Morgunblaðið - 05.08.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 2005 41
TÓNLIST
Draumar – Björn Guðni Guðjónsson
½ Lög og textar eftir Björn Guðna Guð-
jónsson. Halla Vilhjálmsdóttir syngur lög
nr. 1, 2, 4, 6, 7, 9, 11 og 13. Ari Jónsson
syngur lög nr. 3, 8, 10, 12 og 14 og radd-
ar í lagi nr. 5. Gunnlaugur Bjarnason
syngur lag nr. 5. Allur hljóðfæraleikur, út-
setningar, hljóðritun og tónjöfnun var í
höndum Vilhjálms Guðjónssonar. Björn
Guðni Guðjónsson gefur út.
ÞAÐ er nokkuð til sem má flokka
sem dæmigerða íslenska dægurlaga-
tónlist. Hana má oft heyra í þáttum
á Rás 1 (inn á milli laga með Álfta-
gerðisbræðrum og
Geirmundi Valtýs-
syni) og er ef til vill
best lýst sem
kántrískotinni
sumartónlist en
einhverra hluta
vegna hugsar und-
irritaður alltaf um sykraðar pönnu-
kökur og nýmjólk þegar hún hljóm-
ar.
Þessi tegund tónlistar hreyfir ekki
við mörgum af yngri kynslóðinni en
sú eldri dillar sér við hana við upp-
vaskið, prjónaskapinn eða annars
staðar þar sem skjót ákvarðanataka
er ekki bráðnauðsynleg.
Draumar er geisladiskur sem
Björn Guðni Guðjónsson gaf út seint
á síðasta ári og fellur fullkomlega að
þessari langsóttu skilgreiningu.
Hljómagangurinn er fyrirsjáanlegur
og textarnir dæmigerðir ástartextar
um allt milli sjós og sveitar, með
sögulegum og trúarlegum vísunum.
Tónlistin er að sjálfsögðu angurvær
og þægileg að hlýða á en við aðra og
þriðju hlustun byrjar spurningin um
tilgang þessarar plötu að leita á
mann. Nú er það kannski til of mikils
ætlast að kalla eftir frumlegheitum í
hverju og einu en smábroddur væri
vel þeginn, þó ekki væri nema í einu
textabroti.
Það skal hins vegar koma fram að
þessi plata er öll hin vandaðasta.
Hljóðfæraleikur er allur mjög pass-
legur og lögin vel flutt. Söngurinn er
hinn ágætasti, sérstaklega hjá Höllu
Vilhjálmsdóttur, og hljóðblöndunin
er til fyrirmyndar. Fyrir það fær
platan verðskuldaða eina og hálfa
stjörnu.
Höskuldur Ólafsson
Dæmigert
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í
Reykjavík fer fram dagana 29.
september til 9. október næstkom-
andi. Markmið hátíðarinnar er fjöl-
þætt en megináherslan er lögð á að
bjóða upp á það merkilegasta úr
kvikmyndalistinni hverju sinni og
að auki að skapa virkt umhverfi
þar sem kvikmyndagerðarfólk,
fræðimenn og áhugafólk hvaðan-
æva úr heiminum getur fundið eitt-
hvað við sitt hæfi, að því er segir í
fréttatilkynningu frá aðstandendum
hátíðarinnar.
Hátíðinni hefur borist liðsauki en
dagskrárstjórinn Dimitri Eipides
mun taka þátt í mótun og upp-
byggingu hátíðarinnar á komandi
árum. Dimitri mun annast dag-
skrárstjórn sérstaks keppnisflokks
á hátíðinni sem mun endurspegla
það athyglisverðasta sem er að
gerast í alþjóðlegri kvikmyndagerð,
með áherslu á unga og áhugaverða
leikstjóra. Dimitri hefur m.a. ann-
ast dagskrárstjórn fyrir alþjóðlegu
kvikmyndahátíðirnar í Toronto,
Montreal og Þessalóníku í Grikk-
landi. Hann hlaut fyrir nokkru sér-
staka viðurkenningu FIPRESCI,
alþjóðlegra samtaka kvikmynda-
gagnrýnenda, fyrir að samræma
gæði og ferskleika í dagskrárstjórn
sinni.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík er í samstarfi við Há-
skóla Íslands um ráðstefnur og fyr-
irlestra en í nýstofnaðri kvik-
myndafræðigrein innan
bókmenntafræðiskorar verður
kennt námskeið um kvikmyndahá-
tíðir.
Kvikmyndir | Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík
Erlendur dagskrárstjóri
tekur þátt í mótun hátíðar
TENGLAR
.....................................................
www.filmfest.is
Dimitri Eipides tekur þátt í mótun
hátíðarinnar á komandi árum.
Í DAG fara fram síðustu viðtölin við
hugsanlega þátttakendur í sjón-
varpsþáttunum Íslenski pip-
arsveinninn sem nú eru í bígerð.
Ekki er því öll von úti enn fyrir
þá sem vilja taka þátt því tekið er á
móti umsækjendum í dag milli
klukkan 11 og 18 á Hótel Nordica í
Reykjavík.
Aðstandendur þáttanna hafa
undanfarnar vikur ferðast um land-
ið í leit að þátttakendum en nú er
komið að Reykjavík.
Leitað er að einum karlmanni og
25 konum til að taka þátt í þessari
íslensku framleiðslu eftir fyr-
irmynd bandarísku sjónvarpsþátt-
anna The Bachelor.
Það er sjónvarpsstöðin Skár einn
sem mun sýna þættina sem fram-
leiddir eru af Saga Film fyrir Skjá
einn.
Piparsveinar óskast
Jón Ingi Hákonarson er umsjón-
armaður Íslenska piparsveinsins.
Bono, söngvari hljómsveitarinnarU2, fundaði fyrr í vikunni með
Joscka Fischer, utanríkisráðherra
Þýskalands, en þeir ræddu um að-
stoð við Afríkuríki, að sögn þýska ut-
anríkisráðuneytisins.
Talsmaður ráðuneytisins staðfesti
að Fischer, sem er félagi í þýska
Græningjaflokknum og ákafur aðdá-
andi U2, myndi ræða við Bono í vik-
unni, en þá heldur U2 tónleika í
München. Upp-
haflega stóð til að
fundur Bono og
Fischer færi
fram í byrjun júlí,
en þeim fundi var
frestað vegna
hryðjuverkaárás-
anna í Lund-
únum.
Á fundi leiðtoga G-8 ríkjanna,
helstu iðnríkja heims, í júlí síðast-
liðnum, sögðust leiðtogarnir ætla að
auka árlega þróunaraðstoð við Afr-
íkuríki og önnur fátæk ríki um 50
milljarða dollara fyrir árið 2010.
Fólk folk@mbl.is