Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sakleysingjarnir er heillandi frásögn
um mannlegan breyskleika, djúpa
einsemd, ást, söknuð og mikil örlög –
stórbrotin saga sem heldur lesanda
rammlega föngnum allt til enda.
„Stórvirki.“
− Skafti Þ. Halldórsson, Mbl.
„Ólafur Jóhann fangar lesandann
áreynslulaust inn í söguheim
sinn. Hann býr einfaldlega yfir
þeirri náðargáfu að kunna að
segja sögu .“
− Hlynur Páll Pálsson, Frbl.
.
edda.is
Stórbrotin örlagasaga
ÁHORFENDUR á HM í Norrköping í Svíþjóð hafa svo
sannarlega notið spennandi keppni, ekki síst í gær í for-
keppni í fjórgangi og 100 m skeiði. Sá síðasti af rúmlega
fimmtíu keppendum í forkeppninni í fjórgangi á Heims-
meistaramótinu í Norrköping, Stian Pedersen á Jarli frá
Miðkrika, skaust upp fyrir Sigurð Sigurðarson á Silf-
urtoppi í fyrsta sætið þegar hann fékk 8,00 í einkunn. Sig-
urður fékk einkunnina 7,87 og kom inn í næstsíðasta holl-
inu og bjuggust flestir við að hann héldi forystunni til
loka. En Stian hafði greinilega engu að tapa og gaf allt í
botn með þessum árangri. Nokkuð áberandi var hve ein-
kunnirnar í síðari hluta keppninnar virtust fara hækk-
andi. Jóhann Skúlason á Hvini frá Holtsmúla var lang-
hæstur fyrir hlé með 7,37 en var í 5. sæti ásamt Chatrine
Brusgaard frá Danmörku á Jóni frá Hala áður en Stian
hóf keppni. Eftir þennan góða árangur Stians missti Jó-
hann af sæti í A-úrslitum. Þau Chatrine eru í 6. sæti og
efst inn í B-úrslit.
Óvænt úrslit og spennaeinkenndu keppni í 100 m
skeiði. Þar sigraði Jessica Rydin, 21 árs gömul stúlka frá
Svíþjóð, á Jórik frá Lönneberga, á 7,30 sekúndum eða
0,10 sekúndum undir heimsmeti Magnusar Lindquist.
Nýtt heimsmet hefur þó enn ekki verið staðfest. Sigurður
Skagfjörð Pálsson á Prinsi frá Syðra-Skörðugili keppti á
undan Jessicu í fyrri sprettinum og náði tímanum 7,34 við
mikinn fögnuð. En Jessica gerði enn betur og var 0,04
sekúndum undir hans tíma. Mikil gleði ríkti hjá þessu
unga fólki eftir keppnina, en þau keppa bæði sem ung-
menni.
Það setti leiðinlegan svip á keppnina í skeiðinu að ann-
ar ungur knapi úr íslenska liðinu, Valdimar Bergstað á
Feykivindi frá Svignaskarði, sýndi óíþróttamannslega
framkomu eftir að hestur hans hafði hlaupið upp í seinni
sprettinum og var gefin áminning.
Hefur ekki þjálfað skeiðið sérstaklega
Hin 21 árs gamla Jessica Rydin sagðist, þegar nokkrar
vinkonur og síðar íslenskir knapar og aðstoðarmenn
höfðu tollerað hana, aðallega hafa lagt áherslu á keppnina
í fimmgangi á mótinu. „Ég hef ekki æft sérstaklega fyrir
skeiðið, svo þetta var mjög skemmtilegt,“ sagði hún.
Ekki var gleðin minni hjá Sigurði Straumfjörð Pálssyni
og aðstandendum hans og vinum. Hann réði sér vart fyrir
kæti og það sama má segja um foreldrana, Pál og Guð-
rúnu, sem fögnuðu með syninum við brautarendann í
gær.
Öll úrslit eru á www.icelandichorse2005.se.
Eftir Ásdísi Haraldsdóttur
asdish@mbl.is
Sigurður Straumfjörð Pálsson stóð sig eins og hetja í 100
m skeiði á Prinsi frá Syðra-Skörðugili. Hér fagna þeir fé-
lagar ásamt foreldrum Sigurðar, Páli og Guðrúnu.
Jessica Rydin einbeitt á Jórik från Lönneberga.
Stian Pedersen frá Noregi setti allt í botn í hraðatölt-
inu og stóð efstur eftir forkeppnina í fjórgangi í gær á
Jarli frá Miðkrika.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Íslendingar í harðri
baráttu á HM
INDRIÐI H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri segir það færast mjög í vöxt að
íslenskir aðilar stofni erlend eignar-
haldsfélög í svokölluðum skattapara-
dísum eða þar sem sérstakar reglur
gilda um félög og bankaviðskipti, svo
sem á Ermarsundseyjum eða í Lúx-
emborg.
„Það er ekki ólögmætt að stofna
slík félög en þegar þeir gefa ekki upp
eignir sínar og tekjur er augljóst að
þarna eiga sér stað lögbrot og þekkj-
um við svo mörg dæmi þess að það er
ekki spurning hvort heldur í hversu
miklum mæli þetta á sér stað,“ segir
Indriði.
Indriði bendir á að erlent eignar-
haldsfélag sé yfirleitt skattskylt í því
landi sem það starfar, en í vissum til-
vikum geti það verið skattskylt hér-
lendis ef um er að ræða félag sem er
að fullu undir daglegri stjórn hér á
landi. Ef um er að ræða tvísköttun-
arsamning getur hitt landið gert til-
kall til skattskyldu, en ákvæði í al-
þjóðlegum samningum kveða á um
hvernig meðhöndla skal slík tilvik.
