Morgunblaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AUSTURLAND LANDIÐ Stöðvarfjörður | Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hefur keypt 500 tonna kvóta af Samherja, en Samherji hætt- ir allri starfsemi á Stöðvarfirði 1. október nk. Samherji hefur ennfrem- ur boðist til að taka þátt í akstri fyrir fyrrverandi starfsmenn félagsins á Stöðvarfirði sem vilja vinna á Fá- skrúðsfirði. Þá hefur Samherji boðist til að leggja fram allt að 20 milljónum króna til uppbyggingar smærri fyr- irtækja á Stöðvarfirði. Fiskvinnslu hætt hjá Samherja 1. október Samherji tilkynnti í vor að fyrir- tækið ætlaði að gera breytingar á landvinnslu Samherja á Stöðvarfirði sem jafnvel gætu falið í sér brotthvarf fyrirtækisins úr byggðarlaginu. Nið- urstaðan varð sú að fyrirtækið hættir allri starfsemi á Stöðvarfirði 1. októ- ber. Engin vinnsla hefur verið í fisk- vinnsluhúsinu frá því í lok júní og seg- ir Hrafnhildur Ír Víglundsdóttir, upplýsinga- og kynningarstjóri hjá Austurbyggð, að óljóst sé hvort ein- hver starfsemi hefjist aftur að loknu sumarleyfi. Það ráðist m.a. af afla- brögðum. Um 40 manns hafa starfað hjá Samherja á Stöðvarfirði, meirihluti konur. Hrafnhildur sagði að sumir væru búnir að fá vinnu hjá Loðnu- vinnslunni á Fáskrúðsfirði og ein- hverjir hefðu fengið vinnu á Reyðar- firði. Sveitarstjórn Austurbyggðar fól Þróunarfélagi Austurlands að fara yf- ir atvinnumál Stöðfirðinga og gera til- lögur að nauðsynlegum aðgerðum. Félaginu var einnig falið að kanna hvort aðkoma Byggðastofnunar og annarra opinberra stofnana að málinu kæmi til greina. Auk þessa skipaði sveitarstjórn samráðshóp til ráðgjaf- ar þeim sem að málinu koma og ósk- aði sérstaklega eftir því við Samherja að þeir myndu leggja til vinnu og fjár- magn til verkefnisins. Ekkert fast í hendi Hrafnhildur sagði að unnið væri að því að fjölga atvinnutækifærum á Stöðvarfirði. Öll verkefni og hug- myndir færu til skoðunar hjá Rekstr- arráðgjöf Norðurlands sem mæti hvort um raunhæfar hugmyndir væri að ræða. Hún sagði að meðal þess sem væri verið að skoða væri þjón- usta við álverið sem hægt væri að vinna frá Stöðvarfirði og ýmiskonar smáiðnaður og handverk. „Við erum ekki með neitt fast í hendi, enn sem komið er,“ sagði Hrafnhildur. Hrafnhildur sagði að til skoðunar væru hugmyndir um nýtingu á fisk- vinnsluhúsinu á Stöðvarfirði, en ef þar ætti að vinna fisk yrði að vera kvóti til staðar. Hins vegar hefði Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði keypt 500 tonna kvóta, í þorskígildum talið, af Samherja. Hann færi hins vegar nær örugglega til vinnslu á Fáskrúðs- firði en ekki Stöðvarfirði. Þá hefði Samherji lofað að leggja fram allt að 20 milljónir til að styrkja atvinnulíf á Stöðvarfirði. Þar væri verið að tala um að hlutafé eða húsnæði. Þátttaka Samherja væri bundin því skilyrði að um lífvænlegan rekstur væri að ræða, en ekki er skilyrði að um fiskvinnslu sé að ræða. Upplýsingar um atvinnurekstur á Stöðvarfirði er að finna á heimasíðu Austurbyggðar. Fyrirtæki eru hvött til að kynna sér það sem Stöðvarfjörð- ur hefur upp á að bjóða. „Kannanir hafa sýnt að á Stöðvarfirði er traust og gott vinnuafl sem mikill ávinning- ur er fyrir fyrirtæki að hafa aðgang að. Þar er einnig talsvert af atvinnu- húsnæði til sölu eða leigu á hagstæð- um kjörum,“ segir á heimasíðunni. Loðnuvinnslan hef- ur keypt 500 tonna kvóta af Samherja Áfram óvissa í atvinnumálum Stöð- firðinga, en frystihúsinu lokað 1. okt. