Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
GÁMUR fauk af vörubíl á Vesturlands-
vegi í Kollafirði í gær og gekk illa að ná
honum upp aftur vegna hvassviðris. Að
sögn lögregl-
unnar í Reykjavík
er ljóst að bílstjór-
inn læsti ekki
gámnum á bílnum
eins og honum er
skylt að gera.
Ekki hefði þurft
að spyrja að leiks-
lokum ef gám-
urinn hefði fallið á
bifreið sem komið hefði úr gagnstæðri
átt.
Lögreglan segir að þekkt séu dæmi
þess að vörubílstjórar læsi ekki gámum
við bíla sína þegar þeir þurfa að fara um í
miklu hvassviðri, og í þeim fáu tilfellum
sem þekkt eru er það vegna þess að þeir
telja sig hólpnari ef gámurinn fýkur af en
ef hann veltir vörubílnum.
Lögregla hvetur bílstjóra til að huga
vandlega að því hvort vegir séu færir
vegna hvassviðris, því ef ekið sé um með
gáma án þess að læsa þeim við vörubílinn
sé verið að stofna öðrum vegfarendum í
stórkostlega hættu.
Vilja frekar að
gámar fjúki af
en bílar velti
ELDRI borgarar í Kópavogi iðka sundleikfimi
þrisvar í viku í Kópavogslaug. Líkamsþjálfun í
vatni þykir mjög góð leið til að auka líkamsþol
og styrk og iðkun hennar er einnig hressandi
fyrir sálina, að ekki sé talað um ágæti þess að
vera í góðum félagsskap.
Morgunblaðið/Ásdís
Sælar í sundleikfimi
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN á Bif-
röst hyggst taka upp kynjakvóta
þannig að lágmarkshlutfall hvors
kyns í deildum skólans sé 40%.
Einnig ætlar skólinn að veita kon-
um, í hópi útskrifaðra nemenda,
sérstakan stuðning. Þetta kemur
fram í nýrri jafnréttisáætlun sem
háskólaráð Viðskiptaháskólans á
Bifröst samþykkti í fyrradag. Þar
segir að markmið skólans með áætl-
uninni sé að jafna aðstöðu karla og
kvenna innan háskólans, m.a. hvað
varðar laun og önnur starfskjör,
þátttöku í stjórnun og aðstöðu og
tækifæri til náms.
Stuðningurinn við brautskráðar
konur frá skólanum mun annars
vegar felast í samvinnu skólans við
atvinnulífið og hins vegar að að-
stoða þær við atvinnuumsóknir.
„Við erum með gögn sem sýna að
það er verulegur launamunur, um
50%, á heildarlaunum karla og
kvenna sem hafa útskrifast frá okk-
ur,“ sagði Runólfur Ágústsson,
rektor Viðskiptaháskólans. „Mun-
urinn skýrist að verulegu leyti af því
að karlarnir fara mun meira í
stjórnunarstöður en konur.“
Runólfur taldi ástæður þess geta
verið tvíþættar. Annars vegar að
aðgengi karla að stjórnunarstöðum
sé betra en kvenna. Hins vegar að
konur sækist síður eftir slíkum
störfum og geri minni kröfur en
karlar.
Runólfur sagði að svo virtist sem
konur stæðu höllum fæti í atvinnu-
lífinu, en karlar í menntakerfinu.
Samkvæmt hinni nýju jafnrétt-
isáætlun á bilið á milli hlutfalla
kynjanna við inntöku nemenda í
einstakar deildir skólans aldrei að
verða breiðara en 40/60%.
Jöfn kynjahlutföll í dag
„Það er mikil ásókn í skólann.
Fyrir þetta skólaár bárust rúmlega
500 umsóknir. Kynjahlutföll um-
sækjenda í dag eru tiltölulega jöfn,
þannig að þetta ákvæði skiptir ekki
meginmáli nú. En það er engin
trygging fyrir að svo verði í framtíð-
inni,“ sagði Runólfur. „Við sjáum að
almennt eru konur í miklum meiri-
hluta í íslenskum háskólum. Við
leggjum áherslu á að búa til breiðan
nemendahóp á Bifröst, hvað varðar
kynjahlutföll og aðra þætti. Nem-
endur okkar vinna mikið í verkefna-
vinnu og það er mikilvægt að það sé
breidd innan slíkra hópa.“
Í fyrra voru karlar 49,5% nem-
enda og konur 50,5% í Viðskiptahá-
skólanum á Bifröst. Hlutföllin munu
vera áþekk í ár. Samkvæmt upplýs-
ingum frá nemendaskrá Háskóla
Íslands voru konur 63,6% og karlar
37,4% nemenda skólans hinn 20.
október síðastliðinn. Í Kennarahá-
skóla Íslands eru konur í miklum
meirihluta nemenda, eða 82,4%, og
karlar 17,6% nemenda. Í Háskólan-
um í Reykjavík eru karlar í meiri-
hluta eða 59,6% og konur 40,4%
nemenda skólans.
