Morgunblaðið - 06.08.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2005 35
Enn ein tilraun til sátta
Á meðan málið var til meðferðar
hjá úrskurðarnefnd gerði einn
sóknarnefndarmanna enn eina til-
raun til sátta. Hún fól í sér að allir
aðilar málsins gerðu með sér sátt
um að báðir prestarnir og djákninn
létu af störfum fyrir sóknina gegn
loforði biskups um að finna þeim
annað starf við hæfi. Jafnframt áttu
allir sóknarnefndarmenn eða a.m.k.
meirihluti þeirra þ.m.t. formaður og
varaformaður að segja sig úr sókn-
arnefndinni. Allt átti þetta að ger-
ast samtímis þannig að málinu yrði
lokið með sátt án eftirmála. Þessi
sáttatilraun var gerð með vitund og
vilja biskups. Allir málsaðilar sam-
þykktu þessa leið til sátta, nema sr.
Hans Markús sem vildi ekki fallast
á hana.
Áfrýjunarnefnd
Sr. Hans Markús sætti sig ekki
við niðurstöðu úrskurðarnefndar og
kærði úrskurð hennar til áfrýjunar-
nefndar þjóðkirkjunnar. Má því
segja að sr. Hans Markús hafi þeg-
ar hér var komið sögu bætt úr-
skurðarnefndinni við langan lista
deilenda sinna. Áfrýjunarnefndin er
skipuð af ráðherra samkvæmt til-
nefningu Hæstaréttar.
Í áfrýjunarnefndinni áttu sæti
þau dr. Páll Sigurðsson prófessor
við lagadeild Háskóla Íslands, for-
maður, Ásdís J. Rafnar hrl., Kristín
Briem hrl., dr. Pétur Pétursson
guðfræðiprófessor og Sigrún Júl-
íusdóttir prófessor við félagsvís-
indadeild Háskóla Íslands. Áfrýj-
unarnefndin kvað upp úrskurð sinn
28. júní sl. Niðurstaða hennar var
að hafna kröfu um ógildingu á nið-
urstöðu úrskurðarnefndar. Nefndin
lagði til við biskup að formanni,
varaformanni, presti og djákna
verði veitt áminning. Jafnframt
staðfesti nefndin úrskurð úrskurð-
arnefndar að því er varðar sr. Hans
Markús og mælti fyrir um að hann
skuli fluttur til í starfi.
Aðgerðir biskups í kjölfar
úrskurðar áfrýjunarnefndar
Samkvæmt gildandi lögum um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóð-
kirkjunnar er biskup bundinn af úr-
skurði áfrýjunarnefndar. Í ljósi
þess boðaði biskup prest, djákna,
formann og varaformann á sinn
fund og veitti þeim áminningu í
samræmi við úrskurð áfrýjunar-
nefndar. Jafnframt ritaði biskup
bréf til dóms- og kirkjumálaráð-
herra þar sem farið er fram á stað-
festingu ráðherra á flutningi sókn-
arprestsins sr. Hans Markúsar í
annað starf innan kirkjunnar í sam-
ræmi við ákvörðun biskups.
Viðbrögð sr. Hans Markúsar
við úrskurði áfrýjunarnefndar
Áfrýjunarnefnd er æðsta ákvörð-
unarvald í málefnum innan kirkj-
unnar. Þangað vísar sr. Hans
Markús málinu. Þar sem nefndin
fellst ekki á kröfur sr. Hans Mark-
úsar grípur hann nú til þess ráðs að
lýsa því yfir að hann ætli alls ekki
að lúta úrskurði nefndarinnar né
ákvörðun biskups um tilflutning í
starfi. Jafnframt stefnir sr. Hans
Markús nú biskupi, djákna, presti,
formanni og varaformanni sóknar-
nefndar fyrir héraðsdóm til ógild-
ingar niðurstöðu áfrýjunarnefndar
sem hann telur óeðlilega og ósann-
gjarna í sinn garð. Þess má einnig
geta að sr. Hans Markús hefur
kært sr. Friðrik Hjartar til siða-
nefndar prestafélagsins og vinnu-
staðasálfræðinginn til siðanefndar
sálfræðinga. Auk þess lýsir sr.
