Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI KEFLAVÍK
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd
ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
OG
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”
Vinsælasta myndin í USA og
á BRETLANDI Í dag.
H.J. / MBL
CORPSE BRIDE m/ensku tali kl. 6 - 8
FLIGHT PLAN kl. 8 - 10
WALLACE & GROMIT kl. 6
THE 40 YEAR OLD... kl. 10
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
FARÐU TIL HELVÍTIS!
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
V.J.V. TOPP5.IS
DOOM kl. 5.45 - 8 og 10.10 b.i. 16 ára
Cinderella Man kl. 5.15 - 8 b.i. 14 ára
Flightplan kl. 5.45 - 10.45 b.i. 12 ára
OKTÓBERBÍÓFEST
Drabet (Morðið) • Sýnd kl. 6 og 8
Grizzly Man • Sýnd kl. 6 og 10.20
The Merchant of Venice • Sýnd kl. 8
Voces Inocentes • Sýnd kl. 8
Tim Burton´s Corpse Bride • Sýnd kl. 10
Frozen Land • Sýnd kl. 10.45
Ótrúleg heimildarmynd um mann sem
helgar líf sitt rannsóknum á skógar-
björnum og býr meðal þeirra í fjölda
ára en er svo drepinn og étinn af þeim.
Eftir leikstjóra When a Man Loves
a Woman og Message in a Bottle.
Stórkostleg og
sannsöguleg
mynd um 11 ára
dreng sem horfi r
fram á það að
vera kallaður
í herinn eða
slást í lið með
skæruliðunum.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
Frá hÖfundi LEthal weApon.
GlettiLega gÓð og frumLEg
spEnnuGrínmynd með töFf leiKUrum.
WALLACE & GROMIT m/Ísl. tali kl. 6
FLIGHT PLAN kl. 10
CINDERELLA MAN kl. 8
MUST LOVE DOGS kl. 8
VALIANT m/Ísl. tali kl. 6
FRUMSÝNING
Robert Downey Jr.
KynLíf.
MoRð.
DulúÐ.
Velkomin
í partýið.
Val Kilmer
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
S.V. / MBL
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
The Merchant
of Venice
Í DAG kemur út fyrsta plata hljóm-
sveitarinnar Kamp Knox, A tad 6́5
Hljómsveitin hefur verið starf-
andi síðan í maí 2002 en nokkrar
mannabreytingar hafa þó orðið á
sveitinni á þessum tíma auk þess
sem hún breytti nafninu úr Hand-
some Joe í Kamp Knox en síðara
nafnið vísar víst í ákveðið bragga-
hverfi sem lengi stóð hér í borg.
Í dag skipa Kamp Knox þau Jó-
hann Ingi Benediktsson á gítar og
raddbönd, Jón Rafnar Benjamíns-
son á gítar og raddbönd, Guð-
mundur Hafsteinn Viðarsson á
bassa og raddbönd, Hinrik Þór Oli-
versson á slagverk og Gunnhildur
Vilhjálmsdóttur á harmonikku og
trompet.
Tekin upp á eyðibýli
Jóhann Ingi segir að nafn plöt-
unnar A Tad ’65 sé einfaldlega sótt í
texta eins lagsins á plötunni þar
sem sögumaður segir að sér líði „a
tad ’65. Þetta vísar í ákveðið lífs-
viðhorf,“ segir Jóhann en útskýrir
ekki frekar.
Mestur hluti plötunnar var tek-
inn upp á eyðibýli á Norðurlandi í
sumar og segir Jóhann að sveitin
hafi einfaldlega safnað saman
græjum í bíl og keyrt af stað. „Við
höfðum mikinn áhuga á að komast
í einangrun, úr símasambandi og
öðrum umhverfis-óhljóðum og
einbeita okkur að plötunni einni.“
Og það hefur virkað? „Heldur
betur. Þetta var frábær staðsetn-
ing, náttúrufegurðin fór mjög vel í
okkur og plötuna.“
Skotland og Danmörk
Tónlistin Kamp Knox hefur
verið lýst sem einskonar bræðingi
af blús, djassi og indí-rokki. Jó-
hann er spurður hvort meðlimir
sveitarinnar séu sérstaklega
menntaðir til að bera þessar stefn-
ur:
„Já og nei, það er allur gangur á
því. Sumir meðlimir eru þónokkuð
menntaðir en það er ekki þess
vegna sem tónlistin er eins og hún
er. Stefnan er frekar sú að hafa
enga stefnu og úr því þróaðist tón-
listin út í það sem hún er í dag.“
Í tilefni af útkomu plötunnar
ætlar Kamp Knox að vera með
tónleikaröð um helgina. Í kvöld
leikur hún á Sirkus kl. 22, á morg-
un leikur hún í Smekkleysubúð-
inni kl. 15 og Kaffi Hljómalind kl.
