Morgunblaðið - 06.08.2005, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 25
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
6.–7. ágúst
Þorlákshöfn Hafnardagar
Nú standa yfir Hafnardagar í Þor-
lákshöfn sem settir voru formlega í
gær. Götu- og markaðsstemmning í
bænum, bílasýning, tónleikar á
bryggjunni og dansleikur, dorg-
veiðikeppni og leiðsögn um hafn-
arsvæðið. Nánari upplýsingar á
www.hafnardagar.is.
6.–7. ágúst
Húnaþing vestra
Grettishátíð
Í kvöld eru hátíðahöld á Grettisbóli
á Laugarbakka, Karlakórinn Lóu-
þrælar syngur, hljómsveitin Wild
Berry stígur á svið og Harm-
onikkusveitin Nikkolína verður á
staðnum. Gamanmál um Gretti og
fleira.
Fjölskylduhátíð er svo á Bjargi í
Miðfirði hinn 7. ágúst, sögustund,
söngur, glíma, leikir, gönguferðir,
kraftakeppni og veitingar.
6.–7. ágúst
Grímsnes
Grímsævintýri með karnival-
stemmningu í Borg í Grímsnesi
7. ágúst
Strandir
Hátíðisdagur á Sauðfjársetrinu í
Sævangi við Steingrímsfjörð. Drátt-
arvéladagur og töðugjöld.
10.–14. ágúst
Seyðisfjörður
Norskir dagar.
12.–22. ágúst
Hérað
Ormsteiti
Héraðshátíð – uppskeruhátíð sem
stendur yfir í tíu daga víðsvegar um
svæðið.
12.–14. ágúst Ísafjörður Mýr-
arbolti, rokk, djass og klassík.
Mót í mýrarknattspyrnu verður
haldið á Ísafirði en í fyrra fór þar
fram keppni í þessari óvenjulegu
íþrótt í fyrsta skipti. Mýrarknatt-
spyrna á rætur sínar að rekja til sum-
aræfinga finnskra gönguskíðakappa
sem vildu fá fjölbreytni í æfingarnar
yfir sumartímann. Mótið stendur yfir
í tvo daga og er skráning hafin. Nán-
ari upplýsingar á www.myr-
arbolti.com. Hljómsveitin Reykjavík
verður svo með tónleika í Tjöruhús-
inu 12. ágúst.
Ísafold verður með tvenna tónleika
á Ísafirði og sænski djassgítarleik-
arinn Andreas Öberg heldur tónleika
í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
12.–14. ágúst
Hella
Töðugjöld
12.–14. ágúst
Stykkishólmur
Danskir dagar. Skrúðganga, hverf-
agrill, Lína langsokkur, kassaklifur,
ratleikur, bryggjuball og flugeldasýn-
ing.
12.–14. ágúst, Djúpavík
Djúpavíkurdagar. Skoðunarferðir,
siglingar, varðeldur og fleira.
12.–14. ágúst
Ólafsfjörður
Tónlistarhátíðin Berjadagar
13. ágúst Akranes
Markaðsdagar á safnasvæðinu á
Görðum. Markaðstjöld og sölubásar.
14. ágúst
Hólar í Hjaltadal
Hólahátíð.
Á FERÐ UM LANDIÐ
Töðugjöld og
bryggjuball
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Yfirleitt sækir fjöldi fólks Danska daga í Stykkishólmi.
„ALLIR ferðalangar
sem koma til Banda-
ríkjanna verða að hafa
vegabréf sem eru með
tölvurönd,“ segir Ron-
ald E. Hawkins, ræð-
ismaður Bandaríkj-
anna á Íslandi, en
eitthvað hefur vafist
fyrir Íslendingum
hvernig vegabréf þarf
til að komast til Banda-
ríkjanna. Þá er núm-
eraröð í vegabréfinu
sem rennt er í gegnum
tölvu og lesin. Myndin
er þrykkt inn í papp-
írinn, ekki límd inn í
eins og á gömlu bréf-
unum.
„Þeir Íslendingar
sem eru ekki með þessi nýju tölvu-
lesanlegu vegabréf og eru á leið til
Bandaríkjanna verða að fara í
bandaríska sendiráðið fyrir ferðina
og sækja um vegabréfsáritun til að
taka með sér, annars er hætta á að
þeir komist ekki inn í landið,“ segir
Ronald.
