Morgunblaðið - 30.10.2005, Side 2
2 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BYKO Í URRIÐAHOLT
Fasteignafélagið Smáragarður
hyggst reisa 12.000 fm verslun-
arhús fyrir BYKO í landi Urr-
iðaholts ehf. í Garðabæ. Þá er
einnig gert ráð fyrir um 3.300 fm
verslunarhúsi fyrir raftækjaversl-
un á svæðinu. Viðræður stóðu
lengi yfir við þýsku verslanakeðj-
una Bauhaus um lóð hjá Urriða-
holti ehf., en þær báru ekki árang-
ur.
Íranar draga í land
Íranska utanríkisráðuenytið
sagði í yfirlýsingu í gær að Íranar
hefðu ekki beitt og myndu ekki
beita vopnavaldi gegn annarri
þjóð. Er ljóst að með þessu er ver-
ið að bregðast við harðri gagnrýni
um allan heim á þau orð forseta
landsins, Mahmoud Ahmadinejads,
í vikunni að „þurrka bæri Ísrael af
landakortinu“. Ráðuneytið sagði á
hinn bóginn „óviðunandi“ að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
skyldi á föstudag fordæma orð for-
setans.
Skortur á mjólk
Mikil sala á skyrdrykkjum, ost-
um og smöri hefur valdið því að
rúm er fyrir mikla framleiðslu-
aukningu í mjólk. Því er spáð að
hægt verði að selja 114 milljónir
lítra af mjólk á þessu verðlagsári.
Kúabændur eru uggandi um að
takist að framleiða upp í það
magn, en mjólkurframleiðsla hefur
dregist saman sökum lélegs tíð-
arfars sem hefur valdið verri hey-
gæðum en undanfarin ár.
Mannskætt lestarslys
Farþegalest fór út af sporinu í
sunnanverðu Indlandi í gærmorg-
un og lentu nokkrir vagnar í fljóti.
Vitað er að minnst 77 manns fór-
ust en óttast er að talan eigi eftir
að hækka. Tugir farþega lokuðust
inni í vögnum í vatninu og gekk
erfiðlega að bjarga fólkinu. Vatna-
vextir hafa verið á svæðinu síðustu
daga vegna mikilla rigninga og
mun hluti af sporunum hafa
skolast burt.
Skammar Evrópumenn
Fidel Castro Kúbuleiðtogi segir
að Evrópumenn séu hræsnarar og
þeir séu í vasanum á Bandaríkja-
mönnum. Castro er ósáttur við að
þing Evrópusambandsins skuli í
vikunni hafa heiðrað andófsmenn í
landinu með Sakharov-verðlaun-
unum. Þau eru veitt fólki sem
berst fyrir mannréttindum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 51/54
Ummæli 11 Hugvekja 54
Hugsað upphátt 23 Dagbók 58/61
Sjónspegill 28 Myndasögur 58
Menning 34/35 Staðurogstund 60
Skotveiði 34 Leikhús 62
Reykjavíkurbréf 37 Bíó 66/69
Umræðan 38/45 Sjónvarp 70
Bréf 45 Staksteinar 71
Skák 47 Veður 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SJÖTTA
SKÁLDVERKIÐ
ER KOMIÐ ÚT!
„Fólk á öllum aldri
smitast af gleðinni
… enginn ætti að láta
þennan furðufugl
fram hjá sér fara.”
Þórarinn Þórarinsson / Fréttablaðið
Geggjað grín, hörku hasar
klístrað klúður
www.jpv.is
NEMENDUR leikskólans í
Hamrabæjardeild Tjarnar-
lands á Egilsstöðum hafa
undanfarið kynnt sér menn-
ingu fjarlægra þjóðlanda.
Bryndís Skúladóttir deild-
arstjóri segir nú búið að
halda Asíudag og Afríku-
dag í þjóðaþema vetrarins.
