Morgunblaðið - 05.08.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 11
ÚR VERINU
Útsölulok
Föt
9.900 - 14.900 - 19.900
Allir jakkar
9.900
Allar buxur
4.500-5.900
SÍÐASTI ÚTSÖLUDAGUR LANGUR LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST
Ath. allar breytingar innifaldar
Laugavegi 47
S. 551 7575Laugavegi 47
S. 552 9122
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið alla helgina
Stórútsala
Yfirhafnir í úrvali
Opið laugardag kl. 11-16
sunnudag kl. 12-16
Mörg góð tilboð
20-50%
afslátt
ur
ALLT að 4.010 þorskígildislestum
verður á næsta fiskveiðiári ráðstaf-
að til stuðnings byggðarlögum sem
hafa lent í vanda vegna samdráttar í
sjávarútvegi eða vegna skerðingar á
heildaraflaheimildum, skv. nýrri
reglugerð um úthlutun byggða-
kvóta.
32 sveitarfélög
fá byggðakvóta
Þessi kvóti, þ.e. byggðakvótinn,
verður þar með aukinn um 800 lestir
milli fiskveiðiára. Hann var 3.200
þorskígildislestir á því fiskveiðiári
sem nú fer senn að ljúka. Alls 32
sveitarfélög fá byggðakvóta vegna
41 byggðarlags. Sem dæmi fær
Húsavík byggðakvóta upp á 140
tonn, en fékk ekkert í fyrra.
Sjávarútvegsráðuneytið gaf út
reglugerðir í gær, sem lúta að
stjórnun fiskveiða á fiskveiðiárinu
2005/2006, en nýtt fiskveiðiár hefst
1. september nk. Í reglugerðinni um
úthlutun byggðakvóta er m.a. kveðið
á um hvaða viðmið skuli ráða skipt-
ingu byggðakvótans milli einstakra
byggðarlaga. Þær reglur eru í
grundvallaratriðum óbreyttar frá
yfirstandandi fiskveiðiári.
Í annarri reglugerð ráðuneytisins
frá því í gær kemur hins vegar fram
að úthlutun til rækju- og skelbáta
minnkar um 500 lestir vegna hruns í
skel- og innfjarðarrækjuveiðum.
Samtals 3.096 þorskígildislestir
koma því til skiptingar milli rækju-
og skelbáta á næsta fiskveiðiári.
Úthlutun úr
jöfnunarsjóði óbreytt
Ráðuneytið hefur einnig gefið út
reglugerð sem lýtur að úthlutun
3000 lesta aflaheimilda úr svonefnd-
um jöfnunarsjóði og reglugerð um
úthlutun 250 lesta af ýsu, 250 lesta
af steinbít og 75 lesta af ufsa til
krókaaflamarksbáta. Þessar reglu-
gerðir eru óbreyttar frá yfirstand-
andi fiskveiðiári að öðru leyti en því
að bætur til krókaaflamarksbáta
hafa lækkað um helming frá fyrra
ári samkvæmt lögum, sem sam-
þykkt voru á Alþingi í desember
2003. Þá hafa aflaheimildir sem
Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar
lækkað um helming eða úr 750
þorskígildum í 375 þorskígildislest-
ir.
Loks má nefna reglugerð ráðu-
neytisins um línuívilnun á næsta
fiskveiðiári. Samkvæmt henni hefur
verið ákveðið að línuívilnun í ýsu og
steinbít skiptist á tímabil eins og er í
þorski á þessu fiskveiðiári.
%& '
"
%()!
* ! !
+
,
"! -&'
(
%!"!
(
*.!&'
/ "!
0&',
&
* & !
%',
&
.
%'! "!
(
1'& !
2
34
-) &
* "!
*.' "!
%
(" "!
562" "!
% ",
"!
*
"
024.'!
%.
(7(8
./,**)$0
1
2 ,
3
9"!
:
9
!&
"!
*6
&
;
!
<6
&
"!
%2"
/"8(''"=6"">
& ,
!
1&
,
)
44!
,
&'
: "!
0
!'&
!) &
Byggðakvótinn auk-
inn um 800 lestir
Úthlutun til rækju- og skelbáta minnkar um 500 lestir
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra kynnti nýjar reglugerðir
varðandi stjórn fiskveiða á fisk-
veiðiárinu 2005 til 2006 á Hótel
KEA á Akureyri. Ármann Ólafsson
aðstoðarmaður hans til vinstri og
Jónas B. Jónsson skrifstofustjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu til hægri.
BÚIST er við yfir 30 þúsund manns á
hátíðinni Fiskidagurinn mikli sem
verður haldinn í fimmta sinn á Dalvík
á morgun, laugardag. Forskot verður
tekið á sæluna í kvöld en þá verður
Fiskisúpukvöldið mikla, en það er ný-
breytni á hátíðinni að sögn Júlíusar
Júlíussonar, framkvæmdastjóra há-
tíðarinnar. Þá gefst gestum og gang-
andi tækifæri til að banka upp á hjá
heimilisfólki á Dalvík og fá að smakka
fiskisúpu ókeypis. Um 30 heimili hafa
skráð sig til leiks og verða þau lýst
upp með ljósaseríum og kyndlum um
kvöldið. „Þetta eru vinalegheit og
heimsókn upp á gamla mátann,“ seg-
ir Júlíus og hvetur sem flesta til þess
að taka þátt. Spurður um markmið
hátíðarinnar segir Júlíus: „Tilefnið er
að koma saman, skemmta sér og
borða fisk. Það hefur alltaf verið og
við höfum alltaf staðið við það.“ Hann
bætir við að ávallt hafi myndast góð
stemmning á hátíðinni sem sé ekki
hvað síst fjölskylduhátíð. Hún hefur
farið vaxandi undanfarin ár, í fyrra
mættu um 27 þúsund manns og eins
og fram kom er búist við yfir 30 þús-
und manns í ár.
100 þúsund matarskammtar
Hann segir allan undirbúning hafa
gengið gríðarlega vel en Júlíus hafði í
nógu að snúast við að pakka inn hluta
af þeim 100 þúsund matarskömmtum
sem verða tilbúnir fyrir morgundag-
inn þegar haft var samband við hann.
„Það eru um 50–60 manns á öllum
aldri í sjálfboðavinnu, frá því í gær
[fyrradag] við að pakka inn þessum
mat sem fer á grillin,“ segir Júlíus.
Að auki verða yfir 40 dagskrárliðir á
laugardaginn og er þetta allt ókeypis
fyrir gesti og gangandi. Meðal dag-
skrárliða er heimsókn varðskips, frí
sigling um fjörðinn, fiskisýning með á
annað hundrað fisktegunda, tón-
leikar, leikrit, flugeldasýning um
kvöldið og margt fleira fyrir fólk á öll-
um aldri.
Tjaldstæði eru á sex stöðum á Dal-
vík þannig að nóg pláss á að vera fyrir
alla sem vilja vera yfir nótt að sögn
Júlíusar.
Búist við yfir 30.000 manns
á Fiskidaginn mikla á Dalvík
„Skemmta sér
og borða fisk“
Morgunblaðið/Kristján
Grilluðu fiskborgararnir hafa notið mikilla vinsælda á Fiskideginum mikla
á Dalvík, en myndin er tekin á hátíðinni í fyrra.