Ný jafnréttisáætlun samþykkt fyrir Viðskiptaháskólann á Bifröst
Kynjakvóti og konur
studdar í atvinnuleit
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SIGURÐUR Einarsson, stjórnarfor-
maður Kaupþings banka, segir að
þótt dótturfélag Kaupþings í Svíþjóð
hafi ekki verið beitt sektum af sænska
fjármálaeftirlitinu líti bankinn áminn-
ingu þess alvarlegum augum.
Morgunblaðið sagði í gær frá því að
sænska fjármálaeftirlitið, FI, hefði
veitt Kaupthing fonder, eigna-
stýringarfélagi Kaupþings í Svíþjóð,
áminningu. Málavextir voru þeir að í
tveimur af sjóðum sínum hafði Kaup-
thing fonder óskráð félag, Airsonett
AB, sem á þriggja ára tímabili var
reiknað inn í sjóðina miðað við kaup-
verð. Virði félagsins hafði þá hins veg-
ar lækkað verulega.
„Þarna var sjóðstjóri sem var að
gera hluti sem hann átti ekki að gera.
Við tökum afleiðingunum af því og
maðurinn er ekki lengur starfandi hjá
fyrirtækinu,“ segir Sigurður.
„Því er hins vegar ekki að leyna að í
sjóðnum viðgengust ákveðnar starfs-
aðferðir sem ekki voru í lagi, fyrir-
tækið hefur gengist við því og starfs-
reglum fyrirtækisins hefur verið
breytt.“
Sigurður segir fjárhagslegt um-
fang málsins hafa verið um 10 millj-
ónir íslenskra króna, sem sé ekki stór
upphæð á sænska markaðnum. „Því
held ég ekki að málið muni hafa nein
áhrif á orðstír eða afkomu fyrirtæk-
isins þar. En því er hins vegar ekki að
neita að við hefðum vel getað verið án
þessarar umfjöllunar.“
Starfsaðferðir voru ekki í lagi
Íhuguðu | 14
BREYTINGAR á skipulagi hjá Flögu hf.
munu hafa áhrif á um fjörutíu starfs-
menn fyrirtækisins hér á landi, að sögn
Boga Pálssonar, forstjóra fyrirtækisins.
Um tuttugu stöðugildi verða lögð niður
og verkefnin úthýst, og tuttugu önnur
verða færð til annarra landa. Um tuttugu
stöðugildi færast frá Íslandi nær við-
skiptavinum fyrirtækisins í Banda-
ríkjunum og Evrópu. „Flestar stöðurnar
verða fluttar til starfsstöðvar Flögu í Ott-
awa í Kanada,“ segir Bogi.
Framleiðsla, vöruhúsaþjónusta og
dreifing verður úthýst og er því ætlað að
leiða til aukinnar skilvirkni og færa
kostnað úr föstum kostnaði yfir í breyti-
legan. | 14
Hafa áhrif á
40 starfsmenn
MEIRIHLUTI bæjarstjórnar Ólafs-
fjarðar samþykkti í gær að selja Norð-
urorku Hitaveitu Ólafsfjarðar. Samn-
ingur milli Norðurorku og Ólafs-
fjarðarbæjar, frá 6. október, sem hefur
verið til kynningar og umræðu í bæj-
arráði Ólafsfjarðar á tveimur bæjar-
ráðsfundum, var lagður fram á fund-
inum en ekki myndaðist samstaða um
hann. Var hann þó samþykktur með
meirihluta atkvæða og verður hitaveitan
því seld. Kaupverðið var 535 milljónir.
Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri
Ólafsfjarðarbæjar, segist harma það að
full samstaða hafi ekki náðst um sölu
hitaveitunnar, en andvirðinu verður var-
ið til að greiða niður skuldir bæjarsjóðs.
Hitaveita
Ólafsfjarðar seld