Hans Markús nú biskup óhæfan til
úrskurðar í málinu. Sem sagt; sr.
Hans Markús deilir nú við sókn-
arnefndina, prest, djákna, biskup,
vinnustaðasálfræðing, úrskurðar-
nefnd og áfrýjunarnefnd. Hver aðili
sem ekki fylgir honum að máli verð-
ur nú deiluaðili. Þessi málatilbún-
aður og stöðugar kærur sr. Hans
Markúsar hafa haft í för með sér
umtalsverðan kostnað. Það hefur
kostað sóknina og einstaka starfs-
menn hennar talsvert fé að verjast
síendurteknum ákærum sóknar-
prestsins en fyrir því verður gerð
grein á komandi aðalsafnaðarfundi.
Aðalsafnaðarfundur
í Garðasókn
Aðalsafnaðarfund skal að jafnaði
halda fyrir maí lok ár hvert. Frest-
un aðalsafnaðarfunda er hins vegar
ekkert einsdæmi þó slíkt hafi
reyndar ekki viðgengist í Garða-
sókn fram til þessa. Því miður er
staða mála í sókninni enn með þeim
hætti að óvissa liggur fyrir um end-
anlega niðurstöðu þessa deilumáls.
Það er mat sóknarnefndar að nauð-
synlegt sé að fá fram niðurstöðu áð-
ur en til fundarins verður boðað.
Leitað var eftir afstöðu biskups til
frestunar fundarins og fyrir liggur
skrifleg afstaða hans þar sem fram
kemur að eðlilegt sé að niðurstaða
liggi fyrir áður en fundurinn verður
haldinn. Aðalsafnaðarfundur Garða-
sóknar verður því boðaður í sam-
ráði við biskup þegar dóms- og
kirkjumálaráðherra hefur tekið af-
stöðu til fyrirliggjandi beiðni bisk-
ups.
Störf sr. Hans Markúsar
í þágu sóknarbarna
Stuðningsmenn sr. Hans Mark-
úsar hafa bent á að hann hafi á
margan hátt staðið sig vel í starfi
og hlúð af alúð að skjólstæðingum
sínum, ekki síst þeim sem hafa átt
um sárt að binda. Skjólstæðingar
sr. Friðriks Hjartar og Nönnu Guð-
rúnar djákna gætu einnig borið
þeim mjög gott orð ef eftir slíku
væri leitað. En það hefur ekki verið
gert, enda verður slíkt ekki talið
sæmandi þjónum kirkjunnar.
Lokaorð
Við fullyrðum að sá hópur sem
sr. Hans Markús hefur skilgreint
sem andstæðinga sína hefur á öllum
stigum málsins unnið af heilindum
og verið tilbúinn til sátta. Okkur
finnst hins vegar verulega hafa
skort á einlægan og gagnkvæman
sáttavilja af hálfu sóknarprestsins,
sr. Hans Markúsar. Sátt felur það í
sér að allir málsaðilar slái af kröf-
um sínum – leggi eitthvað fram til
lausnar. Í þessu tilviki ekki bara
prestur, djákni, starfsmenn sókn-
arinnar eða sóknarnefnd, heldur
einnig sóknarpresturinn sr. Hans
Markús. Okkur þykir miður það
sem okkur hefur orðið á í þessu erf-
iða máli. Einnig hörmum við þær
aðdróttanir og rangfærslur sem sr.
Hans Markús og stuðningsmenn
hans hafa haft í frammi.
Þessi deila hefur staðið yfir í tæp
tvö ár. Á þeim tíma hafa allir sókn-
arnefndarmenn reynt bæði óform-
lega og formlega margvíslegar leið-
ir til sátta án nokkurs árangurs.
