Morgunblaðið - 06.08.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 209. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Leita flæk-
ingsfugla
Fuglaskoðun er æsispennandi
áhugamál | Daglegt líf 26
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Kemur innblásturinn af himnum ofan? Skjól í hjarta
elskhugans Börn | Eiður Smári í einkaviðtali ykkar Garðveislan
Íþróttir | Þórey Edda vongóð Snorri Steinn finnur fjölina
Útsölulok
ALLT A‹
90% AFSLÁTTUR
MARKA‹UR
INDRIÐI H. Þorláksson ríkisskattstjóri segir það
færast mjög í vöxt að íslenskir aðilar stofni erlend
eignarhaldsfélög í svokölluðum skattaparadísum
eða þar sem sérstakar reglur gilda um félög og
bankaviðskipti, svo sem á Ermarsundseyjum eða í
Lúxemborg. Þetta sé áhyggjuefni og kalli á ný úr-
ræði yfirvalda.
„Það er ekki ólögmætt að stofna slík félög en
þegar þessir aðilar gefa ekki upp eignir sínar og
tekjur er augljóst að þarna á sér lögbrot stað og
þekkjum við svo mörg dæmi þess að það er ekki
spurning um hvort heldur í hversu miklum mæli
þetta á sér stað,“ segir Indriði. Hann kveðst telja
ríka þörf á að herða reglur um upplýsingaskyldu
vegna tilfærslu fjármuna til útlanda.
Frestun skattgreiðslu á
hagnað felld niður?
Indriði segist einnig hlynntur því að núverandi
reglur, að fresta megi skattgreiðslum á söluhagn-
aði hlutabréfa, verði þrengdar eða jafnvel felldar
niður, í þeim felist misræmi og geti jafnvel mis-
munað skattgreiðendum.
Indriði segir helsta vandann felast í hversu treg
slík skattaskjól eru til að veita upplýsingar um við-
skipti, en þó bindi hann vonir við að starf OECD
verði til að breyta hugarfari í mörgum viðkomandi
ríkja. Hann segir að fjölmargar ábendingar hafi
borist skattyfirvöldum um hugsanleg skattsvik af
þessum toga og séu mörg slík mál til rannsóknar.
Rík þörf sé hins vegar á nýrri lagasetningu eða
endurskoðun eldri laga til að tryggja yfirvöldum
betri aðgang að upplýsingum um tilfærslu fjár-
magns á milli ríkja. Reglur nágrannaríkja séu
mun þróaðri að þessu leyti.
Skattyfirvöld hafa m.a. beint sjónum að því þeg-
ar fyrirtæki fresta skattgreiðslum á söluhagnaði
sínum og fjárfesta hagnaðinn í erlendum félögum,
oft á tíðum dótturfélögum. Indriði kveðst hlynntur
því að settar verði reglur um að þessi frestun á
söluhagnaði komi aðeins til greina ef hann er end-
urfjárfestur innanlands, ekki ytra. Þá feli reglur
um frestun skattskyldu í sér misræmi.
Mikil fjölgun íslenskra
félaga í skattaskjólum
Herða þarf reglur um upplýsingaskyldu vegna fjármagnsflutnings til útlanda
Eftir Sindra Freysson
sindri@mbl.is
Augljóst | 4
OPNUNARHÁTÍÐ Hinsegin
daga var haldin í Loftkast-
alanum í gærkvöldi. Fjöldi
skemmtikrafta, söngvarar,
dragdrottningar og aðrir lista-
menn komu fram. Uta Schreck-
en og félagar frá Bandaríkj-
unum fóru hamförum í orðsins
fyllstu merkingu; tóku á sig
framandi form og gáfu tóninn
fyrir það sem vænta má af
skrúðgöngunni sem leggur af
stað frá Hlemmtorgi í dag kl.
15.
Von er á að gangan í ár verði
glæsilegri og stærri en nokkru
sinni fyrr og hefur ómæld
vinna farið í undirbúninginn.
Að göngunni lokinni hefst
skemmtidagskrá á sviði í Lækj-
argötu og um kvöldið eru
haldnir hátíðardansleikir.
Ekki skemmir fyrir að spáð
hefur verið ágætu veðri í dag.
