Morgunblaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 20
Neskaupstaður | Stóra systir,
Ragna Lind Ríkarðsdóttir, mál-
uð eins og tígrisdýr, fylgist með
þegar bróðir hennar, Hafþór
Berg, er málaður eins og haus-
kúpa en þau voru meðal fjölda
barna sem gerðu sér dagamun á
Neistaflugi og létu mála á sig
listilegar andlitsfígúrur. Börn
stóðu í röðum til að láta mála sig
sem tígrisdýr, prinsessur, fiðr-
ildi, sjóræningja og jafnvel
hauskúpur. Allur ágóðinn af
andlitsmáluninni rann til Fjöl-
skyldunnar – Líknarfélags.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Málað til mannúðar
Málaður
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Matstofan sem í daglegu tali kallast Dús-
sabar er lítill en vinalegur veitingastaður í
gamla miðbænum. Eigandi hans er María
Socorro Grönfeldt frá Filippseyjum, betur
þekkt sem Cora. Hún eldar þar íslenskan
mat á filippseyskan máta á hverju kvöldi,
sem er mun betri en sjoppufæði ferða-
mannsins, en það eru aðallega þeir sem
koma þangað til að borða. Heimamenn líta
inn um helgar til þess að fá sér ölkollu og
spjalla á rólegum stað þar sem ekki er spil-
uð hávær tónlist. Fyrir fáum árum fjallaði
Dr. Gunni um Dússabar á blogginu sínu og
segir sagan að enn komi þar gestir sem
lásu meðmæli hans með staðnum. Dússa-
bar hefur a.m.k. lifað margan staðinn!
En vilji menn diskó og stuð þá er Búðar-
klettur aðeins steinsnar frá. Þar er opið
allar helgar og hægt að dansa fram á rauða
nótt, stundum við lifandi tónlist. Mótel
Venus í Hafnarskógi er svo þriðji kostur-
inn. Þar er að finna kyrrð og nálægð nátt-
úrunnar en krefst ferðalags yfir Borgar-
fjarðarbrúna, sem ekki er þægilegt að fara
fótgangandi yfir.
Menn eru að velta fyrir sér hvað eigi að
rísa við Digranesgötu á milli Bónusversl-
unarinnar og Sparisjóðs Mýrasýslu en allt
er enn á huldu með það. Öruggar heimildir
eru fyrir því að ákveðnar hugmyndir hafi
verið í mótun og verið var að leita að arki-
tektum. Hins vegar fóru þær hugmyndir í
endurskoðun og líklegra en ekki að þær
séu farnar út af borðinu. Kaupfélag Borg-
firðinga á lóðina en búið er að samþykkja
sölu hennar til Borgarlands ehf. sem er
fasteignafélag í eigu Kaupfélags Borgfirð-
inga, Samvinnulífeyrissjóðsins og Spari-
sjóðs Mýrasýslu. Borgarland á lóðina
gegnt Hyrnutorgi og þar stendur til að
byggja fjölbýlishús, með allt að sex hæð-
um, á lóðinni á móti Hyrnutorgi. Á neðstu
hæðinni mun ef að líkum lætur verða þjón-
usturými, en það hefur ekki verið endan-
lega ákveðið.
Úr
bæjarlífinu
BORGARNES
EFTIR GUÐRÚNU VÖLU ELÍSDÓTTUR
FRÉTTARITARA
býli árið 1930. Mest voru
þar torfbæir og íbúarnir
studdust við búfjárhald,
matjurtaræktun, útgerð
og tilfallandi vinnu á
Akureyri. Til eru góðar
ritaðar lýsingar á lífinu í
þurrabúðarþorpinu, einn-
ig örnefnaskrár, forn-
leifaskrá og gamlar ljós-
myndir frá þessum tíma.
Söguganga um Gler-árþorp á vegumMinjasafnsins á
Akureyri verður á sunnu-
dag, 7. ágúst kl. 14.
Glerárþorp varð hluti
af lögsagnarumdæmi
Akureyrar árið 1955 en
var þar áður í Glæsi-
bæjarhreppi. Á fyrstu
öldum hefur landsvæðið
líklega tilheyrt landnáms-
jörðinni Glerá, en síðar
Lögmannshlíð og Krossa-
nesi. Út úr þeim jörðum
skiptust síðan býlin
Bandagerði og Mýrarlón.
Í Bandgerðislandi risu
fyrstu þurrabúðirnar um
1880 og var þar kominn
vísir að þéttbýlinu norðan
við Glerá sem nú er kallað
Glerárhverfi. Norðan
Glerár voru um 50 smá-
Saga einstakra húsa og
íbúa þeirra er nokkuð
þekkt.
Sögugangan liggur frá
gamla barnaskólanum í
Ósi í Sandgerðisbót að
Glerárstíflu með viðkomu
við helstu minjar og hús á
leiðinni. Áætlað er að
gangan taki um tvo tíma
og er hún auðveld.
