Morgunblaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands fór í fyrsta sinn yfir 4.500 stig í gær. Hækkaði hún um 0,6% innan dagsins og endaði í 4.516 stigum. Mest hækkun var á verði hlutabréfa í Marel, eða um 8,4%, og Og Voda- fone um 4,56%. Viðskipti með hluta- bréf voru mikil, námu alls 13,7 millj- örðum króna, en þar af voru 8,3 milljarðar með hlutabréf í Burðarási vegna sölu Samherja á sínum hlut. ICEX-15 yfir 4.500 ● SAMSON Global Ltd., sem er eign- arhaldsfélag í eigu Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar, hefur auk- ið hlut sinn í Burðarási um 3,56 pró- sentustig og á félagið nú 22,45% hlutafjár í Burðarási. Félagið flaggaði í gær vegna kaupa á 198 milljónum hluta á kaupverðinu 17,75 kr./hlut. Heildarverðmæti viðskiptanna er ríf- lega 3,5 milljarðar króna. Skömmu áður hafði Samherji flagg- að vegna sölu á 5% hlutafjár í Burðar- ási, ríflega 280 milljónum hluta. Má af því draga þá ályktun að Samson hafi keypta meirihluta þess hlutafjár. Samson eykur við sig í Burðarási ANDRI Teitsson, framkvæmda- stjóri KEA, hefur sagt starfi sínu lausu. Halldór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Hildings, dótturfélags KEA, mun gegna störfum fram- kvæmdastjóra KEA þar til nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa. „Við hjónin eigum von á tvíburum auk þess sem við eigum fyrir fjögur börn 8 ára og yngri,“ segir Andri í yfirlýsingu á heimasíðu KEA. „Í ljósi þessa taldi ég mér ekki annað fært en að biðja um langt fæð- ingarorlof í samræmi við lög og regl- ur. Þetta hefði þó leitt til þess að málefni KEA hefðu verið í biðstöðu um lengri tíma og taldi stjórn það óheppilegt. Ég hef því ákveðið að segja starfi mínu lausu og víkja strax fyrir nýjum manni.“ Andri segir félagið hafa styrkt fjárhagsstöðu sína verulega á und- anförnum árum auk þess sem ný stefna hafi verið mótuð, sem geti orðið leiðarljós KEA inn í framtíð- ina. Hann líti sáttur yfir farinn veg og óski félaginu alls hins besta. Enginn staðgengill Morgunblaðið innti Benedikt Sig- urðarson, stjórnarformann KEA, eftir því hvort Andri hefði beðið stjórnina um fæðingarorlof og ekki fengið. Benedikt sagði svo ekki vera. „Hann mun að sjálfsögðu njóta allra þeirra réttinda. Réttindi hans til fæðingarorlofs og foreldraorlofs verða í engu skert.“ Um hvort ekki hefði komið til greina að Andri kæmi aftur til starfa að loknu fæðingarorlofi segir Bene- dikt: „Þrettán framkvæmdastjóra- lausir mánuðir í fyrirtæki, sem í raun byggist á einum starfsmanni, það býr til flókna stöðu eins og Andri segir sjálfur í sinni yfirlýsingu. Vegna þess að við höfum engan stað- gengil. Þetta var flókið mál og Andri hjó sjálfur á hnútinn.“ Benedikt sagðist ekki getað svar- að því hvort málið hefði horft öðru vísi við ef um konu hefði verið að ræða: „Þar sem um er að ræða stjórnanda sem er einn í fyrirtæki þá held ég að enginn munur hefði verið á. En ef staðgengill væri til staðar hefði þessi hluti málsins snúið allt öðruvísi. Mestu máli skiptir að mál- inu er lokið með samkomulagi aðila.“ Ákveðinn í að taka langt orlof „Það deildi enginn um að ég ætti rétt á fæðingarorlofi en ég á rétt á níu mánuðum og það þótti mönnum óþægilegt fyrir félagið þar sem starfsmenn eru örfáir. Ég féllst al- veg á það,“ sagði Andri Teitsson í samtali við Morgunblaðið. Sagðist hann hafa eignast tvíbura áður og þá hafi hann ekki gefið sér nægan tíma til að sinna fjölskyld- unni. „Því vildi ég bæta um betur núna og var ákveðinn í að taka langt fæðingarorlof fremur en að taka viku og viku, líkt og sumir hafa gert sem eru í stjórnunarstöðum.