En taki íslensku aðilarnir taka fé út
úr þessum félögum, t.d. sem arð, eru
það tekjur sem eru skattskyldar hér-
lendis, og einnig er eignin í þeim
skattskyld til eignaskatts á meðan
hann er enn við lýði.
Áhyggjur af flæði til útlanda
„Við höfum áhyggjur af hugsan-
legu flæði fjár úr landi sem ekki er
búið að skattleggja hérlendis áður og
óvíst er að berist aftur til landsins til
skattlagningar lögum samkvæmt,“
segir Indriði. „Það var bent á það í
skýrslunni um umfang skattsvika, að
ein þeirra leiða sem menn nota til að
komast undan skattlagningu er að
stofna félög erlendis. Einkum eru
þessi mál erfið viðureignar ef félögin
eru staðsett í svokölluðum skatta-
paradísum og maður spyr sig óneit-
anlega hvers vegna íslenskir aðilar
séu að stofna félög á einhverjum eyj-
um í Karíbahafinu. Ekki eru auðsæ
rök fyrir því önnur en að menn séu
að reyna að komast hjá skattlagn-
ingu. Slíkum málum hefur farið ört
fjölgandi og það vekur því alltaf
áhuga okkar ef að slíkt kemur fram.
Hins vegar er vandinn sá að flest
af þessum ríkjum veita mjög litlar
upplýsingar um þessi félög, einfald-
lega vegna þess að þau eru mörg
hver mjög vanþróuð og hafa ekki það
réttarkerfi sem þarf til að vinna með
öðrum ríkjum. Þetta er þó vonandi
að breytast og það hefur náðst veru-
legur árangur hjá OECD við að
leggja grunn að virkari upplýsinga-
gjöf frá þessum svæðum. Slík mál
eru þó ekki sjálfgefin til rannsóknar,
en það eru hins vegar fjölmörg mál í
athugun hjá skattyfirvöldum þar
sem um er að ræða slíka viðskipta-
hætti. Oft fylgist það að að ef skatt-
skil eru athugaverð er einnig að
finna anga af þessum toga og við höf-
um fengið fjölmargar ábendingar
um slíkt.“
Indriði bendir á að hlutabréfavið-
skipti, tekjumyndun og áframhald-
andi fjárfesting í þeim geira sé orð-
inn miklu stærri þáttur í efna-
hagsumsvifum og heildartekju-
myndun en áður og slíkt umfang
kalli á nýjar aðferðir skattyfirvalda.
Í flestum nágrannalöndum gildi víð-
tækari reglur um upplýsingaskyldu
vegna tilfærslu fjármagns til útlanda
en gilda hérlendis. „Ég veit t.d. að
þegar Danir afléttu hömlum á gjald-
eyrisviðskiptum við útlönd settu þeir
jafnframt allítarlegar reglur um
upplýsingaskyldu fjármálastofnana
til yfirvalda þar að lútandi. Þær regl-
ur er ekki að finna hér. Við teljum að
rík þörf sé á setningu slíkra laga til
að tryggja betur aðgang að upplýs-
ingum á þessum vettvangi,“ segir
hann. „Virk upplýsingamiðlun er
einn mikilvægasti þátturinn í skatt-
framkvæmd, ekki síst í dag þegar al-
þjóðlegu viðskiptin eru orðin jafn-
mikil og mikilvæg og raun ber vitni.
Skattyfirvöld eru reiðubúin til sam-
starfs við löggjafann um slíka laga-
setningu, kjósi hann að fylgja for-
dæmi nágrannalanda á þessu sviði.“
Margvíslegar hliðar eru á fjár-
magnsflæði héðan til útlanda. Meðal
annars gera núverandi reglur ráð
fyrir að fresta megi skattgreiðslum á
söluhagnaði hlutabréfa og segir
Indriði fjölmörg dæmi þess að hagn-
aðurinn hafi farið úr landi fyrir
skattlagningu til fjárfestinga ytra,
þar á meðal stofnunar eignarhalds-
félaga. Hann kveðst hlynntur því að
settar verði reglur um að þessi frest-
un á söluhagnaði komi aðeins til
greina ef hann er endurfjárfestur
innanlands, ekki ytra.
Frestunarregla ekki sjálfsögð
„Vandinn felst einkum í því hvern-
ig halda ber á þessum málum með
tilliti til EES-samningsins, þ.e. hvort
að slík lagasetning myndi stangast á
við hann. Hins vegar er kannski
stóra spurningin sú hvort þessi
frestunarregla eigi yfirleitt rétt á sér
og persónulega tel ég hana ekki
sjálfsagða.“
Hann bendir einnig á að ákveðið
misræmi felist í núgildandi löggjöf,
þannig að ef einstaklingur kjósi að
kaupa hlutabréf fyrir launatekjur
þurfi hann áður að greiða skatt af
tekjunum. Hafi þessar tekjur hins
vegar myndast með sölu á eignum,
þar með talið hlutabréfum, sé mönn-
um gert kleift að fresta skatt-
greiðslum. „Ég tel að það mætti að
skaðlausu þrengja reglur um þessi
mál og ætti að koma til álita að tak-
marka þær aðeins við innlenda að-
ila.“ Indriði nefnir einnig að sé um að
ræða einkahlutafélag, sem einn aðili
á, getur hann frestað skattlagningu
söluhagnaðar með endurfjárfest-
ingu. „Þarna er um að ræða misræmi
sem þyrfti að huga að. Þegar fleiri
aðilar eiga einkahlutafélagið koma
til önnur álitamál, þannig að þetta
hins vegar er ekki vandalaust.“
„Augljóst að
þarna eiga sér
stað lögbrot“
sindri@mbl.is
Associated Press
Í skattaparadísinni Lúxemborg stofna Íslendingar eignarhaldsfélög.