Morgunblaðið/Sverrir
Hátíðin hafin
Hryðju-
verkalög hert
í Bretlandi
Viðbrögðin með ýmsu móti
en hófsamir múslímar fagna
London. AFP. | Baráttu-
menn fyrir mannréttind-
um og róttækir múslímar
fordæmdu í gær áætlanir
bresku stjórnarinnar um
ný hryðjuverkalög en
margir aðrir lofuðu þau,
þar á meðal talsmenn hóf-
samra múslíma.
Unnið hefur verið að
lagasetningunni eftir
hryðjuverkaárásirnar í
London 7. júlí og þegar
Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, kynnti drögin í gær, sagði hann,
að hugsanlega yrði einhverjum núgildandi mann-
réttindalögum breytt vegna nýju laganna. Munu
þau meðal annars kveða á um bann við starfsemi
öfgafullra, íslamskra samtaka og einnig, að þeir,
sem hafi einhver tengsl við hryðjuverkastarfsemi,
verði reknir úr landi.
Mannréttindasamtökin Liberty í London for-
dæmdu lagadrögin og sagði formaður þeirra,
Shami Chakrabarti, að ekki væri unnt að flytja
fólk til landa þar sem það gæti búist við pynt-
ingum. Breska stjórnin er hins vegar að semja við
stjórnvöld í Alsír, Líbanon og fleiri löndum um að
þau heiti að fara ekki illa með þá þegna þeirra,
sem reknir verða frá Bretlandi. Hefur nú þegar
verið samið um það við Jórdaníustjórn.
Búnir að fá nóg af öfgamönnum
Imran Waheed, talsmaður Hizb ut-Tahrir, sam-
taka, sem verða bönnuð, mótmælti því ákaflega í
gær og sagði, að þau væru ekki ofbeldissinnuð. Í
Rússlandi eru þau þó á lista yfir hryðjuverkasam-
tök en leyfð annars staðar í Evrópu nema í Þýska-
landi.
Talsmenn tvennra hófsamra múslímasamtaka í
Bretlandi fögnuðu hins vegar lagadrögunum og
sögðu, að þeir væru búnir að fá nóg af öfgamönn-
um, sem svertu trúna og gerðu venjulegum músl-
ímum lífið erfitt.
Tony Blair
Blair | 18
Flæktur
í eftirlits-
köplum
Moskvu. AFP. | Unnið var að því í gær
að reyna að bjarga sjö mönnum, sem
voru innilokaðir í litlum kafbáti und-
an Kamtsjatka á Kyrrahafsströnd
Rússlands. Ljóst er, að hann er ekki
aðeins flæktur í trolli, heldur einnig í
köplum, sem eru hluti af neðansjáv-
areftirlitskerfi rússneska hersins.
Fréttastofan RIA-Novostí sagði í
gær, að fjarstýrt tæki hefði verið
sent niður að bátnum þar sem hann
liggur á 190 metra dýpi og hefði því
verið ætlað að klippa á kaplana í eft-
irlitskerfinu. Ekki er vitað hvernig
það gekk en Víktor Fjodorov, yfir-
maður rússneska Kyrrahafsflotans,
sagði, að tekist hefði að koma taug í
bátinn og draga síðan hann og eft-
irlitskerfið um einn kílómetra og upp
á nokkru grynnra vatn.
Ef ekki tekst að klippa kafbátinn
lausan verður líklega reynt að fá öfl-
ugan dráttarbát til að draga upp 60
tonna þungt akkerið, sem heldur eft-
irlitsköplunum niðri, og losa þannig
um bátinn um leið. Talið var í gær, að
súrefnið myndi duga í sólarhring.
Sjö | 19
Teheran. AP, AFP. | Stjórnvöld í Íran
ætla að „skoða“ nýtt tilboð Evrópu-
sambandsins um samstarf í efna-
hags- og tæknimálum gegn því, að
þau hætti við áætlanir um að auðga
úran, sem nota má við smíði kjarna-
vopna.
Búist er við, að Íranir svari tilboð-
inu fljótlega þótt helsti samninga-
maður þeirra hafi raunar hafnað því
strax. Verði það niðurstaðan má bú-
ast við, að málið fari fyrir öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna þar sem refsi-
aðgerða gegn Írönum verði krafist.
Skoða tilboð
ESB-ríkja
♦♦♦