“ Andri sagði töluverða umræðu hafa farið fram um jafnréttismál innan stjórnar KEA og félagið hafi sett sér stefnu í jafnréttismálum. Hann treysti sér ekki til að segja til um hvort farið hefði á annan veg ef kona hefði verið í hans sporum. „Kannski hefði enginn þorað að malda í móinn ef um konu hefði verið að ræða, ég veit það ekki,“ sagði hann. Andri Teitsson hættur hjá KEA Bað um langt fæðingarorlof sem stjórnin taldi óheppilegt Morgunblaðið/Kristján Fjölgar Andri Teitsson hættir hjá KEA til að fara í fæðingarorlof. Eftir Soffíu Haraldsdóttur soffia@mbl.is JÓN Björnsson, forstjóri Haga, hef- ur verið ráðinn forstjóri stórversl- unarinnar Magasin du Nord í Dan- mörku, sem er sem kunnugt er í eigu Baugs, Straums fjárfesting- arbanka og B2B fjárfesting- arfélags. Finnur Árnason, fram- kvæmdastjóri Hagkaupa, tekur við starfi forstjóra hjá Högum og Gunn- ar Ingi Sigurðsson, rekstrarstjóri verslana Hagkaupa, verður fram- kvæmdastjóri Hagkaupa. Jón Björnsson segir forstjóra- starfið hjá Magasin leggjast vel í sig enda sé um spennandi fyrirtæki að ræða með mikla möguleika. „Magsin hefur átt við erfiðleika að stríða í mörg ár og rekstr- armaður, eins og ég, fær ekki að takast á við skemmtilegri verkefni en þetta.“ Hann segir erfitt að svara því hvort breytingar verði á Magasin með tilkomu hans. „Nýjum mönnum fylgja alltaf breytingar. Ég hef ákveðnar hugmyndir í kollinum en reynslan og samskipti við starfs- fólkið á fyrstu mánuðunum munu leiða í ljós hvort þær hugmyndir eru raunhæfar og góðar,“ segir Jón. Hann mun hætta störfum hjá Hög- um í næstu viku og undirbýr flutn- ing fjölskyldu sinnar til Danmerkur þar sem hann tekur við forstjóra- stóli Magasin 1. október. Peter Husum til ráðgjafar Jón fæddist árið 1968 og er með BSc-gráðu í stjórnun frá Rider- háskóla í New Jersey. Hann hefur unnið við smásölu og rekstur versl- ana síðastliðin 14 ár. Þá hefur hann setið í stjórn Magasin frá því í árs- byrjun, stjórn Mosaic Fashions frá 2003 til 2005 auk þess sem hann sit- ur í stjórn bresku tískuvöruversl- anakeðjunnar MK One. Jón stóð jafnframt að opn- un Debenhams- verslana í Stokk- hólmi og Kaup- mannahöfn. Peter Husum er fráfarandi for- stjóri Magasin du Nord. Hann seg- ist hverfa frá fullkomlega sáttur. „Þetta hefur verið góður tími fyrir mig sem for- stjóra Magasin. En nú sé ég að Magasin stefnir í rétta átt og finnst tími til kominn að hverfa frá,“ er haft eftir honum í fréttatilkynn- ingu. Husum verður forstjóra og stjórn Magasin áfram innan handar sem ráðgjafi. Finnur tekur við Högum Finnur Árnason tekur við forstjóra- stóli Haga hf. um miðja næstu viku en Hagar reka verslanir og inn- kaupafyrirtæki Baugs á Íslandi, þ.á m. Hagkaup, Bónus, Skeljung og Debenhams, auk þess að hafa sérleyfi fyrir Debenhams og Top- Shop í Skandinavíu. Finnur hefur starfað hjá Högum frá stofnun fyrirtækisins árið 1998, undanfarin ár sem framkvæmda- stjóri Hagkaupa. Hann er viðskipta- fræðingur frá Háskóla Íslands og lauk prófi í rekstrarhagfræði frá University of Hartford árið 1987. Einnig mun Jóhanna Waagfjörð, sem gegnt hefur starfi fram- kvæmdastjóra fjármálasviðs félags- ins, verða framkvæmdastjóri Haga og Jóhannes Jónsson taka við stjórnarformennsku Haga af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Loks hefur Árni Pétur Jónsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Haga, verið ráðinn forstjóri Og Vodafone, eins og fram hefur komið. Gunnar Ingi Sigurðsson tekur við starfi