er tilhneiging til þess á Vesturlöndum að fagna ungu fólki sem vill fara í nám en við erum svolít- ið gamaldags í þessu.“ – Þetta eru at- hyglisverð orð. Við eigum rétt eins og aðrir Vesturlandabúar að fagna því, að ungt fólk hafi áhuga á stunda nám. Það er til mikilla hagsbóta fyrir það sjálft og einnig samfélagið í heild. Bolli Thoroddsen, formaður Heim- dallar, fjallaði um þessi mál í fróð- legri grein í Morgunblaðinu 24. júlí sl.: „Allir eigi kost á skólavist í fram- halds- og háskólum.“ Hann bendir m.a. á, að menntun sé lykill að jöfn- um tækifærum. Tengsl séu og milli menntunar og heilsufars og einnig þátttöku í margs konar félagsstarfi og -tengslum. En þetta sé fé- lagsauður samfélaga og sé sett á bekk með efnislegum auði og mann- auði vegna margvíslegra jákvæðra áhrifa á traust í samfélögum og al- menna hagsæld. Og Bolli bætir við: „Öll þessi atriði varða því bæði ein- staklinginn sjálfan, en ekki síður það samfélag sem hann býr í, auk vel- þekktra áhrifa menntunarstigs í samfélögum á efnahags- og at- vinnuþróun þeirra.“ – Þetta eru orð í tíma töluð, og tekið skal hér undir óskir Bolla í þessum efnum. Og hvernig mun æskufólkinu líða, er það veit, að það fær ekki skólavist? Þetta hlýtur að vera raunaleg tilfinn- ing. Í íslenskri bókmenntasögu er glöggt dæmi um þetta. – Í æsku þráði Stephan G. Stephansson skáld (1853–1927) mjög heitt að fá að sækja skóla. Vegna fátæktar for- eldra hans og samfélagsins gat þetta ekki ræst. Eitt haustið sá hann skóla- pilta ríða upp Vatnsskarð á leið suður til að stunda nám í Lærða skólanum. Um þessa lífsreynslu sagði Stephan G. sjálfur: „Mig greip raun, ekki öf- und. Fór að kjökra. Þaut út í þúfur, lagðist niður í laut. Mamma hafði saknað mín. Kom út og kallaði, ég svaraði ekki. Vildi ekki láta hana sjá mig svo á mig kominn, en hún gekk fram á mig. Spurði mig, hvað að gengi, ég vildi verjast frétta, en varð um síðir að segja sem var. Eftir þessu sá ég seinna. Mörgum árum á eftir heyrði ég mömmu segja frá þessu, en ég hélt hún hefði löngu gleymt því. Hún bætti því við, að í það sinn hefði sér fallið þyngst fá- tæktin.“ Þetta er átakanleg saga um fátækt í menntamálum á fyrri tíð. Hún á að vera okkur áminning um, að slíkt megi ekki gerast í voru samfélagi. Við erum vissulega rík þjóð í efna- legu tilliti, og margt hefur áunnist á þessu sviði. En ef áhugasömum ung- mennum verður nú síðsumars synjað um skólavist verður það íslensku samfélagi til harla lítils sóma. Mitt í öllu ríkidæminu yrði það skýrt dæmi um fátækt í menntamálum. Fá sum ungmenni ekki að læra? Ólafur Oddsson fjallar um menntamál ’En ef áhugasömumungmennum verður nú síðsumars synjað um skólavist verður það ís- lensku samfélagi til harla lítils sóma. ‘ Ólafur Oddsson Höfundur er kennari. HÉR á landi er brjóstagjöf talin hafa farið vel af stað og hátt hlut- fall mæðra er með barn á brjósti. Mikilvægt er að styðja og fræða mæðurnar alveg frá upphafi með- göngunnar. Áberandi er að mæður kvarti undan ömmum, vinkonum og öðrum aðstandendum sem skipta sér af brjóstagjöfinni. Al- gengt er að þessir að- ilar reyni