Morgunblaðið/Kristján
Sögugangan á Akureyri hefst við Glerárstíflu.
Söguganga
Aðstoðarlandlæknirupplýsti að flestslys á öldruðum,
þá aðallega beinbrot,
yrðu í heimahúsum, nán-
ar tiltekið í svefnher-
bergjum. Ráðlegging
Baldurs Garðarssonar til
aldraðra karla er því:
Fokið er nú flest í skjól,
og framtíð gleði rúin,
ekki fara upp í ból,
ef illa tryggð er frúin.
Halldór Blöndal yrkir í
tilefni af fimmtugsafmæli
Steingríms J. Sigfússon-
ar, formanns VG:
Hvort fána grænum flaggar
eða rauðum
sannað hefur hann á þingi
að heill hann sé í málflutningi.
Davíð Hjálmar Har-
aldsson yrkir um sama:
Lunkinn hélt á lífsins mið,
lét svo stjóra falla.
Hálfa öld þar hafðist við
með hugsjónir og skalla.
Af gangi lífsins
pebl@mbl.is
Eyjafjörður | Opnaður hefur verið nýr
fréttavefur á Netinu, dagur.net. Vefurinn er
fyrst og fremst hugsaður sem upplýsinga-
og fréttamiðill fyrir Eyjafjarðarsvæðið.
Vefurinn er á vegum útgáfufélagsins
Rima ehf. á Dalvík sem einnig gefur út
Bæjarpóstinn og Norðurslóð.
Fjölbreytt efni er á vefnum, fréttir, pistl-
ar og aðsendar greinar. Þar er einnig fjallað
um menningarmál. Athygli vekur að vefur-
inn verður með svokallaða Íslendingaþætti,
en þættir undir þessu nafni birtust á sínum
tíma í dagblaðinu Tímanum.
Í frétt á nýja vefmiðlinum er sagt frá nýj-
ustu spá Veðurklúbbsins á Dalbæ á Dalvík.
Þar kemur fram að sólarleysi og svali á Jak-
obsmessu (25. júlí) gefi fyrirheit um fremur
mildan vetur. „Hvað ágústveðrið varðar, þá
kviknar nýtt tungl í NNA hinn 5. ágúst.
Töldu klúbbfélagar að líkt veður yrði fyrri
hluta ágústmánaðar eins og í júlí. En eftir
miðjan ágústmánuð þurfi menn ekki að
verða hissa á því að sjá grána í fjallstoppa.
Þá telja klúbbfélagar að norðanáttir verði
viðloðandi allan ágústmánuð.“
Dagur
kominn á
Netið
Hrafnagil | „Við höfum eiginlega alltaf ver-
ið með,“ sagði Ingibjörg Helga Guðmunds-
dóttir á Selfossi sem ásamt Kristjáni Jóns-
syni á Sólheimum er með bás á hand-
verkssýningunni að Hrafnagili, en sýning-
unni lýkur á sunnudag.
Hún sýnir glerlistaverk en hann tréverk.
„Það er mjög ánægjulegt að vera hérna,
auðvitað er dálítið dýrt að ferðast hingað
og setja upp básinn en það er alltaf einhver
sala og þetta reddast allt.“ Helga sagði
ánægjulegt að taka þátt, iðulega væri
margt um manninn á sýningunni og þá
kynntust sýnendur innbyrðis og tengsl
sköpuðust. „Við höfum eignast hérna góða
vini og þó þetta sé strembin helgi, mikil
yfirlega, þá er alltaf jafn gaman að þessu
og að sumu leyti lítum við á þetta sem frí.“
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Glerlist Ingibjörg Helga er með bás á
handverkssýningunni líkt og venjulega.
„Alltaf jafn
ánægjulegt“
♦♦♦
Austurland | Aflraunakeppninni
Austfjarðatröllinu 2005 lýkur í dag.
Keppnin hófst á Vopnafirði á
fimmtudag þar sem keppt var í
tveimur greinum. Í gær var keppt á
Egilsstöðum og Seyðisfirði. Heljar-
mennin koma svo til með að klára
alla sína krafta í dag á Fáskrúðsfirði,
Stöðvarfirði og Breiðdalsvík.
Það er hótelhaldarinn Njáll Torfa-
son á Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík
sem er upphafsmaður Austfjarða-
tröllsins sem nú er haldin í níunda
skiptið. Magnús Ver Magnússon
lagði Njáli lið við undirbúning móts-
ins og var á meðal keppenda en varð
fyrir því óláni að meiðast á hné á
fyrsta degi keppninnar og varð því
að draga sig í hlé. Það er án efa erfitt
fyrir Magnús að bíta í það súra epli
enda er hann fæddur og uppalinn á
Seyðisfirði og hefði því varla leiðst
að næla sér í nafnbótina Austfjarða-
tröllið.
Morgunblaðið/Ásgrímur Ingi
Upp með það! Keppendur í Austfjarðatröllinu tóku fast á því í gær.
Magnús Ver úr leik