Auk þess er málið nú búið að fara í
gegnum öll þau stig sem reglur og
lög kirkjunnar mæla fyrir um. Nið-
urstaðan er þar í megin dráttum
ávallt hin sama; hjá sóknarnefnd,
hjá prófasti, hjá biskupi, hjá úr-
skurðarnefnd og áfrýjunarnefnd –
nefndum sem í eiga sæti óháðir fag-
aðilar. Er líklegt að allir þessir að-
ilar séu handbendi sóknarnefndar
Garðasóknar í ímynduðum ofsókn-
um á hendur sr. Hans Markúsi? Er
líklegt að sóknarnefnd, prestur,
djákni, biskup, úrskurðarnefnd og
áfrýjunarnefnd hafi gert með sér
samkomulag um að skapa sam-
starfsörðugleika við einn og sama
manninn? Varla.
Niðurstaða hefur verið fengin í
samræmi við lög og reglur. Henni
verða allir að lúta. Framundan er
mikið starf við að byggja upp traust
og trúnað, sókninni og kirkjunni til
heilla.
Matthías G. Pétursson,
formaður sóknarnefndar
Garðasóknar,
Arthur Farestveit,
varaformaður,
Kristín Bjarnadóttir,
ritari,
Helgi K. Hjálmsson,
gjaldkeri.“
MINNINGAR
Þegar ég var tólf
ára gömul var ég beð-
in um að skrifa ljóð í skólanum um
einhvern sem ég liti upp til. Það var
ekki erfitt val. Ég skrifaði um afa
minn.
Við Margrét Lára systir mín
eyddum öllum sumrum hjá þeim
ömmu, ásamt frænkum okkar Bryn-
hildi og Margréti. Það var aldrei
neitt vafamál á meðan við bjuggum
úti í Bandaríkjunum að fara í Mý-
vatnssveitina á sumrin. Afi kenndi
okkur margt á þessum tíma, til
dæmis að gróðursetja tré og blóm,
hvernig maður ætti að halda á hrífu,
örnefni í sveitinni, að leggja kapal,
að meta góðan söng og margt fleira.
Eitt það skemmtilegasta sem ég
gerði sem barn var að leita að
hreiðrum aliandanna með afa og það
var mikil gleði í eitt skiptið þegar
við frænkurnar fengum að eiga einn
unga hver. Einu sinni fór ég líka
norður um vetur og var í skólanum
hjá afa í einhverja daga. Ég fékk að
sitja í sætinu hans í matsalnum og
ég man að ég upplifði mig eins og í
konungssæti.
Af öllum þeim tíma sem ég eyddi
með afa þykir mér þó einna vænst
um þetta síðasta ár. Þá bjuggu þau
hjá okkur hérna í Mosfellsbænum
hann og amma og ég kynntist afa á
nýjan hátt. Við drukkum saman
rauðvín, borðuðum osta og elduðum
góðar súpur. Afi hafði áhuga á öllu
sem maður var að gera og vildi vita
allt um skóladaginn hjá manni.
Hann hafði endalausa trú á mér í
náminu og sagði að ég yrði góður
læknir. Það þykir mér eitt stærsta
hrós sem ég hef nokkurn tíma feng-
ið. Reyndar var það þannig í hvert
skipti sem afi hrósaði manni, það
var alltaf einhvers konar sigur,
hvort sem það var fyrir góða
frammistöðu í skólanum eða bara
fyrir góða súpu. Það var gaman þeg-
ar hann var ánægður.
Okkur afa þótti báðum gaman að
fara í búðir, sérstaklega matvöru-
búðir. Það voru góðar stundir sem
fóru í það að skoða súrmetið í Nóa-
túni, úrvalið í fiskbúðinni eða kjöt-
borðið. Mikilvægt þótti honum líka í
þessum ferðum að kaupa súkkulaði
handa ömmu – það mátti ekki vanta!
Það er erfitt að útskýra fyrir öðrum
af hverju afi minn var sérstakur
maður og af hverju ég leit upp til
hans. En hann hafði þá eiginleika
sem ég myndi helst vilja tileinka
mér: einlægni, ákveðni, rólega lund
og gott hjarta. Það var einfaldlega
gott að vera með honum. Mig langar
til að þakka honum fyrir allt sem
hann kenndi mér og allan tímann
sem við áttum saman. Ég held ef-
laust áfram að hafa hann í huga í
öllu því sem ég tek mér fyrir hendur
– og vonast eftir hrósi.