að koma sínum skoðunum á framfæri án þess að móðir sé sérstaklega að leita eftir upplýs- ingum. Upplýsingar sem geta verið rangar og ekki í takt við tím- ann. Getur það stuðlað að óöryggi hjá mæðrum. Brjóstagjafaráð- gjafar eru sérfræðingar á sínu sviði og fylgjast stöðugt með fram- förum og niðurstöðum nýrra rann- sókna. Ráðgjafarnir eru staðsettir víða um land og ætti að nýta þá eftir bestu getu, bæði almenningur og læknar. Á fyrstu ævidögum barns þarfn- ast það tengslamyndunar móður og að fara oft á brjóst. Margir halda að það leiði til óþekktar og ofdekrunar. Vitaskuld er þessi full- yrðing röng þar sem ekki er hægt að ofdekra nýfætt barn. Þvert á móti er þessi tengslamyndun bráð- nauðsynleg bæði móður og barni. Barnalæknirinn Nils Bergmann hefur innleitt kengúruaðferð (húð við húð) fyrir fullburða barn og fyrirbura víða um heim. Skilgreinir hann að þetta sé líffræðileg og til- tæk aðferð er veitir umhyggju til allra ný- fæddra barna og er einnig gagnleg fyr- irburum í þrem þátt- um: 1. Hún er húð við húð nærvera 2. Hún er eingöngu brjóstagjöf 3. Hún er stuðn- ingur við móður og föður nýfædda barns- ins. Ráðleggur hann að aldrei eigi að aðskilja móður og barn sé þess kostur. Kengúruaðferð er frábær tengsla- myndun fyrir móður og barn í upphafi og á fyrstu ævidögum. Við fæðingu barns þarfnast það hlýju, fæðu og verndar. Sé barn sett húð við húð móður strax eftir fæðingu heldur barn betur á sér hita, hefur stöðugri hjartslátt, er værara og nærist betur. Það nær að sjúga brjóst er það sýnir áhuga. Merki- legt er að ef barn kólnar þá hækk- ar hitastig móður til að hlýja barni sínu og einnig á hinn veginn ef barni er heitt. Aðferðin hefur sýnt og sannað sig t.d. í Suður-Afríku og nú síðast í Uppsölum hefur kengúruaðferð verið beitt á fyrirbura með frábær- um árangri. Þar eru börn sett húð við húð hjá mæðrum eða feðrum nánast allan sólarhringinn. Engir hitakassar eru notaðir og börn út- skrifast fyrr þar sem þau nærast betur, þyngjast betur og eru stöð- ugri í lífsmörkum. Rannsóknir hafa sýnt að barn sem haft er húð við húð dafnar mun betur en börn sem voru í hitakassa. Þetta er and- stæðan við það sem haldið var. Á ljosmodir.is má finna grein um kengúruaðferðina. Einnig er grein í tímaritinu Uppeldi, 3. tbl. 17. árg. 2004. Brjóstagjafaráðgjafar eru starf- andi víða um landið og ættu því verðandi og nýorðnar mæður að geta fengið upplýsingar um brjóstagjöf og leiðbeiningar ef upp koma vandamál tengd henni. Þeir geta svarað flestöllum spurningum sem kunna að koma upp, frætt um bestu aðferðirnar og aðstoðað ef vandamál eru. Á ljos- modir.is er spurningum svarað af brjóstagjafaráðgjafa og þar er að finna töluvert af fræðsluefni um brjóstagjöf. Rétt fræðsla er ómet- anleg bæði fyrir móður og barn. Brjóstagjöf og kengúruaðferð Björk Tryggvadóttir skrifar í tilefni brjóstagjafaviku 2005 ’Kengúruaðferð er frá-bær tengslamyndun fyrir móður og barn í upphafi og á fyrstu ævi- dögum.‘ Björk Tryggvadóttir Höfundur er ljósmóðir og formaður Félags brjóstagjafaráðgjafa á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.