17. Á sunnudaginn verða sérstakir
útgáfutónleikar á Gauki á Stöng
sem hefjast kl. 21.
„Við munum svo spila víðar í
framhaldinu og stefnum líka á að
spila eitthvað í Skotlandi og Dan-
mörku fljótlega,“ segir hann. Það
kemur til vegna sambanda ákveð-
inna meðlima í þessum löndum en
ekki sérstaklega vegna þess að
hljómsveitin sé að þreifa fyrir sér
á erlendri grundu.
„Við ætlum bara að hafa gaman
af þessu, það skiptir engu máli
hvar maður er, eins lengi og það
er skemmtilegt.“
Tónlist | Fyrsta plata Kamp Knox lítur dagsins ljós
Stefnulaus stefna
Kamp Knox
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Í KVÖLD verða haldnir tónleikar á
vegum áhugamannafélagsins Svart-
hols. Tónleikarnir fara fram í
Gamla bókasafninu í Hafnarfirði og
hljómsveitirnar sem koma fram eru
Jan Mayen, Hoffman, Benny Cres-
po’s Gang, VaGínas, Zodogan, Atr-
um og Big Kahuna.
Í fréttatilkynningu frá Svartholi
segir að félagið standi fyrir ým-
iskonar uppákomum og að það
byggi á göfugri hugsjón um að fólk
lifi saman í sátt og samlyndi, hjálpi
hvað öðru við að gera heiminn að
bærilegum stað og að lífsgleðin fái
að njóta sín.
Tónleikarnir hefjast klukkan 19
og er frítt inn. Baukur verður þó á
staðnum þar sem frjáls framlög til
mæðrastyrksnefndar verða vel
þegin.
Tónlist | Svarthol stendur fyrir tónleikum í Hafnarfirði
Göfugir tónleikar
Jan Mayen stóð sig vel á Airwaves.
www.myspace.com/svarthol
Gamla Bókasafnið er staðsett
við Mjósund 10 í Hafnarfirði,
rétt fyrir ofan miðbæ Hafn-
arfjarðar.
Norska dreifingarfyrirtækið Fidalgo hefurkeypt sýningarréttinn að íslensku heim-
ildarmyndinni Africa United, sem frumsýnd
var hér á landi í síðustu viku.
Áætlað er að frumsýna
myndina í Noregi snemma
á næsta ári. Frank L. Sta-
vik rekur Fidalgo í Noregi
og er hann að sögn þekktur
fyrir að kynna fyrir sam-
löndum sínum verk kvik-
myndagerðarmanna sem
fara ótroðnar slóðir í sköp-
un sinni.
„Ég var svo heppinn að vera viðstaddur
sýningu myndarinnar í Karlovy Vary (kvik-
myndahátíðinni í Tékklandi) og stóð sjálfan
mig að því að lifa mig fullkomlega inn í mynd-
ina,“ sagði Stavik meðal annars og bætti við að
hann ásamt viðstöddum hefðu hagað sér líkt
og þeir væru staddir á alvöru fótboltaleik.
„Þetta er sjaldgæf upplifun og ég vissi að
það var eitthvað sérstakt við þessa mynd. Ég
ákvað því að kaupa sýningarréttinn að henni
til að geta deilt reynslunni með öðrum.“
Africa United hefur jafnframt verið seld til
sýninga til Danmerkur, Finnlands og Eist-
lands en þýska dreifingarfyrirtækið Bavaria
Film International hefur tekið að sér sölu og
dreifingu á myndinni á heimsvísu. Ólafur Jó-
hannesson er leikstjóri Africa United.
Í gagnrýni á vefsíðunni RewievedMovies-.com um vísindatryllinn The Island er ís-
lenska förðunarmeistaranum Hebu Þór-
isdóttur hrósað í hástert. Heba var
persónulegur förð-
unarmeistari aðalleikkon-
unnar Scarlett Johansson
og segir í umsögninni að
leikkonan hafi aldrei litið
betur út. „Scarlett hlýtur
að vera sammála því ég tók
eftir því að Ms. Thor-
isdottir verður persónu-
legur förðunarmeistari
hennar í væntanlegri mynd The Black
Dahlia,“ segir í textanum.
Loks segir þar: „The Island er allt í lagi
mynd. En þegar förðunarmeistarinn er það
áhugaverðasta við myndina, þá ertu ekki í
nógu góðum málum.“
Fólk folk@mbl.is