framkvæmdastjóra Hag- kaupa af Finni. Hann hefur verið rekstrarstjóri verslana Hagkaupa frá árinu 1998. Gunnar Ingi er við- skiptafræðingur frá Viðskiptahá- skólanum á Bifröst og lauk áður prófi í iðnrekstrarfræði frá Tækni- skóla Íslands. Jón Björnsson forstjóri Magasin Jón Björnsson Finnur Árnason Gunnar Ingi Sigurðsson ● PÁLMI Haraldsson, annar eigenda Fons eignarhaldsfélags, gefur lítið fyrir gagnrýni þeirra Michaels Cawley og Fredriks Braconier á fjárfestingar félags síns en greint var frá gagnrýni þessari í Morgunblaðinu í gær. „Við höfum fulla trú á okkar verk- efnum,“ sagði Pálmi í samtali við Morgunblaðið. Gefur lítið fyrir gagnrýni                            !"#   !$   % &'  ( "&' )&  *)&   +, &# &  +#&  $&' )& ( "&'  -."  /(!  /0 !1 .  &#)&  2          ! 0 ( "&'  %0 1&  $34& 15 &&  -  !  &  67.1  8# 1    9:! "& 9.".0 /"0   ;    <;## &#0   &  = && "  &        ! ."' >;11  $&' 30 ( "&'  /" ?"# /"&'  <4 4   !" #$  @A>B /3    .                 C C C  C    C C C C C C .; &#  ;   .  C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C C D  EF D  EF C D CEF C C D C EF C D EF D C EF D CEF D EF D EF D  EF C C C C C D C EF C D EF D EF C C C C C C C C %. "'    '# & < ") 3 " '# G + /"                       C C C  C      C C C C C C                                                =    3 ,H   <% I #&"  !1"'              C C C C    C C C C C C <%C =.#& ;  0 1 0#&& ?"#  <%C =.#& ; #   & &# <%C !; # 0&  ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands hefur slegið hvert metið á fæt- ur öðru á síðustu vikum og er hún nú komin upp fyrir 4.500 stig í fyrsta skipti í sögunni. Það sem af er ári hefur vísitalan hækkað um 34,4% en allt árið í fyrra hækkaði hún um 59,8%. Var þar um methækkun að ræða en haldi þróun- in áfram sem horfir er vel mögulegt að það met verði slegið. Frá lokum júnímánaðar hefur vísitalan hækkað um 9,2%. Landsbanki er það fyrirtæki sem hefur hækkað hlutfallslega mest frá áramótum og hefur gengi félagsins nær tvöfaldast, hækkað um tæp 73%. Þannig hefur markaðsvirði hlutar stærsta eiganda, sem er Sam- son eignarhaldsfélag ehf., hækkað úr 48,2 milljörðum króna í 83,3 millj- arða það sem af er ári. Það fyrirtæki sem hefur hækkað mest í krónum er hins vegar KB banki en um áramót var gengi hlutabréfa í félaginu 442 krónur en er nú 579 krónur. Er það hækkun um 137 krónur, 31%. Þannig hefur markaðsvirði hlutar stærsta eiganda, sem er Exista, hækkað úr 49,6 milljörðum króna í 65 milljarða króna. Miðað er við hluti um áramót. Einungis tvö félög hafa lækkað frá áramótum, Flaga um 28% og SÍF 2%. Þriðjungshækkun frá áramótum  #   %&' & ' (# )     $  $ @/  ++ !$ JKL /<K - K$ + J9 @/ +8 6 8//K A< K6L *KL /@!@ ->L                 .&#   .&#    .; &#                  E  E  E  E   E    E    E        * ! - - * * M Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is ● AMIDE Pharmaceuticals, dótt- urfélag Actavis, hefur keypt þrjú samheitalyf af dótturfélagi þýska lyfjarisans Novartis. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu var þetta eitt af þeim skilyrðum sem bandarísk samkeppnisyfirvöld settu fyrir sam- runa Novartis og Eon Labs. Í tilkynn- ingu er haft eftir Divya Patel, for- stjóra Amide, að lyfin þrjú verði góð viðbót við lyfjasafn fyrirtækisins. „Búast má við að árlegar sölutekjur af lyfjunum nemi um 4-5 milljónum Bandaríkjadala,“ segir Patel. Amide fær þrjú lyf 6 'N /O9       E E !</> L P     E E A A 8-P    E E +!P 6 .    E E @A>P LQ *&.    E E
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.