Byrjað var að gefa út þessi nýju
vegabréf hér á landi 1. júní árið
1999.
Örugg landamæri, opnar dyr
Ísland er partur af Visa Waiver
Program og eru ferðamenn héðan
því undanþegnir áritunarskyldu og
er heimilt að dvelja í landinu í allt
að 90 daga án vegabréfsáritunar.
En ferðamenn þurfa eftir sem áður
að hafa tölvulesanleg vegabréf og
ef þeir hafa það ekki þá þurfa þeir
að sækja um vegabréfsáritun í
sendiráðinu áður en lagt er í ’ann.
Spurður út í hvað ferðamenn
þurfi að ganga í gegnum þegar þeir
komi til Bandaríkjanna segir Ron-
ald það hvorki vera mikið né tíma-
frekt. Á flugvellinum þarf auðvitað
að sýna tölvulesanlega vegabréfið
sitt og láta taka af sér fingraför af
vísifingrum beggja handa, með
skanna, til að staðfesta að þú sért
manneskjan á vegabréfinu þínu.
„Þetta eftirlit er öryggi fyrir alla,
ekki aðeins fyrir íbúa Bandaríkj-
anna því að þínu vegabréfi gæti
hafa verið stolið,“ segir Ronald.
„Við köllum þetta örugg landa-
mæri en opnar dyr. Við elskum að
fá gesti til landsins, sýna þeim feg-
urð Bandaríkjanna og fá áhrif frá
þeirra menningu. Þessi örygg-
isgæsla á flugvellinum er öllum í
hag og hún er auðveld og sárs-
aukalaus. Við viljum bara vera viss-
ir um að þú sért sá sem þú segist
vera í vegabréfinu eða í skjöl-
unum.“
Ekkert flóknara en það var
Í október árið 2006 verða tekin í
notkun ný vegabréf og verða þau
með lítilli tölvuflögu í sem geymir
ýmsar upplýsingar um vegabréfs-
eigandann ásamt mynd. Þau munu
gera vegabréfafölsurum enn erf-
iðara fyrir og auka öryggi allra.
„Fólk heldur að það sé orðið svo
flókið að fara til Bandaríkjanna en
raunin er að það hefur lítið breyst
fyrir Íslendinga. Ferlið hjá þeim
námsmönnum sem eru að flytja
þangað í langan tíma hefur t.d ekki
breyst mikið. Það hafa bæst nokk-
ur eyðublöð inn í ferlið til að
tryggja öryggi en það lengir ekki
umsóknartímann. Umsóknarferlið
er mjög auðvelt þó margir haldi
annað. Það er hægt að sækja um
alla skriffinnsku, panta tíma fyrir
vegabréfsáritanir og annað í gegn-
um Netið á www.usa.is. 97% stúd-
enta sem sækja um vegabréfsárit-
un til Bandaríkjanna fá hana og
tekur það aðeins um tvo daga. Í
einstökum tilfellum getur það tekið
lengri tíma og þá í mesta lagi tvær
vikur. Það er miklu styttri biðtími
en áður.“
Ronald segir að vegabréf muni
alltaf vera að breytast í takt við
tæknina og að fólk verði að vera
vakandi fyrir því.
Gömlu og nýju vegabréfin. Ef þið eruð með þau
gömlu sem eru dökkblá þá þurfið þið að fá
vegabréfsáritun áður en haldið er af stað í
ferðalag til Bandaríkjanna. Nýju vegabréfin,
sem eru ljósblá, eru tölvulesanleg og því gjald-
geng inn til Bandaríkjanna.
Vegabréfin með
tölvurönd
Á vefsíðunni www.usa.is er hægt
að fá nánari upplýsingar um nýju
vegabréfin og vegabréfsáritanir.
BANDARÍKIN
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Ódýr og góð gisting miðsvæðis í Kaupmannahöfn. Tölum íslensku.
sími 0045 3297 5530 • gsm 0045 2848 8905
www.lavilla.dk
Kaupmannahöfn - La Villa
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
!
"#
$
%
!
&'
(
**
! +
,
!'
-
$
! &
!
#
*.
(
/
0 *
. ! #