Morgunblaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.08.2005, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF DAGSBRÚN hf. er nýtt móðurfélag Og Vodafone, 365 prentmiðla, 365 ljósvakamiðla og P/F Kall í Færeyj- um. Skipulag hinnar nýju samstæðu mun taka gildi 1. október nk. en for- stjóri Dagsbrúnar verður Eiríkur S. Jóhannsson, núverandi forstjóri Og Vodafone. Árni Pétur Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Og Vodafone í hans stað en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Haga hf., sem rekur verslanir Baugs á Íslandi. Eiríkur S. Jóhannsson segir tví- þætta ástæðu fyrir því að stofnað er nýtt móðurfélag um rekstur fjar- skipta- og fjölmiðlafyrirtækjanna. „Við erum að laga okkur að úr- skurði sem samkeppnisráð setti okk- ur vegna kaupa okkar á fjölmiðlun- um. Þar var okkur uppálagt að setja upp móðurfélag og greina á milli fjarskipta og fjölmiðla. Reyndar er tæknilegri útfærslu ekki lokið en unnið verður að henni á næstu vikum í samráði við þar til bær yfirvöld,“ segir Eiríkur. Hitt segir hann lúta að vaxtar- möguleikum félaganna. „Þetta skipulag mun auðvelda okkur að stækka og auðvelda dótturfélögun- um að vaxa á eigin verðleikum. Auk þess gerir þetta okkur hægara að fjárfesta í sambærilegum fyrirtækj- um hér heima og erlendis, þó aðal- lega erlendis,“ segir Eiríkur og vísar til fjarskiptafélaga úti í heimi. Hann segir nokkur erlend verkefni í skoð- un en alltof snemmt sé að segja til um hvað verður í þeim efnum en hann bendir á að fyrsta skrefið í þessa átt hafi verið tekið með nýleg- um kaupum á 82% hlut í fjarskipta- félaginu P/F Kall í Færeyjum. „Við munum fjármagna slík kaup í móðurfélaginu, ýmist með lántökum eða útgáfu nýrra hluta.“ Dagsbrúnarnafnið segir Eiríkur hafa orðið fyrir valinu vegna merk- ingar þess. „Það er andinn sem í því felst, að vakna á morgnana og allur dagurinn er framundan, verk að vinna og allt blasir við. Þetta er það sem á að einkenna samstæðuna. Auk þess vorum við á höttunum eftir góðu íslensku nafni sem er alveg laust við að vera group,“ segir Eiríkur. Sækja fram og auka hlutdeild Árni Pétur Jónsson, sem tekur við sem forstjóri Og Vodafone, segir ekki tímabært að ræða hvort breyt- ingar verði á rekstri félagsins. „Þetta er lifandi markaður og mikill hraði. Það eru fyrirséðar breytingar á markaðnum þar sem umhverfið er að breytast en aðalkeppinautur okkar er að koma úr ríkisumhverfinu yfir á frjálsa markaðinn. Ég tel því að margt muni gerast á næstunni án þess að það sé fast í hendi. Markmið okkar er að sækja fram og auka hlut- deild okkar,“ segir Árni Pétur. Viðar Þorkelsson, sem hefur farið með fjármálastjórn Og Vodafone, verður framkvæmdastjóri fjármála- sviðs Dagsbrúnar. Árni Pétur reikn- ar ekki með að ráða fjármálastjóra í hans stað hjá Og Vodafone. „Við munum a.m.k. fyrst um sinn skoða möguleikann á að kaupa bókhalds- þjónustu af móðurfélaginu.“ Árni Pétur hefur starfað um fimm ára skeið hjá Baugi Íslandi og Hög- um, fyrst sem framkvæmdastjóri matvörusviðs og síðar sem fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Haga. Áður var hann framkvæmdastjóri markaðssviðs Olís um níu mánaða skeið en þá hafði hann verið forstjóri Tollvörugeymslu Ziemsen um árabil. Skráð í Kauphöll Íslands Dagsbrún hf. mun verða hið skráða félag í Kauphöll Íslands í stað Og fjarskipta. Það hyggst marka sér stöðu á sviði fjarskipta, fjölmiðlunar og afþreyingar og stefnir að um- breytingum á þessum sviðum hér- lendis og útrás á erlenda markaði. Framkvæmdastjórn Dagsbrúnar verður skipuð þeim Viðari Þorkels- syni, framkvæmdastjóra fjármála- sviðs Dagsbrúnar og staðgengils for- stjóra, Gunnari Smára Egilssyni, forstjóra 365 miðla, Árna Pétri Jóns- syni, forstjóra Og Vodafone, og Ei- ríki S. Jóhannssyni, forstjóra Dags- brúnar og stjórnarformanns dótturfélaga Dagsbrúnar. Dagsbrún verður móðurfélag Og Vodafone og 365 miðla Morgunblaðið/Sverrir Nýr forstjóri Árni Pétur Jónsson segir breytingar fyrirséðar á íslenskum fjarskiptamarkaði í kjölfar einkavæðingar Landssíma Íslands. ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● MIKIL viðskipti voru með hlutabréf í Kauphöll Íslands í gær, námu þau 19,2 milljörðum króna. Mest var skipt með hlutabréf í Íslandsbanka, eða fyrir rösklega 8,4 milljarða, þá í KB banka fyrir 3,6 milljarða, í Lands- banka fyrir 2,3 milljarða og í Össuri fyrir 2 milljarða. Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,1% innan dagsins en mest hækkun varð á verði hlutabréfa í Burðarási, eða 3,5% og 3,1% í KB banka. Mest lækkun varð á Flögu, eða 6,3%. 19 milljarða viðskipti ● ENGLANDSBANKI lækkaði í gær stýrivexti sína í fyrsta sinn í tvö ár og nam lækkunin 0,25%. Stýrivextir bankans eru nú 4,5%. Seðlabankinn í Evrópu heldur hins vegar enn óbreytt- um 2% stýrivöxtum 26. mánuðinn í röð. Stýrivextir í Englandi eru enn þeir hæstu á meðal 7 ríkustu þjóða heims eftir að Englandsbanki hækkaði vext- ina fimm sinnum á tímabilinu frá nóv- ember 2003 til ágúst 2004. Stýrivext- ir á evrusvæðinu eru hins vegar lægri en þeir hafa verið í a.m.k. 59 ár hjá þeim þjóðum sem nota evruna. Þetta segir í hálffimmfréttum KB banka. Englandsbanki lækkar stýrivexti       ! " #$  ! ! ?@9.!4) * 9.!4) *!"6)   5'9.!4) 5A9.!4) *9& ) /& 8&) B"8.&) 3!4C&'*&) 3 '!&) A& 8&/& ) D ) %/5) %!!56 &'8&) E!) " #$%  ?.9.!4) 5"!/& ) 4"&) A ;&"!&&)   D.@5).&) FG) ) H'4) +I5?&@+ . ! % !" ")"()) <(''&'" "&) J&&! "&) & #'  () 5  7(")   A&  /& ) %6!K'%!"!&  <;;) ( *+ , LM7N % " " "            ,           , , ,  , , , , , , , , , * (&'6 (" " , , ,   , , , , , , , , , , , , , , , , , , = $> =$> =$> =,$> = $> , =$> , =$> =,$> =$> , =,$> =$> , =, $> , , , = $> , =$> , , , , , , , , ,  "4 '& <8." . ' 3!4%                       , , ,  ,  , , , , , , , ,                                                            J"4 C2 ?< O?)!'!& 5   "4       , , , ,  , , , , , , , , ?< ,J '&(!6 '&!&K' ?< , J '&()!'"6&&' ?< ,5()!'"!!& ● JORMA Ollila, fráfarandi forstjóri finnska farsímarisans Nokia, verður stjórnarformaður olíufélagsins Royal Dutch Shell frá og með júní á næsta ári þegar hann lætur af störfum sem forstjóri Nokia. Jorma Ollila tekur sæti Add Jacobs í stjórn Shell. Ollila hefur verið forstjóri Nokia í 13 ár og átt stóran þátt í að gera fyr- irtækið að því stórveldi sem það nú er á farsímamarkaði. Hefur hann kosið að hverfa til annarra starfa. Ollila verður stjórnarformaður Shell ● VÖRUINNFLUTNINGUR hefur aldrei verið meiri en á síðustu þremur mán- uðum, ef marka má bráðabirgðatölur um vöruinnflutning í júlí en þær eru byggðar á innheimtu virðisaukaskatts af innfluttum vörum í mánuðinum. Í vefriti fjármálaráðuneytisins segir að meðaltal síðustu þriggja mánaða sé tæplega þriðjungi meira að raun- virði en á sama tíma í fyrra. Innfutn- ingur án skipa og flugvéla nam í júlí- mánuði tæpum 24 milljörðum króna samkvæmt bráðabirgðatölunum en í júní nam innflutningur án skipa og flugvéla ríflega 26 milljörðum króna. Vöruskiptajöfnuður á fyrri helmingi árs var óhagstæður um ríflega 34 milljarða króna. Ráðuneytið reiknar með 79 milljarða króna halla á vöru- skiptajöfnuði á þessu ári. Er innflutn- ingur það sem af er í takt við þá spá. Aldrei meira flutt inn DANSKA fjárfestingarfélagið Willi- am Demant Invest A/S hefur bætt við sig 12 milljónum hluta í stoðtækja- framleiðandanum Össuri. Jafngildir það 3,8% af hlutafé Össurar og er hlutur William Demant nú orðinn 23,9% af heildarhlutafé. Þar með er