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is TENGLAR .............................................. www.austurbyggd.is STERKUSTU menn landsins keppa um titilinn Austfjarðatröllið þessa dagana víðs vegar um Austurland, en keppninni lýkur á morgun. Magnús Ver Magnússon, sem fjórum sinnum hefur sigrað keppnina um sterkasta mann heims, sér að mestu um skipu- lagningu keppninnar í ár og ætlar hann að stækka hana og gera að meiri viðburði en verið hefur. Magn- ús hefur verið annar mótshaldara Vestfjarðavíkingsins og aðspurður segir hann fyrirmyndina fengna það- an. Sjö keppendur eru skráðir til leiks og segir Magnús að flestir sterkustu kappar landsins verði með. Hann nefnir þó að tveir af þeim bestu, Magnús H. Magnússon og Georg Ög- mundsson, verði í Noregi um helgina í keppninni um sterkasta mann Norð- urlanda. „Þessi mannskapur hefur ekki verið í þessu móti áður,“ segir Magnús. „Þetta hefur verið annarrar deildar mót hingað til en nú erum við búnir að færa þetta upp um flokk. Þetta verður eitt af aðalmótunum.“ Magnús segir að í hópnum sé mjög efnilegur 19 ára kappi, Stefán Sölvi Pétursson, en Magnús er líka sjálfur með. Aðspurður segir hann að auðvit- að sé alltaf stefnt að sigri. Magnús hefur verið lengst í greininni af þátt- takendum og kveðst stundum verða þreyttur á þessu. „En maður hefur ennþá gaman af þessu, það skiptir öllu máli,“ segir hann. „Ég hef samt ekki náð að undirbúa mig sem skyldi fyrir þetta. Eftir Vestfjarðavíkinginn hef ég aðallega verið erlendis.“ Súluglíma meðal keppnisgreina Magnús segir að góð stemmning hafi verið fyrir mótið og að sveit- arfélögin fyrir austan hafi verið mjög jákvæð. Keppnin hófst á Vopnafirði í gær en lýkur á Breiðdalsvík á morg- un. Aðrir keppnisstaðir eru Egils- staðir, Seyðisfjörður, Fárskrúðs- fjörður og Stöðvarfjörður. Fyrirtæki hafa í gegnum tíðina styrkt keppnir af þessu tagi og í ár er auglýsingum hagað þannig að auglýs- endur kaupa vissar keppnisgreinar. Súludansstaðurinn Goldfinger styrk- ir að þessu sinni eina grein. Hún nefnist súluglíma og felst í því að keppendur hafa súlu á milli sín og reyna að ýta hver öðrum út úr hring. Aðrar greinar eru til að mynda trukkadráttur, silfurdollararétt- stöðulyfta og Herkúleshald, sem keppt verður í á nýja snjóflóðavarn- argarðinum á Seyðisfirði. Fyrirmynd þeirrar greinar er sagan af Herkú- lesi, þar sem hann stóð milli tveggja hesta og hélt aftur af þeim. Verðlaunin eru verðlaunagripir frá Álfasteini auk peningaverðlauna. Mesti heiðurinn hlýtur þó að felast í titlinum sjálfum og búast má við að íslensku tröllin gefi Herkúlesi eða öðrum kraftajötnum ekkert eftir. Keppninni um Austfjarðatröllið lýkur á morgun Viðameiri og sterkari keppni en áður Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Árið 2002 var meðal annars keppt í víkingaglímu. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Keppendur takast á við ýmsar greinar, sem ekki eru á færi allra. Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Sigldu um á fyndnasta bátnum Flúðir | Báturinn „Síðasta sauð- kindin úr hreppnum“ vann sæmd- arheitið Fyndnasti báturinn á Ið- andi dögum sem haldnir voru um síðustu helgi. Það voru Einar, Daði og Hjörleifur sem sigldu á bátnum og eins og sjá má skemmtu þeir sér vel á sigling- unni. Þetta var í 17. skiptið sem furðubátakeppnin fór fram. Keppnin var hluti af dagskrár- atriðum á Iðandi dögum á Flúð- um, en talið er að á milli þrjú til fjögur þúsund manns hafi sótt staðinn heim þegar flest var. Að sögn Árna Þórs Hilmarssonar framkvæmdastjóra samkomunnar tókst vel til og naut fólk góðviðris þó stöku sinnum rigndi lítillega í logni. Grundarfjörður | Það var Hildur Sæmundsdóttir ljósmóðir við Heilsugæslustöð- ina sem brá sér í gær upp í stór- eflis vélskóflu til þess að taka fyrstu skóflu- stungan að 170 fermetra stækk- un leikskólans í Grundarfirði. Auk þess að koma við sögu allra nýfæddra barna í Grund- arfirði var Hildur á sínum tíma hvatamaður að því að leikskóli reis í Grundarfirði en það var árið 1979 sem leikskól- inn Sólvellir tók til starfa. Einu sinni áður hefur verið byggt við leikskólann, það var 1992 sem sú viðbygging var tekin í notkun. Að loknum þeim framkvæmdum sem nú eru að hefjast verður leikskól- inn 440 fermetrar að stærð. Að sögn Sigríðar Pálsdóttur leik- skólastjóra mun þessar fram- kvæmdir koma til með valda nokk- urri röskun á starfseminni næsta vetur, en vonaðist hún til þess að því yrði mætt með skilningi þar sem miklar úrbætur væru í vændum. Að sögn Sigríðar voru 54 börn í leik- skólanum sl. vetur. Það er Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar hf. í Grundarfirði sem annast framkvæmdir við stækkun leikskólans og hljóðaði tilboð í verk- ið upp á rúmlega 51 milljón króna. Auk viðbyggingar verður gerð breyting á elsta hluta leikskólans á eldhúsi, starfsmannaaðstöðu og rými yngri deildar. Framkvæmdum á að vera lokið í júní 2006. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Hildur Sæmundsdóttir tekur sig fagmannlega út á gröfu. Ljósmóðir á gröfu Strandir | Fulltrúum Stranda- galdurs hefur verið boðið að taka þátt í galdraráðstefnu í Finn- mörku í Noregi síðar í mánuðinum. Ráðstefnan verður haldin í bænum Vardö sem er austasti bær Nor- egs. Heimamenn hafa áhuga á að kynna sér verkefni Strandagald- urs og koma upp svipuðu verkefni þar um slóðir og unnið hefur verið að á Ströndum undanfarin ár. Sigurður Atlason og Ólafur Ingimundarson fara út og kynna verkefnið. Haft er eftir þeim fé- lögum á vefnum www.strandir.is að á sínum tíma hafi íbúar Vardö og nágrennis orðið harkalega fyrir galdraofsóknum, en um 30 manns voru brenndir þar á báli á 17. öld. Íbúar voru þá einungis á milli 200 og 300, svo það hefur verið veruleg blóðtaka fyrir ekki stærra sam- félag. Undanfarin ár hefur Hexeria as sem er ferðaskrifstofa í Vardö og hefur sérhæft sig í ævintýraferð- um um héraðið skipulagt ráðstefnu um galdra hvert haust með full- tingi kunnra fræðimanna á því sviði í Noregi. Galdramönnum boðið á ráðstefnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.