Morgunblaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 51 Sýnd kl 10.30 B.i. 16 Miðasala opnar kl. 15.00 Sími 551 9000 - BARA LÚXUS Sýnd í Regnboganum kl. 3.30, 6, 8.30 og 11  „…mynd sem hægt er að líkja við Die Hard, spennandi og skemmtileg…” ÓÖH DV  „þrusuvel heppnuð spennumynd”K & F  „…mynd sem hægt er að líkja við Die Hard, spennandi og skemmtileg…” ÓÖH DV Sýnd kl. 4 og 6 Í þrívídd Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 3, 5.30 og 8 Sýnd kl. 8 og 10.40 B.i. 16 Sýnd kl. 3 og 5.30 B.i 10 ÁRA Sýnd kl. 8 og 10.20 b.i.14 -S.V. Mbl.  -KVIKMYNDIR.IS  -Ó.H.T, RÁS 2   -Blaðið Sýnd kl. 6, 8 og 10 Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna! Sýnd kl. 1 og 3 ísl. tal Sýnd kl. 1, 3 og 6 Í þrívídd Gamanleikarinn Will Ferrel skorar feitt og hressilega í myndinni. Ekki missa af fjölskyldugrínmynd sumarsins. -KVIKMYNDIR.IS  -Steinunn /Blaðið  Sýnd í Laugarásbíó kl. 1, 3.30, 5.45, 8 og 10.20 OWEN WILSON REGLA #18: ÓKEYPIS DRYKKIR, HVÍ EKKI? ☎553 2075 REGLA #26: VERTU VISS U M AÐ HÚN SÉ Á LAU SU. VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG! * TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU400 KR. Í BÍÓ!* 400 KR. Í BÍÓ!* KVIKMYNDIR.IS EMILÍANA Torrini verður í hópi dómara á kvikmyndahátíð- inni Gullljóninu í Feneyjum sem haldin verður í sumarlok. Þar verður Emilíana í góðum fé- lagsskap Dante Ferretti sem unnið hefur Óskarsverðlaun fyrir sviðs- myndir sínar, kínverska leikarans Ah Cheng, franska leikstjórans Claire Denis, þýska leikstjórans Edgars Reitz og kvikmyndafram- leiðandans Christine Vachon. Meðal þeirra sem keppa munu um Gullljónið verður kvikmyndin Goodnight and Goodluck í leik- stjórn George Clooney. Einnig mun gamli Monty Python-melurinn Terry Gilliam sýna mynd sína um Grimmsbræður með þeim Heath Ledger og Matt Damon í aðal- hlutverkum. Loks má nefna Rom- ance and Cigarettes frá John Tort- uro með James Gandolfini, Kate Winslet, Susan Sarandon og Chri- stopher Walken í aðalhlutverkum. Einnig verða myndirnar Bubble úr smiðju Stevens Soderbergh og Corpse Bride frá Tim Burton sýnd- ar en þær taka þó ekki þátt í sjálfri keppninni um Gullljónið. Nokkur fækkun hefur orðið á myndunum á hátíðinni frá fyrra ári og er aðalástæðan, að sögn hátíð- arhaldara, kröfur bandarískra framleiðenda um herta örygg- isgæslu í kjölfar hryðjuverkaöldu. Alls verða sýndar 54 myndir í ár, þar af 19 sem keppa um Gullljónið, og fækkar því myndunum á hátíð- inni um 17 frá í fyrra. Einnig vildu skipuleggjendur hátíðarinnar meina að ágætt væri að sýna ekki of margar myndir svo hátíðargestir ættu auðveldara með að innbyrða það sem í boði væri. Töluverður amerískur svipur verður á hátíðinni í ár og alls 11 myndir á ensku á hátíðinni, sem er met. Sömuleiðis verða asískum myndum gerð góð skil. Má þannig nefna nýja mynd frá hinum kóreska Chan-wook Park Chin-júl-han Gúm-ja-sí, myndina Seven Swords frá Tsui Hark sem verður opn- unarmynd hátíðarinnar og Perhaps Love frá Peter Ho-sun Chan sem verður lokamynd hátíðarinnar. Emilíana Torrini dæmir á GullljóninuHLJÓMSVEITIN Írafár fer utan á mánudaginn og er áfangastaðurinn eyjan Sjáland í Danmörku. Tilefnið er upptaka á