Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.10.2005, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Litli prinsinn er sjöundi ættliðurGlücksborgar-ættarinnar, sem hefurverið við völd í Danmörku frá því ínóvember 1863 og leysti Aldinborg-arana af hólmi. Drengurinn er annar í röðinni til ríkiserfða á eftir Friðriki föður sínum. Litli prinsinn á væntanlega eftir að verða kon- ungur Dana og þá mjög líklega undir nafninu Kristján XI., en langalangafi snáðans, Kristján X., var síðasti konungur Íslands. Aðrir ríkiserf- ingjar eru Jóakim frændi og prinsarnir Nikolai og Felix, Benedikta prinsessa og Elísabet erfða- prinsessa, en þau færast nú öll einu sæti fjær hásætinu. Sjöundi ættliður Glücksborgara er annað og meira en lítið barn. Fyrir honum liggur að gegna hlutverki á hátt sem athugull og vandfýs- inn almenningur getur sætt sig við. Vandinn er sá að engin finnast uppsláttarritin sem hann eða foreldrar hans geta litið í til þess að finna svarið við því hvaða eiginleikum hann þarf að búa yfir og hvaða hæfni hann þarf að rækta með sér. Vitanlega er ágætis kjölfesta í 142 árum ætt- arinnar í hásætinu, en litla prinsinum mun ekki nægja að beita fyrir sig því sem gerði hina kon- unglegu forfeður hans að duglegum og vinsæl- um þjóðhöfðingjum. Hann verður að finna sér sitt eigið hlutverk í samfélagi í stöðugri þróun – finna jafnvægið milli þess tignarlega og þess al- þýðlega. Friðrik krónprins tjáði sig tæpitungulaust um þessa sérstöku framtíð litla prinsins og þær mörgu skyldur sem bíða hans þegar fram líða stundir, þegar hann sagði stórum hópi blaða- manna, ljósmyndara og dönsku þjóðinni frá fæð- ingu frumburðarins: „Hann hefur ekki grun um hvað bíður hans,“ sagði krónprinsinn um átta klukkustunda gaml- an soninn á blaðamannafundi í anddyri Ríkis- sjúkrahússins. Og það er enginn vafi á því að krónprinsinn veit hvað hann er að tala um. Milt og ástríkt uppeldi Ljóst er að almenningur mun fylgjast grannt bæði með þroska litla prinsins og því hvernig foreldrar krónprinshjónin verða. „Afdrif konungdæmisins velta miklu meira á einstaklingum en hér áður fyrr,“ segir sagn- fræðingurinn Steffen Heiberg. „Þess vegna skiptir uppeldið svo miklu máli. Vissulega er þetta skelfilegt álag á lítið barn og þetta verður ekki auðvelt mál. Þegar hirðin var stjórnmála- legur miðdepill sauð allt og kraumaði að tjalda- baki. Í dag langar menn til að vera með í innsta hring vegna snobbs og til þess að fá af sér mynd- ir í Billed-Bladet. Margir eiga eftir að vera óð- fúsir til þess að nálgast barnið og allflestir þeirra með það fyrir augum að ota eigin tota.“ Rétt eins og í öllum öðrum fjölskyldum mun líka verða breyting á barnauppeldi milli kyn- slóða og flestir nýbakaðir foreldrar þekkja þá tilfinningu að sumt úr eigin uppeldi ætlar maður fyrir alla muni ekki að endurtaka. Friðrik krón- prins er þar engin undantekning, en undanfar- inn áratug hefur hann oft látið í það skína að for- eldrar hans hafi verið strangir uppalendur og að æska hans hafi ekki verið neinn dans á rósum. Hann hefur sagt frá því hve einmanaleg bernska hans var og hve mjög hann leitaði til ömmu sinn- ar, Ingiríðar drottningar. Það var svo þegar Friðrik hélt ræðu í silfurbrúðkaupi foreldra sinna árið 1992 að öll danska þjóðin stóð á önd- inni við þessi orð krónprinsins: „Pabbi, sagt er að maður agi þann sem maður elskar. Við bræðurnir drógum aldrei ást þína í efa. Hún átti að vísu til að vera svolítið yfirþyrm- andi og tilviljanakennd. Sem barn var ég oft mjög varnarlaus gagnvart rökfestu þinni, en þú hvattir okkur til þess að ræða öll mál niður í kjölinn og kenndir mér þannig að taka engu sem gefnu, að vera gagnrýninn. Í dag tel ég þetta veita mér mikinn styrk.