„Við höfum kynnt okkur
ýmislegt í menningu og sið-
um þessara þjóða, hlustað á
tónlist frá þessum heims-
álfum, lært að syngja á
tungumáli þeirra, dansað
að hætti innfæddra og eld-
að matinn þeirra,“ segir
Bryndís. „Einnig heimsótti
okkur afrískur gestur.
Þemað endar um miðjan
nóvember á Ameríkudegi,
eins konar indíánadegi þar
sem haldin verður ind-
íánahátíð og foreldrum
boðið til hátíðarinnar. Þar
verður m.a. dansað og
sungið og haldin sýning á
því sem börnin hafa unnið í
þessu þjóðaþema.“
Ljósmynd/Hamrabær
Nína M. Erlendsdóttir kennari málar Stefánnýju Ósk Stefánsdóttur.
Ungviðið
lítur út
fyrir
Ísland
EKKI eru uppi sérstök áform hjá
Vegagerðinni um frekari aðgerðir
vegna sterkra vindsveipa á veg-
arkafla neðan við Gljúfurdal í
Esju, en mikil hætta skapast þar í
norðaustanátt og valt m.a. stræt-
isvagn af veginum á föstudag.
Jónas Snæbjörnsson, umdæmis-
verkfræðingur hjá Vegagerðinni,
segir að gerðar hafi verið tilraunir
í samstarfi við Reykjavíkurborg
með skjólbelti á svæðinu enda sé
þessi vegarkafli þekktur vand-
ræðakafli. „Við hófum það verk-
efni fyrir sex árum, en beltið hef-
ur ekki vaxið mikið á þeim tíma.
Við höfum verið með svona til-
raunareiti við Leirvogstungu og á
Esjumelum og þeir eru mun eldri,
um tuttugu ára. Þar er meira ver-
ið að hugsa um snjósöfnun og hafa
þeir virkað vel sem slíkir,“ segir
Jónas og bætir við að ekki séu
neinar sérstakar aðgerðir á döf-
inni núna til að leysa vandann,
enda engar einfaldar leiðir til
þess.
„Það eru til vindveggir sem
hleypa í gegnum sig 50% af vind-
inum, dálítið eins og snjósöfnunar-
girðingar, en slíkur veggur þyrfti
að vera ansi magnaður til að hann
gæti gert eitthvert gagn þarna,“
sagði Jónas.
Erfitt að taka á
vandanum neðan
Gljúfurdals
Erilsöm nótt
MIKILL erill var hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt
laugardags vegna slæmrar færðar.
Tveir árekstrar urðu í Kópavogi
á föstudagskvöld til viðbótar þeim
fimm sem orðið höfðu fyrr um dag-
inn. Fjórir árekstrar urðu í Hafn-
arfirði, þar af harður árekstur á
Álftanesveginum undir miðnætti
sem rekja má til hálku. Þar skullu
tveir fólksbílar hvor framan á ann-
an og voru bílarnir stórskemmdir.
Flytja varð þá báða burtu með
kranabíl. Engin meiðsli urðu á
fólki. Mjög annasamt var hjá
slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð-
inu vegna sjúkraflutninga, en sam-
tals fóru fram tæplega tuttugu
flutningar vegna slysa og árekstra.
Hagnaður
KB banka 34,5
milljarðar
RANGHERMT var í frétt Morg-
unblaðsins í gær að hagnaður KB
banka á fyrstu níu mánuðum þessa
árs hefði verið 35,6 milljarðar
króna. Hið rétta er að hagnaður
bankans var 34,5 milljarðar. Þá var
einnig sagt að samanlagður hagn-
aður viðskiptabankanna þriggja
hefði verið um 67 milljarðar, en
hann var um 66 milljarðar. Beðist
er velvirðingar á þessum mistök-
um.
