Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 19

Morgunblaðið - 06.08.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 19 ERLENT ALÞJÓÐLEGUR hópur sérfræð- inga kom saman í Perth í Ástralíu í vikunni til að ræða viðvörunar- kerfi vegna flóðbylgna á Indlands- hafi. Burðargrindin að kerfinu er nú þegar til staðar en sérfræðingarnir munu ræða hversu vel það er á veg komið og hver næstu skref séu í því að koma kerfinu almennilega í gang. Um er að ræða kerfi, sem er samsett úr minni viðvörunarkerf- um sem eru starfrækt í löndum á borð við Taíland, Indónesíu, Sri Lanka og Indland. Smærri kerfin verða svo tengd saman gegnum eina aðalmiðstöð, en ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvar hún verður. Byggist á skynjurum sem komið er fyrir á hafi úti Viðvörunarkerfið byggist að mestu leyti á skynjurum sem kom- ið hefur verið fyrir á hafi úti, en þeir nema bylgjur, straum og þrýsting. Skynjararnir senda nú þegar gögn til veðurtungls um loftslag og annað á klukkustundarfresti. Vonast er til að hægt verði að uppfæra skynjarana fyrir lok þessa árs svo að hægt verði að setja í gang tilbúið viðvörunarkerfi um mitt næsta ár. Er ætlunin að verja löndin við Indlandshaf fyrir flóðbylgjum á borð við þá sem reið yfir 26. desember síðastliðinn og varð 220.000 manns að manna og olli gífurlegu tjóni. Viðvör- unarkerfi á Ind- landshafi * + , @&'"&' <3"&'  0 @&'5&. ( -" 3 M    " 3  -& @6L$ 6L/C % ! . (  " (    -&"  (    & /0 0"  1&   &  $' #    20&&&    M   .&&& 4 ?4 &#&  . &4  . ? .   ;&10 .0 &.0 );"#1 0 # ,7  &# . .  0  ;   !"#$ %&%'(#)*(+(& +.  );##  &. 04 . .0 . .&#'   . & "0   4 &  0 &&     00 3 .  0  7  "0   4 &  K4 , 30 .& &# # 1 0 " +.  & ##&0 0 1 1 " &  '1H 1 ,7  &# # #. .0 .  #   ;  0  &0 C"5);"#1 -4" 4 3 @&'"&'  .&' &H ,.# "7 &# 0 " "# 0 # && " &'.   3& "    L K<R )1& 04"   &'    # # ",7  &# RL..C .& . 0.& &' K. &#  < &0 / .1 .&'  ##&  " )1&& 0. "15C 0. / .1 04"  & C ,7  &# . "5);"#1 . 1 =.&#" .&'  C "7 &# 0  "  &C  #& & . .&' 3 .&#" 45! .#  2  Vladivostok. AP. | Rússneskt björg- unarskip náði síðdegis í gær að koma taug í kafbát rússneska hersins sem hafði fest í fiskineti fyrr um daginn og sokkið til botns á um 190 metra dýpi úti fyrir strönd Kamtjatka. Sjö manns eru í áhöfn kafbátsins sem var á of miklu dýpi til að mennirnir gætu synt sjálfir upp á yfirborðið. Viktor Fyodorov, flotaforingi Kyrra- hafsflota rússneska hersins, sagði að súrefnisbirgðirnar, sem mennirnir hefðu, dygðu þeim fram á mánudag. „Þetta er sá tími sem við höfum til að bregðast við neyðartilvikinu,“ sagði hann og bætti við að ástandið væri erfitt. Björgunarskipinu var ætlað að draga kafbátinn þangað sem dýpi er minna í þeirri von að áhöfnin gæti synt þaðan upp. Fjögur japönsk her- skip og breskur kafbátur voru einnig send á vettvang til aðstoðar. Leitaði rússneski herinn líka eftir aðstoð bandaríska hersins við að lyfta kaf- bátnum upp. Fimm ár eru síðan kjarnorkukaf- báturinn Kúrsk sökk til botns í Bar- entshafi í kjölfar sprengingar um borð í honum. 118 manns, sem voru í áhöfn hans, létust. Nokkrir skip- verja sem lifðu sprenginguna af lifðu í nokkra daga á súrefni sem var í bátnum. Stjórnvöld í Rússlandi hlutu mikil ámæli fyrir viðbrögð við slysinu. Kafbáturinn sem nú liggur á hafs- botni er af gerðinni AS-28. Þetta er lítill kafbátur sem smíðaður var árið 1988. Hann er 13,5 metra langur og 5,7 metra hár. Hægt er að fara með hann á um 500 metra dýpi. AP Kafbátur af sömu gerð og sá sem sökk til botns úti fyrir strönd Kamtjatka. Sjö menn fastir um borð í kafbát .#& #$  &        #  6  "    *7 & 05!  (,     8 ) . . 9 :  3 4       -&!   #   0   /C )  && . .   H& "4  3 &.0   0&& BORGARAFLOKKURINN (CP) í Póllandi hef- ur heitið því að uppræta spillinguna sem ríkir í knattspyrnu í landinu sigri hann í næstu kosn- ingum. Keppnisdeildir knattspyrnunnar í Pól- landi þykja verulega spilltar og hefur hvert hneykslismálið rekið annað undanfarið. Nýlega játaði knattspyrnustjóri liðsins GKS Katowice að hafa árum saman mútað dómurum og leik- mönnum til að tryggja tiltekin úrslit í leikjum. Kosið verður í Póllandi þann 25. september. Miðað við skoðanakannanir er líklegt að Borg- araflokkurinn, sem er mið-hægri flokkur, og hægri flokkurinn Lög og regla muni sigra núverandi ríkisstjórnarflokka sem eru mið- og vinstriflokkar. Lofa að uppræta spillingu í pólskri knattspyrnu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.