“ Á bernskuárum Friðriks og Jóakims voru tjá- skiptin við foreldra þeirra alfarið einhliða. Hraustur strákur átti að geta setið á hestbaki og útgeislun prinsa átti að vera „karlmannleg“. Líklega verður Kristján litli aldrei settur há- grátandi upp á hest fimm ára gamall og haldið þar, þar til ljósmyndarar eru búnir að ná mynd af honum, eins og Friðrik faðir hans varð að þola. Hinrik prins hefur misst út úr sér að börn eigi að ala upp af festu og kærleika, á sama hátt og hunda, og Margrét drottning hefur látið hafa eftir sér að hún hafi ekki verið góður uppalandi, heldur þvert á móti verið óþolinmóð og sjálfri sér ósamkvæm. Sem nútímaforeldrar hafa Friðrik og Mary fyrir löngu látið í það skína að þau muni taka for- eldrahlutverkið hátíðlega. Friðrik vill ekki missa af traustu sambandi sonar og föður og Mary ætl- ar líka að láta móðurhlutverkið njóta forgangs. Nýbökuðu foreldrarnir þurfa þó að gæta sín á því að hafna ekki of mörgum opinberum uppá- komum vegna þess að þau fái ekki pössun. Þá eru þau að vanrækja starf sitt og glata við það virðingu þjóðarinnar. Þau þurfa að halda nálægð við þjóð sína og um leið hinni konunglegu fjar- lægð. Án fjarlægðarinnar fæst engin virðing og án nálægðar finnst þjóðinni hún ekki fá neitt fyr- ir snúð sinn. Hvað á barnið að heita? Hjónin hafa ekki viljað tjá sig um hvaða nafn á að gefa frumburðinum, en ef konunglegu hefð- inni er fylgt kemst sá stutti varla hjá því að heita Kristján. Meðal hinna þriggja nafnanna gætu verið Hinrik eftir föðurafa prinsins og Friðrik eftir pabba hans. Ekki er talið líklegt að litli prinsinn verði skírður John, í höfuðið á móðurafa sínum, en ef litið er til sona Alexöndru prinsessu hefur ekki verið hefð fyrir því að nota nöfn úr fjölskyldu móðurinnar. Engar reglur eru til um hvað hin konung- bornu börn eiga að heita, né heldur um að kon- ungar og drottningar verði að taka sér nöfnin Kristján, Friðrik eða Margrét til þess að öðlast hásætið. Nöfnin undirstrika einungis tengsl við- komandi við ættarveldið og konungdæmið. Síðan um miðja nítjándu öld hefur einnig verið hefð fyrir því í konungsfjölskyldunni að flétta söguleg nöfn á við Dagmar, Thyra, Valdemar, Haraldur, Ingeborg, Margrét, Knútur, Eiríkur, Gorm og Ólafur inn í nafnaröðina. Próf úr kóngaskóla Litli prinsinn á góða framtíð í vændum heima fyrir, en væntingarnar til hans verða líka miklar. Krafa þjóðarinnar verður sú að hann verði bæði alþýðlegur og afar sérstakur, konunglegur og smáborgaralegur, fáránlegur og tignarlegur. Hann verður að vera ævintýraprins, en þjóðin þarf líka að geta speglað sig í honum eins og um hvern annan borgara væri að ræða. Þegar að því kemur að hann fer að huga að framhaldsmenntun verður val hans, bæði aka- demískt og það sem lýtur að „prinsafaginu“, veg- ið og metið af fjölmiðlum. Bæði Margrét drottn- ing og Friðrik krónprins lásu stjórnmálafræði og miklar líkur eru á því að litli prinsinn muni líka gera það, því konungur má ekki gera fávísleg glappaskot sem gætu sett konungdæmið í hættu. Samkvæmt dönsku stjórnarskránni er þjóðhöfð- ingi landsins yfirmaður hersins og þess vegna þarf litli prinsinn líka að vera með menntun úr herskóla. Þótt konungdæmið hafi misst stjórnmálaleg völd þegar einveldið var lagt af 1848 er það ennþá holdgervingur allrar sögu þjóðarinnar og hefða. Það verður verkefni komandi konungs að missa þetta ekki úr höndunum. Hann verður einfald- lega að hegða sér þannig að stofnunin lendi ekki í kreppu. Prinsinn verður líka að kunna réttu hirð- siðina frá barnsaldri. Almenningur á eftir að fylgjast mjög grannt með honum og það er ekki nóg með að tekið verði eftir glappaskotum hans, þau verða blásin upp. Það er nokkuð ljóst að fjöl- miðlar munu ekki lengur halda verndarhendi yfir konungsfjölskyldunni og veita henni þá