Í lokin segi ég við fjölskylduna
mína eins og amma sagði við mig
daginn sem afi dó: „Nú stöndum við
saman og reynum að vera sterk.“
Guðrún Þuríður.
Nú er Þráinn Þórisson allur. Mér
finnst ég ekki mega sleppa tækifær-
inu til að kvaka til hans nokkur
þakkarorð. Geri mér að vísu ekki
nema litla von um að stíllinn þyki
það merkilegur að hann berist Þráni
sjálfum, hér eftir. En Margrét les
hann.
Haustið 1959, hinn 19. október,
fóru Mývetningar um 20 saman í
heimsókn niður í Þistilfjörð. Aðal-
erindið var sauðfjárskoðun. Þistlar
undirbjuggu gestakomuna með því
ÞRÁINN
ÞÓRISSON
✝ Þráinn Þóris-son, Skútustöð-
um í Mývatnssveit,
fæddist í Baldurs-
heimi í Mývatnssveit
2. mars 1922. Hann
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi
laugardaginn 23.
júlí síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Skútustaða-
kirkju 2. ágúst.
að smala saman öllu
sínu fé þ.e.a.s. á þeim
bæjum sem stóðu að
fjárræktarfélaginu.
Það var sólskin þenn-
an dag og varð hann
sérlega ánægjulegur
bæði gestgjöfum og
gestum.
Þetta var ferminga-
árið mitt og skóla-
skyldan raunverulega
búin en lá í loftinu að
fara í einhvern skóla
og að mestum líkind-
um Laugaskóla. Á
þessum tíma var sá skóli yfirbók-
aður og þurfti góða fyrirhyggju á að
komast þar inn.
Daginn eftir umræddan hátíðis-
dag sagði pabbi minn mér að hann
hefði leitað eftir við Þráin Þórisson
skólastjóra, sem var meðal gest-
anna, að taka mig til uppfræðslu. En
þá var Þráinn byrjaður, líklega ný-
lega, að halda unglingadeild með
barnaskólanum í Mývatnssveit, í
mörgum tilfellum fóru svo nemend-
ur hans beint í eldri deild Lauga-
skóla.
Þráinn hafði tekið beiðninni vel en
sagðist nú ekki geta bætt fólki á sitt
heimili en sjálfur skyldi hann leita
eftir lausn á þeim vanda. Og það
gekk eftir. Í desemberbyrjun komu
skilaboð frá Þráni að um miðjan jan-
úar skyldi ég koma og námið myndi
standa í þrjá mánuði eða rúmlega
það.
Þetta gekk eftir og fékk ég óverð-
skuldað að lifa þriggja mánaða
veislu til líkama og sálar. Bjó hjá
Ingu og Yngva á Skútustöðum.
Blessuð sé minning þeirra. Ég veit
að Þráinn þykkist ekki við þó í leið-
inni ég strái blómum á hana Ingu.
Það hlýtur að hafa verið hún sem ég
átti það mesta að þakka að fá þessa
vist. Bætti mér í 6 manna fjölskyldu.
Fyrstu daga sem ég var uppfrá
voru frosthörkur meiri en ég var
vanur, lágsveitarmaðurinn, Inga
hefur líklega séð kuldabólgin eyru
því ekki var ég búin að fara oft á
netin með Bjössa og Kidda þegar ég
var kominn með skraddarasniðna
húfu eins og þeir. Það var nú fína
flíkin og entist mér lengi. Annað
sýnishorn af manngæskunni sem ég
mætti á Skútustöðum langar mig að
nefna. Ég fór margsinnis á dorg-
veiðar um veturinn og vorið. Var nú
ekki fiskinn á við heimamenn en
heppnaðist í einni veiðiferðinni að fá
12 bleikjur vænar á Haganesvogn-
um. Þegar ég svo var að kveðja á
Skútustöðum gaukaði Jón að mér
pappakassa krossbundnum og
sagði: „Þetta eru bröndurnar sem
þú dróst þarna um daginn, mér datt
í hug að þú vildir gefa mömmu þinni
bragð af reyktum Mývatnssilungi.“
En Þráinn var í Skjólbrekku og
kenndi í kaffistofunni, nema leikfimi
í salnum. Þá var sú tíð að fullnýta
starfskrafta kennara sem annarra.