William Demant orðinn stærsti eigandi Össurar en næst- stærsti eigandinn er sænska fjárfest- ingarfélagið Industrivärden AB með 22,33% hlut. Ekki liggur fyrir hver seldi hlutinn en þar sem enginn til- kynning hefur birst í Kauphöll Ís- lands má gera ráð fyrir því að ekki sé um að ræða sölu á einum stórum hlut. Danir stærstir í Össuri MICHAEL Cawley, aðstoðarfor- stjóri írska lágfargjaldafélagsins Ryanair, telur að norrænu lágfar- gjaldafélögin FlyMe og Norwegian muni ekki lifa veturinn. Þessari skoðun sinni lýsti hann á blaða- mannafundi í Stokkhólmi í gær. „Ef þau geta ekki skilað hagnaði þegar olíuverðið er 25 dollarar á fat hvern- ig ætla þau þá að fara að því þegar olíuverðið er 60 dollarar á tunnu?“ spurði Cawley. Á fundinum, sem haldinn var vegna fyrirætlana Ryanair um að hefja innanlandsflug í Svíþjóð í sam- keppni við FlyMe, var Cawley enn- fremur gagnrýninn á kaup Fons eignarhaldsfélags á dönsku félögun- um Sterling og Maersk Air. „Íslend- ingarnir þurfa að eiga peninga- prentvél til þess að snúa rekstri þessara félaga við,“ sagði hann. Tapa 21 milljón á dag Eins og fram hefur komið hefur Fons einnig keypt hlut í FlyMe og jafnframt á Burðarás hlut í félaginu. En það er ekki eingöngu Cawley sem gagnrýnir kaup Fons á flug- félögunum. Það gerir Fredrik Brac- onier, dálkahöfundur á Svenska Dagbladet, einnig. Fons segir hann vera félag sem ekki óttast taprekst- ur. „Í júní tóku þeir yfir Maersk, „fljúgandi súrdeig“ danska risafyr- irtækisins AP Möller, fyrir óþekkta upphæð. Hafi AP Möller sloppið við að borga með fyrirtæki sem tapar 500 milljónum danskra króna árlega ættu þeir að umbuna sjálfum sér ríkulega,“ skrifar Braconier. Hann heldur áfram og segir að Sterling hafi tapað 120 milljónum danskra króna á síðasta ári en tap FlyMe á síðasta ári var 136 milljónir sænskra króna. „Með því að kaupa FlyMe hefur Fons á árinu eignast þrjú félög sem samanlagt töpuðu 2,5 milljónum [sænskra] króna á dag,“ segir Braconier. 2,5 milljónir sænskra króna jafngilda tæplega 21 milljón króna. Þurfa peningavél MILESTONE ehf., sem er í eigu Karls Wernerssonar og systkina hans, keypti í gær 4,14% hlut í Ís- landsbanka með framvirkum samn- ingi með gjalddaga 3. september næstkomandi. Þetta kemur fram í til- kynningu til Kauphallar Íslands. Selj- andi var Jón Snorrason, fyrrverandi eigandi Húsasmiðjunnar. Jón segir í samtali við Morgunblað- ið að ástæða sölunnar sé sú að hann sé að breyta samsetningu eignasafns síns. Að hans sögn liggur engin ósátt við aðra hluthafa að baki sölunni. „Þetta er eitthvað sem við erum búin að vera að undirbúa og þetta var dag- urinn sem við framkvæmdum það,“ segir Jón sem á sæti í stjórn bankans og að hans sögn mun það ekki breyt- ast að svo stöddu. Milestone ræður nú um 16,3% hlutafjár í Íslandsbanka. „Við höfum haft í undirbúningi að auka okkar stöðu og það leiddist til lykta á þess- um tíma en þar sem við erum frum- innherjar megum við ekki gera við- skipti á meðan innherjaupplýsingar liggja inni í bankanum,“ segir Karl Wernersson. Aðspurður um hvort þetta tengist átökum í bankanum seg- ist hann ekki kannast við slík átök. „Það er mín upplifun að stjórnin standi mjög styrk á bakvið forstjóra og starfsmenn bankans,“ segir Karl. Hann segir að aðrar eignatil- færslur í bankanum séu ekki kveikjan að þessum viðskiptum. Kaupgengi var 14,5 krónur á hlut og heildarverðmæti viðskiptanna því ríflega 7,87 milljarðar króna. Wernersbörn styrkja stöðu sína í Íslandsbanka hf. Karl Wernersson Jón Snorrason %&'()*"+*&(,-./)    ! "  -. / 0  123              4 2 F P %Q+    4 4 $ $ 5<%7 0?R   4 4 $ $ M?M HDR   4 4 $ $ 35R F   5 4 $ $ LM7R 0.SB.&     5 4 $ $

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.