friðhelgi sem áður tíðkaðist. Nú eru allt of miklir peningar í tafli fyrir ljósmyndara sem nær mynd af vand- ræðalegri uppákomu, sem síðan er hægt að selja um allan heim. Nýbökuðu foreldrunum tókst þó að „plata“ pressuna hvað fæðinguna varðaði. Þau ákváðu nefnilega að tilkynna ekki um fæðinguna fyrr en hún var afstaðin og litli prinsinn lá og svaf við brjóst móður sinnar. Stórættaður snáði Báðir langafar prinsins voru konungar, annar af Danmörku, hinn af Svíþjóð, amma hans er ríkjandi drottning Danmerkur og pabbi hans er krónprins. Ef farið er neðar í ættartréð er þar að finna bæði Elísabetu og Viktoríu Englands- drottningar, auk Kristjáns IX., „tengdaföður Evrópu“, en afkomendur hans sitja nú í hásætum Danmerkur, Noregs, Englands, Belgíu, Lúxem- borgar og Spánar, auk þess sem afkomendur hans hefðu verið þjóðhöfðingjar í Rússlandi, Grikklandi, Rúmeníu og Júgóslavíu hefðu kon- ungdæmin þar ekki verið lögð niður. Ef marka má höfunda Heilags blóðs, helgs grals og Da Vinci-lykilsins er litli prinsinn þó um- talsvert stórættaðri en þeir sem „einungis“ erfa konungsríki er mölur og ryð fá grandað, vegna þess að föðurafi hans, Henri de Monpezat, er af- komandi Merovinganna, sem metsöluhöfund- arnir keppast við að segja okkur að séu í ætt komnir af konungi konunganna – Jesú Kristi, og Maríu frá Magdala. Hvað sem þessum vangavelt- um höfundanna líður eru ástralska mamman og danski pabbinn bæði glæsilegt og geðþekkt fólk sem ekki er hægt annað en að samgleðjast. Vel- kominn í heiminn, litli vinur. Sonur er oss fæddur AP María krónprinsessa Dana með soninn á tröppum Ríkissjúkrahússins í Kaupmannahöfn. Hún segir bestu gjöfina sem foreldrar geti gefið börnum sínum vera gott verðmætamat. Börn eigi skilið að á þau sé hlustað og þau finni að borin sé virðing fyrir hugmyndum þeirra og skoðunum. Friðrik krónprins Dana og Mary krónprinsessa hafa uppfyllt væntingarnar sem Glücksborgar- ættarveldið gerir til þeirra: Þau eru búin að tryggja erfðaröðina og Dan- ir þurfa nú ekki að hafa áhyggjur af arftaka Margrétar drottningar næstu fimmtíu árin. Þórdís Bach- mann fjallar um krónprinsinn. Friðrik og Mary um foreldrahlutverkið Mary: Ég verð útivinnandi móðir, en ég ætla að vera 100 prósent móðir. Börnin mín eiga ekki að alast upp af barnfóstr- um. Það kemur hreinlega ekki til greina. Friðrik: Börnin mín eiga að fá mildara uppeldi en ég fékk og ég ætla að vera miklu meira með þeim, en foreldrar mínir voru með mér. Mary: Aginn þarf að vera til staðar, en bezta gjöf- in er gott verðmætamat. Börn eiga skilið að á þau sé hlustað og að þau finni að borin sé virðing fyrir hugmyndum þeirra og skoðunum. Friðrik: Ég vildi óska að ég gæti eignast einn svona. Hann er stórkostlegur krakki, með alveg frábæran harðan disk, eins og sagt er á tölvu- máli. (Um bróðursoninn Nikolai prins.) Mary: Börn geta krafist alls þess sem foreldrar þeirra krefjast af hjónabandinu. Börn geta krafist ástar, stuðnings, verndar, skilnings og trausts og hamingju líka. Ætt Glücksborgara Kristján IX, konungur Danmerkur frá 1863, kvæntur Lovísu prinsessu af Hessen-Kassel. Friðrik VIII, konungur frá 1906, kvæntur Lovísu Svíaprinsessu. Kristján X, konungur Danmerkur frá 1912 og Íslands frá 1918, kvæntur Alexandrínu hertogaynju af Mecklenburg-Schwerin. Friðrik IX, konungur frá 1947, kvæntur Ingiríði Svíaprinsessu. Margrét II, drottning frá 1972, gift Henri de Monpezat. Friðrik krónprins, fæddur 1968, kvæntur Mary Elizabeth Donaldson 2004. Kristján prins, fæddur 15. október 2005. Friðrik Danaprins sýnir stærð nýfædds sonar. Höfundur er áhugamaður um dönsku konungsfjöl- skylduna og þýðandi bókarinnar Margrét, sem kem- ur út nú fyrir jólin og fjallar um Danadrottningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.