DÓMARAR Hæstaréttar hafa ekki
setið í úrskurðarnefndum, að minnsta
kosti ekki hin síðari ár, en sitja í rétt-
arfarsnefnd, að sögn Markúsar Sig-
urbjörnssonar, forseta Hæstaréttar.
Björn Bjarnason, dómsmálaráð-
herra, sagði á aðalfundi Dómara-
félags Íslands síðastliðinn föstudag
að það virtist eðlilegt að spyrja hvort
seta dómara í ýmsum sjálfstæðum
úrskurðarnefndum eða stefnumót-
andi nefndum um löggjafarmálefni
falli að störfum þeirra. En hvað um
setu dómara Hæstaréttar í stefnu-
mótandi nefndum um löggjafarmál-
efni?
„Ég veit ekki nákvæmlega hvað
Björn á við með þeim orðum,“ sagði
Markús. „En vissulega sit ég í réttar-
farsnefnd og er formað-
ur hennar, skipaður af
dómsmálaráðherra.
Jafnframt situr vinnu-
félagi minn, Gunnlaugur
Claessen, í réttar-
farsnefnd, skipaður af
dómsmálaráðherra. Ég
man ekki í svip hvort það
eru neinir aðrir. Ingi-
björg Benediktsdóttir
hæstaréttardómari sat í
refsiréttarnefnd en ég
tel mig geta fullyrt að
hún sé hætt þar. Síðan
hafa verið mörg fleiri
dæmi. Í réttarfarsnefnd
hafa setið hæstaréttar-
dómarar og ég held að
hún hafi aldrei verið öðru vísi samsett
frá upphafi en að þar væri einhver úr
Hæstarétti.“
Björn sagði einnig í
ræðu sinni að spurn-
ingar kynnu að vakna
um hæfi dómara til að
túlka lög sem þeir
hefðu sjálfir samið, en
t.d. ekki náð fram að
ganga nákvæmlega
eins og höfundur vildi.
Markús sagði að
nær allir dómarar
Hæstaréttar hafi kom-
ið að lagasmíðum fyrr
á sínum starfsferli, áð-
ur en þeir voru skipað-
ir hæstaréttardómar-
ar, og margir eftir að
þeir voru skipaðir. „Ég
hef ekki skynjað að
neinum þyki það vandasamt í dagleg-
um störfum sínum að standa frammi
fyrir því,“ sagði Markús.
Markús Sigurbjörnsson forseti Hæstaréttar
Dómarar í réttarfarsnefnd
skipaðir af ráðherra
Markús
Sigurbjörnsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
UM 40% þátttakenda rannsóknar á
blekkingum íslenskra starfsumsækj-
enda viðurkenndu að hafa gert lítið
úr neikvæðum eiginleikum sínum
þegar verið var að sækja um starf.
Þetta kom fram í máli Leifs Geirs
Hafsteinssonar, lektors við Háskól-
ann í Reykjavík, á ráðstefnunni
Þjóðarspeglinum sem haldin var í
Háskóla Íslands á föstudag.
Fjórðungur þátttakenda sagðist
hafa gert mikið úr jákvæðum hæfi-
leikum sínum og ýkt áhuga á starfi á
umsóknum. 7% sögðust hafa ýkt
fyrri laun til að fá hærri laun, 8%
ýktu starfsreynslu og 9% gerðu
meira úr ábyrgð fyrri starfa. Einn af
hverjum sex sagðist búa yfir meiri
þekkingu en hann í raun gerði.
Hins vegar skáldaði nær enginn
starfsreynslu, viðurkenningar,
menntun eða aldur samkvæmt nið-
urstöðum rannsóknarinnar en þessir
þættir voru flokkaðir alvarlegastir í
rannsókninni. Í sambærilegri banda-
rískri rannsókn, sem er fyrirmynd
þeirra íslensku, játuðu 17% að hafa
logið til um sambærilegar upplýs-
ingar á starfsferilsskrá.
40% gera minna
úr neikvæðum
eiginleikum