næstu plötu sveit- arinnar en hún verður tekin upp á tveimur vikum á óðalssetri einu sem er að finna þar á eyjunni. Sigurður Samúelsson, bassaleikari hljóm- sveitarinnar, segir að þessi aðferð hafi reynst vel áður. „Við fórum til Bandaríkjanna fyr- ir tveimur árum og leigðum þá hús á Flórída til að taka upp plötu. Það gafst svona vel að við ákváðum að gera þetta aftur en í Evrópu að þessu sinni og duttum þá niður á þetta óðalssetur. Þetta er gamalt setur sem er leigt út fyrir hvern sem er og getur hýst allt að tólf manns og hefur allt tilheyrandi. Við tökum allar upptökugræjur með okkur og annað sem til þarf en við erum búin að taka upp alla trommu- grunna svo að það mun einfalda ferlið töluvert.“ Sigurður segir að platan verði ell- efu til tólf laga plata og að það sé búið að velja öll lögin utan tvö. „Mér heyrist sem þessi plata verði einskonar blanda af fyrri plöt- unum tveimur. Þetta verður alveg örugglega Írafárs-plata, það er eng- in hætta á öðru.“ Tónlist | Platan tekin upp á óðalssetri Írafár í Danaveldi Morgunblaðið/Árni Torfason Írafár er á leið til Sjálands að taka upp næstu plötu sveitarinnar. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson hefur verið Írafári innan handar frá upphafi og tekið upp báðar plötur sveitarinnar með hjálp Vignis gít- arleikara. Sigurður segir að þar verði engin breyting á. Aðspurður um kostnaðinn viðurkennir hann að vissulega sé þetta dýrt. „Það er líklega dýrara en að gera þetta hér heima en það sem er erf- iðast við upptökur á plötum er tíma- ramminn sem yfirleitt brestur. Mað- ur getur alla jafna ekki einbeitt sér fullkomlega að því sem maður er að gera hér heima þegar fjölskyldan og aðrar skyldur toga í mann. Þegar við erum stödd í útlöndum með það eina markmið að taka upp plötu, sparast mikill tími sem annars færi til spillis og svo verður einbeitingin betri. Þetta er bara spurning um það hvernig þú verðleggur tímann þinn. Svo er þetta bara svo gott fyr- ir bandið í heild sinni og það má al- veg borga fyrir slíkt.“ Platan sem tekin verður upp ytra kemur út um mánaðamótin október, nóvember og segir Sigurður að hljómsveitin muni spila grimmt í framhaldi af því. „Það verður að öllum líkindum farið í túr um landið í kjölfar útgáf- unnar.“ TÍU ár eru liðin síðan breska hljómsveitin Supergrass gaf út plötuna I Should Coco. Sveitinni var þá strax hampað sem efnilegustu hljómsveit Bretlandseyja og óhætt er að segja að Supergrass hafi staðið undir því nafni og gott betur. Hinn 15. ágúst næst- komandi sendir sveitin frá sér sína fimmtu plötu, Road to Rouen, sem markar ákveðna stefnubreytingu hvað tónlist- arsköpun og vinnuaðferðir sveitarinnar varðar. Í Lesbók Morgunblaðsins er að finna viðtal sem Höskuldur Ólafs- son tók við nýjasta meðlim sveitarinnar en jafnframt ald- ursforseta, Rob Coombes, þar sem hann segir frá erfiðu upptökuferli, draumum um frama í eðlisfræði og tón- leikum Sykurmolanna í Lond- on árið 1988, svo eitthvað sé nefnt. Super- grass snýr aftur Road to Rouen kallast nýjasta plata Supergrass sem kemur út 15. ágúst. Tónlist | Rob Coombes ræðir um nýju plötuna í Lesbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.