Morgunblaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Verðhrun
á sumarfatnaði
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18, lau. kl. 10-15
Algjört verðhrun
á útsölunni
iðunn
tískuverslun
Kringlunni
s. 588 1680
Síðustu
dagar
útsölunnar
20%
aukaafsláttur
Útsala
25-90%
afsláttur
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Fylgi flokkanna
nánast óbreytt
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fengi tæplega 38% fylgi, ef kosið yrði
til Alþingis nú, ef marka má Gallup-
könnun sem gerð var dagana 29. júní
til 27. júlí. Samfylkingin fengi 32%
fylgi, Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð 16% fylgi, Framsóknarflokkurinn
tæplega 9% fylgi og Frjálslyndi
flokkurinn tæplega 5% fylgi.
Er þetta svipað fylgi og flokkarnir
mældust með í Gallup-könnun sem
gerð var mánuði á undan. Samfylk-
ingin tapar þó einu prósentustigi og
Frjálslyndi flokkurinn bætir að sama
skapi við sig einu prósentustigi.
Úrtakið í könnuninni var 2.431
maður á aldrinum 18 til 75 ára. Svar-
hlutfallið var um 62%.
Lýst eftir bifreið
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir bifreiðinni VP-567, sem er Mazda
323, blá að lit, árgerð 1991. Ekkert
er vitað um ferðir bifreiðarinnar
frá 12. júlí sl. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um hvar bifreiðin er
nú, eru beðnir um að láta lögregl-
una vita í síma 444 1101.
Skoða plöntur á
Þingvöllum
PLÖNTUSKOÐUNARFERÐ verð-
ur á Þingvöllum í dag og verður farið
í Snóku og Hvannagjá, þar sem gestir
munu kynnast gróðurfari í dýpstu
gjám Þingvalla. Gangan tekur um 3
tíma og hefst við Þjónustumiðstöðina
kl. 13. Á morgun verður fornleifaskóli
barnanna kl. 13 við Öxará en í sumar
hafa börn notið leiðsagnar landvarða
við fornleifauppgröft. Börnin fá múr-
skeiðar og grafa á þar til gerðu svæði.
Einnig verðu fjölskylduguðsþjón-
usta í Skógarkoti í Þingvallasveit á
morgun kl. 14.