Ekki man ég hvað börnin voru mörg
samtímis í Skjólbrekku en kaffistof-
an var nokkuð fullsetin. En það
mátti kalla að skólastjórinn kenndi
sjálfur alla tímana nema enskuna,
hana kenndi Magga uppi í sinni
íbúð, ef kalt var annars í lofti í saln-
um þar sem helftin af skólabörnun-
um bjó.
Þær eru góðar minningarnar frá
skólavistinni hjá Þráni, sem dæmi
þegar hann las upp vísurnar. Setti
okkur skylduverkefni á laugardegi
að allir skyldu gera vísu um sessu-
naut sinn og skila eftir helgina. Þrá-
inn las svo upp allan kveðskapinn og
benti á hvar væri farið að reglum
ríms og hvar alls ekki. Það leyndi
sér ekki að honum leið vel þegar
hann fór með kveðskap Höskuldar
sonar síns sem var heilt kvæði til
Kjartans á Grímsstöðum. Það byrj-
aði með ferhendu, skipti svo í stuðla-
fall. „Ég vissi ekki að þú hefðir
svona gott vald á þessu,“ sagði Þrá-
inn á lágum nótum, las svo áfram:
Einnig er hann konum kær og kann að yrkja.
Elta fljóð hann út um grundir.
Engar fær hann hvíldarstundir.
Það mátti segja að Þráinn legði
sig í framkróka með að gera mér
vistina í Mývatnssveit sem ánægju-
legasta og eftirminnilega. Ók mér
oftsinnis á bæi í lengri eða skemmri
heimsóknir og um eina helgi vorum
við Höskuldur inni á Baldursheimi.
Eftir það átti ég bændurna þar,
bræður Þráins, að vinum svo lengi
sem þeirra naut við.
Þegar skólinn var úti með árshá-
tíð og leiksýningu var ég eitthvað að
tala um heimferð, hvort ferðir
mjólkurbíla mundu passa við skipa-
komu. Þá segir Þráinn: „Ég ek þér
til Húsavíkur.“ Það stóð hann líka
við, ók mér gagngert, hlýddi mér á
leiðinni yfir hvað margt af fólkinu í
Mývatnssveit ég væri farinn að
þekkja í sjón. Á Húsavík skildi hann
mig eftir í góðum höndum Páls frá
Grænavatni og hans fjölskyldu.
Ekki fannst Þráni þó nóg að gert.
Á miðju sumri hringdi hann og sagði
að nú stæði til að eyða ágóðanum af
skólaskemmtuninni. Ég skyldi
koma til sín í tæka tíð til að missa
ekki af rútuferðalagi um Eyjafjörð
með gistingu í Svarfaðardal. Og
þetta fór eftir. Þá var ég nokkra
daga um kyrrt í Skjólbrekku bæði
fyrir og eftir skólaferðalagið og leið
vel að vera á meðal hjóna sem elsk-
ast svo heitt eins og Þráinn og
Magga.
Það má ég fullyrða að Þráinn var
á réttri hillu í lífinu og í eftirsókn-
arverðri aðstöðu. Hafa æskuslóðirn-
ar í sjónmáli og sleppti aldrei rétti
sínum í Baldursheimi með að hafa
þar málfrelsi og tillögurétt í fjár-
ræktinni sem fleiru.
Það fór vaxandi síðustu ár sem ég
hef ræktað kunningsskapinn við
þetta góða fólk. Það var vel varið
degi í fyrravor sem ég sat hjá þeim
hjónum og fékk síðast Þráin með
mér í Baldursheim og skoðaði
sauðfé.
Ég votta þér, Magga, og ykkar af-
komendum samúð mína.
Stefán Eggertsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um,
fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn-
ingargreinunum.
Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning-
argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda
hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar